Þjóðviljinn - 07.01.1984, Blaðsíða 4
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgúi 7.-8. janúar 1984
Slœmar konur kvelja okkur,
góðar konurþreyta okkur. Það
er nú eini munurinn áþeim.
Oscar Wilde
„ Vertu
goðra vona
skjól“
Guðmundur skólaskáld
Guömundur Guðmundsson skóla-
skáld var í miklum metum á fyrri hluta
aldarinnar og er það að mörgu leyti
enn. Þar sem ísland er um þessar
mundir í miklum vetrarham er rétt að
koma með nokkrar vorvísur eftir Guð-
mund:
Blessað vertu’ og velkomið,
vorið yndisbjarta!
Nú er mér sem finni ég frið
°g fjör í mínu hjarta.
Komþú sælt með sólarljós,
sumarylinn hlýja;
kom þú heilt með hverja rós,
hjartans gleði nýja!
Gylltu voga, lýstu lönd,
Ijómaðu á brúnum fjalla,
leggðu gull í hverja hönd,
huggaðu og gleddu alla!
Vertu góðra vona skjól,
vaggaðu hverju barni,
láttu þína Ijúfu sól
Ijóma að hverjum arni!
Blessað vertu og velkomið,
vorið yndisbjarta,
þú, sem alltaffró og frið
fyllir sérhvert hjarta!
Og að lokum lítil staka eftir Guð-
mund skólaskáld
Yfir grund er orpið snjó,
álftir á sundi kvaka,
meðan blunda bljúg í ró
blómin undir klaka.
Við erum
vekj ar aklukkan
í viðtali í útvarpinu eftir snjóflóðið úr
Kubbanum á Isafirði sl. miðvikudag
hrósaði fréttaritari útvarpsins á staðn-
um mjög samstarfi heimamanna við
Hafliða Helga Jónsson veðurf ræðing á
Veðurstofunni. Hafliði hefurmeð
snjóflóðarannsóknir og snjóflóðaspár
að gera. Við gengum á fund hans til að
forvitnast um þetta starf hans.
- Hefur þú sérmenntað þig í snjóflóðum,
Hafliði?
- Nei, ég kom heim frá námi í Bandaríkj-
unum árið 1979 og var þá settur í þetta þó að
ég hefði aðeins verið í almennu veðurfræði-
námi.
- En einhverjar formúlur hljóta að gilda í
sambandi við snjóflóð?
- Það er ekki unnt að segja að hægt sé að
styðjast við neinar patentlausnir. Við höf-
um þó söguna til að styðjast við og búum
betur en margar aðrar þjóðir í þeim efnum.
Það var maður norður á Akureyri, Ólafur
Jónsson, sem tók að skrá snjóflóð allt aftur
tii ársins 1171 og las bókstaflega allt sem
• hægt var að lesa sér til um þau og árangur-
inn var bókaflokkurinn Skriðuföll og
snjóflóð sem er hinn merkasti. Síðar kom
Sigurjón Rist til samstarfs við Ólaf og vann
snjóflóðaannál með honum fyrir árin 1958-
1972 og Sigurjón skrifaði svo einn snjó-
flóðaannál 1972-1975. Síðan hefur Veður-
stofan séð um að skrá snjóflóð og haft t.d.
mikið samráð við Vegagerðina í þeim efn-
um og eins hefur Veðurstofan lagt fyrir ein-
staka veðurathugunarmenn að fylgjast
með.
- En samband hlýtur þó að vera milli
ákveðins veðurfars og snjóflóðahættu?
- En samband hlýtur þó að vera milli
ákveðins veðurfars og snjóflóðahættu?
- Já, við reynum hér að finna tengslin
milli veðurs og snjóflóða. Það er nokkuð
ljóst hvaða veðurfyrirbæri valda snjóflóð-
um á ákveðnum svæðum en við hér í
Reykjavík getum hins vegar ekki metið
hættuna t.d. í ákveðnu gili. Heimamenn
þurfa að gera snjómælingar og fylgjast með
veðrinu þegar fyrrnefnd veðurskilyrði eru
fyrir hendi.
- Hafið þið ákveðna menn til að fylgjast
með snjóflóðum úti á landi?
- Þeir eru aðeins komnir á fjórum stöð-
um. Fyrst var skipaður maður í Neskaup-
stað eftir snjóflóðin þar og síðan hafa bæst
við menn á Siglufirði og svo á Patreksfirði
og ísafirði eftir flóðin á Patreksfirði í fyrra.
