Þjóðviljinn - 17.03.1984, Page 10

Þjóðviljinn - 17.03.1984, Page 10
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 17. - 18. mars 1984 Við sjötnun bókaflóðs Spakir menn hafa talið að helsta réttlæting þess að halda uppi byggð í landi okkar sé bókmenntaframlag þjóðarinnar. Þar gildir primó að varðveita arfinn og sekúndó að halda áfram að skapa eitthvað sem bitastætt geti talist í heimsmenn- ingunni. Af því er dregin hoil lífsregla alltof fárra rithöfunda: Enginn mælikvarði er til á bók- menntir nema heimsmælikvarð- inn. Mér skilst að ekki væsi um menningararfinn þar sem hann er geymdur í eldtraustu hólfi vestur á melum En hvernig gengur okkar mönnum að halda merki íslensk- unnar á lofti í nýsköpun? Hvað er á seyði í Bodö? Útvegurinn, aðalmatarhola ís- lendinga hefur lengst af gengið með bullandi tapi, sem kunnugt er. Þess vegna telja hagspekingar sem skyggnast í menningarafkimann að allt gangi þar að óskum nú þegar bókaforlög hafa bullandi tap, að ekki sé minnst á þá guðsblessun sem tapið í kvikmyndaframl- eiðslunni er, hver frambærileg kvikmyndin rekur aðra. Hér er allt að verða vitlaust í fjölmiðla, byggð okkar er ein sú myndsegulvædd- asta á kringlu heimsins, borg Da- víðs kvað stefna í sjónvarpsrekstur í félagi við útverði fyrirtækja- eigendastéttarinnar, og ekki ein- asta eru komnar tvær rásir í ríkisút- varpið heldur eigum við von á margefldum fréttaflutningi frá Lill- ehammer, Bodö og fleiri norskum plássum gegnum gervitungl á sumri komanda. En bókmenntirnar þá? Eða ætti ég kannski heldur að spyrja um skepnu nokkra sem nýlega hefur skotið upp kollinum í fjölmiðlum, er nefnist bókin með ákveðnum greini, og kvað vera kornið illa fyrir henni? Samkvæmt nýjasta fjárlag- afrumvarpi eiga höfundar að fá eitthvað á áttundu milljón í styrki úr hinum eina sanna Kassa. Voru snjallar bækur íslenskra skálda á síðasta ári fleiri en milljónirnar sem kostað er til? Annars er allt í lagi að góð bók kosti milljón ef hún lendir í verðskulduðum vasa. Að minnsta kosti ef gera má ráð fyrir að góða bókin haldi áfram að vera góð í ekki minna en svona sex átta ár. Helst meira. Ný raun Það er verið að búa til tímabil í íslenskri bókmenntasögu. Nú er búið að skíra flokk skáldsagna frá síðasta áratug nýraunsæi, það eru sögur í félagsráðgjafamoll og skýrslustíl sem greina frá hvunn- Árni Sigurjonsson skrifar um bækur degi og basli og nota hefðbundið frásagnarform, - eru nú nokkrum árum síðar álitnar fremur daufar bókmenntir. Sögur eftir Ásu Sól- veigu, Auði Haralds, Guðlaug Arason, Ólaf Hauk Símonarson, Véstein Lúðvíksson og fleiri eru sagðar fylla þennan flokk. Alltaf er skemmtilegt þegar ný bók- menntasögutímabil eru búin til, en kannski er svolítið leitt að ekki fannst safaríkara nafn á þetta til- tekna skeið og lýsir kannski skorti á nýsköpun að nefna þetta „ný- raunsæi". Næst á maður von á ný- nýraunsæi og raun-nýraunsæi. Kannski er þrátt fyrir allt ekki laust við að nú kveði við nýjan tón í bókum sem t.d. komið hafa frá Einari Má Guðmundssyni, Einari Kárasyni, Pétri Gunnarssyni, Vig- dísi Grímsdóttur og Þórarni Eld- járn, sem eiga það sammerkt að vera háskólabókmenntuð, nálægt þrítugu og höfundar óvenju athygl- isverðra bóka. Þá sem vilja búa til bókmenntatímabil má vara við: Það er auðvelt að vera helsti fljótur á sér í þeim efnum. Tíu bækur á sjaldheyrðri tungu eru ekki mikið bókmenntaskeið á heimsvísu. Bókmenntirnar eru alltaf að verða módernari og módernari, já og jafnvel raunsærri, með hverju ár- inu sem líður. Bækur nútímans segja okkur eitthvað um nútímann og nútíminn er annar en gamli tím- inn. Yfirleitt er talið erfitt í sagnfræði að fjalla um samtíðina. Sumum veitist líka erfitt að skrifa skynsam- lega ritdóma, - ná því aldrei að hefja sig yfir hreppapólitíkina, eða skortir æfingu í lestri skáldskapar. En mín skoðun á rægðum „nýraun- sæisskáldsögum“ er að þær hafi nú kannski verið góðar til síns brúks og engan veginn víst