Þjóðviljinn - 27.01.1985, Side 20
Meirihluti
Flugleiða
í Arnarflugi...
Mikil óánægja mun nú vera
meöai starísmanna Arnar-
flugs vegna þess að reyndasti
flugsjtóri félasins, Arngrímur
Jóhannsson var látinn hætta
störfum. Arngrími mun hafa
verið gefinn kostur á að segja
upp vegna óánægju yfir-
manna með flugfélag sem
Arngrímur stofnaði með öðr-
um manni til leiguflugs á er-
lendum markaði. Eru þeir
með eina flugvél í slíku leigu-
flugi og töldu stjórnendur Arn-
arflugs að hér væri komin upp
óeðlileg samkeppni við fé-
lagið. Þegar það spurðist að
segja ætti Arngrími up störf-
um var um það rætt á meðal
starfsmanna að safna undir-
skriftum gegn uppsögninni.
Við þetta var hætt þegar
Arngrímur sagði upp að fyrra
bragði.
Uppsögnin getur orðið tví-
eggjuð fyrir Arnarflug, því
Arngrímur mun eiga 5% í fé-
laginu og gætu Flugleiðir
eignast meirihluta í Arnarflugi
ef hlutabréf Arngríms væru
föl. ■
Samfellda
byltingin
Enn flísast úr liði því sem eitt
sinn kallaði sig Fylkinguna,
baráttusamtök kommúnista
en munu nú heita Baráttu-
samtök sósíalista.
Fróttir herma að á storma-
sömum fwwfi sem nýverið átti
sér stað (nýjum húsakynnum
samtakama hafi dr. Orn Ól-
afssori sagt sig úr samtöku-
num f annaé *tnn vegna þess
að ekki virtiat rúm fyrir hug-
myndir hans um heimsbylt-
inguna innan samtakanna.
Hefur Þjóðviljinn fregnað að
deilurnar standi nú um tvær
gamlar kennisetningar sem
varða annars vegar hina
„samfelldu byltingu" eins og
hún var túlkuð af Leon Trot-
sky, en hins vegar um svokall-
aða „þrepakenningu" sem
kennir að lýðræðisbyltingin sé
þrep eða áfangi í átt til sósíal-
ismans og síðar kommúnis-
mans. Mun nú svo komið að
kenningu Trotskys um sam-
fellda byltingu hefur verið út-
hýst í hinum nýju húsakynn-
um samtakanna og Erni Ól-
afssyni þar með líka. Hann er
víst ekki fyrstur manna til að
yfirgefa þessa miðstöð
þrætubókarlistarinnar. ■
Tvísýn
bókaframtíð
Eins og kunnugt er tókst með
samstilltu átaki bókaútgef-
enda og nokkurra fjölmiðla að
snúa við þeirri þróun að bók-
sala drægist saman með
hverju árinu sem líður. Með
öðrum orðum: að tókst að
telja íslendingum trú um að
þeir væru ennþá bók-
menntaþjóð eða að minnsta
kosti bókaþjóð.
Útgerðin gekk því vel hjá
bókaútgefendum og hafa þeir
með ýmsum hætti lýst
ánægju sinni með lífið, tilver-
una og viðskiptavinina.
Nú herma fróðir menn að
útgefendur ætli hver um sig
að nota tækifærið, stækka við
sig og auka markaðshlutdeild
sína - í þeirri von að hinir geri
það ekki. Kannski stöndum
við strax um næstu jól uppi
með 100-200 titlum of marga
á markaði, auglýsingatauga-
stríð sem hefur neikvæð áhrif
og svo allsherjar eymd og
volæði? ■
iali Ud
MARGRETAR ÞORBJARGAR OG
THORS JENSEN í samantekt Tómasar Hallgrímssonar
Niðjatal Thors Jensen og Margrétar Þorbjargar Kristjánsdótt-
ur er byggt á ættarskrá er Ólafur Hallgrímsson og Haukur Thors
gerðu og gefin var út fjölrituð árið 1963, á 100 ára afmæli Thors.
Hefur nú verið aukið mjög við ættarskrána og í ritinu er getið
250 afkomenda hjónanna og maka þeirra og er þar að finna upp-
lýsingar um hvem og einn. Svo sem flestum mun kunnugt var
Thor Jensen mikill athafna- og framkvæmdamaður á sínum tíma
og heimili þeirra hjóna kunnugt fyrir rausn. Böm þeirra Thors
og Margrétar Þorbjargar urðu flest þjóðkunn.
Bókaútgáfan Öm og Örtygur hf
Síðumúla 11. 105 Reyhjavík, sími 84866
PO LONEZ 1500
árgerð 1985:
H< ÖRKUBÍLL
á flottu verði
: . 249.000 kr.
■■■IMIIIWtfMMMMmgMBaMMMMSMMMBaBBBSBWWIirHr WMBWHrasa (kominn á götuna)
Daihatsuumboðið hefur nú tekið
við innflutningi á hinum traustu og
vinsælu Polonez frá FSO-verk-
smiðjunum í Varsjá. 1985 árgerðin
er stórglæsilegur lúxusvagn á
hreinu smábílaverði. Nú er rétt
fyrir Polonez-eigendur að endur-
nýja kynnin og aðra að kynna sér
þennan hörkubíl.
Hér eru nokkrir
Polonez-punktar:
★ Vélin er 81 þrumuhestafl og
girarnir 4.
★ Línurnar nýtískulegar og
sportlegar.
★ Diskabremsur á öllum
Barnaöryggislæsingar — Stór
ir og sterkir stuðaöar -
yggissjónarmið í öllu.
★ Sterkbyggður og þéttur
Tnaust fjöðrun tryggir aksturs
öryggi og farþegaþægindi
★ Fullkomið mælaborö með öllu
tilheyrandi.
★ Þægileg sæti fyrir 5 fullorð
— 5 dyr.
★ Skutdyrnar opnast
inn í 300 — :f$
lítra farangursrými
sem nær fjórfaldast í
1070 lítra geim er
aftursætiö er lagt niöur.
★ Teppi á öllum gólfum
og fallegt en hagnýtt
áklæði.
Þú lagar stýrishæðina
að þínum þörfum.
ISUi
V:
Og þetta er bara brot af
Polonez-punktunum.
Við skorum á alla sem setja upp snúð, er talað er um
Austur-Evrópu bíla að koma og skoða Polonez og það
sem fæst fyrir 249.000 kr.
DAIHATSUUMBOÐIÐ
ÁRMÚLA 23. S. 685870 — 81733.