Þjóðviljinn - 02.02.1986, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 02.02.1986, Blaðsíða 15
ALÞYÐUBANDAIAGIÐ Steingrímur. AB Selfossi og nágrenni Almennur félagsfundur veröur haldinn sunnudaginn 2. febrúar kl. 14 aö Kirkjuvegi 7. Dagskrá: 1) Inntaka nýrra félaga, 2) Umræöur um bæjarmál. Framsögu hafa bæjarfull- trúar Alþýöubandalagsins á Selfossi, 3) Almenn þjóðmálaumræða. Gestur fundarins verður Steingrímur J. Sigfússon alþingismaöur. Nýir félagar sérstaklega boönir velkomnir. Kaffi á könnunni. - Uppstillinganefnd. AB Mosfellssveit Hreppsmálaráð heldur opinn fund í Hlégarði (fundarherbergi) mánudaginn 3. febrúar kl. 20.30. A dagskrá verða atvinnumál. Sérstakir gestir fundarins verða þeir Guömundur Þ. Jónsson formaður Landssambands iönverkafólks, borgar- fulltrúi og atvinnumálanefndarmaöur í Reykjavík og Ásgeir Matthíasson formaöur kjördæmisráðs í Reykjanesi og atvinnumálanefndarmaöur í Kopavogi. Flokksfélagar og stuöningsmenn Alþýöubandalagsins eru hvattir til aö mæta. Alþýðubandalagið í Reykjavík Spilakvöld Félagsvistin hefur veriö flutt yfir á þriðjudagskvöld. Næsta spilakvöld verö- ur 4. febrúar kl. 20.00 í Miögaröi Hverfisgötu 105. Sjálfstæð kvöldkeppni sem jafnframt er upphaf fjögurra kvölda keppni. Spilað 4. og 18. febrúar og 4. og 18. mars. Geymið auglýsinguna. Gestur í kaffihléi 4. febrúar er Adda Bára Sigfúsdóttir borgarfulltrúi. Alþýðubandalagið í Reykjavík Viðtalstímar borgarfulltrúa eru á þriðjudögum á milli kl. 17.30 og 18.30. Þriöjudaginn 4. febrúar veröur Adda Bára Sigfúsdóttir borgarfulltrúi til við- tals í Miðgarði, Hverfisgötu 105. Skilnaðar- hópur Fraeðslu- og umræðuhópur fyrir fólk, sem nýlega hefur gengið í gegnum skilnað, tekur til starfa mánudaginn 10. feb. kl. 20.30 að Vesturgötu 10. Haldnir verða sex vikulegir fundir, og þátttakendafjöldi takmarkast við átta. Stjórnendur hópstarfsins eru Nanna K. Sigurðardóttir, fé- lagsráðgjafi og Sigrún Júlíusdótt- ir, félagsráðgjafi. Hópstarfið byggir á fræðslu um skilnað (félagslega og tilfinninga- lega) og er vettvangur fyrir gagn- kvæman stuðning og reynslu- miðlun þátttakenda. Unnið er úr þessum efnivið þannig, að aukið innsæi og skilningur geti losað um meinlokur og togstreitu. Um hefðbundna meðferð er því ekki að ræða heldur innsæi, stuðning og fræðslu. Nánari upplýsingar og skrán- ing um þátttöku hjá Tengslum sf. Vesturgötu 10, sími 2 57 70, kl. 17.00-19.00, næstu daga. Til Dagsbrúnar 26. 1. 1986 Það lýsti af degi í Ijósbliki vorrar aldar, er launamenn eyrar gengu til samstarfs í verki. Bognir í herðum báru merki, um brauðstritsins þrældóm og nauðþurftir faldar. Þó margt hafi náðst á áttatíu ára göngu, enn er þörf sóknar, munið það kæru bræður. Sóknarvilji einn öllu ræður í átökum komandi dags og mótviðri ströngu. Jóhann J. E. Kúld Heilbrigð augu eru Iþrúttamanninum nauðsyn. I»ess vegna drekkur hann mjólk. Markvöröurinn þarf aö fylgjast nákvæmlega með öllum hreyfingum andstæðinganna, með varnarleik samherjanna, hann verður að geta séð fyrir óvænt skot utan af velli og hvert þau stefna á þroti úr sekúndu. Hann þarf því góða sjón. Og góð, heilbrigð augu þurfa A-vítamín. A-vítamínið er nauðsynlegt til að augað geti umbreytt Uósi í taugaboð, sem send eru til heilans, og gera okkur kleift að sjá. Nú á tímum reynum við öll mikið á augun. Við lestur og skrift, við það að horfa á sjónvarp, við tölvuvinnu, við akstur í myrkri o.fl. Nú er því nauðsynlegra en nokkru sinni að veita augunum þá næringu sem þau þurfa. A-vítamínið er í rrýólkinni; um þriðjungur alls A-vítamíns sem við fáum úr daglegri fæðu kemur úr mjólk og mjólkurmat. hetta veit Einar Þorvarðarson, landsliðsmarkvörður í handknattleik. Enda drekkur hann mjólk Förum vel með augun. Cefum þeim mjólkursopann sem þau þurfa! MJÓLKURDAGSNEFND Mjólk er nýmjólk, léttmjólk og undanrenna. um A-vítamínskort eftir dr. Jón Óttar Ragnarsson Þegar A-vítamín vantar í fæðuna eiga sér stað ýmsar sjúklegar breytingar á slímhúð, húð og í augum. i auganu veldur þetta fyrst náttblindu og síðan augnþurrki, sem smám saman leiðirtil augnkramar og loks til blindu. A-vitamínskortur á þvl stigi finnst þó ekki lengur nema í þróunarlöndum. Húðin verður hörð, hrjúf og hornkennd við A-vítamínskort (venjulega fyrst á olnbogum og rasskinnum) auk fleiri einkenna, og ef sllmhúð llkamans vantar A-vítamln minnkar hæfni hennartil að veita viðnám sjúkdómum í öndunarfærum, meltingarfaenjm og kynfærum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.