Þjóðviljinn - 01.03.1985, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 01.03.1985, Blaðsíða 15
MINNING Gunnar Ólafsson Fœddur 1. maí 1934 - Dáinn 21. febrúar 1985 Það er erfitt að trúa því að Gunnar Ólafsson sé dáinn. Það er erfitt að skilja það og ógern- ingur að sætta sig við það. Ekki þýðir að spyrja og ekki þýðir að biðja um rök. Sá sem var með þér í verki í gær verður það ekki á morgun, en þú munt sakna hans í verkunum. Hann er ekki lengur með þér í nútíðinni og verður ekki í framtíðinni en í verkunum lifir hann og þau kalla fram minn- ingarnar og þær eru það eina sem við eigum hitt allt er í vonum. Gunnar Ólafsson var svo trúr verkum sínum, og lifði svo fyrir starf sitt, að um samstarfsmann- inn lifa aðeins góðar minningar, ekki síður en um trygglynda drenginn og vininn. Gunnar ðlafsson var fæddur í Reykjavík 1. maí 1934 og var því aðeins fimmtugur að aldri er hann lést skyndilega að heimili sínu21. febrúarsíðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Ólafur Hansson hinn kunni sögukennari við Menntaskólann í Reykjavík og síðar prófessor við Háskóla fs- lands og Valdís Helgadóttir hjúkrunarkona. Ólafur Hansson var Borgfirð- ingur í móður ætt, sonur Pálínu Pétursdóttur frá Grund í Skorra- dal og manns hennar Hans O. Devik símaverkfræðings frá Gloppen í Nordfjord í Noregi. Ólafur Hansson lést hinn 18. des- ember 1981. Valdís var einnig Borgfirðing- ur að uppruna, dóttir Helga Guðbrandssonar útvegsbónda á Akranesi og Guðrúnar Illuga- dóttur frá Stóra-Lambhaga. Gunnar var einkabarn þeirra Valdísar og Ólafs. Gunnar ólst upp í Reykjavík en dvaldi löngum í sveit á sumrum hjá þeim hjónum Kristleifi Þorsteinssyni fræðimanni á Stóra-Kroppi og Snjáfríði Pétursdóttur frá Grund ömmusystur sinni. Það lætur að líkum að ekki hefur hallast á með menningarlegt umhverfi á þess- um heimilum, öðru í borginni og hinu í sveitinni í sveitinni, enda báru áhugamál, lífsskoðun og dagfar Gunnars þeim báðum jafn fagurt vitni. Að loknu stúdents- prófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1954 hóf Gunnar nám við búnaðarskólann í Voss í Nor- egi, með það í huga að sækja um inngöngu í Landbúnaðarhá- skólann á Ási. Búfræðiprófi lauk hann frá Voss vorið 1955 og vann sumarið eftir við tilraunir á Ási en mátti eins og fleiri bíða eitt ár eftir inngöngu í háskólanum. Veturinn næsta var hann við landbúnaðarstörf meðal annars á Hvanneyri en hóf nám við Land- búnaðarháskólann haustið 1956 og brautskráðist þaðan 1960. Gunnar réðst sem aðstoðarsér- fræðingur að Búnaðardeild At- vinnudeildar Háskólans 1960 og var skipaður sérfræðingur við þá stofnun 1963 og starfaði síðan við Atvinnudeildina og síðan Rannsóknarstofnun landbúnað- arins (frá 1965) alla tíð að undan- teknum þeim árum er hann var við framhaldsnám. Gunnar hafði jarðrækt sem aðalfag við há- skólann á Ási en snéri sér að fóð- urfræði er hann hóf framhalds- nám. Það hóf hann sem styrkþegi á Ási 1962. Síðar var hann við framhaldsnám og rannsóknir við Grassland Research Institute í Hurley og við háskólann í Rea- ding í