að þær eigi eftir að skara afturúr í ísienskum skáldskap aldarinnar. Margar af þessum bókum vörpuðu ljósi á fé- lagsleg vandamál sem áður höfðu verið lítt þekkt með þjóðinni og óþekkt í bókum hennar. Urvinnslugreinar tungunnar. Síendurtekin krafa bókmennta- manna síðastliðnar aldir er að skáldskapurinn hafi eitthvað nýtt fram að færa. Hann á samkvæmt því að vera einhvers konar upp- götvun, færa lesendum þekkingu. Flestir bókmenntafræðingar 20. aldar hafa megnustu óbeit á klisj- um, sannleika gærdagsins, endur- teknum formúlum. Á því sviði hef- ur sannast að skjótur fengur skjótt forgengur (svo ég lagi málsháttinn dálítið). Sumir hafa orðið svo ærir af kröfunni um eitthvað - bara eitthvað - nýtt, að þeir hafa leiðst út í að gefa skít í allt það gamla, allt frá íslendingasögunum og Shak- espeare yfir í bókmenntir síð- astliðins áratugar, oft með gífur- yrðum. Slíkir óðgotungar gefa síg- ildum listformum einkunnina mín- us tuttugu og þrjá og segja ljóðið og leikritið dautt, skáldsöguna dauða, gufuradíóið dautt og svo framvegis. Ungar olnbogaskyttur sem vilja fá pláss og rödd og hljóð í salnum gefa skít í það gamla (jafnvel það sem er ekki nema tíu ára gamalt) af prinsipástæðum: Hér er komin ný kynslóð! Hvar er hennar sæti. Hin merka hreyfing Öreiga- menning í Rússlandi árin 1917- 1923 og formalisminn á sama tíma höfðu tilhneigingu til slíkrar af- stöðu. f myndlist hafa menn ekki undan að skrásetja ný vörumerki, sem jafnan koma fyrir í tveim gerð- um, annars vegar Stefnan og svo hinsvegar Nýstefnan. í bók- menntakenningu formalismans birtist þetta með þeim hætti að undirstöðuregla listar var talin sú að gera eitthvað framandlegt, vekja athygli á einhverju sem menn voru hættir að sjá vegna vaids vanans. I þessu fólst: list er eitthvað nýtt, - bara eitthvað! En það gamla verður auðvitað heimta eitthvað nýtt. Það kemur nefnilega alltaf eitthvað nýtt af sjálfu sér. Þegar menn eru að ragast í „ný- raunsæinu" er stundum sagt að einn höfuðgalli þess sé að það sé ekki nógu gagnrýnið, að það sé ekki nógu meðvitað um málið sem er hlaðið blekkingum og goð- sögum. Meira þurfi að rýna í orðin sjálf. Það vanti efahyggju. Góður rithöfundur, eins og ég skil það hugtak, rýnir í málið, umgengst það og þekkir betur en aðrir. Það er hins vegar ekkert gagn í að vera gagnrýninn á málið nema vera gagnrýninn á málefni í leiðinni, utan ef menn eru starfandi mál- fræðingar. Við höfum málið að verkfæri, þótt það virðist oft vaxið inn í huga okkar. Eða: Hvurn skrattann stoðar al- menn efahyggja? Náttúrlega eiga menn ekki að ganga sofandi að rit- störfum fremur en öðrum störfum. En efahyggja utan við sögu og samfélag, efahyggja sem hvílir í sjálfri sér á formi nokkurs konar skátahróps þjónar ekki neinu, óvíst að nokkur verði hennar var nema handhafinn. Sá sem einsetur sér að efast um allt og alla lendir fijótlega í krónískri andlegri löm- un. Eftirminnileg listaverk hafa alltaf fyllt menn efa um viðtekin gildi, gert það viðtekna framand- legt. Að efast er undanfari þess að Hvað liggur okkur mest á að skilja? Óskalisti kannski Að mínu mati hlýtur grundvall- arregla þeirra sem fjalla um bók- menntir að vera: megi 1000 blóm blómstra. Þar fyrir utan hefur um- fjallandinn svo sinn smekk, finnst gaman að lesa eitt og ekki annað, heyrir til sinni kynslóð. Undirritað- ur hefur t.d. litla unun af sveitalífs- rómantík frá fyrri hluta þessarar aldar og af reyfurum. En þessir skáldskaparflokkar geta átt sinn tilverurétt, og það er ekki í mínum verkahring að taka bisniss frá nein- um á þeim vettvangi. Aftur á móti er leiðinlegt þegar menn flokka fjöldaframleiddar afþreyingarbæk- ur af lakari gerð undir andleg stór- virki. Metnaðarfullir höfundar á borð við flesta þá sem hafa verið nafn- greindir í þessari grein eiga von- andi þá ósk heitasta að skrifa skáld- skap sem mun halda áfram að afla þakklátra lesenda í 50 ár og helst miklu lengur. Ef það á að takast má ekki