Þjóðviljinn - 17.03.1984, Síða 21

Þjóðviljinn - 17.03.1984, Síða 21
Helgin 17. - 18. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21 bridge Nýmarkmið Frá Bridgefélagi Reykjavíkur Minnt er á aö Board-a-Match (sveitakeppni með tvímennings- sniði) hefst nk. þriðjudag. Önnur umferð verður svo nk. miðviku- dag. Væntanlegir fyrirliðar eru minntir á að láta skrá sveitir sínar hið fyrsta til stjórnar eða keppnis- stjóra. Frá Bridgefélagi Sauðárkróks Laugardaginn 25. fébrúar var spilaður aðaltvímenningur hjá fé- laginu og urðu úrslit þessi: Gunnar Þórðarson og Stig Björn Guðnason Páll Hjálmarsson og 497 Garðar Guðjónsson Jón Tryggvi Jökulsson og 486 Steingrímur Sigfússon Einar Svansson og 473 Skúli Jónsson Kristinn Ólafsson og 452 Geir Eyjólfsson Bjarki Tryggvason og 451 Halldór Tryggvason 448 Mánudaginn 5. mars var spiluð hjóna- og parakeppni hjá félaginu og varð staða efstu para þessi: Stig Einar Svansson og Sigríður Sigurðardóttir Erla Guðjónsdóttir og 261 Haukur Haraldsson Elín Pálsdóttir og 233 Valgarð Valgarðsson Hjördís Þorgeirsdóttir og 225 Broddi Þorsteinsson Skúli Jónsson og 225 Margrét Sigmundsdóttir Skúli Ragnarsson og 224 Efemía Gísladóttir Frá „TBK“ 219 Síðastliðinn fimmtudag 15. mars var spiluð næstsíðasta umferðin af sjö í Aðalsveitakeppni félagsins. Sveit Gests Jónssonar er með ör- ugga forystu og líklegast búin að bera sigurorð af andstæðingum sín- um í keppninni. Síðan koma sex sveitir í einum hnapp á eftir og er baráttan í algleymingi um næstu sæti, en staðan fyrir síðustu umferð er nú þessi: Stig 1. Sv. Gests Jónssonar 95 2. Sv. Antons R. Gunnarssonar 75 3-5. Sv. Gunnlaugs Óskarssonar 74 3-5. Sv. Auðuns Guðmundssonar 74 3-5. Sv. Þorsteins Kristjánssonar 74 6. Sv. Bernharðs Guðmundss. 70 7. Sv. Gísla Steingrímssonar 68 Lokaumferðin verður svo næsta fimmtudag 22. mars og hefst spil- amennskan kl. 19.30 stundvíslega. Fimmtudaginn 29. mars hefst svo hinn sívinsæli BAROMETER- tvímenningur og er skráning þegar hafin, þeir sem áhuga hafa á þátt- töku eru hvattir til að láta heyra í sér eða bara mæta í Domus Medica tímanlega jafnvel stakir, aldrei er að vita nema vanti mannskap. Eftirtaldir aðilar taka við skrán- ingu: Bragi Jónsson í síma 30221, Tryggvi Gíslason í síma 24856 og Gísli Tryggvason í síma 34611. Mætum öll hress og kát. Frá Bridgedeild Skagfirðinga Þriðjudaginn 13. mars var spiluð sveitakeppni við Briegedeild Hún- vetninga. Áður en keppni hófst af- henti Sigmar Jónsson félögunum veglegan bikar að gjöf sem það fé- lag eignast sem fyrr hefur sigrað í 5 skipti. Að þessu sinni unnu Skag- firðingar með 151 stigi gegn 49. Úrslit leikja urðu þessi: Skagfírðingar Borð 1. Magnús Torfason 20 2. Sigmar Jónsson g 3. Guðmundur Theódórsson 20 4. Guðrún Hinriksdóttir 20 5. Björn Hermannsson 20 6. Erlendur Björgvinsson 12 7. Sigrún Pétursdóttir 20 8. Stígur Herlúfsen 20 9. Jón Hermannsson 0 10. Ragnar Hjálmarsson 11 Húnvetningar Borð 1. Hreinn Hjartarson 0 2. Halldór Magnússon 12 3. Haukur Sigurjónsson 0 4. Valdemar Jóhannsson 0 5. Jón Oddsson 0 6. Halldóra Kolka 8 7. Lovísa Eyþórsdóttir 0 8. Sigþór Þorgrímsson 0 9. Björn Kjartansson 20 10. Finnbogi Júlíusson 9 Þriðjudaginn 30. mars lýkur Board-a-Match keppni félagsins. Sœluvikubridge Föstudaginn 6. apríl BÞáætlað að fara til Sauðárkróks og spila við heimamenn, föstudagskvöldið Op- inn tvímenning og laugardag