Þjóðviljinn - 17.04.1986, Qupperneq 4
LEIÐARI
Betra aðhald - betri
Öllum stjórnkerfum er nauösynlegt aö hafa
þaö innbyggða aöhald sem felst í lýðræöislega
kjörinni stjórnarandstööu. Virk og starfsöm
stjómarandstaða er vartappi kerfisins gegn
mistökum, gegn spillingu. Hún er einkar
nauösynleg þar sem einn flokkur hefur byggt
upp langvarandi valdakerfi, ekki síst þegar
flokkurinn fer aö snúast aö verulegu leyti í kring-
um einn eða fáa valdamenn. Viö slíkar aöstæö-
ur fara gæðingarnir á kreik, potararnir fara aö
ota totanum sínum í skjóli flokksræðisins, og
spillingin verður partur af kerfinu.
í Reykjavík hefur Sjálfstæöisflokkurinn byggt
upp langvarandi valdakerfi. í borgarkerfinu hef-
ur hann öll tögl og hagldir og fer sínu fram og
hefur ekki ævinlega starfaö mjög í anda lýöræö-
isins. Síðustu misseri hefur svo ástandið
versnað mjög til muna. Flokksræöiö hefur aö
vísu veriö hert mjög á kjörtímabilinu, en nú er
þaö nánast aö snúast upp í einræði, þar sem
mjög fámenn klíka í borgarstjórnarflokknum fer
meö völd. Slík staöa býöur aö sjálfsögðu upp á
góöan jarðveg fyrir spillingarfjólur af ýmsu tæi.
Og þaö verður aö segjast, aö síðasta kjörtímabil
hefur fætt af sér óvenju mörg og skýr dæmi um
spillingu, sem hefur beinlínis þrifist í skjóli Sjálf-
stæðisflokksins.
• Ölfusvatnsmálið. Kaupin á landi Ölfus-
vatns í Grafningi eru dæmi um furöu opinskáa
spiliingu. Fasteignamat jarðarinnar var 400
þúsund krónur. En Ölfusvatn má hins vegar
teljasttil vildarjaröa, því íþriöjungijaröarinnarer
aö finna háhita. Og vildarjaröir eru gjarnan
lagðar á fjór- til’fimmfalt fasteignaveröiö. En
Sjálfstæðisflokkurinn þröngvaði gegnum borg-
arstjórn kaupsamning, þar sem samþykkt var
aö greiða, - ekki tvær miljónir, ekki tuttugu milj-
ónir, ekki fjörutíu, heldur SEXTÍU MILLJÓNIR
KRONA!!
Jafnframt var hinu gömlu eigendum leyft aö
fá afnot af jöröinni næstu hálfa öldina, og meira
aö segja veitt leyfi til að reisa þar þrjú hús. Vörn
Sjálfstæðisflokksins fyrir þessari óverjandi
sóun á fjármunum borgarinnar var meir en
hlægileg. Hún var einfaldlegasú, aö mögulega
kynni að verða þörf fyrir hitann úr Ölfus-
vatnslandinu seint á næstu öld!!
Ástæöan fyrir þessari tilgangslausu eyöslu á
fé okkar borgarbúa var auðvitað aöeins ein:
eigendur Ölfusvatns voru gamalgróin og áhrifa-
mikil ætt í Sjálfstæðisflokknum. Flokkurinn sér
um sína, og jafnvel þó þaö kosti aö 60 miljónum
króna (raunar 71 miljón á núvirði) af fjármunum
borgarbúa sé sóað á óverjandi hátt. Svona skýr
veröur spillingin aöeins, þegarvaldhafarnirtelja
sig svo trygga í sessi, aö enginn geti hróflaö viö
þeim.
• Grandi hf. Þaö er skammt síðan Grandi hf.
varö til viö samruna Bæjarútgerðarinnar og ís-
bjarnarins. Meö því var Sjálfstæðisflokkurinn að
Reykjavík
gera tvennt: drepa Bæjarútgerðina og bjarga
flokksgæðingum í ísbirninum. Því allir vissu aö
fyrirtækið var í miklum erfiðleikum, og að tjalda-
baki tók flokkurinn ákvörðun um að launa
eigendum þess langa og dygga þjónustu meö
því aö framkvæma björgunaraðgerðina. Borgin
þurfti aö taka á sig 200 miljóna króna skuld BUR
til aö Grandi hf. gæti byrjað með hreint borö.
• Skúlagatan. Styrr hefur staðið um skipulag
fyrir Skúlagötuna og samþykkt þess tafðist. Aft-
ur og aftur frestaöi Sjálfstæöisflokkurinn aö
taka upp gjaldskrá fyrir gatnageröargjöld af
eignarlóöum, einungis til aö eigendur lóðanna
viö Skúlagötu þyrftu ekki aö borga þessi gjöld.