einskorða sig við málefni líð- andi stundar. Og vonandi langar höfundana auk þess að skrifa bækur sem eiga erindi í samtíð okk- ar, tala máli hennar og tungu. Eigi það að takast verða skáldin að líta öðru hverju upp úr skruddunum. Vonandi verður þeim að óskum sínum. Árni Sigurjónsson Hvað er að gerast? Þegar spurt er að því hvað sé að gerast í bókmenntum eins og gert var á stúdentafundi ekki alls fyrir löngu, þá er venjulega gáð að ein- hverju nýju og frumlegu og áður óþekktu. Og verður þá ekki alit nýtt sem sýnist. Pétur Gunnarsson vissi það vel þegar hann lét Andra sinn harma það, að bókmenntirnar voru eins og kartöflugarður sem búið er að taka upp úr. Það er löngu búið að breyta hugarástandi í persónur og atburði og strika út landamæri innheima og útheima. Það er löngu búið að pípa niður hreintungustefnuna, afmeyja bannhelgina og gefa söguþræðin- um á kjaftinn. Það er búð að pæla í reynsluheimi öreigans, hommans, kommans og konunnar. Útrýma á víxl staðreyndinni, raunsæinu og hugarfluginu. Og satt að segja eng- in ástæða til að hlaupa upp fagn- andi þegar því er lýst yfir, að nú sé von bókmenntanna fólgin í and- raunsæi með suðuramrískri in- spírasjón. Allir þurfa að læra og það er víða hægt að leita fanga. En annaðhvort eru menn eitthvað af sjálfum sér eða ekki. Og meðan tvær eða fjór- ar bækur koma út nýjar á íslensku á Arnl Bergmann skrifar um bækur ári hverju sem fengur er að og fögnuður, þá eru menn ekkert sér- lega illa settir. Það má vel vera að stórtíðindi í bókmenntum gerist ekki einu sinni á hverjum áratug, en við getum samt leyft okkur að vona að þeirra tími sé ekki liðinn. Svartsýni og stríð En kannski skiptir það meiru hvað er að gerast hjá lesendum? Við vitum ekki svarið, því mið- ur. En það hefur heyrst til útgef- enda sem segja að bóksala á íslandi hafi dregist saman um 40-50% á tveim-þrem árum. Það má sjá minna grand í mat sínum. En við vitum ekki hvers eðlis þessi samdráttur er. Hvort hann bitnar helst á þeirri afþreyingu, sem nú er komin á myndbönd, eða nokkuð jafnt á hverskyns bókum. Það hafa verið gefnir út allt að átta hundruð titlar á ári að undanförnu og það má vel færa sönnur á, að það gerði lítið til þótt sú tala færi niður í 400-500. Ef að „grisjunin" ekki bitnar að ráði á þeim bókum sem skástar eru. Indriði G. Þorsteinsson var firn- asvartsýnn í svari um bókmenntir í skólum og tölvusamfélagi, sem hann gaf Morgunblaðinu nú í vik- unni. Hann segir: „Við skulum ekki ætla bók- menntum neinn sess í upplýsinga- Skopmynd frá sextándu öld af bóka- ormi. og tæknisamfélagi nútímans. Ef- laust vilja kennarar kenna þær af því þær eru taldar einhvers virði. Ef ekki, þá það. Upplýsinga- og tækniþjóðfélag samtímans er sum- part áróður, sumpart iðnaður og eins fjarri bókmenntum óg Satúrn- us jörðinni. Þetta sambland áróðurs, iðnaðar og bisness tekur einhverntíma enda, en á meðan svo er ekki verða heilu kynslóðirn- ar að týnast, bókmenntalega séð, og við getum ekkert því gert“. Bölsýni Indriða er skárri en gasprið í tæknikrötum markaðs- hyggjunnar, sem eru að reyna að sannfæra okkur um að frelsið, hamingjan og menningin búi í tíu sjónvarpsrásum, helst tuttugu. En Indriði er um leið einn þeirra sem er reiðubúinn til að gefast upp fyrirfram: nokkrar kynslóðir munu týnast og enginn fær gert við því. Það er ekki að efa að yfir ganga breytingar sem verða bók- menntum erfiðar, sem og margri annarri þeirri viðleitni sem gerir viðleitni til að vera þjóð ómaksins verða, En það er þá eins gott að gleyma því ekki, að góðar bækur og merkar hafa sjaldan átt sér tryggða greiða og þægilega leið að hjörtum manna. Líf bókmennta sem rísa undir nafni er, var og verð- ur stríð, sem kallar á ólata lesend- ur, þrautseiga kennara, þýðara og rithöfunda sem sýna verki sínu full- an trúnað og einbeitingu og hirða aldrei hvað vídeóhanar gala á öðr- um bæjum eða skyldir foglar. AB.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.