sveitakeppni milli heimamanna og gesta. Flogið er frá Reykjavík föstudag kl. 12.30 og til baka sunn- udag kl. 16.15. Upplýsingar og skráning hjá Sigmari Jónssyni í símum 16737, 12817 og 687070. Frá Bridgefélagi Hafnarfjarðar Síðastliðinn mánudag lauk þriggja kvölda Board-a-Match keppni félagsins. Níu sveitir tóku þátt í þessari keppni, en þetta fyrir- komulag er nokkur nýlunda hjá fé- laginu. Sveit Ólafs Gíslasonar tók fljótlega forystuna, og hélt henni til loka. Staða efstu sveita varð annars þessi: Stig 1. Sv. Ólafs Gíslasonar 207 2. Sv. Drafnar Guðmundsdóttur 165 3. Sv. Rögnu Ólafsdóttur 161 4. Sv. Þórarins Sóphussonar 152 Auk Ólafs spiluðu þeir Aðal- steinn Jörgensen, Ragnar Magnús- son og Rúnar Magnússon í sigur- sveitinni. Næsta mánudag verður spilaður eins kvöld tvímenningur til til- breytingar, en fljótlega hefst firm- akeppni félagsins sem er einmenn- ingur. Spilað er í íþróttahúsinu við Strandgötu og hefst keppni kl. 19.30 að venju. Keppnisstjóri er Hermann Lárusson. Frá Bridgefélagi Kópavogs Bræðurnir Oddur og Hrólfur Hjaltasynir unnu yfirburðarsigur í barometer-tvímenningskeppni fé- lagsins. Þeir leiddu keppnina frá upphafi, og er upp var staðið höfðu þeir hlotið 132 stig yfir meðalskori. Úrslit urðu þessi: Stig 1. Hrólfur Hjaltason - Oddur Hjaltason 132 2. Grímur Thorarensen - Guðmundur Pálsson 58 3. Helgi Lárusson - Hannes Lentz 37 4. Óli M. Andreasson - Guðmundur Gunnlaugsson 32 5. Garðar Þórðarson - Valdimar Þórðarson 20 6. Sigurður Nordal - Ingimar Valdimarsson 17 Næsta keppni félagsins er sveitakeppni með Board-a-Match sniði. Áætlað er að hún standi í 3 kvöld. Væntanlegir þátttakendur geta látið skrá sig hjá Þóri Sveinssyni eða Óla M. Ándreas- syni. Spilað er í Þinghól v/ Hamra- borg og hefst spilamennska kl. 19.45. Spilað er á fimmtudögum. Um „innri“ málefni bridge hér á landi Umsjónarmaður átti samtal við nokkra af gestum okkar á nýafstað- inni Bridgehátíð. Þegar sænsku keppendurnir, Göran Peterson og Leif Svenzon voru kvaddir, sögðu þeiríhálfgerðum kvörtunartón: Af hverju sjást aldrei íslenskir spilarar í Svíþjóð? Það er nú það. Svo tekið sé undir með Guðmundi Sv. Hermanns- syni, varðandi þá hugmynd sem Jakob R. Möller hefur sett fram (ásamt fleirum), að hætta að senda keppendur héðan til þátttöku á NM-landsliða, frekar að styrkja pör til þátttöku í valinkunnum keppnum í Evrópu, sem haldin eru hér allt í „kringum" okkur, árið um kring. Þátturinn getur tekið undir þetta sjónarmið, enda þjónar það takmörkuðum markmiðum að senda lið á þessi skandinavísku meistaramót með ærnum kostnaði, hafandi í huga þann árangur sem þessi sömu lið hafa náð. Til að ná upp meiri breidd í ís- lenskum bridge og viðhalda ein- hverri keppnisgleði okkar bestu manna, verður að skapa meiri og stærri viðfangsefni, þarsem and- stæðingar eru óþekktir (við spila- borðið alla vega) og þannig gefa mönnum kost á víðari sjóndeildar- hring. Þessi andapollur hér á klak- anum hefur runnið sitt skeið til sjávar og tími endurnýjunar og hressingar er kominn. Sá doði sem margir okkar bestu bridgespilarar, því miður, virðast haldnir, má ekki hafa þau neikvæðu áhrif, að bri- dgespilið hljóti skaða af. Öll þessi röksemdafærsla leiðir okkur að þeirri niðurstöðu, sem Jakob R. Möller hefur orðað. Hættum að senda landslið (til að byrja með á NM) til keppni er- lendis, sendum frekar hóp valinna