Þjóðviljinn - 24.03.1985, Page 16

Þjóðviljinn - 24.03.1985, Page 16
LEIDARAOPNA Eru leiktœkasalirnir LEIÐARI Unglingarnir í tómarúminu Frásögn sú sem birtist í Þjóöviljanum í vik- unni af baráttu móöur við aö halda 12 ára syni sínum frá leiktækjasölunum í miðborg Reykja- víkur vakti sterk viðbrögð meðal lesenda. For- eldrar sem voru í svipaðri aðstöðu höfðu sam- band við blaðið og sögðu hliðstæðar sögur af börnum allt niður í 10 ára aldur sem væru bundin við spilakassastaðina alla daga. Af skyndiheimsókn okkar á 2 slíka staði í vikunni að dæma virðast staðir þessir vera eins konar annað heimili allstórs hóps ung- linga. Margir sem við töluðum við sögðust koma á þessa staði daglega og eyða þar allt frá 50 upp í nokkur hundruð krónur á dag. Þessir unglingar sögðu jafnframt að þeir hefðu ekki í annað hús að venda með félags- og tómstundastörf. Það er samdóma álit þeirra sérfræðinga sem Þjóðviljinn leitaði til um þessi mál, að sú menning og það félagslíf sem þróast hefur í kringum suma af leiktækjasölunum í borginni sé til lítilla heilla fyrir þá unglinga sem þarna hafa fundið samastað. Kristján Sigurðsson forstöðumaður Unglingaheimilis ríkisins í Kóp- avogi segir að þegar félagslíf unglinga sé látið þróast án þess að farið sé eftir settum reglum eða að um eftirlit sé að ræða eins og í þessu tilfelli, verði það gjarnan til þess að magna upp félagsleg vandamál, meðal annars vegna þess að sú menning sem þannig myndast fer á skjön við fullorðinsmenninguna og verður oft í eðli sínu andfélagsleg. Gísli Árni Eggertsson tómstundafulltrúi Æskulýðsráðs segir að „áhættuhópur" meðal unglinga í borginni fari ört stækkandi og safnist gjarnan saman í kringum leiktækjasalina og dragi að sér fleiri ístöðulitla unglinga undir merki þess kúltúrs að aðeins skuli lifa lífinu frá degi til dags. Alfreð Eyjólfsson skólastjóri Austurbæjar- skólans segir að ekki sé nein félagsmiðstöð fyrir unglinga í austurbænum og vesturbæn- um í Reykjavík og því ófullnægjandi þjónusta við félags- og tómstundaþörf barna og ung- linga í þessum borgarhlutum. Hann heldur því jafnframt fram að geðverndarmálum barna og unglinga hér á landi sé stórlega ábótavant, |sérstaklega þar sem ekki er nein geðdeild I starfrækt fyrir unglinga. Sá félagslegi vandi sem við blasir meðal unglinga borgarinnar á sér flóknar orsakir. Hann verður ekki leystur með því að loka leiktækjasölum. Það liggur hins vegar í augum uppi að með afskiptaleysinu af vandamálum sem þessum er verið að búa til önnur stærri. Staða unglingsins í þjóðfélagi okkar er að mörgu leyti breytt frá því sem var fyrir tiltölu- lega fáum árum. Samfélagið hefur því miður ekki náð að bregðast við þeim breytingum með fullnægjandi hætti. Þeir unglingar sem flosna upp úr skóla og eðlilegum félagsskap jafnaldra sinna eru sem betur fer í miklum minnihluta. En að mati kunnugra er fjöldi þeirra vaxandi. Æskulýðsráð Reykjavíkur hef- ur unnið lofsvert brautryðjendastarf í uppbygg- ingu félags- og tómstundastarfs meðal ung- linga í borginni. En betur má ef duga skal. Það þarf að koma upp klúbbum og félags- miðstöðvum í þeim borgarhlutum þar sem slíkt er ekki fyrir hendi. Borgin þarf að styðja við bakið á uppbyggilegu starfi unglinga í borginni þar sem það er að finna og örva frumkvæði unglinganna sjálfra. Þetta ætti að vera sjálf- sagt forgangsatriði á yfirstandandi ári æskunnar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.