Þjóðviljinn - 27.01.1985, Qupperneq 15
KROSSGÁTA
Nr. 452
/ 2 ¥~~ 5~ Z~~ y— ¥~ <y 7 V 7 ~8~ 1~~
10 11 12 V 13 \¥ <P 18 lá> v~~ 17 2
É <v 12 & 18 Ý <7 18 & 2o 17 2 r 21
Z 21 V 2 l¥ 12 l¥ <2 17 /2 i*r 3 9
7 2 Ja 20 7 l¥ 12 ¥ 9 22 (o W~ 17
2¥ 2S 12 18 23 /¥ 8 ¥ 17 2 $ 2ls> 20 17
2k 20 zh Z0B l¥ 7 l¥ 1¥ 20 l¥
22 >¥ 21 q 18 2(s> 8- <? 7 18 ii 23 V Zb 12
<2 22 10 u 18 V 2 )¥ )7 18 U 1Z V 17
l'r 28 )¥ 27- <5 14 28 V 17 9 12 ¥ 17 2
2? & 20 )¥ 22 )¥ 7 18 21 V 17 ¥ f¥ 22 V; V
3o V )¥ 8 17 2 12 V 18 11 27 l¥ 12
22 3í 2 V 20 lÉ 28 17 12 28 //
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á þorpi
hérlendis. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans,
Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 452“. Skilafrestur er
þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa.
15 II 2 12 5 8 2°1 22
Stafimir mynda íslensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort
sem lesið er lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gáturnnar er sá
að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera naeg hjálp því
með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu
vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir því sem
tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að í þessari
krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sórhljóða og
breiðum t.d. getur a aldrei komið í stað á og öfugt.
Verðlaun fyrir krossgátu nr. 449
hlaut Ragnar Þorsteinsson, Hlíð-
arvegi 50, Kópavogi. Þau eru
bókin 1000 spurningar og svör
fyrir alla fjölskylduna eftir Óskar
Ingimarsson og Hermann Gunn-
arsson. Lausnarorðið var Tví-
dægra.
Verðlaunin að þessu sinni er bók-
in Uppruni Njálu og hugmyndir
eftir Hermann Pálsson.
MINNING
Páll Sigurðsson kennari
F. 20. júní 1899 - D. 20. jan. 1985
Afi minn, Páll Sigurðsson,
fyrrverandi kennari, Gilsbakka-
vegi 5 Akureyri, andaðist á
Fjórðungssjúkrahúsinu þar í bæ
þann 20. þessa mánaðar eftir
þungbær veikindi síðustu mán-
aða. Hann var á 86. aldursári og
hafði fram á haustdaga fyrra árs
borið aldurinn vel, var hress í
bragði og starfsamur að hugðar-
efnum sínum. Hann átti góða elli,
naut umhyggju eiginkonu og
dætra og fékk að deyja skömmu
eftir að sjúkdómar höfðu lamað
starfs- og sálarþrek hans.
Páll afi minn var fæddur að
Merkigili í Eyjafirði 20. júní
1899. Hann var yngstur 7 barna
þeirra hjóna Sigurðar Sigurðs-
sonar frá Flatnefsstöðum í Þver-
árhreppi og Guðrúnar Rósu Páls-
dóttur frá Kjartansstöðum í
Skagafirði. Þau Merkigilssystkin
eru nú öll látin.
Æskustöðvarnar voru afa mín-
um kærar. Hann var lítið fyrir
ferðalög, heimakær úr hófi en
aldrei sló hann hendi móti því að
skjótast fram í Eyjafjörð á æsk-
usíóðirnar. Þá held ég hafi vakn-
að með honum hlýjar minningar
um látna foreldra og systkini og
minntist þeirra með hlýhug.
Ég ætla að leyfa mér að full-
yrða að afi minn hafi verið
greindur maður og flugnæmur.
Skömmu eftir tvítugt komst hann
til náms í Gagnfræðaskólanum á
Akureyri nú Menntaskóla og
lauk gagnfræðaprófi árið 1921.
Ekki voru efnin meiri en svo að
hann treysti sér ekki til áfram-
haldandi náms við skóla sem ein-
ungis hefði gefið möguleika til
áframhaldandi náms, heldur lá
leið hans til Reykjavíkur í Kenn-
araskólann þaðan sem hann lauk
kennaraprófi árið 1924.
Oft fann ég það á honum er ég
var sjálfur í skóla á Akureyri að
hugur hans hefði á sínum tíma
staðið til frekari skólagöngu en
hann taldi sér það fjárhagslega
ókleift. Þótt skólagangan yrði
ekki lengri jók hann menntun
sína á eigin spýtur og var lærður
vel eins og stundum er sagt. Vfk
ég að því síðar.
Að loknu kennaraprófi var afi
kennari og skólastjóri á nokkrum
stöðum, lengst í Ólafsfirði. Þá
hafði hann stofnað heimili og
gengið að eiga hana ömmu mína,
Vilborgu Sigurðardóttur ættaða
af Fljótdalshéraði. í Ólafsfirði
eru dætur þeirra fæddar og áttu
sitt æskuheimili. Þær eru: Guð-
rún Rósa, kennari, Akureyri,
Margrét Kristrún, húsfreyja að
Ljósalandi, Vopnafirði, Sigríður
Guðný, hjúkrunarfræðingur og
Álfhildur kennari, báðar á Akur-
eyri. Sólgarðar í Fljótum og
Stokkseyri koma við sögu en
seinast var hann skólastjóri
barna- og unglingaskólans að
Hrafnagili í Eyjafirði, skammt
frá æskuslóðum sínum. Þar lét
hann af störfum árið 1967 og
gerðist eftirlaunamaður.
