Þjóðviljinn - 27.01.1985, Blaðsíða 14
BÆJARRÖLT
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtal-
inna starfa. Starfskjör samkvæmt kjara-
samningum.
Fulltrúi Starfsmannahald Reykjavíkurborg-
ar óskar eftir að ráða fulltrúa við launaaf-
greiðslu ofl.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma
18800.
Gjaldkera vantar hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma
686222.
Skrifstofumann vantar í tímabundnar af-
leysingar hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma
686222.
Deildarfulltrúi Félagsmálastofnun Reykja-
víkurborgar óskar eftir að ráða deildarfulltrúa
í hverfaskrifstofu að Síðumúla 34.
Upplýsingar veitir félagsmálastjóri í síma
25500.
Starfsmann vantar í almennt unglinga- og
æskulýðsstarf Félagsmiðstöðvarinnar
Fellahelli.
Menntun og reynsla á sviði uppeldismála
æskileg.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
73550.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð
á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar
fást fyrir kl. 16.00 mánudaginn 4. febrúar
1985.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
SLÖKKVILIÐ REYKJAVÍKUR
óskar eftir að ráða sumarstarfsmenn til or-
lofsafleysinga á sumri komanda.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu Slökkvi-
stöðvarinnar í síma 22040.
Umsóknum ber að skila þangað á sérstökum
umsóknareyðublöðum, sem þar fást fyrir 28.
febrúar 1985.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
óskar að ráða fólk til tilsjónarmannastarfa.
Starfið er fólgið í því að styðja börn og ung-
linga, persónulega og félagslega ca. 20-40
tíma á mánuði.
Okkur vantar fólk, sem hefur áhuga á mann-
legum samskiptum og gott innsæi, er hug-
myndaríkt, styðjandi og hefur hlýlegt viðmót,
en jafnframt ákveðið og hefur tök á að skuld-
binda sig í a.m.k. hálft ár.
Þessi auglýsing á við alla, óháð menntun eða
stöðu.
Nánari upplýsingar gefur unglingafulltrúi í
síma 25500.
Umsóknareyðublöðum ber að skila til starfs-
mannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthús-
stræti 9,6. hæð á sérstökum umsóknareyðu-
blöðum, sem þar fást fyrir kl. 16.00 mánu-
daginn 4. febrúar 1985.
í blaðamannastétt er það talið
til tekna að hafa ákveðna gerð af
nefi sem nefnt er fréttanef. Það
hefur enga sérstaka lögun en
verður að vera mjög þefvíst.
Sjálfur hef ég starfað við blaða-
mennsku í allnokkur ár og hef
talið sjálfum mér trú að mitt nef
væri ekki lakara af guði gert en
gengur og gerist. Það hefur
jafnvel komið fyrir að ég hafi
skúbbað eins og það heitir á blað-
amannamáli, náð í einhverja
mjög góða frétt og verið einn
með hana. En um síðustu helgi
varð ég fyrir áfalli.
Svo er mál með vexti að ég gisti
á Hótel ísafirði í þrjár heilar næt-
ur og meðan ég dvaldi þar gerð-
ust á því sama hóteli dramatískir
atburðir sem fréttir birtust af í
öllum blöðum - nema Þjóðviljan-
um. Ég hafði ekki hugmynd um
þá en samt var ég eini blaðamað-
urinn á staðnum og sá í raun og
veru allt sem gerðist - án þess að
sjá það.
Það voru nefnilega handteknir
10 menn á hótelinu meðan ég
dvaldi þar í ró og makindum. Ég
las það í blöðum þegar ég kom
heim. Tveir eiturlyfjasalar gistu á
hótelinu og efndu þar til mikillar
hassveislu sem leystist upp með
fyrrgreindum afleiðingum. Ann-
að var það ekki.
Auðvitað sá ég allt þetta lið að
svalli á teríunni og hefði verið
hægðarleikur að ná því öllu á
filmu. En ég skipti mér ekki af
því, var sannfærður um að þarna
væru laiigdrukknir sjóarar í land-
legu. Ó, mig auman.
Á sunnudagsmorgun mætti ég
tveimur lögregluþjónum á harð-
ahlaupum upp stigana og spurði
stúlkuna niðri auðvitað hvað um
væri að vera (fréttanefið). Hún
sagði að það væri verið að hand-
taka mann, það gerðist svo margt
á ísafirði. Ég sá í anda að fylli-
bytta hefði verið að gera ónæði á
efstu hæðinni. Nú, sagði ég og fór
svo með kaffi á bakka til konunn-
ar minnar upp á herbergi. Það
telst ekki blaðamatur nú til dags
þó að fyllibytta sé með læti. Ef ég
hefði hinkrað við hefði ég séð
heila hersingu koma járnaða nið-
ur stigana. O, mig auman.
