Þjóðviljinn - 02.02.1986, Síða 5

Þjóðviljinn - 02.02.1986, Síða 5
Haga mér eins og bóndi við heyskap - segir Kristín Þorkelsdóttir sem ferð- aðist s.l. sumar um landið í „kaffi- og vatnslitabílnum DÚA“ og sýnir afraksturinn nú í Gallerí Borg „Mór finnst ég stödd inni í stóru myndverki, þegar ég ferðast um landið". Kristin hengir upp eina af vatnsiitamyndunum. „Undanfarin 12 sumur hef ég tekið í liti á feröalögum en það má segja að ég hafi orðið „alelda" sumarið 1984. Afraksturinn sýndi ég með „STILLUM", smámyndum í Gallerí Langbrók í fyrravor. Ég hef ákaflegagaman af að ferðast um landið, hreyfast til ílandslaginu, mérfinnst ég stödd inni í stóru myndverki sem Ijósið er sífellt að breyta, “ sagði Kristín Þorkelsdóttir, sem nú sýnir nær 40 vatnslitamyndir f rá síðastliðnu sumri í Gallerí Borg. Kristín er menntuð í MHÍ, hefur starfað við auglýsingagerð frá 1960 og rekur eigin stof u, AUK hf. Við spurðum hana hvernig þettafæri saman, rekstur auglýsingastofu og málaralist úti ínáttúrunni: „Það gengur með góðum sam- starfsmönnum. Það er alltaf endurnærandi að skipta um við- fangsefni. Ég hef látið eftir mér undanfarin 2 ár, af eintómri sjálfselsku, að eyða lunganum úr sumrinu í að mála. Langt fram í nóvember á ég dálítið bágt með að halda mig frá vatnslitunum og um leið og fer að vora er ég komin á stjá. Síðastliðið sumar var ein- EBE vill samrœma hámarks- hraða bíla Framkvæmdanefnd Efnahags- bandalagsins hefur um langt skeið glímt við það að samræma hámarkshraða á hraðbrautum bandalagsríkja en gengið verkið afar stirðlega. Það eru cinkum vesturþjóðverjar sem standa gegn slíkri samræmingu. Þar í landi gildir nefnilega enginn hám- arkshraði á hraðbrautum. Hugmyndin hefur verið sú að takmarka hraða ökutækja á hraðbrautum við 120 km á klukkustund. Nú er hámarks- hraðinn 100 k m í Danmörku og Hollandi, 112 km í Bretlandi, 120 km í Lúxemborg og á Spáni, 130 km í Frakklandi og Belgíu en á Ítalíu er hámarkshraðinn breyti- legur eftir stærð bíla. Viðleitni EBE helgast bæði af öryggissjónarmiðum og einnig af áhyggjum af eyðingu skóga sem er mikið vandamál, ekki síst í Vestur-Þýskalandi. Talið er að á hverju ári slasist 1,5 miljónir manna og 50.000 látist í umferð- arslysum í bandalagsríkjunum. Vesturþýskur almenningur er klofinn í tvo ámóta stóra hópa í afstöðu sinni til hámarkshraðans. Eigendur góðra bíla, dyggilega studdir af bflafabrikkum, eru andvígir honum en umhverfis- verndarmenn hlynntir því. - ÞH/reuter stakt. Við hjónin ferðuðumst um landið, í „kaffi- og vatnslitabfln- um DUA“, hlustuðum á veður- fregnir og fluttum okkur svo til eftir spánni; Hörður með mynd- avélina og ég með vatnslitina. Ferðin var sannkölluð „mynda- orgía“. Myndirnar á sýningunni eru frá þessum ferðum.“ „Og þú málar allt á staðnum?" „Já, ég snerti ekki á myndun- um eftir að heim er komið. En ég er mjög háð veðrinu, þarf að haga mér eins og bóndi við hey- skap, því að vatnslitirnar krefjast ákveðinna veðurskilyrða eða sér- stakrar tilbúinnar aðhlynningar." „Áttu nokkurn uppáhaldsstað, sem þér þykir skemmtilegra að mála en aðra?“ „Nei, eiginlega ekki. Mikið af myndunum hér er frá svæði sem afmarkast af Borgarfirði að vest- an og Klaustri að austan, þar eyddum við stórum hluta af sumrinu.“ Og þar með var Kristín farin að hengja upp gullfallega vatnslita- mynd úr Flvalfirði. Sýning henn- ar er opin til 12. febrúar frá 10-18 daglega og 14-18 um helgar. þs „Sérfræðingar“ án sérþekkingar „Fagmenn“ án fagmenntunar „Kennarar“ án kennsluréttinda Erþetta það sem koma skal? Á íslandi er það látið viðgangast að í grunnskólum landsins starfi réttindalaust fólk við kennslu. Þeim fer fjölgandi ár frá ári og eru nú yfir sjö hundruð talsins er ekki hafa þá sérmenntun sem krafist er samkvæmt lögum. Þetta er ófremdarástand sem þarf að breytast. Hvers eiga nemendur að gjalda?

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.