Þjóðviljinn - 07.01.1984, Page 27
Jt.fr & r . ,
•*' •' <’<• ” 'ÞJÓÐV1LJ11>/N - SÍÐA 27
Ottó N. Porláksson frá veiðum í nokkrar vikur:
\ 15 tíma fundur í borgarstjórn:
Allar tillögur minni-
hlutans voru felldar
Eftir 15 tíma fundarsetu af-
greiddi borgarstjórn Reykjavíkur í
gærmorgun fjárhagsáætlun borg-
arinnar fyrir nýbyrjað ár. Var
áætiunin samþykkt með 12 at-
kvæðum Sjálfstæðisflokksins og
voru allar breytingatillögur minni-
hlutans felldar.
Þó minnihlutaflokkarnir fjórir
flyttu engar sameiginlegar tillögur
við afgreiðslu áætlunarinnar var
gagnrýni þeirra öll á einn veg: að
áætlunin einkenndist af skulda-
söfnun í kjölfar Grafarvogsævin-
týrsins, óheyrilegri skattálagningu
og stórhækkuðum þjónustugjöld-
um. Margar breytingatillögur
flokkanna voru keimlíkar, einkum
Alþýðubandalags og Kvenna-
framboðs, en allir lögðu flokkarnir
til að dregið yrði úr framkvæmdum
á Grafarvogssvæðinu og peningun-
um varið í annað en að stækka
lóðabankann þar.
Hér skulu nefndar sem dæmi ó-
líkar tillögur frá hverjum minni-
hlutaflokki fyrir sig, en eftir helg-
ina verður skýrt nánar frá fundin-
um.
Alþýðubandalagið lagði til að
borgarstjórn legði 3 miljónir króna
til endurbyggingar og varðveislu
gamalla húsa í eign borgarinnar á
árinu. í greinargerð er bent á að
mörg hús í eigu borgarinnar hafa
mikið menningar- og byggingar-
sögulegt gildi og sé nauðsynlegt að
miða að því að á næstu 5-8 árum
verði þeim komið í viðunandi horf
undir eftirliti Árbæjarsafns. Skal
fjármagninu haldið aðgreindu frá
venjulegu viðhaldsfé fasteigna.
Kvennaframboðið lagði til að
greiðslur vegna matar- og kaffi-
neyslu borgarfulltrúa, borgarráðs-
manna og annarra fulltrúa í nefnd-
um og ráðum borgarinnar verði
framvegis ekki inntar af hendi úr
borgarsjóði heldur frá fulltrúum
sjálfum. Ennfremur að bifreiða-
styrkir borgarfulltrúa og borgar-
ráðsmanna verði felldir niður.
Aðrir borgarstarfsmenn greiða
sinn mat sjálfir á vinnustað.
Framsóknarflokkurinn lagði til
að hönnun nýs skóla í Vesturbæn-
um yrði lokið snemma á þessu ári,
þannig að hægt verði að bjóða
verkið út strax í haust. Með því
móti væri hægt að hefja þar
kennslu haustið 1985. Samkvæmt
núverandi áætlun hefur fram-
kvæmdum verið frestað til 1986,
sem þýðir í raun að þar getur
kennsla fyrst hafist haustið 1988.
Alþýðuflokkurinn lagði til að
borgarstjórn setti á stofn sérstakan
lánasjóð með 40 miljón króna
framlagi til þess að lána íbúðaeig-
endum og húsbyggjendum sem nú
eru í stórhættu með að missa íbúðir
sínar. Gert er ráð fyrir í tillögunni
að borgarráð setji nánari reglur um
úthlutun úr sjóðnum.
Allar voru þessar tillögur felld-
ar, svo og fjölmargar aðrar sem
fyrr segir. _ Ál.
Styrkir borgarinnar naumt skammtaðir:
brúnni
Burðarbitar
Dældirnar á stýrishúsinu til vinstri
en á myndinni tii hægri sést hvar
verið er að rífa loftið í því til að
lagfæra skemmdir sem þar urðu.
Ljósm.: -eik.
bognir
Mesta aflaskip Bæjarútgerðar
Reykjavíkur, Ottó N. Þorláksson
mun verða frá veiðum í nokkrar
vikur í kjölfar skemmda sem urðu á
brú skipsins á fímmtudagsmorgun,
þegar brot gekk yfír það.
Brynjólfur Bjarnason nýráðinn
forstjóri BÚR sagði síðdegis í gær -
að skemmdirnar hefðu því miður
reynst jafn miklar og menn hefðu
óttast; dældin á brúnni hefði ekki
aðeins verið utaná plötunum eins
og allir hefðu vonað, heldur hefði
við nánari skoðun komið í ljós að
burðarbitar höfðu svignað undan
krafti brotsins.
Brynjólfur sagði að enn hefði
ekki gefist tóm til að meta heildar-
tjónið í peningum talið, en öll tæki í
brúnni lentu á kafi í sjó auk fyrr-
nefndra skemmda. Það var mesta
happ að stýrimaðurinn sem var í
brúnni þegar ólagið gekk yfir slapp
óskaddaður.
Ottó N. Þorláksson er smíðaður
í Stálvík 1980 og er nýjasta skip
BÚR.
-ÁI.
