Þjóðviljinn - 27.01.1985, Blaðsíða 16
LEÐARAOPNA
Hvað bjó að l
■ Draumur Sjálfstœðisflokksins vekur lítinn fögnuð meðal
vegna stuðníngsins við íhaldíð ■ Sömu menn og stjórnuðu allri J,
Það hefur verið stefna Sjálf-
stæðisflokksins í Hafnarfirði
alltfrá því Bæjarútgerðin var
stofnuð til að tryggja atvinnu í
bænum í kreppunni fyrir rúm-
um 50 árum að koma stjórn
þess úr höndum bæjarins.
Margar atlögur hafa verið
gerðar að BUH í gegnum árin
en mikill meirihluti bæjarbúa
og verkalýðshreyfingin ætíð
staðið vörð um fyrirtækið.
Kannski vekur furðu, hvers
vegna einmitt núna skuli enn á ný
verið látið til skarar skríða eftir
að íhaldið hefur haft tögl og hagl-
dir í stjórn bæjarins hátt á annan
áratug, en skýringar eru margar.
Fyrir það fyrsta þá hefur um langt
skeið verið klofningur innan
Sjálfstæðisflokksins um afstöðu-
na til BÚH. Við síðustu bæjar-
stjórnakosningar var Gunnars-
armurinn þurrkaður úr bæjar-
stjórninni og fjandmenn BÚH
fylla þar nú hvert sæti flokksins.
Sama varð uppá teningnum hjá
Óháðum borgurum, eða óháða
íhaldinu. Forystumaður flokks-
ins vék úr bæjarstjórn en við for-
ystunni tók einn ákafasti and-
stæðingur BÚH sem fyrirfinnst í
bæjarstjórninni.
Útgerðarróð gert
óstarfhœft
Allt þetta kjörtímabil hafa farið
fram háværar umræður í bæjar-
stjórn um stöðu BÚH þar sem
forystusveit íhaldsins hefur út-
hrópað slæma rekstrarstöðu
fyrirtækisins og marglýst yfir van-
hæfni útgerðarráðs og forstjóra
BÚH til að halda utan um rekst-
urinn. Hafa þessi upphlaup vald-
ið miklum og hörðum árekstrum
mill Sjálfstæðismanna í útgerð-
arráði og í bæjarstjórn og útgerð-
arráði nánast verið gert ókleift að
sinna stjórn fyrirtækisins.
Bæjarstjórn ákvað síðan sl.
sumar að skipa sérstaka starfs-
nefnd til að fara ofan í fjármál og
rekstur BÚH. Um haustið krafð-
ist einn nefndarmanna þess að
gerð yrði birgðatalning í frysti-
geymslum fyrirtækisins því hann
teldi að ekki væri til fyrir veðum.
Að áliti kunnungra varð þessi
óvænta krafa fremur öðru til þess
að ákveðið var að loka frystihús-
inu, en það var einmitt tilgangur-
inn með kröfunni.
Næstu þrjá mánuði heyrðist
ekkert frá starfsnefndinni en á
sama tíma var tala atvinnulausra í
bænum komin á þriðja hundrað.
Loks skömmu fyrir jól leggur
nefndin fram tillögu fyrir bæjar-
stjórn um að fjármál fyrirtækisins
verði gerð upp. Pað selt og stofn-
að hlutafélag um rekstur þess.
Deilur í
Alþýðuflokki
Forystumaður Alþýðuflokks-
ins Hörður Zóphaníasson sem
sæti átti í starfsnefndinni skrifaði
uppá þessa tillögu. Sú ákvörðun
hefur valdið töluverðum deilum í
Alþýðuflokknum sem þar með
lagði íhaldinu lið við að leggja
BUH niður. Einn heimildar-
manna blaðsins innan flokksins
sagði að forystan hefði gengið í
gildru íhaldsins. Menn hefðu ver-
ið farnir að trúa þeim áróðri að
bæjarbúar væru almennt orðnir
andhverfir bæjarútgerðarrekstr-
inum. Menn hefðu hins vegar
ekki séð fyrir út í hvers kyns
endaleysu málið myndi þróast
undir forystu íhaldsins og ekki
heldur kannað hugi starfsfólksins
sem að stórum meirihluta hefur
lýst andstöðu sinni við ætlun
bæjaryfirvalda.
