Þjóðviljinn - 31.05.1985, Qupperneq 23
ÍÞRÓTHR
Brússelharmleikurinn
Belgar banna Breta!
Breskfélögoglandsliðútilokuð? UEFAóttast hliðarverkanir.
Thatcher vill dæma þá seku strax. Öryggisgæslu Belga ábótavant?
Kenny Dalglish tekur við stjórastöð-
unni hjá Liverpool á erfiðum tíma. Fé-
lagið vann engan bikar á nýloknu
keppnistímabili og á yfir höfði sér
langt bann frá Evrópumótum.
Innanríkisráðherra Belgíu til-
kynnti í gær að belgíska stjórnin
hefði lagt bann við því að bresk
knattspyrnufélög lékju þar í
landi, í kjölfar hinna hörmulega
atburða í Briissel í fyrrakvöld
þegar rúmlega 40 manns létust
fyrir úrslitaleik Liverpool og Ju-
ventus í Evrópukeppni meistara-
liða.
Bannið mun gilda uns Bretar
hafa náð að koma í veg fyrir
skrílslæti á knattspyrnuleikjum,
og það gæti tekið nokkur ár.
Knattspyrnusamband Evrópu,
UEA, íhugar að útiloka bresk fé-
lög frá Evrópukeppni og ákvörð-
Liverpool
Dalglish ráðinn!
Kenny Dalglish var í gær ráð-
inn framkvæmdastjóri enska
knattspyrnuliðsins Liverpool og
tekur hann við af Joe Fagan sem
tilkynnti í fyrradag að hann væri
hættur vegna elli og þreytu.
Dalglish er einhver frægasti
knattspyrnumaður Bretlands fyrr
og síðar. Hann er 34 ára og mun
áfram leika sjálfur með Liver-
pool, en Bob Paisley, fyrrum
framkvæmdastjóri liðsins, mun
aðstoða hann utan vallar. Dalg-
lish var keyptur frá Celtic árið
1978 til að taka við af Kevin Ke-
egan og síðan hefur hann skorað
112 mörk í 204 deildaleikjum
með Liverpool. Liverpool samdi
til þriggja ára við Dalglish og það
verður fróðlegt að fylgjast með
gengi hans í stjórastöðu eins
frægasta knattspyrnufélags í
heimi.
-VS
un þarað lútandi verður væntan-
lega tekin á fundi sambandsins í
júlí. Það hefur komið fram að
UEFA óttast hliðarverkanir sem
slíkt bann gæti haft, minnkandi
aðsókn á Evrópuleikjum og
þverrandi áhugi á Evrópumótun-
um þar sem félög frá „smærri"
þjóðum Evrópu líta á það sem
mikla upphefð að dragast gegn
enskum liðum í Evrópukeppni.
Það kæmi fram sem beint fjár-
hagslegt tap fyrir UEFA. Enginn
vafi er þó á að Liverpool verður
útilokað frá Evrópumótum næstu
árin.
Neyðarfundur var haldinn í
bresku ríkisstjórninni í gær og
Margrét Thatcher forsætisráð-
herra lýsti því yfir að hún vildi að
þeir sem ollu harmleiknum í
Brussel yrðu dregnir fyrir dóm-
stóla, dæmdir og útilokaðir frá
knattspyrnuleikjum í framtíð-
inni. Það kom fram í máli hennar
að hún vill hafa náin samráð við
enska knattspyrnusambandið um
hvað gera skuli í málinu. Búist er
við að reynt verði að koma saman
einhverri refsilöggjöf sem nái til
skrflsláta á knattspyrnuvöllum
sem allra fyrst svo hægt sé að
koma henni í gegnum breska
þingið áður en það fer í sumarfrí.
Þá vill Thatcher að Bretar verði á
undan UEFA með að ákveða
refsingar.
Helgar-
sportið
Knattspyrna
Fjórða umferð 1. deildar
karla hefst í kvöld með
tveimur leikjum. ÍA og Þrótt-
ur leika á Akranesi kl. 19 og
Valur-FH að Hlíðarenda kl.
20. Á morgun, laugardag, eru
tveir leikir kl. 14, ÍBK-KR í
Keflavík og Fram-Þór í
Laugardalnum. Umferðinni
lýkur síðan á sunnudagskvöld
í Laugardalnum en þá mætast
Víkingur og Víðir kl. 20.
Fjórir leikir fara fram í 2.
deild á morgun. Skallagrímur-
ÍBV í Borgarnesi kl. 14,
Völsungur-KA á Húsavík kl.
16, Breiðablik-Leiftur í Kópa-
vogi kl. 16 og Fylkir-KS í
Laugardal kl. 17. Á sunnudag
leika svo Njarðvík og ÍBÍ í
Njarðvík kl. 14. Heil umferð
er í 3. deild í kvöld og á morg-
un og leikið í öllum riðlum 4.
deildar.
Frjálsar
Vormót HSK fer fram á
Selfossi á morgun, laugardag.
