Þjóðviljinn - 02.06.1985, Blaðsíða 13
Sjðsókn
...og báturinn
hreinlega
spra kk
Sigurdór rœðir við Sigurð Kristjánsson
skipstjóra á Skarðsvíkinni __
Ef þú vilt tala við almennilegan
sjómann, talaðu þé við Sigga
Kristjáns á Skarðsvíkinni, sagði
við mig sjómaður vestur á Snæ-
fellsnesi, þegar ég hafði orð á því
að ég hefði áhuga á að ræða við
mann sem þekkti vel til sjó-
mennskunnar þarna fyrir vestan.
Og eftir smá krókaleiðum náði ég
fundi Sigurðar Kristjánssonar,
þess kunna skipstjóra á Skarðs-
vík SH. Sigurður var fyrst spurð-
ur að því hvort hann hefði verið
sjómaður alla sína tíð frá því
hann fór að vinna fyrir sér?
Hafnaði
skipstjórn
ó togara
Nei, ekki er það nú. Ég fæddist
og ólst upp í Fróðárhreppi á Ytri
Bug, en þegar ég var 16 ára fór ég
að heiman og fékk vinnu hjá
Karvel Ögmundssyni athafna-
manni í Njarðvík. Þetta var vet-
urinn 1947. Veturinn 1948/49 fór
ég svo á sjóinn, á togara með
þeim kunna skipstjóra Páli
Pálssyni á Júpiter. Ég var um það
bil eitt ár með Páli og líkaði vel.
Ég fór svo í skipstjórnarnám og
eftir það bauðst mér skipstjórar-
staða á togara hjá Tryggva Óf-
eigssyni, en ég sló ekki til. Þegar
þetta gerðist var ég á bát hér
heima á Snæfellsnesi og ég taldi
mig hafa það gott og vildi ekki
skipta.
Hvenær byrjarðu skipstjórn
fyrir vestan?
Það mun hafa verið 1958 sem
ég varð fyrst skipstjóri, þá bjó ég í
Olafsvík og réri þaðan. Ég var
með Orra SH, lítinn bát. Fyrsta
Skarðsvíkin kom til sögunnar um
1960, þær eru nú orðnar þrjár.
Þessi sem ég er með núna var
smíðuð 1975 og er 347 brúttólest-
ir.
Nú ertu á loðnu með Skarðs-
víkina, er hún ekki of lítil til þess?
O, nei, þetta er gott skip, ég
hef látið 650 lestir í hana og hún
bar það með sóma.
Þú varst fljótur með þorsk-
kvótann þinn í vetur?
Þetta var ekki neitt maður,
rúmar þrjú hundruð lestir. Ég er
auðvitað með skertan kvóta
vegna loðnuveiðanna. Og í svona
tíðarfari þegar ekki fellur dagur
úr og með Breiðafjörðinn fullan
af fiski er maður ekki lengi að ná
þessu upp. Við dunduðum okkur
við þetta.
Þú hafðir orð á því í vetur að þú
myndir ekki eftir jafn miklum
fiski í Breiðafirði?
Það er alveg rétt, ég man ekki
eftir öðru eins. Það hefur svo sem
fyrr komið loðna í fjörðinn og
fiskurinn á eftir, en þetta var
engu líkt. Annað sem var óvenju-
legt var að það var bókstaflega
sama hvar maður lagði, það var
allsstaðar fiskur. Venjulega held-
ur hann sig á ákveðnum svæðum,
en núna var þetta um allan sjó.
Gallinn var bara sá að fiskurinn
var í svo miklu æti að það
skemmdi hann. Fiskur sem er
fullur af loðnu geymist ekkert og
er því aldrei eins gott hráefni þeg-
ar í land er komið og sá ætislausi.
Þetta var góður fiskur svona 4-5
kg. uppistaðan í aflanum en svo
komu hlaup af rígaþorski.