Englandi 1963-1964. Þar lærði hann nýjustu aðferð, sem þar var þróuð við fóðurgildisá- kvörðun fyrir jórturdýr. Eftir heimkomuna byggði hann upp aðstöðu til slíkra fóðurefnagrein- inga og skipulagði efnagreininga- þjónustu, bæði fyrir rannsóknarstarfsemina og bænd- ur. Enn er byggt á þessari aðferð og hefur efnagreiningaþjónustan á Rala og síðar á Hvanneyri og Akureyri haft ómælt gildi fyrir leðbeiningaþjónustuna og bænd- ur. Enn fór Gunnar til framhalds- náms árið 1970 og nú að Ási og lauk þaðan licenciatprófi í nær- ingarlífeðlisfræði og fóðurfræði 1972, sem viðurkennt var sem doktorspróf 1980. Ritgerð hans fjallaði um nær- ingargildi beitarplantna á íslandi og eru þær rannsóknir sem að baki liggja ásamt rannsóknum Gunnar og Ingva Þorsteinssonar á plöntuvali sauðfjár grundvöllur að mati á beitargildi úthaga á ís- landi. Eftir heimkomuna 1972 starf- aði Gunnar áfram sem sérfræð- ingur í fóðurfræði við Rala og var síðan skipaður deildarstjóri fóð- urdeildar. Fljótlega var þó leitað til hans með að taka að sér meiri stjórnarstörf því 1976 var hann ráðinn aðstoðarforstjóri stofnun- arinnar. Björn Sigurbjörnsson sem tók við störfum forstjóra Rala 1974 valdi Gunnar með sér til aðstoðar og er á engan hallað þó fullyrt sé að það hafi verið vel ráðið enda var samvinna þeirra til fyrirmyndar í alla staði. Á þessum árum var stofnunin í mjög örum vexti meðal annars vegna aukins fjármagns er fékkst til rannsókna með Landgræðslu- áætluninni frá 1974 og hinna um- fangsmiklu beitartilrauna sem hrundið var af stað í tengslum við áætlunina, en þær nutu einnig mikils stuðnings frá UNDP (þró- unarsjóði S.Þ.). Fleiri styrkir fengust einnig til uppbyggingar og aukinnar starfsemi og nýjar deildir tóku til starfa. Margháttuð stjórnarstörf hlóð- ust því fljótt á Gunnar. Hann gegndi einn forstjórastörfum í fjarveru Björns um sex mánaða skeið veturinn 1980-1981 og tók síðan aftur við forstjórastarfinu úr áramótum 1983 er Björn Sig- urbjörnsson fór í þriggja ára leyfi. Gunnar var farsæll og vinsæll stjórnandi, ákveðinn, en jafn- framt einstaklega lipur í allri um- gengni. Hann var reglusamur og samviskusamur með afbrigðum og hafði mjög góða skipulags- gáfu. Ekki mun öllum ljóst hví- líkur erill og álag fylgir því að stjórna ríkisstofnun á borð við Rannsóknarstofnun landbúnað- arins, því fylgja svo sannarlega að j afnaði mikil hlaup en lítið kaup - þó tekur steininn úr þegar verið er að herða ólarnar á öllum svið- um spara og j afnvel draga saman. Þá þurfa menn að berjast jafnt inn á við sem út á við og mæta á tíðum takmörkuðum skilningi, að mönnum finnst, jafnvel þó reynt sé að setja sig í erfið spor þeirra, sem fjármununum deilda. Gunnar stundaði kennslu um langt skeið, var stundakennari við Vogaskóla, Menntaskólann í Reykjavík og við Menntaskólann við Hamrahlíð. Kennsla lét hon- um mjög vel, þar kom sér vel hve fjölfróður hann var, einstaklega minnugur og átti létt með að setja hlutina skipulega fram. Sem vænta mátti voru Gunnari falin margháttuð stjórnarstörf og störf í mörgum nefndum. Hann var í