Kennarinn og skólastjórinn
Páll Sigurðsson er mér nú sannast
sagna lítt kunnur. Þegar ég fer
fyrst að ráði að muna eftir og
kynnast afa mínum var hann dag-
launamaður á Akureyri, var við
skipaafgreiðslu á vetrum en gekk
að slætti á opnum svæðum hjá
Akureyrarbæ á sumrin. Það er
bjart yfir þeim tíma þegar ungur
maður frá Siglufirði var í heim-
sókn hjá afa og ömmu á Gils-
bakkaveginum og kannaði
leyndardóma þess stóra staðar
Akureyrar. Þá var notalegt að
finna afa sinn á ólíklegustu stöð-
um í bæjarlandinu með orf og ljá,
setjast undir tré og rabba saman.
Ilmur af nýslegnu grasi og
hnausþykku dísætu kaffi berst
enn að vitum mér og græn
heimasmíðuð kaffitaskan í
grasinu.
Hann afi átti lfka smíðakompu
þar sem mátti dunda sér og um
helgar hjóluðum við langt, langt
út í óbyggðimar. Þá náði byggðin
að Mýrarveginum. Einu sinni
tókum við með okkur tóbak,
tálguðum okkur pípu úr jurtinni
kjörvel, settumst i skurð og
horfðum á bláan reykinn liðast til
lofts. Okkur þótti vfst hvorugum
gott að reykja - en við höfðum
sannreynt að hægt var að reykja
með þessu lagi.
Árin líða og þegar sami
sveinstauli settist í Mennta-
skólann á Akureyri var afi besti
kennarinn í þeim greinum sem
getan var ekki alltof mikil í. Alge-
bra, geómetria, þýska málfræðin
- allt varð þetta ljóst og skiljan-
legt eftir að hafa skoðað málin
með afa. Þá varð mér ljóst hvílík-
ur afburðanámsmaður hann hef-
ur verið og hvað hann naut þess
að kunna og læra fræðin. Stærð-
fræði þótti honum skemmtilegust
enda rökvís maður. Stundum
vakti hann um nætur og reiknaði.
Það þykir sjálfsagt mörgum
undarlegt en ekki mér. Einn
morgun sagði hann mér harla
glaður í bragði að hann hefði
fundið að nýju formúlu fyrir rúm-
máli geira úr kúlu en sú formúla
hefði í svip dottið honum úr
minni. Með rökfestu sinni hafði
hann sem sé endurheimt þennan
hollvin sinn, rúmmál kúlugeirans
og brosti kankvís. Mér er nær að
halda að hann hafi aldrei gleymt
neinu sem hann á annað borð
hafði lært, hann las mikið, kunni
ljóð og var vel skáldmæltur en
flíkaði því lítt.
Afi minn hafði sterka sam-
kennd með öðrum, sérstaklega
þeim sem honum þótti eiga bágt.
Hann gaf smáfuglunum korn á
vetrum og vorkenndi dýrum í
vetrarhörkum. Hann fór hlý-
legum orðum um menn og mál-
leysingja sem honum þótti eiga
undir högg að sækja - jafnvel ref-
inn sem hann nefndi sauðbjálfa ef
svo bar undir. En hann lét ekki
sitja við orðin tóm. Síðustu árin
helgaði hann sig söfnun handa
hungruðum börnum heimsins. Á
hverju kvöldi fram á nótt rölti
hann um miðbæ Akureyrar og
safnaði flöskum og seldi svo dag-
inn eftir. Eftirtekjan rann til
hjálparstofnana. Þannig vildi
hann leggja sitt af mörkum til að
lina þjáningu þessara fjarlægu
meðbræðra sinna en vissi þó
manna best að meira þurfti en
hans framlag.
Oft held ég fólkið hans á Akur-
eyri hafi verið hrætt um gamla
manninn á þessu næturgölti, ein-
hver drukkinn gæti flogið á hann
og skaðáð. Aldrei kom 'þó tíl
þess, frekar að hann fengi hjálp
við söfnuna og borin væri til hans
flaska og flaska. Hafi þeir þökk
er það gerðu.
Þegar hann var að koma úr
einni slíkri ferðinni í haust hneig
hann niður úti um miðja nótt. Þar
með var þrekið búið og nú er
hann allur.
Og nú eigum við minninguna
um þennan að mörgu leyti lán-
sama en kannski dálítið sérstaka
mann. í svip er söknuðurinn
sterkari gleðinni og þakklætinu
yfir því að hafa átt hann en
lögmál lífsins verða ekki umflúin
og brátt verður farsællega liðin
ævi afa míns fremur uppspretta
ánægjulegra minninga en sakn-
aðar. Þeim systrum og ömmu
minni, traustum förunaut hans í
lífinu, sendi ég samúðarkveðjur.
Hún veit að afi dvelur nú hjá góð-
um guði. Ég veit líka, að væri ég
spurður hvernig góðir afar ættu
að vera, segði ég hiklaust:
„Heyrðu mig, góurinn minn, eins
og hann afi minn“.
Eiríkur Páll Eiríksson
Akraneskaupstaður
Aðalféhirðir
Laust er til umsóknar starf aöalféhiröis Akraneskaup-
staðar. Starfiö fellst í daglegri umsjón og ábyrgð meö
fjárreiðum bæjarins, greiðslum til viðskiptamanna,
gerð greiðsluáætlana, samskiptum við bankastofnan-
ir o.fl.
Við leitum að hæfum starfsmanni með góða undir-
stöðumenntun og reynslu.
Upplýsingar um starfið veitir bæjarstjóri eða bæjarrit-
ari í síma 93-1211.
Umsóknum um starfið skal skilatil undirritaðs á bæjar-
skrifstofuna fyrir 15. febrúar 1985.
Bæjarritari.
- Sunnudagur 20. janúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15