Þjóðviljinn - 24.03.1985, Blaðsíða 9
AFMÆU
Fimnntug
Erna Hafdís
Berg
Á heiðursdegi sendi ég minni
góðu æskuvinkonu árnaðaróskir
og hjartahlýjar kveðjur með
kærri þökk fyrir kynnin frá mér
og mínum.
Lítil börn léku sér saman í tún-
inu, leikir bernskunnar bera enn
með sér ilm úr grasi og angan
blóma. Ljúf og björt er sú tíð í
ljósri minning - löngu liðnar
myndir vitja manns á kyrrum
stundum og verma í hversdagsins
kuldahretum. Þar á Haddý sinn
vísa, góða stað, bjartleit og bros-
hýr, ör og ærslagjörn, ofurlítið
hrekkjótt, en ljúfur leikfélagi, þó
á ýmsu gengi eins og jafnan gerist
á þessu aldursskeiði og ekki þótti
ávallt nógu virðulegt fyrir ungan
herra að eiga leiki við stelpur.
Eiðadvölin kemur upp í hugann,
þar sátu vörm vinátta og hin
sterku bernskutengsl í fyrirrúmi
og svo hefur í raun jafnan verið í
áranna rás. Gott er að rifja það
upp nú á góðri stund.
Óvægilega hafa örlaganornirn-
ar leikið þig, grimm og köld er
staðreynd dagsins með dvínandi
þreki og dapurlegri heilsu en orð
fá lýst. Og þó - svo ofurmannlegt
sem það er - enn ljómar þér lífs-
gleði úr augum - enn situr glett-
nin góða í fyrirrúmi - og andlegt
atgervi, sem ávallt hefur ein-
kennt þig - er óskert og æðru-
leysið hefur verið þér styrk vörn í
mótlæti og þungri þraut. Gott er
að eiga slíkt atgervi og ganga á
móti örlögum sínum af slíkri reisn
og eiga sér lífsfyllingu þrátt fyrir
allt. Fleiri skulu þessi fáu orð
ekki, en æðsta óskin er sú, að
lífssýn þín og lífsgleði megi sem
lengst lýsa upp veginn og færa þér
gnótt góðra stunda í hugarheimi
bjartra minningamynda, sem
gefa líf og lit í grámósku dimmra
daga.
Við sendum þér öll okkar ein-
lægustu kveðjur og biðjum
verndara alls lífs að vaka yfir veg-
ferð þinni. Kærar kveðjur mínar í
dag til ljúfrar leiksystur og ein-
lægrar og tryggrar vinkonu á ævi-
veginum með vináttu og yl sem
aldrei fyrnist yfir. Njóttu dagsins
sem bezt, Haddý mín og gakktu á
vit hins góða sem ætíð áður. Megi
allar hollar vættir vernda þig um
ókomna ævitíð.
Helgi Seljan
FLUGLEIÐIR
Aðalfundur Flugleiða hf.
verður haldinn fimmtudaginn 28. mars
1985 í Kristalssal Hótels Loftleiða og
hefst kl. 13.30.
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta
félagsins.
2. Breytingar á 3. gr. samþykkta félagsins.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á aðalskrifstofu
félagsins Reykjavíkurflugvelli, frá og með 25. mars nk. frá kl. 8.00 til
16.00.
Afhendingu atkvæðaseðla lýkur á hádegi fundardag.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu vera
komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
Stjórn Flugleiða hf.
Hundahald
- árgjald 1985- 86.
Árgjald fyrir leyfi til að halda hund í Reykjavík féll í
gjalddaga 1. mars sl. Eindagi gjaldsins er 1. apríl.
Verði það eigi greitt fyrir þann tíma fellur leyfið úr gildi.
Ath.: um leið og gjaldið er greitt skal framvísa
leyfisskírteini.
Gjaldið, sem er kr. 4800.- fyrir hvern hund, skal greiða
hjá heilbrigðiseftirlitinu í Heilsuverndarstöð Reykjavík-
ur, Barónsstíg 47.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkursvæðis.
Sunnudagur 24. mars 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
ÞÚ OG VID
Okkar hlutverk er að veita þér
þjónustu. Hér að neðan kynnistu
hvernig við förum að því.
Þjónusta.
Meðalstór fólksbíll er samansett-
ur úr allt að 10.000 hlutum. Það
gefur augaleið, að þessir hlutir
þurfa mismikið viðhald, t.d. er
oftar skipt um kerti en aftursæti.
Til þesS að fylgjast með eftir-
spurn á einstökum varahlutum, no-
tum við tölvu, sem skráir sam-
stundis allar breytingar á birgðum,
svo sem sölu og innkaup.
Tölvan gerir vikulegar pantana-
tillögur, sem við förum yfir og
samræmum breytilegum þörfum
eftir árstíma. Á þennan hátt kapp-
kostum við aðhafa ávallt fyrirlig-
gjandin ægilegt magn þeirra vara-
hluta, sem löng reynsla hefur kennt
okkur að þörf er fyrir.
Ef við eigum ekki varahlutinn,
sem þig vantar, pöntum við hann
án nokkurs aukakostnaðar fyrir
Þig-
Verð.
Við kappkostum að halda vöru-
verði í lágmarki án þess að slaka á
kröfum um gæði.
Til að lækka vöruverð, pöntum
við varahluti í miklu magni í einu
og flytjum til landsins á sem hag-
kvæmastan hátt. Síðan setjum við
vörurnar í tollvörugeymslu og af-
greiðum þær þaðan með stuttum
fyrirvara eftir þörfum hverju sinni.
Þannig lækkum við flutnings-
kostnað og innkaupsverð vörunnar.
•*.
Vörugæði.
Til að tryggja gæðin, verslum við
eingöngu með viðurkenndar vörur
með ársábyrgð gagnvart göllum.
Afgreiðsla.
í varahlutaverslun okkar eru sér-
hæfðir afgreiðslumenn ávallt reiðu-
búnir til aðstoðar, hvort sem þig
vantar varahluti eða upplýsingar
viðkomandi viðhaldi bílsins.
Landsbyggðin.
Ef þú býrð úti á landi, getur þú
snúið þér til umboðsmanns okkar
í þínu byggðarlagi eða hringt í
okkur í síma (91)13450, (91)21240
eða (91)26349 og við sendum vara-
hlutina samdægurs.
Okkar markmið er:
VÖRUGÆÐI, ÁBYRGD
>ö GÓÐ ÞJÓNUSTA.
Sættir þú þig við minna?