Þjóðviljinn - 24.03.1985, Page 6
Kjartan Ólafsson, fyrn/erandi ritsfjóri Þjóðviljans ritaði
fyrir skömmu grein í blað Alþýðubandalagsmanna ó
Vestfjörðum, og vakti þar m.a. athygli ó því, að
samkvœmttölulegum upplýsingum frö
Seðlaþankanum hafi sjövarútvegurinn ö íslandi orðið
fyrir 6000 miljón króna eignatapi ó síðustu tveimur
órum. Fró þessu höfum við óður sagt hér í blaðinu, en
nú í vikunni hittum við Kjartan að móli og spurðum
hann nónar útíþessi efni og sitthvað fleira varðandi
landsmólapólitíkina og þó sérstöku erfiðleika, sem
stefna núverandi ríkisstjórnar hefur kallað yfir
byggðarlögin úti um landið og fólkið sem þar býr.
Viö skulum ekki gera ísland að eins konar Singapore eöa Hong Kong... (Ljósm.: eik).
Á
- Fyrsta spurning okkar var,
hvert allt þetta fjármagn, sem
flutt hefur verið frá sjávarútveg-
inum hefði farið.
- Pví er til að svara, að nær allir
þessir gífurlegu fjármunir hafa
verið færðir til fyrirtækja í
viðskipta- og þjónustugeira þjóð-
félagsins, en þau fyrirtæki eru
langsamlega flest hér á suðvest-
urhorni landsins. Það kom fram í
svari fjármálaráðherra við fyrir-
spurn á Alþingi á dögunum, að
aðeins á árinu 1983 hafi opinber
heildarhagnaðar verslunarinnar,
banka og skipafélaga numið 2000
miljónum króna. Fjöldamörg
önnur fyrirtæki í hvers kyns við-
skiptum og þjónustu hafa einnig
hirt drjúgan skerf af þessum fjár-
munum, sem með stjórnvaldsað-
gerðum hafa verið fluttir frá sjáv-
arútveginum, og mörg krónan
rúllar í neðanjarðarhagkerfinu.
- Mér kemur í hug fegurðar-
stjórinn, sem ég las um í Morgun-
blaðinu á dögunum, að ætlaði að
fara að reisa höll á túninu hérna
vestan við Álfheimablokkirnar.
Ég man nú ekki nákvæmlega
hvað höllin átti að verða stór
samkvæmt Morgunblaðsfrétt-
inni, en a.m.k. ein allra mesta
bygging í Reykjavík, svona álíka
og Seðlabankinn. Þessi fegurðar-
stjóri mun fyrst og fremst hafa
hagnast á umsvifum í
skemmtanaiðnaðinum hin allra
síðustu ár, og nú ætlar hann sem
sagt að reisa þessa höll og segist
með því vilja tryggja að hér verði
unnt að velja „Miss Europe”,
fegurðardrottningu Evrópu, -
fyrst Evrópu og síðar sjálfsagt alls
heimsins!
- Ég nefni þetta svona sem
dæmi, vegna þess að það er ein-
mitt í „þjónustugreinum” af
þessu tagi sem auðæfin hlaðast
upp meðan framleiðslugreinun-
um, og þá einkum sjávarútvegi
og Iandbúnaði, er haldið í svelti.
- Eitt er víst að venjulegt
launafólk hefur enga krónu feng-
ið af öllum þeim gífurlegu fjár-
munum, sem teknir hafa verið af
sjávarútveginum þessi síðustu
tvö ár. Þessi kjör hafa þvert á
móti einnig verið stórlega skert
svo sem alkunna er.
Afli
sjaldan meiri
Ég vil líka gjarnan minna ræki-
lega á, að nánast allir þeir fjár-
munir, sem teknir hafa verið frá
sjávarútveginum og frá launa-
fólkinu í landinu, þeir hafa verið
færðir til annarra aðila í þjóðfé-
laginu. Þjóðfélagið í heild hefur
ekki orðið neitt fátækara, a.m.k.
ekki svo neinu nemi. Við skulum
hafa í huga að árið 1984 var frá
náttúrunnar hendi gott ár í okkar
þjóðarbúskap og einnig voru
utanríkisviðskipti okkar heldur
hagstæð í heild. Samkvæmt nýj-
ustu tölum Þjóðhagsstofnunar,
þá lækkuðu þjóðartekjur okkar
að vísu um 3,7% á árinu 1983, en
hækkuðu aftur um 2,8% á árinu
1984. Það er því með öllu fráleitt,
að skýringanna á kjaraskerðingu
launafólks og stórkostlegu eigna-
hruni í sjávarútveginum sé þarna
að leita.