Lótum illa
að stjórn
Þú hefur gagnrýnt kvótakerfið
sem stjórnun við fiskveiðar Sig-
urður. Nú er komin tveggja ver-
tíða reynsla á kvótakerfið, ertu
enn sama sinnis, að þetta sé ekki
gott stjórnunarkerfi?
Já, ég er það. Annars hygg ég
að það sé þannig með okkur fs-
lendinga að við látum illa að
stjórn. Hitt er svo annað að mér
þykir kvótakerfið koma mjög ó-
réttlátt niður, samanber það að
menn sem einhverra hluta höfðu
verið lágir í afla tvö árin áður en
kvótakerfið var sett á, geta aldrei
unnið sig upp aftur meðan kvót-
inn er við lýði. Ég þekki dæmi
þess að mjög duglegir sjómenn
eru fastir í þessu neti. Þetta nær
auðvitað engri átt. Það er sorg-
legt að sjá harðduglega sjómenn
fá kvóta sem þeir eru svo sem
einn mánuð að fiska uppí og eru
svo úr leik það sem eftir er ársins.
Annað er það, sem er nýtt í
fiskveiðum okkar íslendinga en
það er að menn henda veiddum
fiski aftur í sjóinn. Mér er alveg
sama hvað hver segir, ég veit að
þetta er rétt. Kerfið hreinlega
býður uppá þetta. Það gefur
augaleið að bátur sem fær kvóta
sem hann getur veitt upp á einum
til tveimur mánuðum hlýtur að
sjálfsögðu að ieggja alla áherslu á
að koma með að landi besta hrá-
efnið, það sem hann fær mest
fyrir. Dettur einhverjum í hug að
slíkur bátur komi með 3ja nátta
dauðblóðgaðan fisk, fullan af æti,
að landi?
Ertu sammála því að ekki megi
veiða meira en leyft er?
Um það vil ég ekki dæma. Ég
geri mér aftur á móti ljóst að
stjórnun verður að vera á veiðun-
um. Afkastageta íslenska fiski-
skipaflotans er slík orðin, að ef
flotanum væri hleypt í þetta
óheft, þá væri það meira en ís-
landsmið þola að mínum dómi.
Hvernig myndir þú stjórna
veiðunum ef þú réðir?
Ég myndi fyrst af öllu banna
allar fiskveiðar frá 15. júlí til 15.
ágúst ár hvert. Það er sá tími sem
fólk vill taka sumarleyfi sitt og þá
er verið að notast við óvana ung-
linga í fiskvinnslunni og útkoman
verður sú að ekki hefst undan að
vinna aflann sem kemur að landi,
með alkunna vondum afleiðing-
um. Eins myndi ég banna veiðar
frá 15. desember til 15. janúar.
Þá er kostnaður við veiðarnar
mestur og inní kemur svo jóla-
helgin og áramótin. Þá myndi ég
einnig láta stoppa 10-14 daga um
páska. Ég vildi einnig afnema
helgarfrí á netabátum, meðan
ekki er hægt að selja skreið. Sá
afli sem komið er með úr netun-
um eftir helgar er vont hráefni. í
stað þess að taka helgarfrí, myndi
ég leggja til að menn fengju í
staðinn 4ra daga frí í mánuði,
skipstjóri réði því hvenær þessir
frídagar væru teknir og hann þá
skyldaður til að taka öll net úr
sjó. Mig skortir þekkingu á toga-
rafískiríð til að dæma þar um.
Margir halda því fram að stytta
ætti úthaldatúra togaranna, og ég
er ekki frá því. Mér segir svo hug-
ur líka, varðandi togarana að það
sé ekki burðugt hráefni sem kem-
ur úr þessum stóru hölum og ekki
hefst undan að slægja um borð.
Styttri togtími kæmi því til
greina.
6 tommu
möskvann
a að banna
Ég held að með þessum
aðgerðum væru allar línur
hreinni varðandi fiskveiðistjórn-
unina og þetta kæmi réttlátar nið-
ur en kvótakerfið.
12 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Sunnudagur 2. júní 1985
Sigurður Kristjánsson og Skarðsvíkin hans.