Tilraunaráði landbúnaðarins 1965-1969 og frá 1983, í stjórn Raun vísindadeildar V ísindasj óðs frá 1978, fulltrúi íslands í sam- starfsnefnd Norðurlanda um landbúnaðarrannsóknir og í ís- lensku FAO nefndinni frá 1983 og átti mikinn þátt í að skipu- leggja hina stóru FAO ráðstefnu sem hér var haldin á síðasta hausti. Hann var í stjórnun tilrauna- stöðvanna á Möðruvöllum og að Stóra-Ármóti og varði síðari árin miklum kröftum til framgangs málefna tilraunastöðvanna. Hann var tvívegis í stjórn Félags íslenskra náttúrufræðinga og for- maður þess um skeið. Eftir Gunnar liggja fjölmargar greinar og skýrslur um niðurstöður rannsókna og hann var lengi rit- stjóri íslenskra landbúnaðar- rannsókna frá 1969. Gunnar var gæfumaður í einkalífi, árið 1957 gekk hann að eiga bekkjarsystur sína úr menntaskóla Unni Maríu Figved nú fjölbrautaskólakennara. Þeim varð fjögurra barna auðið: þau eru Anna Theódóra lögfræðingur nú við framhaldsnám í Múnchen, Skúli nemi í læknisfræði, Valdís sem er við tungumálanám í Berl- ín og Ólafur Páll menntaskóla- nemi. Fjölskyldan var öll einstak- lega samhent og vinmörg og heimilið fagurt. Að leiðarlokum er margs að minnast. Ég man svo glöggt er fundum okkar bar fyrst saman á Ási í Noregi á björtu vori 1955 er hann kom þangað eftir veruna á Voss, fullur áhuga fyrir skólanum og því sem beið hans, í námi og síðar starfi. Gunnar vildi læra sem mest um landbúnað á öllum stigum, hann taldi sig ekki vita hlutina fyrir- fram og þó hann hefði dvalið langdvölum í sveit vildi hann kynnast lífinu og starfinu í sveitinni enn betur og vann því árið sem hann varð að bíða við landbúnað bæðiá Ási og heima. Síðan hafa leiðir okkar alla tíð legið hlið við hlið þó að við höf- um ekki starfað nema stutt við sömu stofnun. Yfir öllum okkar kynnum og öllu okkar samstarfi vakir sama birtan og ríkti er við hittumst fyrst. Það gefur lífinu gildi að eiga svo góðan vin og hafa samstarf við svo góðan dreng. Gunnar vann fyrir íslenskan landbúnað allan sinn starfsdag. öll hans störf voru unnin af trú- mennsku. Fyrir það er ástæða til að þakka. Við hjónin eigum þeim Gunn- ari og Unni Maríu mjög mikið að þakka. Orðin eru lítils megnug en megni hlýhugur nokkurs til að milda söknuðinn eiga þau Unnur og börnin marga að þessa dag- ana. Jónas Jónasson Andlátsfregn Gunnars Ólafs- sonar kom sem reiðarslag. Þó að við vissum að hann væri ekki heilsuhraustur og hefði oftar en einu sinni verið lagður á sjúkra- hús í stuttan tíma í senn þá var sú hugsun víðs fjarri að hann ætti stutt eftir ólifað. Við vissum hver af öðrum á menntaskólaárum okkar en það var ekki fyrr en ég hóf nám á Ási í Noregi að ég kynntist þeim Gunnari og Unnu Mæju en hann var þá þar við nám. Heimili þeirra hjóna var aðal- athvarf okkar íslenskra náms- manna á staðnum og ég var jafnvel staðinn að því hjá þeim að gera mér ekki grein fyrir því að ég væri í Noregi en ekki heima á Is- landi. Síðan hef ég og mitt fólk átt það ríkidæmi að eiga heimili þeirra að og það er enginn lítill kapituli í lífi okkar. Gunnar Ólafsson var hógvær maður