Þjóðviljinn - 27.01.1985, Side 3
aö mynda sér skoðuná því
máli. Þetta þótti mörgum
skrýtið svar og varð einum
blaðamanni Þjóðviljans þá að
orði:
Um útvarpsins andlegu
boðunþá yfiriýsingu gef:
Ég er að skapa mér skoðun
á skoðun sem ég hef.M
Sameinaðir
stöndum vér...
Margir hafa trú á því að kosn-
ingar séu í nánd, í það
minnsta megi merkja það af
skrifum stjórnarblaðanna
undanfarna daga og vikur, litl-
ir kærleikar hafa verið í millum
NT og Moggans og sakar
hvort blaðið annað um út-
úrsnúninga, falsskrif og verið
sé að grafa undan stjórnar-
samstarfinu.
Betri kærleikar virðast hins
vegar vera á milli stjórnar-
blaðanna DV og Morgun-
blaðsins. Þar er ekki skömm-
unum fyrir að fara heldur
gleðjast ritstjórar blaðanna
saman yfir dægilegum máls-
verði og rauðvínsglasi eins og
á mánudaginn sl. er þeir Matt-
hías Johannesen, Styrmir
Gunnarsson, Björn Bjarna-
son, Jónas Kristjánsson, Ell-
ert Schram og Haukur Helga-
son sátu glaðbeittir yfir há-
degsiverði sínum á Naustinu.
Eitthvað stirnaði samt brosið
er hópur blaðamanna sem
hafði verið á fundi í sama húsi
gekk fram á ritstjóraklúbbinn.
Já, hvergi er hægt að vera í
felum fyrir blaðamönnum. ■
Réttu
tengslin
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar lét í
vetur bjóða út allar tryggingar
á eignum bæjarins, starfsfólki
sínu og skólabörnum.
Við útboðið var meira og
minna stuðst við gögn frá
Brunabótafélaginu en sjálf-
stæðismenn gátu ekki hugs-
að sér að skipta lengur við fyr-
irtækið þar sem forstjóri þess
væri kunnur Alþýðubanda-
lagsmaður. Þegar tilboðin
lágu fyrir var lýst yfir að Sjóvá
hefði verið með hagkvæm-
ustu kjörin og var málið síðan
keyrt í gegn í einum grænum í
bæjarstjórn þrátt fyrir mót-
mæli einstakra bæjarfulltrúa
sem vildu fá að skoða málið
betur. Sjóvá fékk samninginn
en það kemur málinu að sjálf-
sögðu ekkert við að umboös-
maður Sjóvá í Hafnarfirði er
Árni Grétar Finnsson forseti
bæjarstjórnar. ■
Bjarni P.
Tbj
Um næstu helgi verður hald-
inn fyrsti landsfundur Banda-
lags jafnaðarmanna. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins
hefur nokkur hópur fólks
skráð sig til fundarins og er
áberandi ungt fólk í þeim hópi.
Það sem þó er fréttnæmast er
að meðal þeirra sem hafa
skráð sig til þingsins er Bjarni
P. Magnússon fyrrverandi
framkvæmdastjóri Alþýðu-
flokksins og einn helsti sam-
starfsmaður Vilmundar Gylfa-
sonar á sínum tíma. Bjarni
yfirgaf hins vegar ekki flokk-
inn þegar Vilmundur fór á
braut, heldur hélt áfram utan
um Alþýðuflokksstýrið. Eftir
að Jón Baldvin felldi Kjartan á
flokksþinginu í vetur, ákvað
Bjarni að draga sig í hlé frá
störfum flokksins enda hefur
hann litlar mætur á Jóni. Það
er því mikil blóðtaka fyrir Al-
þýðuflokkinn einkum ( kjör-
dæmi formannsins að Bjarni
skuli vera búinn að segja
skilið við söfnuðinn. ■
Vestmanna
eyjar
Menn henda gaman að stríði
því sem nú stendur yfir milli
málgagna stjórnarflokkanna
NT og Mogga og á milli for-
sætisráðherra og þingflokks
íhaldsins um hver hafi svikið
hvern í leyniskjalsmálinu.
