Þjóðviljinn - 17.03.1984, Page 13

Þjóðviljinn - 17.03.1984, Page 13
Helgin 17. - 18. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 Sú krataþróun sem varð og byltingin sem var möguleg Viðtal við rithöfundinn Dag Solstad Dag Soistad: Ég hélt að menningarbyltingin i Kína gæfi svar við einni grund- vallarspurningu... (Ljósm.: Atli). kreppu. Eg segi fyrir sjálfan mig: ég hélt að menningarbyltingin kín- verska væri svar við grundvallar- spurningu: hvernig er hægt að fá fólkinu aftur völdin yfir skrif- ræðinu. Nú, hvernig sem menn annars dæma um Kína í dag, þá er það ljóst að menningarbyltingin var ekki þetta svar. En þetta svar verður að finna. Annars verður það nokkuð svo út í hött að berjast fyrir sósíalisma. - Einu sinni ætluðu allir höfund- ar að verða heimsfrægir, nú um hríð sýnist manni að flestir einbeiti sér að ákveðnum hópum hið næsta sér. Hvernig lítur þú á þessa hlið mála? - A áttunda áratugnum fannst mér ekki skipta neinu máli, hvort bækur mínar væru þýddar eða ekki. Ég var meir en sáttur við að reyna að skrifa fyrir norskan verka- lýð. Nú hefur þetta breyst: ég hefi meiri áhuga á þýðingum (og ýmis- legt hefur verið þýtt eftir mig reyndar). Ég lít á þetta sem eins- konar ósigur: það er meira virði að vera nátengdur sínu eigin fólki en blandast við eitthvert evrópskt menningarsamfélag. En svona er. Þetta... Árni Bergmann. Emils Jónssonar), Gestur Jóhannsson agent í Múla (tengdafaðir Jóns Skaftasonar borgarfógeta), ?, Jóhann Kroyer bílstjóri, Sigrún Sigbjörns- dóttir (kona Halldórs), Guðrún Guðmundsdóttir (kona Gísla), Sigríður Jensdóttir (kona Ijósmyndarans), Hulda Sveinsson, síðar læknir, Jón Gestsson, síðar rafveitustjóri á Isafirði, Vilhelmína Jónsdóttir (kona Gunnlaugs) og Hermann Hermannsson iögregluþjónn. í dyrum hússins stendur Agnar Pálsson heimamaður í Möðrudal. Myndina tók Eyjólfur Jónsson klæðskeri og bankastjóri á Seyðisfirði. Dag Solstad er kominn í heimsókn, norskur rithöf- undur, sem margir hafa heyrt minnst á að minnsta kosti: það er hann sem er þessi skelfilegi maóisti og sósíal- realisti, ojbara! Hress maður reyndar, Dag Solstad, og fljótur til svara um bók- menntir og stjórnmál í því viðtali sem hér fer á eftir. - Ég gaf út mína fyrstu bók árið 1965, segir Dag í viðtali. Petta var módernísk bók, smásagnasafn, Kafka og Beckett mætti nefna þá anda sem þar svífa yfir vötnunum. Gagnrýnendur tóku henni vel, en lesendur heldur illa, enda var þetta vond bók. - Hvers vegna dæmir þú hana svo hart? - Vegna þess að ég fór allt aðra leið sjálfur síðar meir. - Hvað olli? Árið 1968, uppreisn æskunnar, róttæknin nýja? - Bæði og. Sjálfur varð ég ekki mikið var við þetta fræga ár, 1968. En mér er það samt ljóst, að þeir straumar sem þá fóru um heiminn hafa haft mikil áhrif á mig. Það sem ekki varð - Fyrsta bókin sem ég skrifaði svo í þessum ahda hét „Tuttug- asta-og-fimmta-septembertorgið“ - en þann dag fór fram þjóðarat- kvæðagreiðsla í Noregi um aðild að Efnahagsbandalaginu. Þessi bók fjallar um norskan iðnaðarbæ frá því í stríðslok og fram til 1972, en bókin kom út 1974. Sósíaldemó- kratískri þróun í Noregi er lýst með dæmi verkamannafjölskyldu, föður og þriggja sona, sem hver fer sína leið. Og spennan í bókinni er á milli þess sem í raun og veru gerðist í landinu á þessum tíma og annarra möguleika, þess sem ekki varð. Þessu næst skrifaði ég skáldsagn- abálk um stríðsárin í Noregi, bæk- urnar heita Svik, Stríð 1940 og Brauð og vopn. Ég reyni þar bæði að draga fram af sem mestri ná- kvæmni staðreyndir og umhverfi um leið og ég dreg fram þá mögu- leika, sem ég tel að norsk verka- lýðsstétt hafi þá átt til að láta að sér kveða svo um munar. Ég legg þá höfuðáherslu á árið 1942. Aðstæð- urnar voru mjög sérstæðar, stjórn- in í útlegð í London og sú mót- spyrna sem fyrir hendi var í landinu gegn þýsku hernámi, var mestan part undir forystu þeirra sem vildu hafa óvirka mótspyrnu ef svo mætti segja. Ef að kommúnistar, róttæk- asti hluti verkalýðsins, hefði komið sér upp eigin stefnu, sjálfstæðri, virki mótspyrnuhreyfingu, komið fram í skýrri andstöðu við þá óvirku, þá