Þjóðviljinn - 31.05.1985, Síða 16

Þjóðviljinn - 31.05.1985, Síða 16
TOLVUR Völvan í tölvunni? Þórunn Pálsdóttir í og með annarri VAX-tölvu Reiknistofnunar. Reiknistofnun Háskólans Fræðsla HVAR GET ÉG LÆRT r A TÖLVU? Háskólinn og Náms- flokkarnir Oddur Benediktsson, prófess- or við Háskóla íslands, gaf blað- inu þær upplýsingar að tölvunám færi fram í ýmsum deildum stofn- unarinnar. f rafmagnsfræði, við- skiptafræði, kennslu- og uppeld- isfræði er t.d. töluverð tölvu- kennsla og er þá ýmist um að ræða val- eða skylduáfanga. í stærðfræðiskor raunvísinda- deildar geta menn síðan stundað þriggja ára BS-nám í tölvunar- fræðum. Þar má velja milli gagnavinnslu- og tæknileiðar. Nemendum í tölvunarfræðum hefur fjölgað ört síðastliðin þrjú ár, eru þeir nú 170 talsins svo að ekki skortir áhuga á fræðunum. Aðstæður við kennslu eru hins vegar að ýmsu leyti bágbornar. Þannig eiga tuttugu IBM PC tölv- ur að gagnast hátt á annað hundr- að manns og fram til þessa hefur prófessorsstöðum ekki fjölgað í samræmi við nemendur. Oddur hefur setið einn á stóli en nú er verið að ráða í aðra stöðu. Þorbjörg Jónsdóttir hjá Náms- flokkum Reykjavíkur tjáði blað- inu að hjá Námsflokkunum hefði á hverjum vetri verið boðið uppá eitt til tvö tölvunámskeið. Kennt er á BBS-tölvur, byrjað á Basic- forritun og síðan haldið uppi framhaldsnámskeiðum ef aðsókn er næg. Allar upplýsingar eru veittar á skrifstofum Námsflokk- anna í Miðbæjarskólanum. Meðal þeirra stofnana er upp hafa sprottið með tölvuvæð- ingunni er Tölvuþjónusta sveitarfélaganna. Þjóðviljinn sneri sér til forstöðumanns hennar, Loga Kristjánssonar, til að forvitnast lítið eitt um starfsemina. Logi, hvaða fyrirbæri er Tölvuþjónusta sveitarfélaga? Fyrirbæri? Eigum við ekki frekar að segja að hún sé vett- vangur þ.e.a.s. samstarfs- og samræmingarvettvangur sveitar- félaga í töivumálum. Markmið hennar er m.a. að stuðla að og efla samvinnu sveitarfélaganna við gerð tölvuhugbúnaðar; að að- stoða sveitarfélögin við þjálfun starfsfólks og fræðslu í tölvumál- „Við setjum upp sérstakt Help-kerfi fyrir einkatölvur þar sem veittar eru upplýsingar um hvernig nota skal ýmsan algengan hugbúnað fyrir þær einkatölvur sem helst eru not- aðar við Háskólann. Þar birtist einnig verðlisti yfir vörur og þjónustu Reiknistofnunar, yfirlit yfir hugbúnað sem völ er á og greinar um helstu nýjung- ar,” sagði Þórunn Pálsdóttir hjá Reiknistofnun Háskólans, um; að vera upplýsingamiðstöð og vettvangur upplýsingaskipta sveitarfélaganna og annarra op- inberra aðila. Og hvernig hefur ykkur svo gengið að vinna að markmiðun- er Þjóðviljinn innti hana frétta af upplýsingamiðstöð um einkatölvur sem stofnunin er að koma á laggirnar. Miðstöðin er gagnbanki í VAX-tölvum Reiknistofnunar. Menn þurfa að verða sér úti um verknúmer á annarri hvorri VAX-tölvunni og fá aðgang að henni um fjarvinnslu (síma og módem) eða um tölvusambönd háskólans. Geta þeir þá flett upp Árangurinn kemur skýrast fram í því að þegar Tölvuþjónust- an var sett á fót 1979 notfærðu sér í fyrstu aðeins 8 sveitarfélög ann- að eða bæði tölvukerfin sem þjónustan bauð upp á. 1 ársbyrj- un 1980 voru sveitarfélögin orðin 20 og nú eru þau 50-60. Sem stendur erum við með sex hug- búnaðarkerfi er sveitarfélögun- um standa til boða en fleiri eru í bígerð. Hvaða kerfi eru þetta? Þau eru fyrir innheimtu sveitarsjóðsgjalda, fjárhags- 'bókhald í samræmi við