Mér heyrist það á mörgum sjó-
mönnum á Snæfellsnesi að það sé
fásinna að leyfa 6 tommu möskva
á netum, hvert er þitt álit?
Ég er alveg sama sinnis. Við
sjómenn fyrir vestan teljum að
það eigi alls ekki að leyfa 6
tommu möskvann í Breiðafirðin-
um. Net með 6 tommu möskva
hreinlega sigtar úr smáfiskinn en
stóri fiskurinn sleppur, hann fest-
ist ekki í svo litlum möskva. Ég
get nefnt þér sem dæmi að í vor
gerðum við tilraun með þetta.
Við notuðum net með sjö og
kvart tommu möskva og meðan
100 fískar fengust í eitt slíkt net
fengust allt uppí 300 fiskar í 6
tommu netið og þessir 100 fiskar
vigtuðu álíka mikið og hinir 300.
Þetta segir ekki svo lítið. Enda
var það svo að heimabátarnir á
Snæfellsnesinu tóku helst ekki 6
tommu möskva netin. Við verð-
um að gæta að því að inná Breiða-
fírði er mikið af smáfiski, þar eru
uppeldisstöðvar hans og það er
hreinlega hægt að hreinsa þessi
kóð með 6 tommunni.
Loðnukvótinn
réttlötur
Talandi um kvótakerfi. Þið
hafíð búið við kvótakerfi í mörg
ár á loðnuveiðunum og menn
virðast ánægðir með það kerfí,
hver er munurinn á því og kvóta-
kerfí þorskveiðanna?
Kvótakerfið á loðnunni er
miklu réttlátara kerfí. Þar er bát-
unum úthlutað kvóta eftir stærð
þeirra. Og því sitja allir við sama
borð. Við á minni bátunum
eigum aldrei möguleika að veiða
jafn mikið af loðnu og þeir
stærstu, svo sem Sigurður og Júp-
iter, svo dæmi séu nefnd. Þar
ræður burðargeta skipanna öllu.
Ég teldi það sanngjarnt að þorsk-
kvótanum væri úthlutað eftir
sömu reglum. Jafn stórir bátar fái
jafn mikinn kvóta. Ég á hér við
þá báta sem eingöngu veiða
þorsk. Hinir sem fara á sfld eða
loðnu, það er sjálfsagt að skerða
kvóta þeirra.
Veiðimanns-
eðlið er sterkt
Ykkur sjómönnum og þá ef til
vill fyrst og fremst skipstjórum er
kennt um það að hugsa meira um
magn en gæði aflans, er þetta
rétt?
Já, ég er viss um að þetta er
rétt. Menn hugsa meira um magn
en gæði, það er þetta sterka
veiðimannaeðli sem þar ræður
ferðinni. En þegar við minnumst
á hráefnisgæði í fiski, þá er hægt
að gera margt til að breyta þessu.
Ég er undrandi á því og hef undr-
ast það lengi að ekki skuli fyrir
löngu vera búið að lögleiða það
hér að ísa allan físk um borð í
bátum, alveg sama hvort um er
að ræða lengri túra eða land-
róðra. Á stærri bátunum er hægt
að ísa fisk í kassa sem er það
besta, en hjá stórum hluta flotans
er það mjög erfitt, nánast ófram-
kvæmanlegt. En bara það að ísa
fiskinn um borð er ekkert mál og
myndi stórbæta hráefnisgæðin.
Menn mega ekki gleyma því að
fiskurinn er aldeilis ekki kominn í
neytendapakkningar þótt hann
sé kominn á land úr bátnum.
Blundar aflakóngs draumur í
öllum skipstjórum?
