Þjóðviljinn - 02.06.1985, Blaðsíða 21
LEIÐARAOPNA
Starfsaldurshækkanir mikilvægastar
Valdís Kristinsdóttir
Stöðvarfirði
- Eins og ástandiö er hér í
dag þá er það alls ekki nógu
gott. Annar togarinn. Krossa-
nesið, hefur verið vélarvana
um nokkurt skeið og sér ekki
fyrir endann á þvi. Þá hafa afla-
brögðin á hinum togaranum
sem gerður er út héðan verið
hálfléleg og sama má segja um
trillurnar. Það hefur verið nóg
vinna en alls ekki meira en
það, segir Valdís Kristinsdótt-
Ir, formaður verkalýðs- og
sjómannafélagsins á Stöðvar-
firði.
Nú sömduð þið sér heima í hér-
aði eftir stóru samningana. Hafa
heimasamningar gefið góða raun
hjá ykkur?
- Já þeir hafa gert það. Við
höfum náð fram ýmsum atriðum
og menn hafa fetað í kjölfarið
hver hjá öðrum hér á svæðinu
varðandi sérkjör. Við náðum
fram lengingu á uppsagnarfresti í
hálfan mánuð en það sem nú
skiptir mestu að mínu mati er að
ná fram starfsaldurshækkunum.
Það er undarlegt að menn geta
alls staðar unnið sig upp í launum
eftir starfsaldri nema á sjó. Þessu
verður að breyta.
Hvernig er annars hljóðið í sjó-
mönnum?
- Það er ekkert ánægjuhljóð í
sjómönnum. Þetta er stétt sem
menn eru að flýja úr. Hvað á ann-
að að vera þegar menn geta feng-
ið betri laun fyrir vinnu í landi
fyrir utan að geta verið miklu
meira með sínum fjölskyldum?
Það er mikil trilluútgerð frá
Stöðvarfirði, hvernig líst
mönnum á helgarstoppin og
kvótamálin?
- Ég held að trillumenn séu
ekki svo óhressir með helgar-
stoppin sem slík en þeir eru ósátt-
ir með sameiginlega kvótann og
að hann skuli vera markaður á
trillur allt uppí 10 tonn. Stærri
trillurnar eiga enga samleið með
þeim minni enda mikið meira sótt
á þær. Mönnum finnst ekki vera
neitt réttlæti í því að skella þessu
öllu saman, sagði Valdís Kristins-
dóttir.
-•g-
Sigurjón Hjelm.
Gekk vel
í vetur
- Þaðgekkmjögvelhjáokkur
á vertíðinni í vetur í Ólafsvík,
segir Sigurjón Hjelm sjómaður
frá Ólafsvík.
- Að sjálfsögðu eru menn
aldrei sáttir við kjörin. Við þurf-
um að ná inn starfsaldurshækk-
unum fyrir alla og einnig að
lengja uppsagnarfrestinn. Það er
líka óánægja með kvótaskipting-
una. Við urðum t.d. að hætta til-
tölulega snemma vegna þess hve
okkur gekk vel. Þetta verða því
ekki nema 2-3 mánuðir sem
eitthvað er að hafa, sagði Sigur-
jón. -ig.
Mælirinn orðinn fullur
Guðmundur Hallvarðsson
Reykjavík
- Jú vissulega má segja að
þetta sé orðin nokkuð óvenju-
leg staða hjá sjómönnum í
Reykjavík að vera komnir aftur
í verkfail eftir að hafa tvífellt
gerða samninga. Við erum að
slást fyrir starfsaldurshækk-
unum og lengri uppsagnar-
fresti, segir Guðmundur Hall-
varðsson formaður Sjó-
mannafélags Reykjavíkur.
- í kröfum okkar er tekið mið
að því sem samið var um á Vest-
fjörðum og á Seyðisfirði og
Stöðvarfirði þar sem náðist fram
3ja mánaða uppsagnarfrestur eða
það sama og gildir fyrir landfólk.
Annars staðar á Austfjörðum og
á Akranesi var samið um hálfs-
mánaðar uppsagnarfrest en hér í
Reykjavík búum við aðeins við
vikufrest. Þar á ofan hafa útgerð-
armenn oft notað þennan frest
þannig að segja mönnum upp úti
á sjó þannig að þeir eru orðnir
atvinnulausir er í land kemur.
Það er algerlega óviðunandi.
Hvernig stendur á þessari
hörku og miklu baráttu hjá sjó-
mönnum í Reykjavík?
- Menn verða að athuga það að
á meðan atkvæðagreiðslan fór
fram hér þá var verið að semja
um alls kyns viðbætur við ný-
gerða samninga bæði vestur og
austur á fjörðum. Þetta var
auðvitað í myndinni hjá mönnum
þegar þeir greiddu atkvæði. Þeir
vissu þá þegar um betri samninga
annars staðar.
Er þá erfiðara að semja við út-
gerðarmenn í Reykjavík fyrst
betri samningar gilda víða úti á
landi?
- Það er auðvitað óþolandi að
þannig sé frá málum gengið að
loka á alla samninga hér fyrir
sunnan á sama tíma og opnað er
fyrir möguleika á frekari samn-
ingum annars staðar. Þetta eru
allt menn sem sækja sömu mið og
búa við sömu starfsskilyrði og
eiga því auðvitað að búa við sömu
samninga. Nú er hins vegar mæl-
irinn orðinn fullur og við krefj-
umst þess að fá það sama og aðr-
ir. Sjómenn hér syðra eru ekkert
annars flokks vinnuafl.
Hvernig er samstaðan?
- Hún er mjög góð.