Seinna um daginn sá ég tvo al-
vörugefna og myndarlega menn í
jakkafötum með svartar töskur á
hótelinu. Mér finnst afskaplega
gaman að velta fyrir mér hvað
fólk er að gera á hótelum og við
konan mín fílósóferuðum dálítið
um hvað þessir menn væru að
gera. Seinna sá ég að auðvitað
hlutu þetta að hafa verið
rannsóknarlögreglumenn frá
Reykjavík. Ef ég hefði asnast til
að spyrja hefði ég verið fyrstur
með fréttirnar.
Það var að vísu nokkur huggun
harmi gegn að samtímis mér og
hassliðinu voru tveir fyrrverandi
blaðamenn af Þjóðviljanum, rit-
stjóri og fréttastjóri, sem nú eru
komnir út í pólitík. Þeirra frétt-
anef hlýtur að vera orðið nokkuð
dauflegt, hugsaði ég eftir á.
Kannski að ég ætti að fara út í
pólitík.
Þegar ég kom til Reykjavíkur
var mikið hlegið af mér á blaðinu
og búnar til sögur um að auðvitað
hefði ég verið í hasspartíinu og
verið fluttur í böndum til Reykja-
víkur, fyrst rankað við mér í Síðu-
múlafangelsinu. Ég lét þetta sem
vind um eyru þjóta og minntist
sögunnar af Þjóðviljanum í
gamla daga. Það var þegar gas-
kútaverksmiðjan ísaga sprakk í
loft upp svo að sprengjan
heyrðist um allan bæ og rúður
brotnuðu í mörg hundruð metra
radíus. Einu Reykvíkingarnir
sem ekkert vissu voru blaðamenn
Þjóðviljans og engum datt í hug
að segja þeim frá þessu - það var
svo augljóst að þeir hlytu að vita
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Árshátíð og þorrablót ABR
Árshátíð og þorrablót Alþýöubandalagsins í Reykjavík verður hald-
ið laugardaginn 2. febrúar í Flokksmiðstöð Alþýðubandalagsins að
Hverfisgötu 105.
Veislustjóri verður Silja Aðalsteinsdóttir. Guðmundur Hallvarðs-
son sér um gítarleik og vísnasöng. Jón Hnefill Aðalsteinsson flytur
ávarp. Koma leynigestir í heimsókn? Lifandi tónlist í vestursal, en
vynildiskum verður snúið í austursalnum. Húsið opnað kl. 19.30 og
borðhaldið hefst kl. 20.00.
Athugið að í fyrra var fullt út úr dyrum og komust færri að en vildu.
Pantið því miða strax í síma 17500. Sækja verður pantaða miða á
föstudag fyrir kl. 15.00, annars verða þeir seldir öðrum.
Skemmtinefnd ABR
AB fél. Selfoss og nágrennis
Opið hús
verður laugardaginn 26. janúar nk. Margrét Frímannsdóttir vara-
þingmaður mætir og spjallar við fólk. Kaffi og meðlæti.
Staður: Kirkjuvegur 7 Se'fossi. Tími: Kl. 14.00-? Félagar fjöl-
mennið til skrafs og ráðagerða yfir kaffinu. - Stjórnin.
Kvennafylking AB
Fundur
verður miðvikudaginn 30. janúar að Hverfisgötu 105 kl. 20.30.
Rætt um starf kvennafylkingarinnar það sem af er og framundan.
Málshefjandi er Snjólaug Armannsdóttir.
Miðstöð kvennafylkingar AB
AB Stykkishólmi
Á sunnudaginn (27. jan.)
mætum við á fund í
Verkalýðshúsinu.
Hann hefst klukkan fjögur
og framsögu um
stjórnmálaástandið, landsins
gagn og nauösynjar hefur
Skúli Alexandersson.
Félagar og stuðningsmenn,
mætið allir og all-
ar, vel og stundvíslega.
Kvennafylkingin auglýsir
Konur! Mætum í morgunkaffi!
Alltaf heitt á könnunni í Flokksmiðstöð AB að Hverfisgötu 105 á
laugardagsmorgnum frá kl. 11.00. Hittumst og spjöllum saman um
það sem okkur liggur á hjarta.
Miðstöð Kvennafylkingar AB
ÆSKULÝBSFYLKINGIN
ÆFABK
Aðalfundur
Æskulýðsfylkingin í Kópavogi boðar til aðalfundar í Þinghól miðvikudaginn
30. janúar kl. 20.30.
Hópurlnn
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Spilakvöld
Spilað verður þriðjudagskvöldið
29. janúarkl. 20.00
að Hverfisgötu 105.
Þetta er annað kvöldið í þriggja
kvölda keppni, en einnig er
keppt um sjálfstæð verðlaun
hvert kvöld, þannig að þeir
semekki tóku þátt í fyrstí
spilakvöldinu, 15. jan., geta sem
hægast tekið þátt núna.
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 27. janúar 1985