Þjóðviljinn - 24.03.1985, Blaðsíða 8
Norska
leitin að
þriðju
leiðinni
Sósíalíski vinstriflokkurinn tíu óra
gamall
m©d hver
og fodte
rtin|is-
16 re-
3er, et-
ms
rðll-
ten
>ie
sá
er i
ir hun
. -,..er flest
io ár pá sin
•ppiaít Orientering
'c/öovsr knalíseí&i
Undef er d(>t htó-
■att fj&rnsyfífsk(é('
útter kommutteval'
tar.
Efri myndin sýnir allskonar vinstrimenn fagna sigrinum mikla 1973. Á neðri myndinni eru oddvitar SV að skoða óhagstæð
úrslit á skjánum tveim árum síðar.
Kommar
Allt frá því að verkaiýðs-
hreyfing Evrópu fór að koma sér
upp pólitískum flokkum hafa
átök milli tveggja meginstrauma
innan hennar ráðið miklu: annars
vegar fóru þeir sem treystu á
gjörtækar breytingar sem fyrst,
hins vegar þeir sem ætluðu að
bæta samfélagið smám saman.
Upp úr rússnesku byltingunni
köstuðu þessir straumar akker-
um í afstöðunni til Sovétríkj-
anna: kommar vildu fylgja hinu
rússneska fordæmi um íeið og
færi gæfist, kratar settu traust sitt
á umbætur og þingræði. Svo leið
fram tíminn og margt varð úrelt í
þessari tvískiptingu. Og þegar
kaldastríðsandrúmsloft hopaði á
hæl, og þegar menn upp úr 1956
vissu miklu fleira um flokksræðið
sovéska en áður, þá fer í vaxandi
mæli að bera á viðleitni til að
leggja hina „þriðju leið“ ívinstri-
pólitík. Sem hafnaði bæði trú á
flokksræðið austurevrópska og
hinni kratísku hógværð, sem leitt
hefði til stöðnunar. Menn ætluðu
að hugsa sín dæmi upp á nýtt. Og
sósíalisminn og lýðræðið áttu að
ganga í innilegum hjúskap -
hvort sem væri í Prag eða París.
Sigurinn 1973
Stundum gerðist þessi þróun
innan flokks og má þá nefna til
dæmis Kommúnistaflokk Ítalíu.
Stundum urðu til nýir flokkar.
Einn þeirra var að haída upp á tíu
ára afmæli sitt um daginn. SV,
Sósíalíski vinstriflokkurinn í Nor-
egi. Fróðlegur flokkur á ýmsan
hátt.
SV varð til við aðstæður sem
um margt voru mjög sérstæðar. í
baráttu gegn aðild Noregs að
Efnahagsbandalaginu lentu hlið
við hlið óánægðir kratar, SF (Sós-
íalíski alþýðuflokkurinn, sem
brottgöngumenn úr Verka-
mannaflokknum og Natóand-
stæðíngar höfðu áður stofnað),
vinstrisinnar „án heimilisfangs“
og svo kommúnistar, sem voru þá
dottnir út af þingi. Árið 1972
gerðust svo þau afdrifaríku tíð-
indi að aðild Noregs að EBE var
felld í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Upp úr þessu var búið til SV, sem
þá hét Sósíalískt kosningabanda-
lag og vann það mikinn sigur í
þingkosningum 1973. Fékk ellefu
prósent atkvæða og 16 þing-
menn.
Sjálfum sér
verstir
Þetta var mikið áfall fyrir hefð-
bundna sósíaldemókrata í Verka-
mannaflokknum norska og
neyttu þeir allra bragða til að
kveða aftur niður þessa „rauðu
hættu“ sem risið hafði við hlið
þeirra. Þeim varð fljótlega nokk-
uð ágengt. En þó reyndust hinir
mislitu vinstrimenn í SV sjálfum
sér verstir. Þegar efnt var til
stofnþings SV sem flokks (m.ö.o.
kosningabandalagi átti að breyta
í formlegan flokk eins og gert var
í Alþýðubandalaginu íslenska
1968) fyrir réttum tíu árum, þá
var þegar uppi djúpstæður á-
greininguríflokknum. Meirihluti
kommúnista ákvað að ganga ekki
í nýjan flokk en halda áfram í
litlum og Moskvuhollum flokki.
Ýmsir þeirra sem eftir urðu í SV
héldu samt áfram að fegra fyrir
sér ástandið í Austur-Evrópu og
leita að einskonar samstöðu með
ríkjandi kommúnistaflokkum
þar og fældi þetta all marga frá
SV. I þriðja lagi voru ungliðar
flokksins firnaduglegir við afar
kreddubundnar umræður um
ríkiseinokunarkapítalisma og
marx-leninisma (einatt með maó-
ískum blæ) og var þetta lið einatt
svo fyrirferðarmikið, að verka-
menn og trúnaðarmenn í verka-
lýðshreyfingunni yfirgáfu þessa
hreyfingu og leituðu aftur til
Verkamannaflokksins, þar sem
fengist var við hin praktísku mál.
Við allt þetta bættist, að árið 1974
klofnaði þingflokkur SF út af
álmálum (norsk kaup á hluta-
bréfum í Álcan) og út af afstöð-
unni til Verkamannaflokksins.
