Þjóðviljinn - 07.01.1984, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 07.01.1984, Qupperneq 13
Helgin 7.-8. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 en það voru þeir sem stóðu fyrir mótmælaaðgerðunum. Á farfuglaheimilinu var fólk af ýmsu þjóðerni og menn notuðu innilokunina til að kynnast. Ein- hvern tíma seinnipartinn hef ég sest niður og skrifað eftirfarandi: Aþena, 17.11 1973. I gærkveldi loguðu bálkestir á götum í miðborginni. í dag var sól og lögreglan labbaði um í stórum ^hópum og lamdi fólk. Núna rétt ;áðan komu skriðdrekarnir og síðan Ihefur skothríðinni ekki linnt“. Eftirminnileg sjón Daginn eftir lögðum við af stað fyrir hádegi. Forvitnin rak okkur í átt til miðborgarinnar. Þar var fátt um fólk á götum. Á torgum og gatnamótum hafði verið komið fyrir brynvögnum og hermenn voru í flokkum umhverfis þá. Aðrir gengu fylktu liði um göturnar. Ein- hvern veginn vildi svo til að leið okkar lá framhjá Verkfræðiháskól- anum. Þar blasti við eftirminnileg sjón. Hermenn voru á verði við hliðið en hliðgrindin, sem var úr járni, lá flöt inn og undir henni var útflattur fólksbíll. Þar hafði skrið- dreka verið ekið inn á skólalóðina. Ég man að ég sá ungan mann koma gangandi eftir götunni. Einn hermaðurinn veittist að honum með skömmum og sló til hans og sparkaði í hann en hann forðaði sér á hlaupum. Þessa stundina nutum við þess líklega hve framandi við vorum í útliti. Skriðdreki á fullri ferð í Aþenu meðan átökin stóðu sem hæst. Við stefndum í átt til Akrópólis því þaðan vissum við að best mundi sjást um miðborgina. Þegar við nálguðumst hæðina vorum við stöðvaðir af hermönnum. Þeir höfðu veitt athygli skátakuta sem einn okkar bar við belti sér. Var hnífurinn mældur vandlega og okk- ur tjáð að meðan herlög væru í gildi mætti enginn bera hnífa með of löngu blaði. Við fengum þó að halda áfram og mig minnir að við höfum haldið hnífnum. Þegar við vorum alveg að kom- ast upp á hæðina byrjaði skyndi- lega skothríð niðri í miðborginni. Hermönnunum á hæðinni hefur sjálfsagt ekki þótt rétt að leyfa ferðafólki að horfa á aðfarirnar því allir voru reknir niður hæðina. Var fólki sagt að ekki mundi verða opn- að aftur þennan dag. Við fórum aðra leið til baka. Einhvers staðar á leiðinni mættum við ungu fólki sem grátbað okkur að koma á sjúkrahús og selja blóð. Það sagði okkur að sjúkrahúsin væru full af slösuðu fólki sem hefði orðið fyrir misþyrmingum, og margir hefðu verið drepnir. Mig minnir að boðnir hafi verið 30 doll-] arar fyrir lítrann. Seinni hluta þessa dags notuðum við til að heimsækja íslenska konsúlinn í Aþenu til að leita ráða varðandi ferðatékkana. Konsúll- inn er kvæntur íslenskri konu og nutum við gestrisni þeirra. Sagði hann okkur hvert við ættum áð snúa okkur til að fá aftur til umráða þann gjaldeyri, sem glatast hafði,t og leiðbeindi okkur á ýmsan hátt. Við urðum að yfirgefa þessa ágætu fjölskyldu um kl. 6 til að ná til far- fuglaheimilisins fyrir kl. 7 en þá tók útgöngubann gildi þann dag. Næstu daga smá slaknaði á spennunni í borginni. Utgöngu-j bannið færðist til kl. 10 og við frétt- um að Papotopólus hefði verið settur í stofufangelsi. Það tók nokkra daga að endurheimta ferðagjaldeyrinn og við notuðum tímann til að skoða borgina og um- hverfi hennar og reyna að fá pláss á flutningaskipi í hafnarborginni Pir- eus. Leit það vel út um tíma en einn daginn var okkur sagt að sett hefðu verið lög sem fyrirskipuðu að Grikkir skyldu ganga fyrir um alla vinnu í landinu. Við vorum þarna komnir í hálfgerða sjálfheldu þar sem fjárhagur okkar takmarkaði mjög valkosti. Okkur tókst þó með brögðum að komast sem sjálfboða- liðar til ísrael þar sem við dvöldum næstu 5 eða 6 mánuði en það er nú önnur saga. Sveinbjörn Jónsson Súgandafirði Þii getiir fengió eitthvaó af omim króna frá olckur ánæsta ári Hvemig? Já það er ekki nema von þú spyrjir — jú með því að eiga miða hjá okkur. Heildampphæð vinninga er tæpar 56 milljónir króna og hún fer til þeirra sem eiga miða. — En jafnvel þó þú eigir miða er ekki víst að þú fáir vinning — þá kemur til heppninnar. Með smá heppni og hundraðkalli á mánuði getur þú hlotíð vinning. Við drögum þann 10. janúar. Happdrætti SÍBS 'fiP'

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.