og laus við að trana sér fram. Þó varð það hlutskipti hans stjórna stórri stofnun, Rann- sóknarstofnun landbúnaðarins, auk þess að sitja í ótal stjórnum og ráðum. Það gerðist þannig að hann var kallaður til starfa og eftir honum var leitað enda kom í ljós að öllum störfum sínum sinnti hann af sömu trúmennsk- unni. Með hlýrri framkomu og velvild leysti hann þau mál sem í valdi hans var að leysa og var þó ekki auðvelt að stjórna stofnun sem búið hefur við sífellt þrengri fjárhag á undanförnum árum. En það er Gunnar sjálfur, fjöl- skylda hans og heimili, sem er mér þó ofar í huga en embættis- ferill hans á þessari stundu. Þekk- ing Gunnars á mönnum og mál- efnum var óvenjumikil enda átti hann það ekki langt að sækja, sonur Ólafs Hanssonar. Heimili hans var sannkallað menningar- heimili þar sem engin yfirborðs- mennska þrífst. Hvar heyrði maður skarpari og hnyttnari um- sagnir um samtíðarviðburði? Hvar fundu þeir sem áttu um sárt að binda meiri hughreystingu? Hvar voru bókmenntir og listir betur krufnar? Um sumt er kom- ist þannig að orði að það sé auðveldara sagt en gjört. Hér á við hið gagnstæða. Það er erfið tilhugsun að eiga ekki Gunnar Ólafsson lengur að en það er á hinn bógin fjársjóður sem aldrei verður frá manni tek- inn að hafa átt hann að, vináttu hans og drenglyndi. Ég og fjölskylda mín sendum fjölskyldu Gunnars og aðstand- endum innilegustu samúðar- kveðjur. Matthías Eggertsson Skyndilegt fráfall Gunnars Ól- afssonar kom eins og reiðarslag yfir okkur samstarfsfólk hans á Rannsóknarstofnun landbúnað- arins. Gunnar var við vinnu sína fram yfir hádegi, en fáeinum stundum síðar var hann fallinn. Gunnar var ekki afskiptasamur í daglegum störfum, en hann var hin styrka stoð sem við gátum sett traust okkar á og því finnum við mikið fyrir því skarði sem er komið í raðir okkar. Þegar að því kom árið 1976 að ráðinn var aðstoðarforstjóri stofnunarinnar mun flestum hafa þótt Gunnar Ólafsson sjálfsagður í starfið. Það var því í samræmi við óskir starfsmanna að hann skyldi sem aðstoðarforstjóri taka við þegar Björn Sigurbjörnsson forstjóri var fenginn til að taka við forstjórastörfum í alþjóða- stofnun um þriggja ára skeið. Það traust, sem Gunnar Ólafsson naut umfram flesta aðra menn, stafaði af mikilli réttsýni og því hve auðvelt hann átti með að hafa yfirsýn yfir ala þætti mála. Gott var til hans að leita, málavextir voru kynntir og ræddir án allra útúrdúra og það sem eitt sinn hafði verið sagt þurfti að jafnaði ekki að endurtaka. Orð hans stóðu. Á hinn bóginn var hann viðkvæmur fyrir þeim árekstrum sem óhjákvæmilega fylgja stöðu yfirmanns, einkum vegna þess hve einlægur hann var. Eins og ráða má af framan- sögðu var Gunnar farsæll í dag- legri afgreiðslu mála. Honum var einnig umhugað um að halda áfram þeirri uppbyggingu, sem orðið hefur á stofnuninni. Á þeim nær 20 árum, sem hún hefur starfað, hafa orðið miklar breytingar, bæði á stofnuninni sjálfri og þeim atvinnuvegi sem hún á að þjóna. Það var því orðið tímabært að huga að því, með hvaða hætti starfsemin yrði að- löguð