- Menn hafa væntanlega líka
tekið eftir þeim nýju fréttum frá
Þjóðhagsstofnun nú í vikunni, að
sjávarvöruframleiðslan hafi á
síðasta ári aukist um hvorki
meira né minna en 11%, og er þá
miðað við heildarverðmæti og
mælt á föstu verðlagi. Heildar-
verðmæti sjávarafurðafram-
leiðslunnar féll að vísu um 6,6% á
árinu 1983, en hækkaði sem áður
sagði um 11% árið 1984. Þetta
þýðir að í allri sögunni eru aðeins
fínnanleg tvö ár, þar sem heildar-
verðmæti sjávarafurðafram-
leiðslunnar var meira en á síðasta
ári. Ef við leyfum okkur að gera
ráð fyrir, að aflabrögð verði álíka
nú í ár og þau voru í fyrra, og
heildarframleiðsluverðmæti sjáv-
arafurðanna hið sama, þá kemur
dæmið þannig út, að verðmæti
sjávarvöruframleiðslunnar verð-
ur að jafnaði aðeins um 3%
minna á ári á árunum 1983 til
1985, heidur en það var í góðær-
inu 1978 til 1982, og er þá miðað
við opinberar tölur frá Þjóð-
hagsstofnun. Þrátt fyrir kvótann
er þetta svona.
- Ég benti á í grein minni í
Vestfirðingi, að tölur frá Seðla-
bankanum sýndu að á árunum
1983 og 1984 hafi skuldlausar
eignir sjávarútvegsins minnkað
um 6000 miljónir króna, að á
þessum tveimur árum hafi eigið
fé fyrirtækja í íslenskum sjávarút-
vegi hrunið úr því að vera um
helmingur þeirra heildareigna,
sem fyrirtækin í veiðum og
vinnslu teljast eigendur að, niður
Rœttvið
Kjartan
Ólafsson
um
landspólitík
í það að vera aöeíns um einn
þriðji þessara eigna. Skuldirnar
hækkuðu hins vegar að sama
skapi á þessum tveimur árum og
eru nú orðnar tveir þriðju
heildareignanna, en voru aðeins
um helmingur þeirra í árslok
1982. Ég benti einnig á þá
augljósu staðreynd, að haldi
þessi þróun áfram í eitt kjörtíma-
bil enn - fjögur ár - þá verður alls
ekki neitt eigið fé eftir í íslensk-
um sjávarútvegi, engin einasta
króna, heldur aðeins skuldir á
skuldir ofan!
- Það sér auðvitað hver heilvita
maður, að ástæðurnar fyrir þess-
ari geigvænlegu þróun eru hvorki
aflabrestur né minnkandi þjóð-
artekjur. Tölurnar sem ég nefndi
hér áðan sýna það best. Þetta er
fyrst og fremst af mannavöldum,
það er stjórnarstefnan, sem flytur
fjármagnið með þessum hætti frá
framleiðslunni, frá landsbyggð-
inni og yfir í eyðslugreinarnar.
Haliar á
landsbyggðina
- Þú spyrð um afleiðingarnar
fyrir byggðarlögin úti um landið.
Þær eru auðvitað hrikalegar, þar
sem fólkið á víðast hvar allt sitt
undir sjávarútveginum. Um þess-
ar afleiðingar væri auðvitað hægt
að fjalla í miklu lengra máli held-
ur en gerlegt er í stuttu blaðavið-
tali. Það er um líf eða dauða
byggðarlaganna að tefla og fólkið
sem eldurinn brennur heitast á
veit það mæta vel.
