Þjóðviljinn - 27.01.1985, Side 6
Mœður,
for-
mœður
Samtíð formœðranna
leituð uppi
og túlkuðívefnaði
Kvenkyns nemendur
MHÍ undirbúa
Listahdtíð kvenna
Síðasta ár kvennaáratugarins er komið á alman-
akið. Víða er hugur í konum af þessu tilefni. í textíld-
eild Myndlista- og handíðaskólans kom um ára-
mótin sú hugmynd upp hjá konum sem eru að Ijúka
námi við deildina að vinna við þemað „mæður -
formæður". Leita þær uppi tíð formæðra sinna og
túlka í myndvefnaði.
Kennari í myndvefnaði er Guðrún Erla Geirs-
dóttir, sem þekkt er undir nafninu „Gerla“. „Við
hugsum okkur að þessi verk sem hér eru unnin
tengist beint listahátíð kvenna sem haldin verður
næsta haust. Þá verða þau sýnd á kaffihúsi í borg-
inni“, sagði hún.
„Þetta er síðasta verkefni stelpnanna áður en þær
fara í lokaverkefni sitt. Þær hafa mjög frjálsar
hendur með hvernig þær vinna úr þessu þema.
Námskeiðið heitir myndvefnaður en þær eru ekki
bundnar við að hafa vefinn í ramma, nokkrar nota
vefstóla“. Gerla sagði mikinn tíma hafa farið í að
ákveða hugmyndir og finna síðan efni til að vinna
úr. Kvartaði hún sáran yfir litlu úrvali hérlendis af
garni og efni til myndvefnaðar.
„Þemað kemur eiginlega til út af því að ég er að
vinna í hóp vegna listahátíðar kvenna 1985. Hún
verður haldin dagana 21.9. til 8.10. í haust á Kjar-
valsstöðum, Gerðubergi og víðar. Draumurinn er
sá að þessi listahátíð verði jafn stór og eftirminnileg
uppákoma og Kvennafrídagurinn var árið 1975.“
-JP
Guðrún Erla Geirsdóttir stjórnar vinnunni við verkefnið „mæður
- formæður" sem konur á lokaári eru að vinna við. Mynd -eik-.
Ólöf Einarsdóttir er að gera mynd um
móður sína. Vinnur eftir gamalli Ijósmynd
og notar einkum hör í vefinn. Mynd-eik-.
Minn-
ingar-
brot
á ijós-
mynd
„Myndin er tileinkuð móður
minni, Ólafíu Jóhannesdóttur úr
Hrútafirði. Ég vinn út frá Ijós-
mynd af henni, minningarbroti“,
sagði Ólöf Einarsdóttir. Við vef-
inn Kiinnar var örlítil rifin Ijós-
mynd, gömul. Undir henni var
teikning sem var töluvert mikil
stækkun úr Ijósmyndinni. Eftir
þessu var Ólöf að vefa.
„Þetta er skemmtilegt á
köflum en seinlegt vegna þess að
uppistaða og ívaf er úr fínum
þráðum. Mér finnst skemmtilegt
að spreyta mig á vefnum sjálfum
ogáferðunum“. Ólöf sagðist ætla
að vinna næsta vetur og ná sér í
pening en síðan ætla í áframhald-
andi nám.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 27. janúar 1985 .
Hver
kynslóð
styður
aðra
„Myndin sem ég ætla að gera heitir „Þrjár kyn-
slóðir“. Ég hef þrjár uppistöður í vefnum, ömmu,
mömmu og dóttur. Hver þeirra styður aðra og ef ein
væri tekin í burtu riðlaðist munstrið, sem er þeirra
lífsmuastur", sagði Maja Mörkeberg.
Majaerdanskurvefnaðarkennari, fluttist hingað
til lands í fyrrasumar og hefur verið í Myndlista-
skólanum síðan. „Skólinn hér er góður og margt
duglegt listafólk hérna. Ég læri mikið á að vera í
þessum félagsskap og lýk námi með stelpunum í
vor. Veit ekki hvað tekur við þá!“