Já, svo sannarlega. Hver ein-
asti fiskiskipastjóri á sér þann
draum að verða aflakóngur á
vertíð, hvort sem um þorsk-
veiðar, loðnuveiðar eða sfld-
veiðar er að ræða, hvort það nú
er. Heldurðu að það setji ekki
metnað í menn að heyra sífellt í
fréttum að þessi eða hinn bátur-
inn er með mesta aflaverðmætið,
og veistu það að aflakóngarnir
eru sjaldnast með mesta afla-
verðmætið. Ég er alveg sann-
færður um að ef í fréttum væri
ekki tekið fram hver hefði komið
með flest tonnin að landi, heldur
hver væri með mesta aflaverð-
mætið þá myndi þetta breytast og
menn leggja aukna áherslu á gæði
í stað magns. Ég veit að afla-
kóngsdraumurinn kemur til af
eðlilegu keppnisskapi hvers
manns, en það er hægt að leiða
keppnisskap manna í þá braut
sem ég nefndi áðan - hver er með
mesta atlaverðmætið.
Nótaveiðin
iang-
skemmtilegust
Þú hefur prófað allar tegundir
fískveiða Sigurður, hvaða veiðar
eru skemmtilegastar?
Nótaveiðin maður, hún er lang
skemmtilegust, hún er svo spenn-
andi. Það ríkir alltaf þessi logandi
spenna á nótaveiðum, bæði fyrir
skipstjóra og skipshöfn og talandi
um nótaveiðar er sfldin í al-
gjörum sérflokki. Þótt útsjóna-
semi þurfi við allar veiðar, þá
þarf lang mesta útsjónasemi við
nótaveiðarnar. Það er svo ótal-
margt sem taka þarf með í
reikninginn við nótaveiðarnar.
Það eru straumar, ganga fisksins
og fleira og fleira.
Nú eru menn komnir með þessi
fullkomnu tæki við fiskveiðar, er
málum svo komið að menn þurfí
fyrst og fremst að kunna á þessi
tæki til að vera góðir fiskimenn í
stað mannlega þáttarins sem áður
var?
Nei, það eitt að kunna vel á
tækin dugar skammt. Ef við
tölum aftur um nótaveiðarnar, þá
held ég að enginn veiðiskapur út-
heimti jafn mikla reynslu og
þekkingu og hann ef árangur á að
nást. Auðvitað verða menn að
kunna á þau tæki sem þeir eru
með og margt annað þarf að vera
með ef vel á að fara. Það er með
nótaveiðar eins og allt annað,
reynslan er númer eitt.
Skipið sprakk
Reyndir þú sfldveiðar án þess
að hafa þessi nýtísku tæki?
Ég get-varla sagt það, jú, eitt
sumar á fyrstu Skarðsvíkinni, en
hún fór nú niður eftir fyrsta árið.
Hvað gerðist?
Hún bara sprakk, sprakk í
sundur. Við vorum búnir að róa á
bátnum í rúmt ár, þegar togarinn
Elliði fórst út af Breiðafirðinum.
Við vorum í hópi skipa sem voru
að leita. Við vorum búnir að vera
að leita í rúman sólarhring og það
var andskoti mikill sjór. Við á
Skarðsvík fundum mennina sem
var verið að leita að, þeir voru í
gúmbjörgunarbát, en því miður
voru þeir látnir. Skömmu eftir að
varðskip var búið að taka líkin og
bátinn um borð, tókum við að
lóna í land. Þá allt í einu komu
þessir einkennilegu hnútar sem
enginn skilur hvernig myndast
eða afhverju koma og einn lenti á
Skarðsvíkinni og það hreinlega
snérist uppá bátinn í orðsins
fyllstu merkingu, og hann
sprakk. Þetta var tréskip, en mér
er alveg sama ég hef aldrei séð
neitt þessu líkt. Báturinn var að
sjálfsögðu galopinn um leið og
sökk á örskömmum tíma. Mér
tókst samt að kalla á hjálp og við
komust allir í gúmbát. Nú það var
fullt af skipum þarna nærri, skip
sem höfðu verið í leitinni eins og
við og okkur var bjargað eftir
skamma stund. Síðan hef ég átt
tvær Skarðsvíkur, báðar úr stáli.
Er þetta versti hnútur sem þitt
skip hefur fengið á sig?
