Þjóðviljinn - 31.05.1985, Qupperneq 24
Kísilmálmviðrœðurnar voru ekki taldar með ísvari Sverris
Hermannssonar. Samtals hefur Guðmundur G. fengið 636.400
krónurfyrir nefndastörfin 1984 eða 53 þúsund á mánuði!
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
UOÐVIUINN
Guðmundur G. Þórarinsson
jangur
Að viðbættum 115 þúsund
króna tckjum fyrir viðræður
um eignaraðild að Kísilmálm-
verksmiðjunni fyrirhuguðu á
Reyðarfirði hafði Guðmundur
G. Þórarinsson stóriðjunefndar-
maður samtals 636 þúsund krón-
ur fyrir nefndastarfið 1984. Það
jafngildir 53 þúsund krónum á
mánuði.
Það vakti athygli í svari iðnað-
arráðherra við fyrirspurn Geirs
Gunnarssonar á alþingi í vikunni
að hvergi var talinn kostnaður af
viðræðum vegna Kísilmálmverk-
smiðjunnar á Reyðarfirði, sem
þó er eitt af verkefnum stóriðju-
nefndar skv. ákvörðun ráðherra.
Heildarkostnaðurinn í fyrra nam
1767 þúsund krónum eins og
skýrt var frá í Þjóðviljanum í gær
og samkvæmt upplýsingum Geirs
A. Gunnlaugssonar, fram-
kvæmdastjóra félagsins skiptist
hann þannig:
Formaður nefndarinnar, Birg-
ir fsl. Gunnarsson fékk 60 þús-
und krónur fyrir nefndarfundi og
aðrir nefndarmenn 40 þúsund,
þeir Axel Gíslason, Geir H.
Haarde og Guðmundur G. Þór-
arinsson. Fyrir samninga- og við-
ræðufundi hefur einstaka nefnd-
armönnum verið greitt 60% af
taxta ráðgjafarverkfræðinga og
nam sú fjárhæð samtals 252.080
krónum í fyrra. Birgir fékk 101
þúsund, Guðmundur G. 75.400,
Axel Gíslason 59.500 og Geir
Haarde 18 þúsund tæpar.
Aðkeypt sérfræðiþjónusta var
172.627 þúsund krónur 1984.
Engir nefndarmanna fengu
greiðslur af þessum lið.
Þá er ótalinn ferðakostnaður
og annar kostnaður, samtals 1150
þúsund krónur og eru dagpening-
ar nefndarmanna innifaldir í
þeirri tölu.
-ÁI
Guðmundur G. sló elgið met í gær og fékk samtals 53 þúsund á mánuði fyrir nefndastörf í fyrra en ekki
fram kom í svari ráðherra í vikunni.
115 þúsund í viðbót
Skjalafalsið
Þriggja miljóna svindl
Falsararnir játuðu ígær. Höfðu selt bréffyrir 800þúsund.
Mestafalsmál lengi
Aðstandendur Brúðubílsins með afkvæmum í góða veðrinu í gær. Ljósm. Valdis.
Reykjavík
Brúðubíllinn ræstur
Mennirnir tveir sem í fyrradag
voru teknir fyrir mcint skjal-
afals játuðu í gær að hafa falsað
25 veðskuldabréf samtals uppá
þrjár milljónir króna. Þeim fé-
lögum hafði tekist að selja tíu bréf
uppá samtals 800 þúsund. Rann-
sóknin verður send saksóknara á
næstunni.
Rannsóknarlögreglan sat í
fyrradag fyrir einum viðskipta-
vina borgarfógeta eftir að starfs-
menn höfðu tilkynnt um tor-
tryggileg skuldabréf og gripu
hann þegar hann hugðist sækja
bréfin þinglýst og stimpluð. Sama
dag var svo náð í lögfræðing mál-
inu tengdan. Mönnunum var
sleppt eftir játningu síðdegis í
gær, enda kröfðust rannsóknar-
hagsmunir þess ekki, að krafist
yrði gæsluvarðhalds, að sögn
Erlu Jónsdóttur deildarstjóra hjá
Rannsóknarlögreglu. Erla sagði
að afbrot lík þessu kæmust upp af
og til, en hér væri þó um að ræða
mestu upphæð lengi.
