Þjóðviljinn - 27.01.1985, Blaðsíða 17
LEÐARAOPNA
flokksmanna ■ Miklar deilur meðal Alþýðuflokksmanna
)rdðsíunni" eru einu hlufhafarnir og sfýra dfram „nýja" fyrirtcekinu
þar af leiðandi meirihluta, geta
menn velt því fyrir sér hvers
vegna mannkostamennirnir: Vil-
hjálmur Skúlason, Haraldur Sig-
urðsson og Hörður Zóphanías-
son sem stjórnarmenn hins nýja
hlutafélags, séu hæfari menn en
núverandi útgerðarráð til að
stjórna útgerð“.
Eignastaða
mjög góð
Sigurður Þórðarson deildar-
stjóri í fjármálaráðuneytinu og
formaður útgerðarráðs hefur
mótmælt framkomnum fullyrð-
ingum um bága stöðu útgerðar-
innar og útgerðarráð hefur í ný-
legri bókun mótmælt framkomn-
um fullyrðingum bæjarstjórnar-
manna og sagt þá bera á borð
rangar tölur. í viðtali við Þjóð-
viljann nýlega sagði Sigurður að
sér sýndist að samkvæmt því
uppgjöri á fyrirtækinu sem lagt
var fram vegna hlutafélagsstofn-
unarinnar ætlaði bæjarsjóður sér
að taka ríflega 20 miljónir til sín
frá Bæjarútgerðinni. Reikning-
arnir sönnuðu að eignastaða
BÚH væri mjög góð, betri en
hann hefði áður talið en
skammtímaskuldir erfiður baggi.
Erfitt hjó
útgerðinni
Rekstur Bæjarútgerðarinnar
hefur gengið mjög misjafnlega í
gegnum árin. Oft hefur árað illa
og þá hefur krafan um sölu á
fyrirtækinu jafnan hljómað hæst.
Síðustu árin hefur rekstur fisk-
iðjuversins gengið mjög þokka-
lega og það jafnvel skilað af sér
nokkrum hagnaði á stundum.
Rekstur útgerðarinnar hefur hins
vegar gengið illa eins og annars
staðar á landinu þar sem hver
togarinn á fætur öðrum er nú sett-
ur á nauðungaruppboð. Staða út-
gerðar hjá BÚH er ekkert eins-
dæmi heldur bein afleiðing af
þeirri stefnu sem ríkisstjórnin
hefur markað þessum atvinnu-
vegi.
Á hitt er einnig rétt að benda
eins og Óskar Vigfússon hefur á-
réttað að það er naumast við því
að búast að aflaverðmæti togar-
anna sé jafnmikið samanborið
við aðra togara á heilu ári þegar
BÚH togararnir hafa verið látnir
liggja hvern mánuðinn á fætur
öðrum undanfarin ár.
Bisness er
jú óhœtta
Þeir sem hæst hafa galað á und-
anförnum árum um lélegan rekst-
ur BÚH og borið á borð hvern
útreikninginn á fætur öðrum um
gjaldþrot fyrirtækisins eru þeir
sömu menn og hafa borið alla
ábyrgð á rekstri þessa fyrirtækis á
liðnum árum og jafnvel ára-
tugum. Þessir menn sem hafa
krafist þess að fyrirtækið yrði selt
og gert að hlutafélagi eru þeir
einu sem ennþá hafa treyst sér til
að kaupa hlut í hinu nýja félagi og
sitja nú enn sem áður uppi með
alla ábyrgð á rekstri þess.
Hið eina sem hefur breyst með
því að gera Bæjarútgerðina að
hlutafélagi bæjarins og bæjar-
fulltrúa er að í stað fullrar
ábyrgðar bæjarsjóðs á öllum
kröfum á fyrirtækið er bæjarsjóð-
ur nú einungis ábyrgur fyrir
hlutafjáreign sinni sem nemur
rúmum 35 miljónum króna og
bæjarfulltrúarnir sem stjórna
rekstrinum sem áður eru ábyrgir
fyrir hver sínum 5000 króna hlut.