Golf
Opna Dunlop-mótið fer
fram á Hólmsvelli í Leiru á
'vegum GS á laugaradag og
sunnudag. Leiknar eru 36 hol-
ur, með og án forgjafar, og er
þetta stigamót.
Vouge-kvennamótið fer
fram í Grafarholti á vegum
GR á morgun. Leiknar verða
18 holur, með og án forgjafar.
Þegar stuðningsmenn Juventus
komu heim til Ítalíu í gær var
þeim fagnað eins og hermönnum
úr stríði. Mikil sorg ríkir á Ítalíu,
ekki aðeins í Torino, heimaborg
Juventus, heldur víðar þar sem
stuðningsmenn Juventus koma
víðsvegar að úr landinu. ítalir eru
að sjálfsögðu bitrir útí Englend-
inga, en ekki síður útí Belga fyrir
að gera ekki nauðsynlegar varúð-
arráðstafanir. UEFA hefur einn-
ig látið í veðri vaka að Belgar beri
mikla ábyrgð og sérstök nefnd
hefur verið sett á laggirnar til að
kanna hvort öryggisgæslu hafi
verið ábótavant. Stuðningsmenn
Liverpool og Juventus voru hafð-
ir of nálægt hverjir öðrum og þeir
ensku áttu auðvelt með að ryðj-
ast yfir á „ítalska svæðið".
Þess er örugglega langt að bíða
að öll kurl komi til grafar í þessu
máli. Rætt hefur verið um að úti-
loka ensk lið frá Evrópumótum
og banna enska landsliðinu að
taka þátt í úrslitum heimsmeist-
arakeppninnar á næsta ári. Slíkar
refsingar myndu því miður ekki
bitna á réttum aðilum - hinn fá-
menni minnihluti sem stendur
fyrir skrílslátunum flokkast ekki
undir knattspyrnuáhugamenn -
tilgangur þessara ribbalda er ekki
að horfa á knattspyrnu heldur að
komast í slagsmál og hasar.
Knattspyrnuvellirnir hafa því
miður orðið þeirra vettvangur,
þar er fólkið flest og auðveldast
er að hverfa í mannþröngina.
Þetta er angi af þjóðfélagslegu
vandamáli í Bretlandi, vandamáli
sem á ekki síst rætur sínar að
rekja til atvinnuleysis og stjórn-
arstefnu frú Thatchers sjálfrar.
-VS
Kvennaboltinn
Inga afgreiddi KA
Knattspyrna
Boniek borgaði sig
Frá Brussel til Albaníu - og sigurmark
Pólvefjar náðu sér í dýrmæt stig í markið, innan við sólarhring ettir
undankeppni HM í knattspyrnu í gær leikinn harmþrungna gegn Liver-
er þeir sigruðu Albani 1-0 í Tirana í 1. pool.
riðli. Þar með er riðillinn orðinn að Staðan í 1. riðli:
einvígi milli Belga og Pólverja, annað
liðið kemst beint til Mexíkó en hitt Pólland...5 3 1 1 10-6 7
leikur aukaleiki við Hollendinga um Belgía....5 3 11 7-3 7
sæti í lokakennninni Albama 5 113 5-8 3
sæti i loKaKeppnmni. Grikkland.5 113 4-9 3
Zbigmew Bomek, sem í fyrrakvold
varð Evrópumeistari með Juventus í póiverjum dugir því jafntefli á
Brússel, matti hraða sér til Albamu til heimavelli gegn Belgum er þjóðirnar
að leika þennan mikilvæga leik. Það mætas( . ,oka,eik riði|sins þann n
borgaði sig fyrir Pólverja að senda september til að hljóta efsta sætið.
eftir honum - Bomek skoraði sigur- _y§
Gullskórinn
Gomes öruggur
Portúgalinn Gomes sem leikur Martin McGaughey, leikmaður
með meisturum Porto er öruggur með Linfield á Norður-frlandi.
með Gullskó Adidas sem veittur Hann gerði 34 mörk í 26 leikjum.
er markahæsta knattspyrnu- f þriðja sæti er Valid Halihodzic
manni f Evrópu ár hvert. hjá Nantes í Frakklandi en hann
Gomes hefur skorað 38 mörk í hefur gert 28 mörk í 37 leikjum og
29 1. deildarleikjum Porto í vetur á einn leik eftir.
og á einn leik eftir. Næstur er _ ys
Bikarkeppnin
ísfirðingar til
Tvær viðureignir 2. deildarliða
Það liggur Ijóst fyrir hvaða fé- Árvakur-Tálknafjörður
lög mætast í 2. umferð bikar- Breiðablik-Gnndavík
keppni KSÍ næsta miðvikudag, fStói! Kf?V'
að öðru leyti en því að Einherji og Leiftur-KS
Leiknir F. eiga eftir leik sinn í 1. Huginn-Austri
umferð. Hann verður leikinn um ÞróttLlr N Einh./Leiknir F.
leið og leikir 2. umferðar. Þarna er áhugaverðastur leikur
Þessi félög leika saman: ÍBV og ÍBÍ, efstu liða 2. deildar-
IK-Grótta innar, í Vestmannaeyjum. Einn-
!gvSíkBí"a9n'mUr '8 viðureign nágrannaliðanna
Víkingur ó.-Augnablik Leifturs og KS á Ólafsfirði en
Reynir s.-Léttir bæði leika í 2. deild.