Moggi birti sem kunnugt er
leyniplagg forsætisráðherra
um skattahækkanir og fleira.
Forsi varð illur og sagði þing-
flokki íhaldsins ekki
treystandi. Ólafur G. Einars-
son segist í Mogga hafa smal-
að plöggunum saman í
fundarlokþingflokksfundarins
og því hljóti plaggið að hafa
komið frá þingflokki Fram
sóknar. Þjóðviljinn vill ekk
blanda sér mikið í þetta við
kvæma mál, en þegar rann-
sókn fer fram á því hvaðan
skjalið kom viljum við bara
minna á að einu sinni var
maður sem söng: Hann Gölli
hann var einn af okkur
peyjum... ■
Ég hefði
getað orðið
fyrir voðaskoti
Nýlega birtist í Vestfirðingi,
blaði Alþýðubandalagsins á
Vestfjörðum langt viðtal við
Úlf Gunnarsson lækni, ný-
skipaðan heiðursborgara á
ísafirði, en Finnbogi Her-
mannsson tók viðtalið. Úlfur
er eins og kunnugt er sonur
Gunnars Gunnarssonar
skálds og lærði hann læknis-
fræði í Þýskalandi og var þar
öll stríðsárin. Hann segir frá
því í viðtalinu að Þjóðverjar
hafi ætlað að fá hann til að
njósna fyrir sig á íslandi. Það
var dr. Lotz, sem hafði sam-
band við marga íslendinga
sem bauð honum á herragarð
sinn, skammt frá Greifswald.
Síðan segir Úlfur í viðtalinu:
„Þegar þangað kom, bauð
hann mér í veiðitúr og voru
byssur meðferðis. Þáfórhann
að hafa orð á (slandi, fór að
tala um staði á hálendinu, þar
sem hægt væri að lenda og
hann hafðiáhuga á að koma
mér á þessa staði. Ég var hins
vegar snöggur upp álagið og
kom því að, aðég væri ekki
ánægður með framkomu
Þjóðverja í Noregi og mér
þætti ástandið þar hivllilegt.
Þá hætti hann strax. Eg veit
ekki hvort hann langaði til að
beina byssunni að mér, ég
hefÓi getað orði fyrir voða-
skoti, mér datt þetta svona í
hug á eftir." ■
NY MIÐSIÖÐ
STRANDFLUTNINGA
EIMSKIPS
Klettsskáli við Köllunarklettsveg er miðstöð strandflutninga Eimskips. Þar er
vörumóttaka og vöruafhending fyrir Reykjavík og nágrenni ásamt allri afgreiðslu
pappíra og fylgiskjala. Vöruafgreiðsla Herjólfs er einnig í Klettsskála.
Strandflutningaskip okkar, Mánafoss og Reykjafoss, hafa hvort um sig mikla
flutningsgetu og eru búin mikilvirkum tækjum til gámaflutninga.
Fastar áætlunarferðir til hafna innanlands og utan opna nýja möguleika. Með
einingaflutningum má betur samræma heildarflutning, stytta flutningstíma og
bæta vörumeðferð, jafnt fyrir innflytjendur sem útflytjendur. Sem sagt; bein tengsl
við alþjóðlegt flutningakerfi.
Innanlandsáætlun:
Reykjavík alla mánudaga
ísafjörður þriðjud. og laugard.
Akureyri miðvikudaga
Húsavík annan hvern fimmtudag
Siglufjörður annan hvern fimmtud.
Sauðárkrókur annan hvern fimmtud.
Patreksfjörður annan hvern laugard
Reyðarfjörður annan hvern föstud.
Vestmannaeyjar daglega.
Allar nánari upplýsingar veitir
Norðurlandadeild Eimskips, sími 27100.
Vöruafgreiðsla Klettsskála
Sími 686464
Opið kl. 8-17 alla virka daga.
Vörumóttaka í Sundahöfn er óbreytt.
Flutningur er okkar fag
EIMSKIP
*
Sími 27100
Auglýsingaþjónustan