Kannski koma þeir til með að
tapa á þessu ævintýri öllu saman,
en bisness er jú áhætta. -Ig
Rannveig Traustadóttir bœjarfulltrúi
Afskipti bœjarins aidrei verið meiri
„Það gat engan veginn komið
mér á óvart að BÚH yrði lagt
niður, því það hefur verið á
stefnuskrá Sjálfstæðisflokks-
insfrá því útgerðin varstofnuð
fyrir 52 árum að leggja hana
niður. Þarnahefurloksins
draumur þeirra ræst“, sagði
Rannveig T raustadóttir
bæjarfulltrúi ABH.
„Þeir eru vissulega búnir að
bíða lengi til að finna eitthvert lag
til að gera þetta. Með því að hafa
fyrirtækið meira og minna lamað
allt sl. ár og fá að auki dygga að-
stoð ríkisstjórnarinnar sem er að
gera út af við alla útgerð í landinu
fundu þeir rétta tímann. Auk
þess virðist vera búið að telja
stórum hluta þjóðarinnar trú um
að útgerð og fiskvinnsla sé af hinu
illa og á því hefur sannarlega ver-
ið hamrað hér í bæ. Þannig var
jarðvegurinn undirbúinn“.
Á hverju byggist andstaða þín
við hlutafélagið?
„Alþýðubandalagið og Al-
þýðuflokkurinn þar til nú hafa
alla tíð staðið vörð um þetta fyrir-
tæki, því það hefur verið mjög
mikilvægt fyrir atvinnulíf í bæn-
um enda var það beinlínis stofnað
á sínum tíma til að tryggja stöð-
uga atvinnu verkafólks. Hafnarf-
jörður er útgerðarbær fyrst og
fremst og við höfum talið rekstur
þessa stræsta útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtækis í bænum vera
best tryggðan með því að bærinn
reki það. Það hefur áður verið
reynt að selja BÚH úr höndum
bæjarins en íbúarnir hafa staðið
gegn því og stór hluti bæjarbúa og
stærsti hluti starfsfólksins er á
móti þessari sölu“.
Hefur þú þá ekki trú á því
rekstrarformi sem nú er boðið
uppá?
„Vinnubrögðin hafa verið slík
að það veit enginn hvernig þetta
fyrirtæki á að ganga og útilokað
að spá nokkru um það, og þessi
undarlegu vinnubrögð geta ekki
orðið til þess að skapa almennt
traust á þessu nýja fyrirtæki. Ætl-
unin með öllu þessu brambolti
var að slíta tengsl fyrirtækisins
við bæjarstjórn en nú sitja þrír
bæjarfulltrúar í stjórn þess og
tveir eru endurskoðendur.
Sannleikurinn er sá að bærinn
hefur aldrei áður skipt sér eins
mikið af þessu fyrirtæki eins og
einmitt nú og hlutafélagið er ekki
til nema á pappírunum", sagði
Rannveig Traustadóttir.
-•g-
Hallgrímur Pétursson formaður Verkamannafélagsins Hlifar
Mœli ekki með hlutabréfakaupum
„Nei, það kom mér svo sann-
arlega ekki á óvart að BÚH
yrði lögð niður. Þetta hefur
verið ofarlega í huga íhaldsins
og óháða íhaldsins hér í bæ
gegnum árin að losa sig við
þettafyrirtæki1', sagði Hallg-
rímur Pétursson formaður
Verkamannafélagsins Hlífar.
„Hvers vegna riðið er á vaðið
núna er ekki gott að segja en það
mætti segja mér að þeir teldu sig
vera búna að finna Ieið til að losa
sig við fyrirtækið í áföngum.
Ríkisvaldið virðist nú ganga á
undan öðrum við að leggja út-
gerðina í rúst og menn sæta því
lagi.
Hingað til hefur verkalýðs-
hreyfingin lagst gegn öllum á-
formum um sölu BÚH. Hvers
vegna var ekki hægt að stöðva
þetta núna? Eina harða andstað-
an sem komið hefur fram er frá
okkur í Hlíf. Margt fólk er inni á
þeirri skoðun að það skipti ekki
máli hver reki fyrirtækið heldur
að það sé rekið. Við erum ekki á
sömu skoðun því að við vitum að
þegar bæjaryfirvöld hafa hönd í
bagga með fyrirtækinu þá er litið
á það öðrum augum og maður
skyldi þá ætla að bæjarfulltrúar á
hverjum tíma litu á mannlegu
hliðina varðandi rekstur fyrirtæk-
isins“.
