Þjóðviljinn - 27.01.1985, Blaðsíða 7
Halldóra viö vefinn.
Kona
með
þreytt
brjóst
„Þetta er bara mynd af konu með þreytt brjóst.
Eiginlega er ég ekkert mikið fyrir vefnað. Ég er
aðallega að spekúlera í forminu. Vefurinn verður í
þrívídd og síðan lita ég bandið eftir að myndin er
búin“, sagði Halldóra Thoroddsen.
Á ljósmyndinni sést að Halldóra er búin með háls
og herðar á formóður sinni.
Þuríður Dan Jónsdóttir litar garnið skærbleikt. Það ætlar hún
síðan að nota til að túlka ævintýri langömmu sinnar. Mynd
-eik-.
Grasalœknir
túlkaður
með stráum
„Ég tek langömmu mína fyrir. Hún var grasa-
læknir og tók á móti börnum. Auk þess sagði hún
krökkum ævintýri sem voru víst með ólíkindum
skemmtileg. Þess vegna vef ég með stráum og
gróðri. Auk þess nota ég garn frá Hampiðjunni sem
ég lita með skærum bleikum og bláum litum. Það
ætla ég að vefa milli stráanna til að túlka ævintýra-
heim langömmu minnar. Og Ijósmóðurstörfin ætla
ég að túlka með hvítum lit sem táknar þá nýtt líf“,
sagði Þuríður Dan Jónsdóttir.
Langamma Þuríðar var Guðrún frá Brekku á
Vatnsleysuströnd. Ævintýri hennar eru ekki til
skráð og Þuríður sagðist aðeins hafa heyrt um þau.
Sagðist nú ætla að reyna að túlka þau í vefnum. Ef
til vill væri þessi túlkunarþörf komin frá langömm-
unni, sagði hún. Þuríður stefnir að því að taka tvö
lokaverkefni í skólanum bæði í þrykki og vefnaði,
en sagðist ekki vita hvað síðan tæki við. „Það er
bara að halda áfram!“
Guðrún J. Kolbeins að undirbúa garn fyrir litun. Mynd -eik-.
Kven-
skörungur
úr
Gfslasögu
„Mig langaði að taka einhvern kvenskörung úr
íslendingasögunum. Auður Vésteinsdóttir úr Gísla-
sögu varð fyrir valinu. Hún var mjög trú sínum
manni. Hélt búi þeira uppi þegar hann var á flæk-
ingi í útlegðinni. Það sem ég túlka í vefnum er þegar
Kolbeinn kom til Auðar og vildi kaupa hana með
silfri til að segja til manns síns“, sagði Guðrún J.
Kolbeins.
Hún var að undirbúa garn fyrir litun til þess
gerðu verkfæri. Notar hún hamp ásamt mörgum
tegundum af garni í vefinn um Áuði.
„Ég er að setja upp stólinn. Konurnar vef ég sem uppistöður úr
grófu bandi og síðan kemur lífsmunstur þeirra inn á milli", sagði
Maja Mörkeberg, danskur vefnaðarkennari sem stundar í vetur
nám í textildeild Myndlista- og handíðaskólans. Mynd -eik.
„Amma mín var sveitakona og
þess vegna vel ég kannski lop-
ann og jarðliti. Útilokað að setja
hana í annað samband", sagði
Jóna Sigríður Jónsdóttir, sem
vefur ömmu sína „fígúrativt".
„Mér fannst nærtækast að
velja ömmu, þegar þetta þema
kom upp á. Þekkti hana mjög
vel, var alin upp hjá henni“.
Jóna Sigríður Jónsdóttir túlkar sveitakon-
una með lopa og jarðlitum. Mynd -eik.
Nœr-
tœkast
að velja
ömmu
Amma Jónu Sigríðar var
Steinunn Árnadóttir, Litla-
Hvammi í Mýrdal.
Sunnudagur 27. janúar 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7