Þjóðviljinn - 31.05.1985, Síða 9

Þjóðviljinn - 31.05.1985, Síða 9
Tölvan og verkalýðshreyfingin Verði mannshöndin leyst af hólmi Rætt við Ásmund Stefánsson um tölvuvæðinguna, afleiðingar og nauðsynleg viðbrögð Ásmundur - getur verkalýðs- hreyfingin nýtt sér tölvuvæðing- una til að sækja fram til betri kjara? Tækniþróunin hefur verið meginaflvaki þeirra efnahagsf- ramfara sem við höfum notið síð- ustu áratugi og mér finnst því nánast sjálfgefið að svo verði áfram. Með tækniframförum er lögð forsenda að auknum þjóð- artekjum, þar með auknu ráð- stöfunarfé einstaklinga og meira fé til sameiginlegra þarfa. En andspænis nýjum aðstæð- um þarf verkaiýðshreyfingin sennilega margs að gæta? Tæknibreytingar gera auðvitað nýjar en þó fyrst og fremst breyttar kröfur til einstaklinga. Hlutverk verkalýðshreyfingar- innar er í fyrsta lagi að sjá til þess að afrakstri nýrrar tækni sé rétt- látlega skipt og í öðru lagi að tryggja að fólki gefist kostur á að laga sig að breyttum aðstæðum. Um hið fyrrnefnda er það að segja að verkalýðshreyfingin verður að búa svo um hnútana að ágóðinn verði jafnt nýttur til að styrkja það félagslega öryggisnet sem hér hefur verið riðið sem og til að bæta kjör launafólks þannig að jöfnuður komist á í þjóðfé- laginu. Síðarnefnda markmiðinu verð- ur hins vegar best náð með því að skipulega sé að breytingum stað- ið í fyrirtækjunum og mikið unn- ið að endurmenntun og þjálfun starfsfólksins. f>að þarf að auka atvinnuöryggi og gefa verkafólki ákvörðunaraðild að því hvernig ný tækni er notuð. Og hvernig heldurðu að best verði að málum staðið? Á vettvangi heildarsamtak- anna held ég að málið snúist um að verkalýðshreyfingin marki heildarstefnu. Hún þarf að sjá fyrir hver þróun verður og hafa áhrif á hvert stefnir. Verkalýðshreyfingin verður með samningum að tryggja launafólki lengri uppsagnarfrest og rétt til endurmenntunar á iaunum. Hún verður og að fá því framgengt að fyrirtæki komi til móts við breyttar aðstæður með endurmenntun og tilflutningi Föstudagur 31. maí 1985 j ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.