Þarmeð tapaöi borgin auövitað af stórum upp-
hæöum en eigendurnir græddu aö sama skapi
stórfé. Og þaö þarf aö sjálfsögðu ekki aö orö-
lengja þaö, aö eigendurnir eru áhrifamenn í
Sjálfstæöisflokknum.
Þannig mætti rekja fleiri, fleiri dæmi. En þaö
er óþarfi. Staöreyndin er sú, að Sjálfstæðis-
flokkurinn hagar sér einsog hann sé viss um aö
ekkert geti hróflað viö meirihluta hans í borginni.
Þess vegna koma upp spillingardæmi einsog
þessi. Þess vegna þarf aö veita honum miklu
strangara aöhald, einungis þannig er unnt aö
uppræta óþrifnaðinn.
Betra aðhald - betri Reykjavík.
-ÖS
KUPPT OG SKORIÐ
„Khadafy var svarað á
máli sem hann skilur“
Bandarískur sendiráðsmað-
ur særður lífshættulega í Súdan
H'eimur vestrænum •endiráðMtarfiunðanuni í
um hundrað nuutna hefðu fallið i lofUrÍMua
aðfaranótt þriðjudafs, en Ubýskir enbvUh-
Mrgir befðu lAtið tífið“. Ubýumenn réðurt á
kiptmtðð BjuKUrO^amanoa á ftðlsku eynni
er um 215 km tuður mt f Miðjarðar- 'SNHIBr
i íar, nákvæmar og\
'' óhrekjanlegar sa.nna.nir
Ohugsandi að leyfa"
ekki afnot herstöðva
■ rtyðja •ðgerðir Uailaafliga- i araí rtaiiv<TiU|ft-rv.
k, w» djðrnir fleatrm annarra I___________TVpúnur nkeytum var
ur_akeytum var ^ # ^
«;;A þessan stundu stendur
öll þióðin með forsetanum‘i
JL .. . r—... yum. | nana og viðbrógð Sovétmanna
........... -*•*, v.^a-fífceini viö ræturnar yTjón varö á franska oendiráðinu f I sVndu afstöðu f^irm til albióöleirra
r ——— • -W„r |og Khadafv ‘ 1 T’*~*t‘l**~ £ «
Herbækistöðvar megin skotmorkm
Þau bregðast-
aldrei
Árás Bandaríkjamanna á Lí-
býu hefur verið fordæmd víða um
heim. Margir bandamenn í Nató
eru gramir, sárir og reiðir. Hitt
getur Reagan svo huggað sig við,
að í álfunni finnast þó tveir aðilar
sem styðja hann með ráðum og
dáð. Þeir eru Margaret Thatcher
og Morgunblaðið.
Eins og menn vita eru þeir á
Morgunblaðinu sífelit að hrósa
sjálfum sér af því hve hlutlægt
fréttablaö þeir séu að gefa út.
Þeir séu nú aldeilis upp yfir það
hafnir að leggja út af tíðindum á
röngum stað-m.ö.o. ífréttunum
sjálfunr. í reynd er þessu svo allt
öðru vísi farið og Morgunblaðið í
gær er einmitt gott dæmi um tvö-
feldnina.
Þegar DV var í fyrradag að
segja frá loftárásunum á Líbýu
sem gerðar voru nóttina áður, var
aðalfyrirsögnin á forsíðu á þessa
leið:
„Loftárásin á Líbýu bitnaði
eintiig á óbreyllitm borgurum:
Borgarar í valnum og 100 á spít-
ala“.
Fyrirsögn af þessu tagi mundi
hljóma eins og hver annar
laumukommúnískur fjandskapur
við Bandaríkin á Morgunblað-
inu. Enda eru fyrirsagnir blaðsins
í gær allt annars eðlis. Þær fela
allar í sér skilyrðislausa réttlæt-
ingu árásarinnar og svo það, að
tekið er með fyrirvaralausri vel-
þóknun undir allt það, sem Reag-
an og hans menn hafa að segja
um málið.
Hver drepur
hvern?
Aðalfyrirsögnin á forsíðu er
höfð eftir einhverjum „talsmanni
Bandaríkjastjórnar" og er á
þessa leið: „Khadafy var svarað á
máli sem hann skilur". Og undir-
fyrirsögnin er ekki síður fróðleg.
Þar segir: „Bandarískur sendi-
ráðsmaður sœrður lífshættulega í
Súdan". Og þótt enginn viti hvers
vegna sá maður varð fyrir skoti,
þá er þetta atvik í öðru landi ber-
sýnilega margfalt meira mál fyrir
Morgunblaðið en að hundrað Lí-
býumenn hafi látið lífið og mikill
fjöldi særst og að ef til vill séu
börn Gaddafis meðal fórnar-
lambanna.