hefði það kannski orðið forsenda fyrir byltingarþróun í Noregi. Árið 1942 er þýðingar- mikið vegna þess að staðan var enn svo óviss, það var ekki Ijóst enn hvor mundi sigra, bandamenn eða Hitler. Ég játa, að það er í þessum bálki mínum verið að bera fram spurn- ingar sem ekki eru til nein svör við. En ég álít að það skipti miklu að bera fram spurningar af slíku tagi. Að gerast verkamaður - Síðar hefur þú meðal annars skrifað um það fyrirbæri að rót- tækir menntamenn hafa gerst ör- eigar í nafni sinnar byltingartrúar. - Árið 1982 kom út síðasta skáld- saga mín sem heitir „Petersen menntaskólakennari segir frá“ - titillinn er reyndar nokkru lengri. Þar fjalla ég um hóp menntamanna sem varð reyndar allstór í Noregi: þeir urðu byltingarsinnar í þessu friðarins landi, vegna þess trausts Talar í Norræna húsinu 1 dag o Dag Solstad kemur fram á norskri bókakynningu í Norræna húsinu, sem hefst kl. 15 í dag, laugardag, Tor Ulset sendikenn- ari kynnir og nýjar norskar bækur. i í spjalli við Þjóðviljann sagði Dal Solstad, að hann ætlaði ekki að lesa upp úr verkum sínum heldur spjalla um bækur, höf- unda og lesendur í norsku sam- hengi. ' Dag Solstad er þekktur skáld- sagnahöfundur, hefur m.a. samið skáldsagnaflokk um Noreg á stríðsárunum,, andspyrnuhreyf- inguna og norska verkalýðsstétt. Hann hefur tekið sér stöðu yst ti^ vinstri í pólitík og ein af síðustu bókum hans fjallar meðal annars um menntafólk sem í nafni bylt- ingartrúar sinjiar gerist verkafólk og reynir að búa við sömu kjör og alþýðan. sem þeir settu á menningarbylting- una í Kína - og það sem síðar gerð- ist. Meðal annars er fjallað um þessa „sjálfspróletariseringu" - aö sumir þeirra gerðust verkamenn í verksmiðjum til að tryggja sér jarðsamband. - Bíða þeir persónulegan ósigur? - Persónulegan kannski, en það er líka um ýmis önnur mynstur að ræða í sögunni. Og það er ekki hægt að segja, að ákvörðun þeirra sé tilfinningalegs eðlis, eða að þeir séu fyrst og fremst að leita leiðar út úr tilgangsleysi. Byltingaráhugi þeirra er blátt áfram tengdur því sem þeim finnst skynsamiegt. Róttækni og bókmenntir Þetta er síðasta bók mín, nema hvað í haust kom út safn greina, sem ég hefi skrifað lengi fyrir lítið kratablað í Noregi. Greinar sem ég skrifaði svosem utan við bók- menntalegan metnað. - Þegar róttækniskröfurnar risu sem hæst þá mátti einatt heyra tal- að um bókmenntalegan metnað sem meiriháttar synd, ekki satt? -Jú,þaðkomfyrirá vinstri kant- inum, viss menntafjandskapur jafnvel. En ég segi fyrir sjálfan mig: ég hætti aldrei að hafa áhyggj- ur af vandamálum formsins, gaf þau aldrei frá mér, lagði mikla vinnu í að glíma við þau. Og ég held að t.d. sagnabálkurinn um stríðið sé um margt ólíkur hefð- bundinni raunsæissögu, hann er ekki „breiður" eins og sagt er, það er stílað upp á að þétta textann sem allra mest í knöppum atriðum. Hitt er svo annað mál að um tíma fannst mér það óþarfi að blanda mér í fræðiiega umræðu til að sanna að ég legði stund á alvarleg vinnu- brögð... En höfundur sem er pólitískt virkur hlýtur að gera sér grein fyrir því, að ef hann er ekki sáttur við að skrifa fyrir skoðanabræður sína eina, þá kemst hann ekki út fyrir þann ramma nema með því að kunna að fara með mál og myndir, kunna sitt verk. Menningarbylting í Kína - Þú hefur tekið þátt í starfi AKP (Verkamannaflokks kommún- ista)? Hvernig vegnar maóistum nú um stundir? - Fylgið er ekki minna en það var. En það er ljóst að þessi hreyfing er í Myndin er tekin um eða fyrir 1940 í Möðrudal á Fjöllum og eru hér Sey&flrðingar í skemmtireisu á fyrsta yfirbygg&a langferðabílnum á Austurlandi. Á myndinni eru f.v.: Gísli Jónsson umboðsmaður Natans & Olsens á Seyðisfirði (faðir sr. Gunnars í Glaumbæ), Einar Hilmar Bjarna- son starfsmaður Apóteksins á Seyðisfirði, Baldvin Stefánsson hrepp- stjóri í Stakkahlíð í Loðmundarfirði, Vilhjálmur Jónsson í Möðrudal, Gunnlaugur Jónasson gjaldkeri Útvegsbankans á Seyðisfirði, Halldór Jónsson kaupmaður og konsúll, Brynhildur Haraldsdóttir símritari (kona Gömul mynd frá Möðrudal

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.