Hinn nýstofnaði flokkur gekk því
sár og móður til bæjarstjórna-
kosninga 1975 og missti um helm-
ing fylgis síns. Arið 1977 tapaði
hann enn meiru og átti aðeins
eftir tvo menn á þingi - en þess
ber reyndar að gæta, að norsk
kosningalög veita smærri flokk-
um miklu færri þingsæti en þeir
ættu rétt til samkvæmt fylgi. í síð-
ustu kosningum vænkaðist hagur
flokksins svo nokkuð aftur og
tvöfaldaði hann þá þingmanna-
tölu sína. Nú sitja fjórir frá SV á
þingi, þar af tvær konur. En það
er reyndar eitt af því sem flokkur-
inn telur sér til ágætis; að hann
hafi tekið upp kvennakvóta á
framboðslistum. Og þótt hlegið
væri að honum í fyrstu hafa aðrir
flokkar í Noregi fylgt á eftir.
Staðan
í dag
Svo er að sjá af málgagni SV að
flokkurinn telji sig nú hafa kom-
ist yfir ýmsa barnasjúkdóma og
eigi von á vaxandi gengi. Menn
hafi lært að það eigi ekki að daðra
við hugmyndafræði alræðisins.
Einnig það, að flokkur sem lokar
sjálfan sig inni í fræðilegri um-
ræðu sem nær litlum tengslum við
hinn pólitíska hversdagsleika,
hann hljóti fljótt að missa af
áhuga stórra kjósendahópa. SV
telur sér það til ágætis að hafa
unnið vel að jafnréttismálum
kynjanna, að menningarmálum
og umhverfismálum og svo í and-
stöðu við vígbúnaðarkapp-
hlaupið. Flokkurinn hafi verið að
afla sér aukins trausts sem val-
kostur í senn jarðbundinn og rót-
tækur, sem möguleiki til að fara
aðrar leiðir en kratar og borgar-
ar. Um leið viðurkenna talsmenn
SV, að enn eigi þeir langt í land.
Þeir séu enn sem fyrr alltof
bundnir menntamönnum og eigi
erfitt með að ná eyrum verka-
manna. Bæði í verkalýðshreyf-
ingunni og í afstöðunni til Verka-
mannaflokksins fari alltof mikið
fyrir ýmsum þeim meydóms-
flækjum sem standi árangursríku
■starfi flokksins fyrir þrifum.
Hann hafi og ekki gert það upp
við sig enn, hvað gerast muni ef
SV og Verkamannaflokkurinn ná
saman meirihluta á þingi í haust,
sem vel gæti verið. Enda þótt
bæði Einar Förde, varaformaður
Verkamannaflokksins, og Berge
Furre, einn helsti foringi SV,
leggi á það áherslu, að ágreining-
ur milli flokka þeirra sé miklu
minni en áður. Og hefðbundnar
skammir lagðar af að mestu.
Meydómur og
raunsœi
Berge Furre skrifar einmitt um
meydómsvandann í afmælistút-
gáfu Ny tid nú á dögunum. Hann
segir á þessa leið:
Fyrir lítinn flokk sem á sér há-
leit markmið getur það verið ær-
inn vandi að sýsla við pólitíska og
jarðbundna baráttu fyrir dæg-
urmálum. Markmiðin háleitu og
framtíðarsýnirnar geta lyft póli-
tíkinni upp úr þessum heimi.
Flokkurinn verður fyrir suma
einskonar lífsskoðunarsamféiag,
þar sem réttar trúarkenningar
skipta mestu, og þá meiru en að
flokkurinn komi einhverju af
stefnu sinni í framkvæmd, meiru
en það, hvort flokkurinn er stór
eða lítill. Fyrir þá sem trúa, verð-
ur málamiðlunin viðbjóðsleg, því
hún er svik við það sem rétt er.
Þeim finnst að meðan flokkurinn
hefur rétt fyrir sér skipti það ekki
svo miklu hvort honum takist að
sanna það í verki.
Berge Furre minnist þess, að
framan af var það afar algengt í
hreyfíngu norskra vinstrisósíal-
ista að líta svo á, að þeir væru
einir í heiminum - það erum við á
móti öllum hinum. Það dugði um
skeið - en svo urðu fylgismenn
þreyttir á öllu saman og spurðu
ekki eftir framtíðarsýnum, held-
ur þeim mönnum sem gætu gefið
svör við spurningum sem vörð-
uðu kjör þeirra og öryggi hér og
nú. í framhaldi af þessu mælir
Berge Furre með vinsamlegum
samskiptum við sósíaldemó-
krata. Hann er samt ekki reiðu-
búinn til að mæla með stjórnar-
samstarfi eftir hagstæð úrslit
kosninga í haust, enda veit hann
sem er að forysta Verkamanna-
flokksins mundi varla leita eftir
formlegu stjórnarsamstarfi við
flokk sem er svo miklu minni. En
hann mælir með samkomulagi og
málamiðlun um vissa mála-
flokka. Við getum þá átt það á
hættu, segir Berge Furre, að vera
kennt um eitthvað sem við berum
í raun ekki ábyrgð á. En hin hætt-
an gæti orðið stærri og alvarlegri
- að við sviptum sjálfa okkar
möguleikum á að ná pólitískum
árangri - með því að snúa upp á
okkur og fást ekki til að vera með
í neinu.
Margt er ólíkt í pólitísku lífi
Norðmanna og íslendinga, það
er líka margt ólíkt með t.d. SV og
Alþýðubandalaginu. En að ein-
hverju leyti nærast þessir flokkar
þó báðir á svipuðum straumum
og hneigðum í okkar tíma. Það
hlýtur því jafnan að vera ómaks-
ins vert að hafa í huga reynslu
norskra vinstrisósíalista, sem og
allra þeirra annarra sem í ná-
lægum löndum hafa lagt út í þá
vegagerð sem ber nafnið „þriðja
leiðin“. -ÁB
REYR - HÚSGÖGN FRÁ SPÁNI NÝKOMIN ★★★i
Munið okkar
hagstæðu
greiðsluskilmála
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 24. mars 1985