Fullkomin
undirgefni
Það er ekki sama hver drepur
hvern. Særður bandarískur dipl-
ómat í Súdan á víst að vera
staðfesting á því að Reagan hafi
rétt fyrir sér einsog endranær - en
hitt skiptir engu þótt hundrað Ar-
abar hafi verið drepnir fyrir þær
sakir einar að eiga heima í borg-
ínni Tripoli...
Þessu næst geta menn flett yfir
á heila opnu sem lögð er undir
fréttir og útskýringar á Líbýumál-
um. Sex fréttir og greinar eru á
opnunni. Ein - og sú lang-
minnsta, - segir frá því að á Ítalíu
ríki „Ahyggjur og undrun á við-
búnaði hersins“ - skrýtin fyrir-
sögn í frétt þar sem aðalmálið er
reyndar það að Craxi, forsætis-
ráðherra ftalíu, er að lýsa van-
þóknun sinni á framferði Banda-
ríkjamanna. En allar hinar fyrir-
sagnirnar (þriggja eða fjögurra
dálka) eru svo í anda hinnar af-
dráttarlausu undirgefni. Ein
segir: „Herbœkistöðvar megin
skotmörkin" (blóðbaðið er sem-
sagt slys sem best er að tala sem
minnst um). Önnur er höfð eftir
Margaret Thatcher: „Óhugsandi
að leyfa ekki afnot af herstöðv-
um“. Hin þriðja er höfð eftir
Reagan sjálfum: „Beinar, ná-
kvœmar og óhrekjandi sannanir“
- sem hann kveðst hafa um aðild
Líbýumanna að tilteknu hryðju-
verki - en þess má geta að enn
hefur enginn fengið að sjá þær
„sannanir" og Vestur-Þjóðverjar
hafa enn ekki fengist til að taka
þær gildar. Hin fjórða fyrirsögnin
er höfð eftir bandarískum
öldungardeildarþingmanni: „A
þessari stundu stendur öll þjóðin
með forsetanum". Hin fimmta er
svo „hryðjuverkaannáll“ - „Síð-
asta ár var það blóðugasta í sög-
unni" - þar eru talin upp ótal
hryðjuverk hér og þar í heimin-
um (morðið á Olof Palme ekki
undanskilið) - og þessi listi á svo
að reka einskonar moggasmiðs-
högg á þá túlkun, að það hafi
þurft að refsa Líbýu! - Eða eins-
og í inngangi samantektarinnar
segir: ,,Bandaríkjamenn hafa
lengi sagst hafa fyrir því órækar
sannanir, að ráðamenn i Líbýu
hafi staðið að baki mörgum of-
beldisverkum".
Á öðrum stað í blaðinu er svo
sagt frá því að „flest ríki heims
fordœma árásina“ - þó nú væri.
Hitt er víst að ekki gerir Morgun-
blaðið það og ekki ríkisstjórn fs-
lands.
Lögregluvald
hvaðan?
Leiðari Morgunblaðsins um
málið er í flestum greinum í sam-
ræmi við þá fyrirsagnatúlkun at-
burða sem að ofan var lýst. En
þótt Ieiðarahöfundur finni enga
ástæðu til að gagnrýna Banda-
ríkjamenn fyrir það, sem þeir
hafa gert, þá getur hann ekki
hrundið frá sér þeim þanka, að
kannski geri árásin aðeins illt
verra. Eftir að hafa snúist í
nokkra hringi í kringum þá hugs-
un, ber hann allt í einu upp spurn-
ingu, sem kemur eins og „þjófur
úr heiðskíru lofti“ yfir saklausan
lesandann eftir allt sem á undan
er gengið í blaðinu:
„Aðgerðir Bandaríkja-
manna... vekja líka upp spurn-
ingar um það hvaðan Bandaríkja-
mönnum kemur lögregluvald í
heiminum".
Reagan forseti heldur náttúr-
lega að „lögregluvald" hans komi
frá guði almáttugum. Hann hefur
ákveðið að Gaddafi skuli verða
sá „óði hundursá illi Satan,
sem útrýma skal. En svarið við
spurningu leiðarans liggur
reyndar í augum uppi. „Lög-
regluvald“ Bandaríkjamanna til
að fara með sprengjukasti og
skothríð um heiminn, það kemur
frá þeim sem hugsa eins og Marg-
aret Thatcher og Morgunblaðið.
-ÁB
DJÓÐVILIINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphéðinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Öskar Guðmundsson.
Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Guðlaugur Arason (Akureyri), Ing-
ólfur Hjörleifsson, Kristin Ólafsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H.
Gíslason, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Sigurður Á. Frið-
þjófsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndir: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Útlit: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Útbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga
Clausen.
Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: Ólöf Húnfjörð.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
óri: Baldur Jónasson.
ára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
nn: Brynjólfur VilhjálmSson, Ólafur Björnsson.
greiðsla, ritstjórn:
Verð í lausasölu: 40 kr.
Helgarblöð: 45 kr.
Áskriftarverð ó mónuði: 450 kr.
4 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 17. april 1986