Þór vann KA 1-0 í þriðja leik 1.
deildar kvenna í knattspyrnu í ár
sem fram fór á Þórsvellinum í
gærkvöldi. Sigur Þórs var sann-
gjarn, liðið fékk fjölda dauða-
færa sem ekki nýttust. KA fékk
hins vegar aðeins eitt umtalsvert
færi í leiknum.
Það var Inga Huld Pálsdóttir
sem skoraði sigurmarkið eftir 25
mínútna leik. Hún fékk knöttinn
rétt utan við vítateigshorn og lyfti
honum snyrtilega í boga yfir
Handbolti
Skóli í
sumar
Flugleiðir og HSÍ standa að
handknattleiksskóla sem
haldinn verður að Varmá í
Mosfellssveit dagana 22.-27.
júní í sumar. Skólinn er fyrir
5. flokkspilta (11-12 ára) og3.
flokksstúlkur (13-14 ára).
Þátttökutilkynningar Jrurfa
að berast skrifstofu HSI fyrir
15. júní 1985. Þátttökugjald
er kr. 3.900 og innifalið er
gisting, matur o.fl.. Þátttak-
endum verður boðið á
landsliðsæfingar og að sjá
landsleiki í Flugleiðamótinu.
Flugleiðir bjóða hagkvæm
fargjöld fyrir þátttakendur af
landsbyggðinni. Þjálfarar
verða Geir Hallsteinsson og
Viðar Símonarson.
Eyja
í 2. umferð
í 3. umferð leika síðan saman
sigurvegararnir úr eftirtöldum
leikjum:
Reynir/Lóttir-lR/Skallagrímur
VlK.Ó/Augnablik-Stjarnan/Njarövík
Breiöab/Grindav-Árvakur/Tálknafj
iK/Grótta-lBV/lBl
Leittur/KS-Tindastóll/KA
Huginn/Austri-Þróttur/Einh/Leiknir
Sigurvegararnir í leikjum 3.
umferðar fara síðan í 16-liða úr-
slit ásamt 1. deildarliðunum tíu.
- VS
markvörðinn og í hornið fjær.
-K&H/Akureyri
Kvennaboltinn
ÍBK áfram
ÍBK sigraði Víking 3-2 í hörku-
spennandi leik í bikarkeppni kvenna í
knattspvrnu í Keflavík í gærkvöldi.
Staðan í hálfleik var 1-1 og mörk
heimaliðsins gerðu þær Svandís Gylf-
adóttir, Guðný Magnúsdóttir og Guð-
rún Sigurðardóttir. Keflavíkurstúlk-
urnar mæta ÍR eða FH í 8-liða úrslit-
um keppninnar.
-VS
Hafnarfjörður
Ársþing ÍBH
34. ársþing íþróttabandalags Hafn-
arfj arðar verður haldið laugardaginn
1. júní í samkomusal íþróttahússins
við Strandgötu og hefst kl. 10 f.h..
ÍBH er 40 ára, var stofnað 28. apríl
1945, og verður þess minnst á þinginu
og verða m.a. heiðraðir menn sem
hafa unnið að félagsmálum íþrótta-
fólks á undanförnum árum.
England
Lokastaðan
Lokastaðan í 1. deild ensku
knattspyrnunnar 1984-85 sem
lauk á þriðjudagskvöldið varð
þessi:
Everton........42 28 6 8 88:43 90
Liverpool......42 22 11 9 68:35 77
Tottenham......42 23 8 11 78:51 77
Man.Utd........42 22 10 10 77:47 76
Southton.......42 19 11 12 56:48 68
Chelsea........42 18 12 12 63:48 66
Arsenal........42 19 9 14 61:49 66
Sheff.Wed......42 17 14 11 58:45 65
Nott. For......42 19 7 16 56:49 64
AstonV.........42 15 11 16 60:60 56
Watford........42 14 13 15 81:71 55
W.B.A..........42 16 7 19 58:62 55
Luton..........42 15 9 18 57:61 54
Newcastle......42 13 13 16 55:70 52
Leicester......42 15 6 21 65:73 51
WestHam........42 13 12 17 51:68 51
Ipswich........42 13 11 18 46:57 50
Coventry.......42 15 5 22 47:64 50
O.P.R..........42 13 11 18 53:72 50
Norwich........42 13 10 19 46:64 49
Sunderland.....42 10 10 22 39:62 40
StokeCity......42 3 8 31 24:91 17
Oxford, Birmingham og
Manchester City taka sæti Norw-
ich, Sunderland og Stoke í 1.
deild næsta vetur.
- VS
Föstudagur 31. maí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23