Þjóðviljinn - 27.01.1985, Side 19
Ástúð er samförum betri
Álit meirihluta bandarískra kvenna
Fríður saminn effir 2131 ár
Borgarstjórinn í Róm, komm-
únistinn (Jgo v'eiere, ætlarnú
í byrjun febrúar til T únis til að
skrifa undir friðarsamning við
Karþagóborg. Þarmeðverður
loksins bundinn formlegur
endir á púnversku styrjaldirn-
arsvonefndu, en þeim lauk
með ósigri Karþagó fyrir
Rómverjumfyrir2131 ári.
Herir rómverska heimsveldis-
ins, sem þá var mjög í sókn gjör-
eyddu árið 146 fyrir Krist hinni
gömlu verslunarborg Karþagó
fullkomlega og stóð vart steinn
yfir steini í henni.
24 árum síðar byrjaði endur-
uppbygging borgarinnar, sem var
rómversk nýlenda. Hún stóð af
sér mörg herhlaup þar til Arabar
lögðu hana í rúst árið 698.
Rústir Karþagó má enn sjá í
útborg Túnisborgar Carthage -
rústir rómverskra hofa, virkis-
rr.úra og baðúsa.
Borgarstjórarnir ætia semsagt
að undirrita friðarsamning milli
Rómar og Karþagó, sem lengi
hefur verið beðið eftir - og sömu-
leiðis samning um samstarf og
vináttu.
Mikill meirihluti bandarískra
kvenna vill heldur að eigin-
maður þeirra eða félagi láti vel
að þeim en að þær þurfi að
vasast í því að hafa samfarir
við hann.
Svo segir í einni af ótalmörgum
könnunum sem menn skemmta
sér við að gera. Sú sem efndi til
þessarar hér heitir Ann Landers
og stjórnar bréfadálki í víðlesnu
blaði. Spurningin sem hún lagði
fyrir lesendur sína kvenkyns var
þessi:
„Værir þú ánægð með að vera
föðmuð og meðhöndluð af elsku-
semi og sjálfum samförunum
gleymt?“.
Meira en 72% þeirra kvenna
sem tóku við sér, en þær voru alls
um hundrað þúsund, svöruðu
þessari spurningu játandi, fjöru-
tíu af hundraði þeirra sem svör-
uðu játandi voru yngri en fer-
tugar.
Þessi niðurstaða kemur
reyndar mjög heim og saman við
þá umræðu sem útbreidd er orðin
í vinsældablöðum: þar segir sem
svo að kynlífsbylgjan með til-
heyrandi stóryrðum um
fullnægjuna miklu sé nú hnigin.
Þess í stað hafi komið mikil eftir-
spurn eftir ástúð og trúfesti.
50% verðlækkun
á loftsíum og
smursíum í
A L-300
bíla
HEKLAHF A
Lauoavegi 170 -172 Sirni 21240 * “
MITSUBISHI
MOTOftS
Starfsfólk Eimskips
í Rotterdam óskar
-inaum
góðs gengis í
Hollandi á morgun!
Eimskip og nýstofnuð skrifstofa Eimskips í Rotterdam í Hollandi
óska FH-ingum velgengni í leiknum á morgun gegn hollensku meist-
urunum Herschi í átta liða úrslitum Evrópukeppninnar í handknattleik.
Með hagstæðum úrslitum ná strákarnir þeim framúrskarandi árangri
að komast í 4 liða úrslit í keppni bestu liða Evrópu - og vinna um leið
mikilvægt landkynningarstarf fyrir ísland!
EIMSKIP
Rotterdam
AHar vörur verslunarinnar eru á stórlækkuðu verði.
Útsaumur, dúkar, fatnaður, skór, basttöskur, kínversk teppi, kínverskir
skapar og borð, silkimyndir, silkilugtir, sólhlífar, blaðagrindur, horn oq
vegghillur o.m.fl. a
CHIK4VÖ£U£
Sjónval, Kirkjustræti 8. Sími 22600.