Þjóðviljinn - 17.03.1984, Page 11
Helgin 17. - 18. mars 1984 'þJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
RAGING BULL. Tónabíó. Banda-
rísk frá 1981. Leikstjórn: Marin
Scorsese. Handrit: Paul Schrader
og Mardik Martin. Kvikmyndun:
Michael Chapman. Sýningartími:
129 mín.
Martin Scorsese er vafalítið í
hópi athyglisverðustu kvikmynda-
gerðarmanna frá Bandaríkjunum.
Flestar mynda hans hafa verið
sýndar hérlendis og má nefna
myndir eins og New York, New
York, Alice býr hér ekki iengur og
Leigubflstjórinn (Taxi Driver),
sem reyndar komst í heimsfréttirn-
ar fyrir fáeinum árum, þegar byss-
uglaður náungi ætlaði að ráða Ron-
ald Reagan af dögum. Færði hann
sér það til málsbóta, að mynd
Scorseses um leigubílstjórann
hefði orkað svo á hann, að hann
yrði að fylgja fordæmi hetjunnar í
myndinni. En bæði honum og fyrir-
myndinni mistókst ætlunarverkið.
Martin Scorsese er af ítölsku
Karlrembusvín
- Par Excellance
ar og allir verða að snúast í kring-
um. Eginkonan má ekki sýna vin-
áttu í garð annarra karlmanna: þá
sakar hann hana um að halda fram
hjá sér. Jafnvel þegar eiginkonan
Sigurður J. Ólafsson
skrifar um
kvikmyndir
Bull, sem þýða má óður tuddi.
Myndataka í svart/hvítu gefur
þessari kvikmynd raunsæislegan
blæ, en það virðist færast í vöxt,
einkum meðal bandarískra kvik-
myndagerðarmanna, að gera
myndir í svart/hvítu fremur en lit.
Kvikmyndatakan er vönduð að
allri gerð; stundum er myndavélin
á sffelldri hreyfingu, stundum er
hægt á atburðarásinni (slow moti-
on), þegar það á við. Allt er þetta
gert af kunnáttu og smekkvísi, ef
ekki á frumlegri hátt en oft áður.
Á einum stað leyfir Scorsese sér
að brjóta upp söguþráðinn með því
að skjóta inn kafla, sem er tekinn
eins og áhugamaður hefð gert hann
með 8 mm. kvikmyndavél í hendi.
Petta er að vísu engin nýjung af
hálfu leikstjórans; svipað atriði
mátti sjá í einni af fyrstu myndum
hans, Mean streets, en hér fellur
þessi kafli vel inn í heildarmynd-
ina.
Aðalhlutverkið er í höndum Ro-
berts De Niros, sem leikið hefur í
flestum kvikmyndum Scorseses.
Honum tekst afar vel að lýsa þess-
um tilfinningalausa og heimska
rudda, sem krefst þess, að allir sitji
og standi eins og hann vill, en held-
ur jafnframt að allir sitji á svik-
ráðum við sig.
SJÓ
Hressir og traustir
fréttaritarar óskast
Nútíminn hf. óskar eftir hressum og traustum
fréttariturum um land allt. Þurfa að geta tekið
myndir. Greiðslur fyrir hvert verk. Umsóknir
skal senda til Nútímans h.f. Síðumúla 15,
Reykjavík, og skulu þær ekki berast seinna en
1. apríl n.k. Starfandi fréttaritarar Tímans, er
óska að halda störfum áfram sem slíkir sendi
einnig bréf þar að lútandi fyrir sama tíma.
Nútíminn h.f.
Jack La Motta og Sugar Ray Robinson berjast um heimsmeistaratitilinn í
milliþungavigt.
bergi brotinn og margar af mynd-
um hans gerast einmitt í hverfi ít-
alskra innflytjenda í New York,
enda þekkir hann þetta umhverfi af
eigin raun. Svo er einnig um þá
kvikmynd, sem hér er til umfjöll-
unar, Raging Bull.