Alþýðubandalagið var eini
flokkurinn í bænum sem frá upp-
hafi lýsti andstöðu sinni við þessa
ráðagerð og benti auk þess á fjöl-
Nú fyrst á mánudaginn kemur, erstefntaðþvíaðfiskiðjuverBÚHtakitilstarfaá ný eftir samfellt fjögurra mánaða stopp.
mörg vafasöm atriði varðandi
fyrirhugaða stjórn, rekstur og
eignahald hins nýja fyrirtækis.
Bœjarbúum
blöskrar
Sjálfstæðismenn höfðu gert sér
grein fyrir verulegri andstöðu
bæjarbúa gegn hugmyndum sín-
um og til að tryggja framgang
þeirra yrði að hafa minnihlutann
með í leiknum. Og, minnugir
harðrar andstöðu verkalýðsfélag-
anna í gegnum árin, þá yrði þeim
einnig auðveldara að keyra málið
í gegn í einum grænum. Enda var
málum þannig fyrir komið að
verkalýðsforystu og starfsfólki
bæjarins var ekki skýrt formlega
frá áætlun bæjarins, þrátt fyrir
eindregnar kröfur þar um, fyrr en
daginn eftir að málið hafði verið
endanlega afgreitt í bæjarstjórn.
Þessi vinnubrögð og annað í
framhaldi af því, t.d. leynilegur
stofnfundur hlutafélagsins á
bæjarskrifstofunum á sunnu-
dagssíðdegi þar sem bæjarfulltrú-
ar skipuðu sjálfa sig í öll stjórnar-
embætti hins nýja hlutafélags,
hafa valdið mikilli tortryggni hjá
starfsfólki og öðrum bæjarbúum
og ekki vakið mikið traust á hinu
nýja félagi.
Verkalýðsfélögin
andœfa
Forystumenn verkalýðsfélag-
anna í bænum hafa lýst yfir harðri
andstöðu við sölu BÚH. Óskar
Vigfússon formaður Sjómanna-
sambandsins og Sjómannafélags
Hafnarfjarðar hefur lýst því yfir
að bæjaryfirvöld sættu nú lagi og
legðust á hræið eftir að stjórnvöld
væru langt komið með að kné-
setja alla útgerð og fiskvinnslu í
landinu. Hallgrímur Pétursson
formaður Hlífar hefur lagt
áherslu á að með þessari ákvörð-
un sé bærinn að stíga fyrsta skref-
ið til að losa sig algjörlega undan
allri ábyrgð á rekstri BUH.
„Sjólfstœðis-
menn sviknir"
Og fleiri eru reiðir, þar á meðal
margir dyggir Sjálfstæðismenn
sem segjast hafa verið sviknir.
Hlutafélagið sé aðeins papp-
írsgagn og íhaldið beri ábyrgð á
því hvernig komið sé fyrir rekstri
BÚH: Eða eins og Kristófer
Magnússon segir í Mb. nú í vik-
unni: „Mér er spurn, hvað hefðu
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
sagt, ef þeir væru í minnihluta, og
aðrir flokkar hefðu staðið að slík-
um ófögnuði“. Og um nýja
hlutafélagið segir hann: „Ef bær-
inn ætlar að eiga 51% í BÚH og
LEIÐARI
Atvinnuöryggið fyrir mestu
Þegar bæjarútgeröir voru settar á laggirnar á
sínum tímum atvinnuleysis og kreppu, var til-
gangurinn umfram allt sá að tryggja atvinnu
fólks og koma í veg fyrir atvinnuleysi í byggðar-
lögunum. Bæjarútgerðirnar mættu þegar frá
öndverðu andspyrnu borgaralegra afla, sem
töldu atvinnurekstur af þessum toga af hinu illa,
eins og samvinnufélögin og ríkisreksturinn.