En hefur það sýnt sig á undan-
förnum árum, ég tala ekki um á
liðnu ári?
„Nei, það er síður en svo. Ein-
mitt vegna þess álítum við að það
sem hefur verið að gerast sé að-
eins 1. áfangi bæjaryfirvalda við
að losa sig við fyrirtækið. Eins og
málin standa nú höfum við því
enga tryggingu fyrir framhald-
inu“.
Kom ykkur á óvart hversu allt
hefur gengið hratt fyrir sig?
„Það er búinn að vera óeðli-
legur hraði á þessum breytingum
og það má vel vera að þeir hafi
viljað nota „skítuga sjensinn““.
Nú er búið að bjóða út hluta-
bréfí fyrirtœkinu. Hefur þú trú á
því að verkalýðsfélögin í bœnum
kaupi hlut?
„Ekki ætla ég að verða hvata-
maður að því hjá okkur. Ég hef
enga trú á að af því verði“, sagði
Hallgrímur Pétursson.
-*g-
Haraldur Sigurðsson bœjarfulltrúi og stjórnarformaour nýja hlutafélagsins
Leiður efbœjarbúar hafa ekki trú á þessu
„Rekstur Bæjarútgerðarinnar
hefur gengið mjög illa í því for-
mi sem hún hefur verið rekin
og það er von okkar að með
breyttu rekstrarformi verði
hægt að glæða fyrirtækið því
lífi að það verði lífvænlegt og
geti skapað vinnu í bænurn",
sagði HaraldurSigurðsson
bæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins og stjórnarformaður
hins nýja hlutafélags um
reksturBÚH.
„Það er trú okkar að það sé
hægt að ná inn meira fjármagni í
þennan rekstur og fleiri aðilum til
að tryggja rekstrargrundvöllinn.
Margir hafa undrast flýtinn í
kringum þessar breytingar og
hvernig staðið var að stofnun
hlutafélagsins fyrir luktum dyr-
um.
„Ég vil ekki tala um flýti því að
þetta er búið að vera lengi í undir-
búningi. Hins vegar var fyrirtæk-
ið stopp að mestu leyti og okkur
fannst liggja á að koma því af
stað. Því var tekin ákvörðun að
setja af stað bæði fyrirtækið og
reyna að koma sem fyrst á nýju
rekstrarformi sem við teljum
lífvænlegra en bæjarútgerðin
var“.
Hefur þú trú á því að hluthafar
fáist fyrir utan bœjarfulltrúa og
bœjarsjóð?
„Ég hef trú á því og verð ákaf-
lega leiður ef aðrir Hafnfirðingar
hafa ekki trú á fyrirtækinu og
vilja ekki gerast hluthafar".
Liggur eitthvað fyrir um fleiri
hluthafa?
„Það liggur ekki afgreitt fyrir,
en við höfum verið spurðir ým-
issa spurninga af aðilum sem
gætu hugsanlega komið þarna
inn“.
Flokksfélagar þínir hafa
gagnrýnt meðal annars í Mbl. af-
greiðslu þessa máls ogsegjaykkur
vera að svíkja stefnu flokksins,
bœrinn reki þetta allt áfram.
„Ég veit að það eru skiptar
skoðanir og hafa alltaf verið í
Sjálfstæðisflokknum um öll mál.
Menn hafa ekki verið hamlaðir í
því að koma sínum skoðunum á
framfæri, þessi gagnrýni kemur
mér því ekki á óvart. Kristófer er
ekki sammála okkur í því að bær-
inn eigi að eiga meirihluta í fyrir-
tækinu en það er meirihlutavilji
fyrir því“.
Hefur þú trú á því að sá vilji
verði áfram eða er þetta aðeins til
að byrja með eins og margir halda
fram?
„Ég hef ekki trú á öðru en það
verði áfram. Hins vegar er aldrei
hægt að segja langt fram í fram-
tíðina með það. Sú staða getur
komið upp að það breytist en eins
og mál standa í dag þá eru engar
hugmyndir uppi um slíkt", sagði
Haraldur Sigurðsson.
Sunnudagur 27. janúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 17