Nú stefnir í að allur flotinn
verði bundinn við bryggju í
Reykjavík strax að loknum sjó-
mannadegi. Er það ekki eins-
dœmi?
- Já það má reikna með því
gerist ekkert óvænt, að flotinn
verði allur bundinn við bryggju
fljótlega í næstu viku. Ég man
ekki eftir því að slíkt hafi gerst
áður á þessum árstíma, ekki að
bæði báta- og togaraflotinn væri á
sama tíma bundinn við bryggju,
sagði Guðmundur Hallvarðsson.
-»g-
Jón Einarsson.
Misjafnt hljóð
í mönnum
- Ég var á Skarðsvíkinni á
loðnu í vetur en síðan einn mán-
uð á vertíð eftir að loðnuveiðum
lauk. Þetta gekk vel hjá okkur í
haust en hálfgerður reitingur eftir
áramótin, sagði Jón Einarsson
frá Ólafsvík.
- Það er mjög misjafnt hljóð í
mönnum eftir samningana en það
voru margir einkum á litlu bátun-
um sem voru ólmir að komast á
sjó enda mikil fiskgengd.
- í sumar ætla ég að vera á
skaki en síðan tekur Sjómanna-
skólinn við í haust. Maður verður
að ná sér í réttindi, það dugir ekki
annað, sagði Jón Éinarsson.
lg-
Lifibrauð fyrir neyðarbrauð
Elías Björnsson Vestmannaeyjum
Tíminn á eftir að leiða í Ijós
hvað samningarnir í vetur
koma til með að skilja eftir, því
okkar barátta snerist mest um
að tryggja hag sjómanna og þá
á ég við lífeyrismálin sem eru
loksins komin í höfn og
örorku- og slysatryggingar
sem ekki sér fyrir endann á
ennþá.
Þá má ekki gleyma hærri fæðis-
greiðslum og kauptryggingu sem
nú fyrst hækkar í mjög langan
tíma. Hún hækkar í það að verða
lifibrauð úr því að vera neyðar-
brauð. Fram til þessa hefur í raun
aldrei verið ætlast til þess að
menn lifðu af kauptryggingunni
einni saman. Þetta er því áfangi
sem menn ættu ekki að gera lítið
úr, sagði Elías Björnsson for-
maður Sjómannafélagsins Jötuns
í Vestmannaeyjum.
Það er stuttsíðan þið skrifuðuð
undir samninga, hvernig erhljóð-
ið í mönnum í dag?
- Það er að sjálfsögðu alltaf
jafnljótt hljóðið í okkur á meðan
stjórnvöld ræna framhjá
skiptum. Menn eru mjög harð-
vítugir útí sparnaðarhlutdeildina
og það hlýtur að vera okkar
markmið að stíga það skref til
fullnustu að stöðva þessa vitleysu
að stjórnvöld geti sífellt gengið á
hlut sjómanna til að rétta við hag
útgerðar.
Hafa kannski sœmileg afla-
brögð í vetur bjargað miklu um
kjörin og skapað meiri bjartsýni
en áður?
- Aflabrögðin hafa verið
þokkaleg en alls ekki góð hjá
flestöllum. Þá hefur skipt miklu
máli að loðnan er komin aftur og
þokkaleg vertíð.
Þið fóruð í verkfall með yfir-
mönnum í vetur en síðan slitnaði
uppúr þeirrri samstöðu. Hvaða
lœrdóma getið þið dregið af því?
- Lærdómurinn er sá, að það er
mjög hæpið fyrir undirmenn að
fara í kjarabaráttu í samfloti við
yfirmenn. Það er einfalt og við
verðum að sætta okkur við þá
staðreynd að við erum á lægra
kaupi og þar af leiðandi þurfum
við meira að sækja til að geta lifað
af. Ég vil segja það að það er
mjög illa farið ef það er orðin
stéttaskipting á fiskiskipunum og
menn geta ekki staðið saman sem
ein heild. Það er líka rétt að það
komi fram að yfirmenn almennt
voru alls ekki ánægðir með vinn-
ubrögð forystunnar í þessu máli,
þeir vita hver styrkur samstöðu-
nnar er þegar á reynir.
Þið eruð með bundna samn-
inga til loka nœsta árs. Hvaða
möguleika hafið þið til að bœta
ykkar kjör á nœstu mánuðum?
- Ég get ekki séð að við höfum
möguleika á að segja okkar
samningum upp á næstunni nema
eitthvað mikið gangi á. Við
lögðum töluvert í sölurnar við
undirritun samninga til að ná inn
margra áratuga baráttumálum.
En það er alltaf einn hlutur sem
er laus hjá okkur og það er fisk-
verðið og það er ekki minnsti
þátturinn í okkar kjörum. Þar
hafa menn möguleika til að slást,
sagði Elías Björnsson.
-Ig-
Ingi Ágústsson. Myndir E.ÓI.
Allt of lógt
fiskverð
- Það hefur verið reitingur en
alls ekki meira en það. Ég veit
ekki hvernig þetta verður í sumar
á þessum minni bátum þegar við
þurfum að taka allt upp á föstu-
dögum og hvfla yfir helgamar. Ég
held þetta verði óttalegt vesen,
sagði Ingi Ágústsson sem rær á
trillunni Sigrúnu frá Reykjavík.
- Ég held að maður hafi alls
ekki meira út úr þessu puði held-
ur en að vera í hlut á sæmilegum
báti. Það er ekki mikill munur
þar á. Kjörin segirðu. Það er al-
veg klárt að fiskverðið er allt of
lágt miðað við allan kostnað. Það
er akkúrat ekkert vit í þessu fisk-
verði, sagði Ingi Ágústsson. -lg.
Sunnudagur 2. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21