-Ég skal nefna þér tvö lítil
dæmi. Hugsaðu þér ungan mann
sem hefur ráðist í að koma sér
upp þaki yfir höfuðið í sinni
heimabyggð fyrir vestan, norðan
eða austan, á Suðurnesjum eða
hér fyrir austan fjall. Hann hefur
tekið þessi venjulegu lán, sem all-
ir þekkja og greiðslubyrðin
magnast stöðugt meðan kaupið
lækkar. En það er ekki bara það.
Eignin sem lánsfénu var varið til
að koma upp lækkar einnig
stöðugt í verði og ríkjandi ótti um
að hún geti jafnvel orðið nánast
verðlaus af því þetta er
framleiðslubyggðarlag, sem sett
er í skammarkrók þjóðfélagsins
og ekki von á að „Miss Europe”
láti sjá sig þar.
Annað dæmi, sem segir ótrú-
lega mikla sögu vilji menn nota
heilasellurnar.
-Fyrir nokkrum árum var fólki
gefinn kostur á því - í fyrsta skipti
í langan tíma - að geta ávaxtað
peninga í banka og fengið af þeim
nokkra raunvexti í stað þess að
þeir yrðu að engu í bankakerfinu.
Síðan þessi breyting varð hafa
innstæður í bankakerfinu aukist
verulega, svo sem vænta mátti.
En það eru aðeins sumir, sem
hafa efni á að ávaxta fé sitt með
þessum hætti, - aðrir hafa ekkert
fé til að ávaxta.
- Landsbankinn er banki allra
landsmanna. Við skulum líta á
hann. í árslok 1982 voru 62,5% af
heildarinnlánum hjá Landsbank-
anum í Reykjavík, en 37,5% utan
Reykjavíkur. Sé mælt á verðlagi í
árslok 1984, þá voru heildarinn-
stæður í Landsbankanum 7574
miljónir króna í árslok 1982 en
hækkuðu að raunvirði um 1665
miljónir króna á árunum 1983 og
1984, og komust því upp í 9239
miljónir í árslok 1984. Og nú spyr
ég þig, Óskar, heldurðu að lands-
byggðin hafi haldið sínum gamla
hlut upp á 37,5% í þessari
innlánsaukningu á stjórnarárum
Steingríms Hermannssonar? Þú
heldur varla. Og það er rétt, - í
þessu nýja innlánsfé hjá Lands-
bankanum frá árunum 1983 og
1984, þá er hlutur landsbyggðar-
innar ekki 37,5% eins og áður
var, heldur 14,1% - taktu eftir
því - og hlutur höfuðborgarinnar
ekki „bara” 62,5% eins og áður
var, heldur 85,9%!! Um þetta
þarf ég ekki að orðlengja við þig
frekar. Þó er rétt að taka fram, að
væri litið á bankakerfið í heild, þá
yrði hlutur landsbyggðarinnar
trúlega enn óhagstæðar fyrir
landsbyggðina, - a.m.k. var
Verslunarbankinn með mesta
innlánsaukningu allra bankanna
á síðasta ári og það fé er að heita
má allt af höfuðborgarsvæðinu.
Og svo skuldabréfin maður, sem
bera hærri vexti en nokkur bank-
ainnstæða, - hverjir heldurðu að
kaupi þau?
Hinar hörðu
hagsmuna-
andstœður
- Þú spyrð hvernig eigi að snú-
ast til varaar, hvort verkalýðs-
hreyfingin verði ekki að rísa upp.
Láttu mig ekki halda yfir þér
langa ræðu um það. Vissulega er
verkalýðshreyfingin mikið afl,
eða gæti að minnsta kosti verið
það, ef þar ríkti samstaða, pólit-
ískur skilningur og einbeittur pól-
itískur vilji. I þeim efnum er hins
vegar ærið miklu ábótavant, eins
og víðar. Og ég vil vara við oftrú á
getu verkalýðshreyfingarinnar,
þótt þar séu margir dugandi
menn í forystusveit.
Meðan hinn pólitíski kompás
vísar algerlega öfugt í stjórnar-
ráðinu og háttvirtir kjósendur
meira og minna ráðvilltir, margir
leiknir grátt af fjölmiðlafárinu,
þá eru þröng takmörk fyrir þeim
árangri, sem hin faglega verka-
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 26. mars 1985