Ranghermt var í frétt blaðsins í
gær að sá sem gripinn var hjá fóg-
eta væri löggiltur endurskoðandi.
-m
Skjalafalsið
Ekki
endurskoð-
andi
í frétt Þjóðviljans í gær um
skjalafalsið var ranghermt að
annar svikaranna væri löggiltur
endurskoðandi. Maðurinn er
ekki einu sinni endurskoðandi
hvað þá löggiltur. Starfsheitið
endurskoðandi er lögverndað og
getur enginn skreytt sig slíku heiti
nema hafa lokið tilskildum
prófum.
Brúðubfllinn er ferðbúinn ní-
unda sumarið í röð, fullur af
sprellfjörugum brúðum. Frum-
sýning verður á mánudag þriðja
júní.
Brúðubíllinn er rekin á vegum
Reykjavíkurborgar og orðinn ár-
viss viðburður og vinsæll meðal
Farið á alla gœsluvelli
yngstu borgaranna. Brúðubíllinn
heimsækir alla 28 gæsluvelli
Reykjavíkur og fer tvisvar á
hvern völl. Sýnd eru tvö atriði:
Feluleikur og Lilli gerist barn-
fóstra og tekur sýningin hálfa
klukkustund.
Handrit, brúðugerð og
leiktjöld eru eftir Helgu Steffen-
sen. Hún stjórnar brúðunum
ásamt Sigríði Hannesdóttur sem
og semur vísumar sem sungnar
eru.
Síðastliðin fimm sumur hefur
brúðubíllinn ferðast um lands-
byggðina en í sumar bregður bíll-
inn sér til Færeyja og sýnir í Nor-
ræna húsinu í Þórshöfn.
SVR
Kaupir Scania
Strœtó mun skrýðast
nýjum búningi
Stjórn Strætisvagna Reykja-
víkur hefur ákveðið að ganga að
lægsta tilboði sem barst í kaup á
20 nýjum strætisvögnum og
munu því næstu tveir tugir vagna
hjá SVR verða af gerðinni Scan-
ia, sem er sænsk bifreiðategund.
Guðrún Ágústsdóttir, sem sæti á í
SVR sagði í samtali við Þjóðvilj-
ann að stjórnin hefði verið sam-
mála um að kaupa Scania bflana.
Bflarnir tuttugu verða afhentir
á næstu misserum. Þeir koma
fullbúnir frá Svíþjóð en ekki var
unnt að taka tilboði frá Nýju bfl-
asmiðjunni í yfirbyggingar.
Vágnar þessir eru framleiddir
eftir sænskum staðli, þrennra
dyra og nýmæli er að þegar dyr
hafa verið opnaðar sígur vagninn
niður þannig að uppstig verður
minna en ella.
Jafnframt þessu var samþykkt
tillaga frá Guðrún Ágústsdóttur
um að breyta lit á vögnum SVR
og mun fyrsti vagninn af Scania
gerð verða í nýjum búningi. Lit-
urinn hefur ekki verið ákveðinn.
Síðan munu eldri vagnar
sprautaðir í hinum nýja lit eftir
því sem þörf verður á að mála þá.
-v.
Eyjamótið
Helgi vann
Tisdall
Fjórum skákum var lokið úr 2.
umferð alþjóðaskákmótsins í
Vestmannaeyjum þegar Þjóðvilj-
inn fór í prentun á miðnætti en þá
var verið að tefla þrjár biðskákir.
Úrslitin í gærkvöldi urðu þau
að Helgi vann Plaskett, Karl Þor-
steins vann Jóhann, Tisdall vann
Björn Karlsson og þeir Ingvar og
Guðmundur Sigurjónsson gerðu
jafntefli.
Staðan á mótinu er nokkuð
óljós vegna biðskákanna sem
ekki var lokið en þeir Helgi,
Guðmundur og Tisdall hafa
hlotið 1 Vz vinning hver og Lomb-
ardi, Lein, Jóhann og Jón L. eru
með 1 vinning og biðskák.