Þjóðviljinn - 31.05.1985, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 31.05.1985, Blaðsíða 22
UM HELGINA Lokatónleikar Söngskólans Tólfta starfsári Söngskólans í Reykjavík lýkur nú um helgina meö tónleikahaldi og skóla- slitum. Á morgun, laugardag, kl. 15verðatónleikarísal skólans þar sem Margrét Pálmadóttirsópran og Þor- geir Andrésson tenórsyngja við undirleik Jórunnar Viðar og Guðrúnar A. Kristins- dóttur. Skólaslitin verða á sunnudag kl. 16 í Gamlabíói en þar koma fram nemendur af öllum stigum ásamt píanóleikurum skólans. Á mánudaginn kl. 20.30 verða tón- leikar í sal skólans en þar koma fram söngkennararnir Ásta Vald- imarsdóttir og Kristín Jóhannes- dóttir ásamt píanóleikaranum Guðrúnu A. Kristinsdóttur. Skólinn útskrifar að þessu sinni þrjá söngkennara og fimm nem- endur af VIII. stigi almennrar deildar sem er jafnframt inn- tökupróf í einsöngs- og kennara- deildir skólans. -ÞH Sigur&ur Sólmundarson myndlistarmaður úr Hveragerði heldur nú um helgina sýningu á verkum sínum í grunnskólanum á Hellissandi. Þar sýnir hann 40 verk unnin úr timbri, grjóti og ýmsum gróðri. Er þetta 6. einkasýning Sigurðar. Sýningin verður opin í dag, föstudag, frá kl. 14-22 og á morgun og sunnudag kl. 18-22. -ÞH Þrennir kórfónleikar Karlakór Akureyrar er í söng- ferð sunnan fjalla um þessa helgi. Heldur kórinn þrenna tónleika, þá fyrstu í kvöld, föstudag, kl. 21 í Hlégarði í Mosfellssveit, síðan á morgun kl. 13.30 í Selfossbíói og loks kl. 18 á morgun í Hafnarfjarð- arkirkju. Á söngskránni eru bæði inn- lend og erlend lög og eitt þeirra innlendu er eftir Atla Guðlaugs- son stjórnanda kórsins en það verður frumflutt hér syðra. Einn- ig verður boðið upp á einsöng, tvísöng og tvöfaldan kvartett. Undirleikari er Antonía Ogonov- sky. -ÞH Sigríður Svava Gestsdóttir sýnir í Ásmundarsal um þessar mundir. Mynd: Valdís. Sigríður Svava í Asmundarsal Stofnfundur hlufafélags Á sunnudaginn kl. 15 verður haldinn stofnfundur hlutafélags um Félagsheimili tónlistarmanna sem ráðgert er að koma upp að Vitastíg 3 í Reykjavík. Fundur- inn verður haldinn á Gauki á Stöng og er hann opinn öllu áhugafólki um málefnið. Hluta- fjársöfnun hefur staðið yfir und- anfarinn mánuð og þegar safnast uþb. helmingur þess hlutafjár sem að var stefnt. Fundarmenn geta skráð sig fyrir hlutum en hver þeirra er 10 þúsund krónur. -ÞH Óháði söfnuðurinn Fjölskylduskemmtun Á morgun, laugardag, kl. 15 un n kirkju og safnaðarheimili. gengst Óháði söfnuðurinn fyrir Meðal þeirra sem fram koma fjölskylduskemmtun í Gerðu- eru Omar Ragnarsson, djass- bergi í Breiðholti. Tilgangur hljómsveit Árna Elfars og Dúa hennar er að afla fjár svo hægt sé Einarsdóttir söngkona en kynnir að ljúka viðgerðum og endurnýj- verður Bryndís Schram. -ÞH Vortónleikar Um þessar mundir heldur Sig- ríður Svava Gestsdóttir sýn- ingu á verkum sínum í Ás- mundarsal. Þarsýnirhún40 verk, flest vatnslitamyndir. Sigríður Svava lærði í Mynd- iistarskólanum í Reykjavík en er nú búsett á Selfossi. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar í Listasafni Árnessýslu og í Norrœna húsið Norskur píanóleikari Á sunnudaginn kl. 20.30 verða haldnir þriðju tónleik- arnir í tónleikaröð Norræna hússins, Ungirnorrænirein- leikarar. Tilefni þessara tón- leika er að árið 1985 er bæði ár æskunnar og tónlistarinnar og bauð Norræna húsið því ungum og efnilegum ein- leikurum, einum frá hverju landi, til tónleikahalds. Fulltrúar Danmerkur og Sví- þjóðar hafa þegar mætt til leiks en nú er röðin komin að norð- manninum og pianóleikaranum Christian Eggen. Hann er 28 ára gamall og kom fyrst fram opin- berlega 13 ára gamall. Hann var aðeins 17 ára þegar hann lék fyrst inn á hljómplötu og síðar hefur hann margsinnis komið fram sem einleikari og hljómsveitarstjóri auk þess sem hann hefur samið tónverk. Eftirlætisverkefni hans eru Vínartónskáldin, einkum Mozart, en hann fæst einnig við nútímaverk. Efnisskráin á tón- leikunum í Norræna húsinu hefur að geyma verk eftir Grieg, Moz- art, Chopin og Carl Nielsen.-|>H Argentínskur gitarleikari Á mánudagskvöldið kl. 20.30 heldur argentínski gítarleikar- inn Ernesto Bitetti tónleika í Norræna húsinu. Á efnis- skránni eru verk eftir ýmis spænsk og suðuramerísk tón- skáld, mörg hverskrifuðfyrir Bitetti. Ernesto Bitetti er fæddur í Argentínu en hefur búið í Madrid frá 1968. Hann hefur haldið tón- leika um allan heim, allt frá Bols- hoi í Moskvu til Kennedy Center í Washington, og leikið með fjöl- mörgum heimsþekktum hljóm- sveitum. Hann hefur hlotið verð- laun í heimalandi sínu, á Spáni og í Bandaríkjunum og tónlistar- gagnrýnendur skipa Ernesto Bit- etti á fremsta bekk meðal gítar- leikara heimsins. _|>h Akureyri Kötturinn fer sínar eigin leiðir Reykjavík sýndi hún síðast árið 1982. Sýningin íÁsmundarsal verður opin daglega frá kl. 14-22 fram á sunnudagskvöld. _j>h I kvttld, föstudag, og annað kvöld verða tvær síðustu sýningarnar á Leður- blökunni eftir Johann Strauss sem íslenska óperan hefur sýnt að undanförnu við góðar undirtektir. Hefjast sýningar bæði kvöldin kl. 20. Orgeltónleikar Samkórs Kópavogs Samkór Kópavogs heldur ár- kirkju á morgun, laugardag, kl. lega vortónleika sína í Kópavogs- 16. Áð þessu sinni eru eingöngu íslensk verk á efnisskránni, lög og ljóð eftir Jón Ásgeirsson, Inga T. Lárusson, Emil Thoroddsen, Halldór Laxness og Sigvalda Kaldalóns. Stjórnandi Samkórs Kópavogs er Stefán Guðmunds- son. -ÞH Á mánudagskvöldið kl. 20.30 verða fimmtu tónleikarnir í röð orgeltónleika sem Félag ís- lenskraorgelleikara, Kirkju- kórasamband íslands og söngmálastjóri þjóðkirkjunnar standa fyrir í tilefni af því að í ár eru liðin 300 árfráfæðingu Johans Sebastians Bachs. Verða þeir í Kristskirkju. Tónleikarnir hefjast á því að Glúmur Gylfason leikur Prelúdíu og Fúgu í C-dúr, þá leikur Ort- hulf Prunner fjóra sálmforleiki, Sigríður Jónsdóttir, David Knowles og Guðni Þ. Guð- mundsson leika fjóra sálmfor- leiki til viðbótar, Kristín G. Jóns- dóttir leikur Canzonu í d-moll og að lokum leikur Guðni Þ. Guð- mundsson Toccötu og Fúgu í d- moll. _þh Á sjómannadaginn sem er á sunnudag verður allra síðasta sýning á barnaleikritinu Köttur- inn sem fer sínar eigin leiðir eftir Ólaf Hauk Símonarson en það er sýnt hjá Leikfélagi Akureyrar. Þá fer sýningum á söngleiknum um Edith Piaf einnig að fækka en hann verður sýndur tvívegis um helgina, föstudag og laugardag kl. 20.30. 22 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 31. maí 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.