Þjóðviljinn - 07.01.1984, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 07.01.1984, Blaðsíða 11
Helgin 7.-8. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 Einar Vilhjálmsson Útróðrar Færeyinga við ísland Nokkru fyrir síðustu aldamót og fram á þessa öld stunduðu margir Færeyingar útróðra héðan á opn- um bátum. í byrjun voru þetta ára- bátar með seglbúnaði en síðar komu trillur til sögunnar. Þessir útróðrar Færeyinganna hófust á Seyðisfirði um miðjan átt- unda tug nítjándu aldar en með hverju ári fjölgaði í þessum útvegi þeirra og um aldamótin eru þeir orðnir fjölmennir og dreifðir um alla Austfirði, frá Fáskrúðsfirði til Langaness. Það er athyglisvert að á þeim árum sem íslendingar eru að yfir- gefa landið í stórum hópum vegna bjargarskorts, hefst hér blómleg útgerð Færeyinga. Vertíð færeysku útróðrarmann- anna stóð frá því seint í maí og fram í september. Þeir komu með vorskipunum, ýmist gufuskipunum eða færeysku skútunum sem fiskuðu hér við land. Á haustin drógu þeir báta sína á land tyrfðu þá gjarnan eða gengu frá þeim tryggilega á annan hátt. Sumir tóku báta sína með sér heim. Lendingar og verbúðir leigðu Færeyingar af landeigendum og öðrum eigendum verðstöðva. Leigan fyrir aðstöðuna var tíundi partur af afla. Sumir bændur höfðu verulegar tekjur af þessum viðskiptum. Á Brimnesi við Seyðisfjörð voru eftirtaldar verbúðir og lendingar: Þorsteinsskálahöfn, Brimberg, Borg, Borgarhóll og Hrólfur. Einnig var útræði frá Skálanesi sunnan fjarðar. Oft var bátafjöld- inn í Brimnesbyggð á bilinu frá tut- tugu til fjörutíu, bæði íslenskir og færeyskir. Útróðramenn völdu lendingar utarlega í fjörðum sem næst fiskimiðunum. Helstu út- róðrastaðir Færeyinga voru á Fá- skrúðsfirði, Vattarnesi, Hafnar- nesi,Vöðlávík, Skálanesi, Brimn- esi, Borgarfirði, Vopnafirði, Bakkfirði og Skálum á Langanesi. Nú stendur yfir á vegum Ljósmyndasafnsins sýning á gömlum Ijósmyndum á Seyðis- firði og er hún unnin fyrir til- stuðlan menntamálaráðuneytis- ins. Sýningin er tvískipt. Annars vegar er um að rœða þróunar- sögu Ijósmyndunar í máli og á myndum og hins vegar sýningu á gömlum Ijósmyndum frá Seyðisfirði. Pað er Einar Vil- hjálmsson, sem skrifar þessa grein hér á síðunni, sem manna mest hefur unnið að því að safna saman gömlum Ijósmyndum frá Seyðisfirði og víðar. Á Bakkfirði var bátafjöldi Færey- inga á árunum 1919-1922 um og yfir 30 talsins. Hinn 6. júní 1890 birtir „Föring- atíðindi" þessa frétt af útróðri við ísland: „Til íslands eru í ár farnir fleiri útróðramenn en venjulega. Sumir fóru til Vesturlandsins sem ekki hefur skeð áður. Póstskipin, ful- briggarinn „Enighed“ og gufu- skipið „Uiler“ sem Wathne leigir, flytja fólk og báta frá Færeyjum til íslands. Skipið „Föringur“, sem hefur fengið aukna yfirbyggingu í Svíþjóð, fer á næstu dögum til ís- lands með fólk, báta og farm. Nokkrar konur eru farnar héðan til íslands að vinna í saltfiski. Áætl- að er að sá fjöldi fólks, sem fer til íslands frá Færeyjum, verði nálægt þúsund“. Þann 7. júlí sama ár má lesa í sama blaði tilvitnun í blaðið „ísafold", að íslendingar óttist ágang Færeyinganna. íslendingar reyndu að verjast þessari innrás en árangurslaust og grunnmiðin, sem voru á þessum tíma eini fangstaður heilla landshluta, voru ofsetin af Færeyingum. (Heimildir: Til Iands eftir Sámal Jó- hansen. Sveitir og jarðir í Múlaþingi eftir Ar- mann Halldórsson. Litið til baka eftir Matthías Þórðarson.) Lendingin á Skálum á Langanesi. Myndin er tekin um 1920. Verslunin Alda á Skálum á Langanesi en Stefán Th. Jónsson á Scyðisfirði átti hana. Ef einhver kannast við piltana tvo væri vel þegið að upplýsingar um þá yrðu sendar á Þjóðviljann. Verbúðir í Brimnesbyggð við Seyðisfjörð. Myndin er tekin fyrir aldamót, áður en vélbátar komu til sögunnar. Lengst til vinstri sést sjóhús Páls Árnasonar að Hrólfi en lengra til hægri, fyrir miðri mynd, er Borgarhóll. Báturinn fremst á myndinni er með færeysku lagi. Á Þórarinsstaðaeyrum við Seyðisfjörð var smásjávarþorp en það fór í eyði upp úr seinni heimsstyrjöldinni. Fjöllin eru Flanni, Bægsli og Hánefsstaðafjall en dalurinn á milli heitir Salteyrardalur. Skálar á Langanesi. Útróðrastaður framundir 1945. Þaðan reru m.a. Færeyingar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.