- Var búið að gera einhverjar varúðar-
ráðstafanir þegar snjóflóðið féll úr Kubb-
anum á ísafirði á miðvikudag?
- Strax um morguninn hafði sýslumaður
hringt í mig og sagði að almannavarnar-
nefnd væri á varðbergi og vildi ráðfæra sig
við mig hvar væri helst hætta á þessum slóð-
Hafliði: Lítið fjármagn fæst til
vamaraðgerða. — Ljósm.: eik
Viðtal við Hafliða Helga
Jónsson veðurfrœðing sem
annast snjóflóðavarnir á
Veðurstofunni
um. Það var suðaustan og austanátt á Vest-
fjörðum og þá eru það einkum tvær hlíðar á
fsafirði sem liggja þannig við þessari átt að
hætta er á ferðum. Það eru einkum hlíðar
sem snúa undan vindi sem safna á sig snjó
og í miklum vindi skefur óskaplega hratt í
þær ef lausamjöll er á jörðu. Venjulega er
það samt NA-átt sem er hættulegust og ef
hún hefði verið ríkjandi á miðvikudag hefði
verið allsherjarsnjóflóðahætta um alla
Vestfirði.
- Þetta var kallað flekahlaup. Hvað er
það?
- Við skiptum flóðum einkum í tvo
flokka, annars vegar flekahlaup og hins
vegarlausasnjóflóð. f fyrri flóðunum losnar ,
stór fleki úr hlfð, fer af stað og ryður öllum á
undan sér og valda þau yfirleitt meiri skaða
en hin. Þau síðarnefndu byrja í einum
punkti og breiða úr sér. Þau líta út eins og
öfugt vaff í hlíðunum.
- Hvers konar frumkvæði hefur þú þegar
hætta er á ferðum?
- Þegar mér er farið að lítast illa á hlutina
hef ég samband við Almannavarnir ríkisins
og þær hafa svo samband við nefndir á ein-
stökum stöðum sem sjá til þess að gerðar
séu staðbundnar athuganir. Þetta starf hér
á Veðurstofunni er því eins og vekjara-
klukka á menn. Menn hafa oft verið ansi
sofandi fyrir þessari hættu en eru nú orðnir
meira á varðbergi.
- En verða menn ekki að hafa ákveðna
kunnáttu til að meta hættuna á einstökum
stöðum?
- Jú, bæði almannavarnir og björgunar-
sveitir hafa farið um landið og þjálfað menn
eitthvað upp og stefnir það í rétta átt. Það
þyrftu þó að vera sérstakir athugunarmenn
á ýmsum smærri stöðuna. Það er þó aldrei
hægt með aðvörunum hægt að tryggja
mannvirki og jafnvel ekki mannslíf því að
þetta byggist alltaf á mati hverju sinni. Það
þarf að byggja upp varnarmannvirki þar
sem hætta er á ferðum en lítið er gert af því.
í fyrra féll snjóflóð á Bíldudal og tók stykki
úr varnargarði sem byggður hafði verið og
hefur það vafalaust dregið mjög úr krafti
flóðsins. Það fór þó alveg niður undir byggð
og tók með sér tvö fjárhús.
- Er ekki víða byggt á hættustöðum?
- Jú, það er mjög víða byggt í farvegum
snjóflóða. Það er mikið verk að rannsaka
farvegi sem þekktir eru og einnig líklega
farvegi því að alltaf eru að falla flóð á stöð-
um sem ekki var vitað um áður. Skipulag
ríkisins er farið að merkja þá staði sem ekki
má byggja á og í lögum stendur að ekki
megi byggja þar sem vitað er að snjóflóð
hafi valdið tjóni. En svo byggja menn alveg
á mörkum fyrri snjóflóða og nýtt flóð getur
náttúrulega eins fallið þar. (
-GFr
Svona leit Austur-
stræti út að vetrar-
lagi fyrir árið 1915.
Á miðri götu má sjá
hestsleða. Anddyri
íslandsbanka er enn
Aust urstr ætismegin.
Að myndin er tekin
fyrir 1915 má m.a.
markaafþvíað
vinstra megin má sjá
í gaflinn á stórhýsi
, Th. Thorsteinsson
sem brann í bruna-
nummikla það ár.