Þegar bæjarútgerðirnar sönnuðu ágæti sitt,
lét margur einkarekstrarmaðurinn undan og
viðurkenndi nauðsyn rekstrar af þessu tagi.
Hins vegar hafa ævinlega verið til aðiljar sem
fjandskapast útí bæjarútgerðir og félagslegan
rekstur og öðru hverju verða tískubylgjur af
þeim toga stríðar í flokkum eins og Sjálfstæðis-
flokknum. Og einmitt þetta höfum við fengið að
reyna í kjölfar þeirrar frjálshyggju sem undan-
farin misseri hefur verið tíska í Sjálfstæðis-
flokknum. Bæjarútgerðinar víða um landið hafa
orðið fyrir aðkasti sem og útgerðin í landinu.
Tilgangurinn með stofnun og starfsemi
bæjarútgerðanna hefur í tíð bæjarstjórnar
Sjálfstæðisflokksis í Reykjavík og Hafnarfirði
verið hafður að engu - og undanfarin ár hefur
verkafólk og sjómenn við frystihús og togara
útgerðafyrirtækjanna mátt þola árvisst atvinnu-
leysi jafnvel svo mánuðum skiptir. Þannig hefur
verið grafið undan atvinnuöryggi vinnandi fólks í
Hafnarfirði, en Þjóðviljinn gerir í dag hafnfirsku
baejarútgerðina að umfjöllunarefni.
í Hafnarfirði hefur meirihluti bæjarstjórnar
stofnað hlutafélag á leynilegum fundi og vakið
mikla reiði í bænum. - Það hefur verið á stefnu-
skrá Sjálfstæðisflokksins frá því útgerðin var
stofnuð fyrir 52 árum, að leggja hana niður,
segir Rannveig Traustadóttir bæjarfulltrúi Al-
þýðubandalagsins í viðtali við Þóðviljann um
þetta mál.
Rannveig var eini bæjarfulltrúinn sem lýsti sig
andvígan stofnun þessa hlutafélags sem aðrir
bæjarfulltrúar stofnuðu þvert á vilja starfsfólks
frystihússins, verkalýðsfélaganna beggja,
Hlífar og Sjómannafélags Hafnarfjarðar.
í bæjarfélaginu hefur verið ríkjandi mikil reiði
vegna þessa máls og vinnubragða meirihluta
bæjarstjórnar við málið. Sú reiði gengur þvert á
alla flokka,- og í Morgunblaðinu í sl. viku mátti
lesa grein eftir Kristófer Magnússon rekstrar-
hagfræðing og víðfrægan Sjálfstæðisflokks-
mann, sem lýsir ábyrgðinni á ófremdarástand-
inu í rekstri Bæjarútgerðarinnar á hendur Sjálf-
stæðisflokknum og Oháðum borgurum. Kristó-
fer segir að bæjarfulltrúinn Vilhjálmur Skúlason
hafi í raun viðurkennt gjaldþrot Sjálfstæðis-
flokksins og Óháðra í málefnum Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar.
Megin málið er það að sjálfsögðu að atvinnu-
öryggi fólksins sem vinnur hjá Bæjarútgerð
Hafnarfjarðar verði tryggt. Ástæða er til að ótt-
ast að nýstofnað hlutafélag tryggi það ekki. Það
þarf að tryggja áhrif verkafólksins og sjómann-
anna á rekstur fyrirtækisins — og bæjarstjórnin
ætti að tryggja það. Hallgrímur Pétursson for-
maður Hlífar segir í viðtali við þjóðviljann um
málið að hægt væri að ætlast til að bæjarfulltrú-
ar hefðu mannlegu hliðina fyrir augum við rekst-
ur þessa fyrirtækis. Undir það sjónarmið er hér
tekið.
-óg