Þjóðviljinn - 27.01.1985, Síða 12
ÆTTFRÆÐI
Allsherjaratkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu við kjör stjórnar fyrir árið 1985.
Tillögur skulu vera um: formann, varaformann, ritara,
gjaldkera og þrjá meðstjórnendur ásamt þremur til
vara. Tvo endurskoðendur og einn til vara.
Tillögum, ásamt meðmælum hundrað fullgildra fé-
lagsmanna, skal skila á skrifstofu félagsins, Skóla-
vörðustíg 16, eigi síðar en kl. 11 fyrir hádegi föstudag-
inn 1. febrúar 1985.
Veislusalir
Veislu- og fundaþjónustan
Höfum veislusali fyrir hverskonar
samkvæmi og mannfagnaði.
Fullkomin þjónusta og veitingar.
Vinsamlega pantið tímanlegafyrir veturinn.
RISIÐ Veislusalur
Hveríisgötu 105
^ mno/t //
símar: 20024 -10024 - 29670.
LAUS STAÐA:
Forstöðumaður
Verkstjórnarfræðslunnar
Verkefni forstöðumanns eru að:
Rannsaka og skilgreina hvaða námsþætti skuli
kenna á námskeiðum Verkstjórnarfræðslunnar til
að þau uppfylli sem best þarfir atvinnulífsins.
Finna hæfa leiðbeinendur og aðstoða þá við að
skipuleggja kennsluna.
Annast daglegan rekstur og skipulagningu.
Umsóknir þurfa að berast fyrir 15. febrúar. Nánari
upplýsingar veitir Hermann Aðalsteinsson í síma 68-
7000.
Verkstjórnarfræðslan heldur námskeið í ýmsum þáttum verkstjórnar, einkum
ætluð starfandi og verðandi verkstjórum. Verkstjórnarfræðslan lýtur stjórn,
skipaðri af iðnaðaráðherra skv. lögum, en Iðntæknistofnun annast daglegan
rekstur og fjárreiður í umboði stjórnar.
Verkstjórnarfræðslan
Iðntæknistofnun (slands
Styrkir til
sumarnáms í
Bandaríkjunum
Fulbrightstofnunin vill styrkja tvo framhaldsskólakennara til
að taka þátt í námskeiði í og kynningu á landafræði, sögu og
bókmenntum Bandaríkjanna, sem verða við University of
Minnesota í júlí og ágúst. Að loknu fimm vikna námi við
háskólann er haldið í tveggja vikna ferðalag um Bandaríkin,
með fararstjóra.
Námskeiðið er ætlað ensku-, sögu- eða landafræðikennur-
um. Þátttakendur geta ekki haft fjölskyldumeðlimi með sér.
Frekari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá Ful-
brightstofnuninni (opin 12.00-16.00), Neshaga 16, sími
10860.
/Éttfrœðigetraun 3
Ættfræðigetraun þrjú er með
sama sniði og sú fyrsta. Lesend-
ur eiga að finna út hverjir eru tví-
menningar á myndunum
(systkina, bræðra - eða systra-
börn). Hver um sig er sem sagt
tvímenningur við einhvern annan
þannig að um 6 pör er að ræða.
Er t.d. Ingibjörg Haraldsdóttir tví-
menningur við Auði Eir eða ein-
hvern annan?
Dregið verður úr réttum
lausnum ef margar berast. Þær
sendist Þjóðviljanum, Síðumúla
6, merktar Ættfræðigetraun 3 og
er nauðsynlegt að setja þær í
póst fljótlega eftir helgi því að
dregið verður úr réttum lausnum
nk. föstudag og rétt svör birt í
næsta Sunnudagsblaði. Ef blað-
ið berst mjög seint til staða úti á
landi má hringja inn lausnir til
Guðjóns Friðrikssonar í síma
81333.
1. Áslaug Ragnars
rithöfundur
2.
sr. AuðurEirVil-
hjálmsdóttir
prestur
3.
sr. Gunnar Krist-
jánsson prestur
Bókaverðlaunin
4. Hallveig Thorl-
acius þýðandi og
dómtúlkur
5. Heimir Pálsson
menntaskóla
kennari
6. HjálmarRagn-
arsson tónskáld
Meisfarinn
og Margrét
Verðlaun eru að þessu sinni
skáldsagan Meistarinn og Mar-
grét eftir sovéska rithöfundinn
Míkahíil Búlgakof í ágætri þýð-
ingu Ingibjargar Haraldsdóttur.
Saga þessi segir frá hinum furð-
ulegustu tíðindum: fjandinn sjálf-
ur er kominn í heimsókn til Mos-
kvu einhverntíma um 1930 er
sagan gerist og fær það sér-
stæða hlutverk að tukta spillta og
mútuþæga embættismenn og
reisa við ofsótta fulltrúa ásta og
listar. Fylgja honum stór-
skemmtilegir árar af ýmsu tagi.
Sögunni víkur einnig til Gyðinga-
lands á dögum Krists: Jesús
kemur fyrir Pílatus og í viðureign
þeirra kynnumst við með eftir-
minnilegum hætti hugleysi valds-
ins fyrr og síðar. Útgefandi er Mál
og menning.
7. Hjördís Hákon-
ardóttirborgar-
dómari
8. Hrafn Bragason
borgardómari
9. Ingibjörg Har-
aldsdóttirkvik-
mynda-
gagnrýnandi og
skáld
10. Kristín Halldórs-
dóttir alþingis-
maður
11. MagnúsTorfa-
son fv. hæsta-
réttardómari
12. SunnaBorg
leikari
Lausn á œttfrœaigetraun 2
Ættfræöigetraun Þjóðvilj-
ans veröur sífellt vinsælli og
um land allt er fólk að spreyta
sig á henni. Fjölmargar
lausnir bárust viö öðrum hluta
og var dregiö um þær. Upp
kom nafn Jónínu Margrétar
Gísladóttur, Hörgshlíð22,
Rvík. Verðlaunin voru Glatað-
irsnillingar eftirWilliam
Heinesen íþýðingu Þorgeirs
Þorgeirssonar. Hafa þau þeg-
ar verið póstlögð til hinnar
heppnu.
Rétt svör voru þessi:
1. Sonur séra Bjarna Jónssonar
er Ágúst skrifstofustjóri í
Reykjavík og dóttir hans er Guð-
rún Ágústsdóttir borgarfulltrúi
Alþýðubandalagsins f Reykja-
vík.
2. Sonur Guðbrands Kjartans-
sonar forstjóra Áfengisverslun-
arinnar var Kjartan flugmaður en
sonur hans er Magnús Kjartans-
son myndlistarmaður.
3. Dóttir Héðins Valdimars-
sonar alþm. er Bríet leikstjóri en
dóttir hennar er Laufey Sigurðar-
dóttir fiðluleikari.
4. Dóttir Helga Hjörvar er Guð-
rún Kjarval (átti Svein Kjarval
arkitekt) en dóttir hennar er Kol-
brún Kjarval myndlistarmaður.
5. Dóttir Sigurðar Thoroddsens
verkfræðings og yfirkennara er
Kristín Kress í Reykjavík (átti dr.
Bruno Kress) og dóttir hennar er
Helga Kress cand. mag.
6. Sonur Theódóru Thoroddsen
var Sigurður Thoroddsen verk-
fræðingur en sonur hans er Dagur
Sigurðarson skáld.
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 27. janúar 1985