breyttum tímum. Gunnar hafði mótað sér hugmyndir um, hvaða skipulagsbreytingar væru æskilegar og beitti sér fyrir mynd- un starfshóps til að vinna að endurskoðun og úttekt á land- búnaðarrannsóknum. Hér hefur verið farið nokkrum orðum um störf Gunnars Ólafs- sonar í þágu stofnunarinnar og starfsmanna hennar og það traust sem við samstarfsfólkið bárum til hans. Efst í huga er þó söknuður eftir góðan félaga og vin. Við samhryggjumst eftirlifandi móð- ur og fjölskyldu hans sem var honum svo náin og við höfum átt margar góðar stundir með fyrr og síðar. Valdís Helgadóttir, Unna Maja, Anna, Skúli, Vala og Óli, við vottum ykkur innilega hlut- tekningu okkar. Samstarfsfólk Þau hörmulegu tíðindi bárust mér síðastliðið fimmtudagskvöld að Gunnar Ólafsson, forstjóri Rannsóknarstofnunar landbún- aðarins hefði orðið bráðkvaddur á heimili sínu þá síðdegis. Þetta dauðsfall kom öllum í opna skjöldu og okkur finnst það næsta ótímabært. Gunnar var aðeins fimmtugur að aldri og hafði gengið að störfum sínum þá um daginn eins og venja hans var. Með Gunnari er genginn per- sónuleiki, sem öllum sem kynntust honum er minnisstæður og kær, því að í honum sameinuð- ustu miklir hæfileikar og óvenju- leg ljúfmennska og góðvild til allra, sem hann átti samskipti við, samfara léttri og þægilegri kímni. Slíkur maður sem hann hlýtur að vera öllum harmdauði. Gunnar Ólafsson var fæddur í Reykjavík 1. maí 1934. Foreldrar hans voru hjónin Ólafur Hansson prófessor og Valdís Helgadóttir, en þau hjón voru bæði komin af mikilhæfum borgfirskum ættum. Hann lauk stúdentsprófi í Reykjavík en fór að því íoknu til Noregs til náms í landbúnaðarf- ræðum. Fyrst við búnaðar- skólann í Vors og síðan Landbún- aðarháskólann á Ási. Þaðan lauk hann kandidatsprófi árið 1960. Að námi loknu hóf hann störf við Landbúnaðardeild Atvinnu- deildar Háskólans eins og Rannsóknarstofnun landbúnað- arins hét þá, og starfaði við þá stofnun alla tíð síðan. Starf hans beindist einkum að rannsóknum á fóðurgildi og nýtingu gróðurs og innlendra fóðurefna. Rann- sóknir hans á þessu sviði hafa haft mikla þýðingu við ákvörðun á beitarþoli og nýtingu afrétta. Á árunum 1963 til ’64 stundaði Gunnar framhaldsnám við rannsóknarstofnanir og háskóla í Bretlandi, og árin 1970 til '12 dvaldist hann langdvölum við landbúnaðarháskólann á Ási. Þar vann hann að doktorsritgerð sinni, sem fjallaði um fóðurgildi og nýtingu íslenskra beitargrasa. Doktorsprófi lauk hann frá Ási árið 1972. Eftir Gunnar liggja margar merkar greinar og rit- gerðir um rannsóknarstörf hans og niðurstöður þeirra. Ekki gat hjá því farið að maður með hæfileika Gunnars Ólafs- sonar yrði kvaddur til ábyrgðar- starfa við stofnun þá, er hann vann við. Þegar sérstök Fóður- deild var sett upp innan Rala gerðist hann þar deildarstjóri. Árið 1976 tókst hann á hendur starf aðstoðarforstjóra stofnun- arinnar og einsýnt þótti að hann tæki við forstjórastarfi, er Björn Sigurbjörnsson hvarf frá störfum við stofnunina í lok ársins 1982. Föstudagur 1. mars 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.