Ibúasamtökin fá 6.500 krónur
3,5 milljónir í kirkjubyggingar
Styrkir Reykjavíkurborgar tU fé-
lagasamtaka eru naumt
skammtaðir í ár. Hækka þeir flestir
á bilinu 20-35% og dæmi eru um
lækkun í krónutölu og hreinan
niðurskurð. Átaldi Sigurjón Pét-
ursson þessa ákvörðun meirihlut-
ans á borgarstjórnarfundi í fyrra-
kvöld og kallaði nánasarlega, en
sem dæmi má nefna að íbúasam-
tökin fá nú 6.500 krónur hvert fé-
lag. Aiþýðubandalag og Kvenna-
framboð fluttu allmargar breyt-
ingatillögur við styrkjaskrána eins
og hún lá fyrir en höfðu ekki crindi
sem erfiði. Þó náðist sainstaða um
hækkun á styrk til Reykjavíkur-
mótsins í skák úr 90 þúsundum í
160 þúsund. Allar aðrar tillögur
minnihlutans voru felldar.
Samtök áhugafólks um áfengis-
vandamálið fá 945 þúsund krónur á
þessu ári, aðallega vegna gatna-
gerðargjalda í Grafarvogi. Aðrir
stórir styrkþegar eru skátar, sem fá
600 þúsund í bygginguna við
Snorrabraút og 400 þúsund í
búðifnar við Úlfljótsvatn, Samtök
um kvennaathvarf og Líknarfé-
lagið Risið fá 400 þúsund hver og
KFUM og K fá 325 þúsund.
Til kirkjubygginga veitir borgar-
stjórn 3,5 miljónum, þar af 15
hundruð þúsund til byggingar Hall-
grímskirkju, Torfusamtökin fá 300
þúsund vegna endurbyggingar
Bernhöftstorfu, Félag einstæðra
foreldra 200 þúsund, Skógrækt-
arfélag Reykjavíkur 200 þúsund,
Taflfélag Reykjavíkur 250 þúsund,
Myndhöggvarafélagið 150 þúsund,
íþróttafélag fatlaðra og Gigtarfé-
lag íslands 130 þúsund hvort,
waatmaKmBaammmmmmmmammmmmmmaaKmxmam
Krabbameinsfélagið 200 þúsund,
Geðhjálp 180, Félagssamtökin
Vernd 110 þúsund, Hjálparsveit
skáta 180 þúsund, og Blindrafé-
lagið, Félag heyrnarlausra og
Samtök endurhæfðra mænuskadd-
aðra 100 þúsund hvert.
Af öðrum styrkjum má nefna:
Reiðskóli Fáks 26 þúsund, Bóka-
safn Dagsbrúnar 7.500, Pólyfón-
kórinn 65 þúsund, Kammersveit
Reykjavíkur 25 þúsund,
Leikbrúðuland 20 þúsund, Ferða-
leikhúsið 26 þúsund, Alþýðu-
leikhúsið 80 þúsund, Stúdentaleik-
húsið 80 þúsund, Nýja strengja-
sveitin 10 þúsund, Nýlistasafnið 60
þúsund, Olympíunefnd íslands 55
þúsund, Skáksamband íslands 25
þúsund, Slysavarnarfélag íslands,
Flugbjörgunarsveitin og Golf-
klúbbur Reykjavíkur 40 þúsund
hvert, Mæðrastyrksnefnd 50 þús-
und, Geðverndarfélag íslands 13
þúsund, Neytendafélag Reykja-
víkur og nágrennis 80 þúsund,
íbúasamtök Þingholta, Framfa-
rafélag Seláss og Arbæjar og íbúa-
samtök Vesturbæjar 6.500 kr
hvert, Framfarafélag Breiðholts
III 8 þúsund og Samfok, Samband
foreldra og kennarafélag í grunn-
skólum kr. 15 þúsund.
Athygli vakti að meirihlutinn
felldi tillögu AB um áframhaldandi
styrk til Sögufélagsins vegna útgáfu
Safns til sögu Reykjavíkur, en sam-
starf hefur verið um þessa útgáfu
milli borgarinnar og Sögufélagsins
á annan áratug. Þá voru hækkun-
artillögur AB og Kvennaframboðs
til Alþýðuleikhússins og Leigjend-
asamtakanna felldar, en styrkurinn
til Alþýðuleikhússins var lækkaður
úr 140 þúsundum á síðasta ári í 80
þúsund nú. Þá voru felldar tillögur
AB og Kvennaframboðs um 660 og
600 þúsund krónur til Kvennaat-
hvarfsins en þess í stað samþykktur
400 þúsund króna styrkur. Einnig
hækkanir til íbúasamtaka, Sam-
foks og Gallerí Langbrókar frá
báðum flokkunum, og tillögur um
hækkun til Félags einstæðra for-
eldra, en styrkurinn til þess var
lækkaður úr 240 þúsundum 1983 í
200 þúsund.
Þá fluttu bæði Kvennaframboð
og Alþýðubandalag tillögur um
hækkun á framlagi til Bernhöfts-
torfu í 400 þúsund, en Torfusam-
tökin fengu nú sömu upphæð
þriðja árið í röð 200 þúsund krón-
ur. Af öðrum tillögum sem voru
felldar má nefna hækkun til Slysa-
varnarfélagsins, Flugbjörgunar-
sveitar og Hjálparsveitar skáta,
Sjálfsbjargar, Islensku hljóm-
sveitarinnr, Kammermú kklúbbs-
ins og íslensku óperunn (tillögur
frá AB) og til Stúdental diússins
(frá Kvennaframboði). - ÁI.
1