Þjóðviljinn - 04.08.1985, Síða 3
Sighvatur
í Reykjavík
Upp er komin hreyfing meðal
krata í Alþýðuflokknum að fá
Sighvat Björgvinsson til að
hætta við framboð á Vest-
fjörðum en fara þess í stað í
slag við Jón Baldvin í
Reykjavík. Það yrði fyrsta
lotan í einvígi þeirra kumpána
um leiðtogahlutverkið í Al-
þýðuflokki framtíðarinnar. Á
hinn bóginn telja nokkrir krat-
ar í Reykjavík, að þarsem Sig-
hvatur hafi skrifað greinar í
Þjóðviljann muni hann hyggja
á pólitiskt samstarf við krata
af ýmsum toga þar á bæ...B
Logabjört
sverð
„Það er svo margt sem sam-
einar okkur íslendinga og
þegar fallið er í faðm hinnar
björtu heiðu júlínætur með
angan fósturjarðarinnar fyrir
vitum og logabjört sverð
heiðríkjunnar að höfði þá
bærist aöeins ein tilfinning í
brjóstinu: Þakklæti fyrir að
vera kominn af íslenskri þjóð
og fá að njóta þessa undur-
samlega lands."
Þessi Ijóðræna setning er
tekin úr forsíðuleiðara Dag-
skrárinnar á Selfossi sem ber
yfirskriftina „ísland, vort
land.“ Höfundur er Guð-
laugur Tryggvi Karlsson
hagfræðingur og
skemmtanastjóri en hann
mun vera einn af kandidötum
Jóns Baldvins í efsta sætið
hjá krötum á Suðurlandi í
næstu þingkosningum.
Vonandi slasar enginn af
krötunum sig á logabjarta
sverðinu á SelfossL.B
Laxabaksundið
Ritstjórinn okkar fiskeldis-
doktorinn upplýsti þjóðina í
sjónvarpi á dögunum um að
laxar syntu ekki á bakinu.
Áhugasömum laxveiðimanni
varð þá að orði:
Ungir nema allra best
því ætti að kenna klakinu,
að forðast alla fiskapest
og fara að synda á bakinu.
eða
þannig..
Sjö ungir Bretar sem voru í
utanríkisþjónustunni á Kýpur
voru nýlega handteknir fyrir að
hafa látið erlendum sendi-
mönnum í té hernaðarleyndar-
mál fyrir fé, fíkniefni og
kynferðislegt samneyti. Mál
þetta hefur vakið mikla athygli í
Bretlandi, en það kom fyrir rétt í
Old Bailey í síðustu viku. Bret-
arnir, sem flestir eru aðeins rúm-
lega tvítugir eru ásakaðir um að
hafa látið neyða sig til að skýra
frá og láta af hendi mikilvæg
hernaðarskjöl m.a. eftir sam-
kvæmi með nokkrum aröbum,
þar sem fíkniefna var neytt og
mennirnir höfðu kynferðismök.
Þá mun amk. einn þeirra hafa
hótað að gefa upp nöfn þeirra
sem höfðu átt hómósexual kyn-
mök við hann og þannig þvingað
fé og annað út úr mönnum. Auk
arabanna er rússneskur KGB of-
ursti blandaður inn í málið og
leikhúsmaður nokkur frá Kýpur
að nafni Papa Artine. Grunur
leikur á að upplýsingarnar sem
ungu mennirnir létu af höndum
hafi farið til Sovétríkjanna.
--------------HREVF/LL------------------
Lang stærsta bílastöðin í borginni
Vegna mikillar eftirspurnar fjölgum við enn
þessum vinsælu CITROEN CX25D7 farþega
bílum. Höfum nú langflesta 7 farþega bílana og
að sjálfsögðu 4ra farþega líka.
Mesti möguleikinn til að fá bíl á öllum tímum
sólarhringsins er hjá okkur.
Fljót og góð afgreiðsla. - Stæði um allan bæ.
Dæmi um verð með dagvinnutaxta 5-7 manns í bíl:
Keflavíkurflugvöllur (Skotferð) ............................. kr. 269.- pr. mann.
Húsafell (Skotferð) ......................................... kr. 642.- pr. mann.
Laugarvatn (Skotferð) ....................................... kr. 434.- pr. mann.
Þjórsárdalur (Skotferð)...................................... kr. 640.- pr. mann.
Þingvöll, Gullfoss, Geysir, ca. 280 km. hringur, um 7 tíma ferð . kr. 995.- pr. mann.
----- VISSIR ÞÚ—
að leigubíll (4 farþegar) kostar aðeins 13 kr. á ekinn km. Ef þú færir
í ferð sem tæki fleiri en 1 dag, kostar bíllinn aðeins kr. 4.178.-
innifalið 200 km akstur á dag. 7 farþega bíll er aðeins 20% dýrari, ef
farþegar eru 5 eða fleiri.
Gerðu nú samanburð á okkar verði, bílaleigu-
bíla, og áætlanabíla ogpantaðu svo. Farangur
er ekkert vandamál. Höfum toppgrindur og
kerrur. Hringferðir eða skotferðir. -Allt eftir
þínum óskum.
Hringdu bara á stöðina.
Pantaðu tímanlega í lengri ferðir.
HREYFÍLL
\ 68-55-22,
ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 3