bókhalds- lykil sveitarfélaganna, launa- bókald, lífeyrissjóði, hafnar- sjóðsreikning og íbúaskráningu. Háir ykkur ekkert að sveitarfé- lögin eru misstór? Það háir okkur ekki nei, hins vegar gerir það auknar kröfur til okkar. í minnsta sveitarfélaginu sem nýtir sér þjónustuna eru rúml. 100 íbúar, í hinu stærsta 14.000. Auðvitað rísa upp ákveð- in vandamál af því að aðstæður eru ólíkar. Það má líka nefna að sveitarfélögin eru með ýmsar tölvur og við höfum aðeins getað í gögnum miðstöðvarinnar með því að tengja einkatölvu sína öðru hverju með viðeigandi for- riti, t.d. samsk. forritinu Kermit. Auk Help-kerfisins verður einnig notað Mail-kerfi til að senda út ýmsar upplýsingar t.d. auglýsingar um námskeið og breytingar á þjónustugjaldskrá Reiknistofnunar. Með Mail gefst jafnvel kostur á að senda fólki forrit úr nokkurs konar forrita- verið með kerfi fyrir þrjár teg- undir, IBM S34/36, og Wang- 2200 svo og fyrir runuvinnslu í tölvumiðstöð t.d. hjá Flug- leiðum. Höfum verið segirðu - er það að breytast? Já, við buðum út í byrjun árs gerð fjárhagsbókhalds fyrir einkatölvur með MS Dos stýri- kerfi sem nær til fleiri tegunda en ég nefndi áðan. Við fengum hag- stætt tilboð frá Tölvumiðlun h.f. og þeir eiga að Ijúka sínu verki í september. Koma þá fleiri sveitarféiög til með að nýta sér þjónustuna en verið hefur? Örugglega. Einkatölvur hafa opnað nýjar leiðir. Þær eru keyptar í lítil sveitarfélög þar sem einmenningstölva dugar og í stór þar sem þær eru ýmist tengdar móðurtölvu og notaðar sem skjár við hana eða nýttar í einstök verkefni svo sem ritvinnslu og áætlanagerð. Við fórum í verðkönnun út- boða á einkatölvum og búnaði tengdum þeim og það kom í ljós að það eru margir aðilar um hit- banka. Fyrirspurnir má loks senda um Mail-kerfið til starfs- manna Reiknistofnunar og þeir senda þá leiðbeiningar og ráðgjöf um hæl. „Um leið og menn sækja verk- númerin á VAX-tölvurnar, kennum við þeim að nota Mail- og Help-kerfið,” sagði Þórunn. „Það tekur bara skotstund. Fólk getur líka hringt eða komið, vilji það afla sér frekari upplýsinga.” -bsk. una. Tilboðin reyndust 14 frá 13 aðilum. Niðurstaðan var líka at- hyglisverð. Verð á einkatölvum með 256 kílóbita innra minni og tvöföldu segulplötudrifi var frá um 60 þúsundum. Verð á sambærilegri tölvu með 10 mega- bita hörðum diski var frá 90 þús- undum. Verðið miðaðist auðvit- að við magninnkaup en núna virðist vera hægt að fá tölvurnar meira en helmingi ódýrari en fyrir ári. En er ekki hugbúnaðurinn bara að hækka samfara því sem vélbúnaðurinn lækkar? Jú, en með samstöðunni hefur okkur tekist að stilla hugbúnað- arverðinu í hóf ekki síst hjá fá- mennustu sveitarfélögunum. Þau greiða lægsta stofngjaldið. Það er ekkert vafamál að með samstarf- inu hefur okkur tekist að afla ódýrra og hagkvæmra stjórnun- artækja. í ofanálag höfum við haldið uppi öflugu fræðslustarfi svo að við gegum vel við unað. Samtakamátturinn og þekkingin eru og verða það sem skiptir sköpum um hvernig tölvutæknin nýtist. -bsk um? „Virðist vera hægt að fá tölvurnar meira en helmingi ódýrari en fyrir ári," segir Logi, ánægður með árangurinn. Tölvuþjónusta sveitarfélaga Samtakamátturinn og þekkingin skipta sköpum Rætt viö Loga Kristjánsson forstöðumann Tölvuþjónustu sveitarfélaganna 16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 31. maí 1985

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.