para (einhvern hóp) út og tökum þátt í nokkrum mótum. Reynum að þjappa okkar bestu mönnum saman og mynda þannig liðsheild sem fengi dýrmæta reynslu er- lendis, sem aftur kæmi sér til góða þegar við teljum okkur reiðubúna til þátttöku í landskeppnum, með frambærilegt lið. Að vera með gildir ekki lengur í hörðum „bísness". Heldur hitt, hvaða árangri þú getur stært þig af Lítum á skákina til að mynda, þar geta okkar ungu og efnilegu skák menn stært sig af góðum árangri (eða þannig) og það vekur athygli. Samanlagður blaðsíðnafjöldi dag- blaðanna hér í bæ um alþjóðlega skákmótið var Víst um 350 bls., á sama tíma og Bridgehátíð 1984 fékk um 25 bls.... Er ekki kominn tími til að bretta upp ermarnar (og hringia í ritstjór- ana...) bridgefólk? Að slepptu öllu gamni (öllu gamni fylgir einhver alvara, ekki satt?) hefur umsjónarmaður þá trú, að nv. Bridgesambandsstjórn geti og geri eitthvað í málefnum bridgespilara, varðandi þetta at- riði. Inn í þessa umræðu kemur einnig, að í framtíðinni munu stór- fyrirtæki í Svíþjóð standa fyrir ár- legri meistarakeppni á Norður- löndum, með þátttöku 6 sveita, einnar frá hverri þjóð, auk sveitar frá viðkomandi fyrirtæki, þannig að Norðurlandamótið sem slíkt dettur út eða breytir verulega um form. Nánar síðar. Aðalfundur Samvinnubankans Aðalfundur Samvinnubanka íslands hf. verður haldinn að Hótel Sögu, Átthagasal, Reykjavík, laugardaginn 24. mars 1984 og hefst kl. 13.30. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður lögð fram tillaga um heimild til bankaráðs um útgáfu jöfnunarhlutabréfa og aukningu hlutafjár. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins verða afhentir í aðalbankanum, Bankastræti 7, dagana 21 .-23. mars, svo og á fundarstað. Bankaráö Samvinnubanka Islands hf. TILB0Ð ÓSKAST í rafmagnslyftara 380 volt 3ja fasa Alimark-Scanko árgerð 1976. Lengd ca. 18 metrar. Lítið notuð og í sæmilegu ástandi. Tækið verður til sýnis á Keflavíkurflugvelli miðviku- daginn 21. mars kl. 1-5. Sala varnarliðseigna ffl BÓKABÚÐ MALS og menningar LIFANDI STARF Við leitum að ungri duglegri manneskju, til að taka að sér deildarstjórastarf í erlendu bókadeildinni hjá okk- ur. Starfið krefst málakunnáttu (a.m.k. ensku og norð- urlandamála), góðrar alhliða menntunar og síðast en ekki síst þekkingar og áhuga á bókum. Hér er í boði gott tækifæri til að takast á við krefjandi starf og hljóta uppskeru eins og til er sáð. Frekari upplýsingar veitir verslunarstjóri Árni Einars- son. Umsóknum skal skilað til blaðsins eða á skrif- stofu bókabúðarinnarfyrir 22. mars. Fyllstatrúnaði er heitið. Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18 c LANDSVIRKJUN Útboð Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í byggingu á undir- stöðum vegna stækkunar tengivirkis við Sigöldu ásamt undirstöðum fyrir sex möstur í Suðurlínu næst tengivirkinu. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkjunar í Reykjavík frá og með fimmtudeginum 22. mars 1984 og kostar hvert eintak 1.000 krónur. Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar Háa- leitisbraut 68, 108 Reykjavík, fyrir kl. 14:00 mánu- daginn 9. ágúst 1984 og verða þau oþnuð þar að viðstöddum bjóðendum sama dag kl. 14:15. Landsvirkjun Þú lest þaö í Þjóðviljanum Askriftarsíminn: 81333 Laugardaga kl. 9—12: 81663 PJOÐVHJINN

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.