Myndin spannar aldarfjórðung í
lífi Jakes La Mottas, sem um skeið
var heimsmeistari í milliþungavigt í
hnefaleikum á fimmta áratug þess-
arar aldar og er byggð á sjálfsævi-
sögu hans. Jake hafði sitt lifibrauð
af þessari íþrótt - eða hvort menn
vilja nú heldur kalla þessar bar-
smíðar ruddahátt eða göfuga sjálfs-
varnarlist - þar til hann gerðist
eigandi næturklúbbs og reyndi að
halda uppi skemmtun meðal
klúbbgesta með ómerkilegum
bröndurum.
Þessi kvikmynd er fyrst og
fremst einkar raunsæ og hlutlæg
lýsing á þeirri manngerð, sem þessi
hnefaleikari er og án þess nokkuð
sé undan dregið. Og sannarlega er
Jake La Motta ekki sú persóna,
sem hver og einn vildi eiga að vin.
Hann er kaldlyndur og tilfinninga-
laus og tekur ekkert tillit til ann-
arra; markmið hans er aðeins eitt:
að verða bestur allra hnefaleikara.
Á heimilinu er hann sá sem stjórn-
og bróðir hans, sem verið hefur
hans stoð og stytta, heilsast eitt
sinn með kossi, verður tilefni þess,
að hann ásakar hann um að hafa
sofið hjá eiginkonunni; hann ræðst
fyrirvaralaust inn á heimili bróður
síns og ber hann til óbóta. Jake La
Motta er, eins og Diane Jacobs
kemst að orði í Film Guide,
karlrembusvín - par excellence.
Bróðir hans fær sig fullsaddan á
hlutverki hjálparhellunnar og snýr
við honum baki og um síðir fer
konan frá honum. í einhverju á-
hrifamesta atriði myndarinnar hef-
ur Motta verið hnepptur í varð-
hald. í myrkum fangelsisklefanum
ber hann með hnúum og hnefum
og með höfðinu í vegginn, ásakar
sjálfan sig fyrir eigin heimsku. En
leiðir allt þetta til þess, að hann
verði að betri manni? Fær hann
uppreisn æru? Pvert á móti. í lok-
aatriðinu er hann að búa sig undir
að koma fram fyrir næturklúbbs-
gesti í búningsklefanum. Um leið
og hann sveiflar höndunum eins og
hann sé að æfa fyrir hnefaleika-
keppni tautar hann fyrir munni sér:
„Hér er það ég sem stjórna. Hér er
það ég sem ræð.“
Ef til vill er honum þó best lýst
með heiti myndarinnar, Raging
3MILLJÓNIR
ATKVÆÐA
Þaö er engin tilviljun, að seldar hafa verið yfir 3 milljónir Ford Fiesta
síðan hann var settur á markað. Alveg frá 1976 hefur verið unnið að stöðugum
endurbótum bílsins. Hann er nú einn vinsælasti smábíll Evrópu. - Ford Fiesta 1984
er nú kominn á markað mikið endurbættur - betri bíll en fyrri árgerðir:
| Endurbætt útlit - minni loftmótstaða
t Sparneytnari
(eyðir aðeins 6.2 1/100 km í bæjarakstri)
♦ Nýjar endurbættar vélar
| Betri aksturseiginleikar
| Framhjóladrif með bættri fjöðrun
| Endurbætt innrétting
| Ódýrari rekstur
| Meiri aukabúnaður
I Aukið rými
Rafmagnsbílun!
Neyöar- þjónusta
nótt sem nýtan dag
'RAFAFL
SÍMI: 85955
NEYTENDAÞJÓNUSTA
í V-Þýskalandi hefur Ford Fiesta 4 sinnum fengiö verðlaunin:
„Bíll skynseminnar“
Það er viðburður að sjá Fiesta á viðgerðarverkstæði
Verð aðeins 243.000 kr. Mjög gott endursöluverð
sSJ^Í7nnJHsson hf- FiESTFv