Það er nú kannski ekki víst, því
að þessi stóru skip þola svo miidu
meira. Ég man eftir því einu
sinni, þá kom hnútur, örmjór
strókur sem lenti á kýrauganu hjá
mér. Glerið í rúðunni er óbrjót-
anlegt en hnúturinn var svo sterk-
ur að hann reif lausar festingar
gluggans sem eru koparhlunkar
og klefann fyllti af sjó. Heldur að
það sé afl maður sem rífur upp
þessar sterku festingar.
Maður er farinn
að lýjast
Margur skipstjórinn hefur ver-
ið spurður þeirrar spurningar,
hvers vegna einn maður er meiri
veiðimaður en annar þegar báðir
hafa jafna möguleika, allt hafíð,
góð skip og fullkomin tæki?
Ég held að það sé eins og allt
annað, það eru engir tveir menn
eins, einn hleypur hraðar en hin-
ir, annar er sterkari en aðrir
menn, ég held að þetta sé af sama
toga.
Dreymir þig fyrir veiði og ferðu
eftir draumum?
Ég er stein hættur því núna, en
hér áður fyrr dreymdi manni fyrir
afla. Og eina reglu hef ég alltaf
haldið, ég fer alltaf á þann stað til
að leggja, hvort heldur erlínaeða
net, sem mér dettur fyrst í hug að
fara á, alltaf. Maður má aldrei
hætta við að fara á þann stað sem
manni dettur fyrst í hug eða lang-
ar til að fara á. Alveg sama þótt
aðrir hafi farið á staðinn á undan
honum og ekkert fengið. Svo
skiptir geysilega miklu máli fyrir
skipstjóra að hafa góða áhöfn,
það er lykil atriði. Hafi maður
ekki valinn mann í hverju rúmi,
þá kemur vinnan svo ójafnt niður
á mannskapinn. Vinnan lendir þá
á þeim duglegu en drullusokk-
arnir sleppa og það gengur aldrei
til lengdar.
Er eitihvað um það að ungir
skipstjórar, sem eru að byrja elti
þessa eldri karla eins og þig um
.miðin?
Nei, það held ég ekki. Sá sem
er orðinn skipstjóri, hann er það
reyndur að hann veit að það
veiðir enginn annars fisk úr sjó.
Menn verða að vera sjálfstæðir í
þessu, öðru vísi gengur það
aldrei.
Er það lýjandi starf að vera
skipstjóri?
Mjög svo og ég finn að ég er
farinn að gefa eftir. Það þarf hel-
vítis hörku til að mynda á loðnu-
veiðunum, maður þarf stundum
að standa í sólarhring eða meira
og þetta er ekki fyrir nema unga
og hrausta menn fulla af metnaði
og keppnishörku. Ég finn að ég
er farinn að lýjast.
Ertu kannski farinn að hugsa
til þess að fara í land?
Það er aldrei að vita, svo ég tali
nú ekki um ef þorskveiðarnar
verða teknar af manni. Ég bara
þoli það ekki að sjá bátinn minn
bundinn við bryggju hálft árið,
eins og verður ef maður fær bara
loðnuveiðar og sfldveiðar. Nú
verður Skarðsvíkin bundin í allt
sumar.
Og hvað gerirðu þá?
Við förum á trillu, ég og sonur
minn. Ég verð að hafa eitthvað
að gera, um leið og maður getur
ekki eða fær ekki að vinna þá er
lífið búið. Ég gæti aldrei hugsað
mér að fara í land og setjast í
helgan stein. Það kæmi aldrei til
greina. Ég fer ekki í land nema
hafa loforð um að einhver vilji
taka mig í vinnu.
-S. dór.
Sunnudagur 2. júnf 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
Viðtalið við Sigurð
á Skarðsvíkinni var tekið
fyrir Vesturlandsblaðið
sem Alþýðubandalagið gefur
út í fjórðungnum og dreift
er á hvert heimili vestra.
Vesturlandsblaðið kom út
nú um helgina
fjölbreytt að efni
undir traustri ritstjórn
þeirra Sigurdórs og Skúla.
\