Þjóðviljinn - 17.04.1986, Page 15

Þjóðviljinn - 17.04.1986, Page 15
SVONÁGERUM við NESKAUPSTAÐUR Spjallaö við Gísla Gíslason, hafnarvörð, um smábátaútgerðina Norðfjarðarfjöllin speglast í smábátahöfninni. Myndir Sáf. Smábátahöfnin Hreyfir aldrei sjó Smábátaútgerð er í miklum blóma í Neskaupstað einsog víða annarsstaðar í sjávar- plassum. Hefur smábátaút- gerðin rokið upp á örfáum árum og eru nú um 70 bátar í bænum. Blaðamaður Þjóðviljans staldraði við í smábátahöfninni, sem hefur verið grafin út í botni Norðfjarðar. Þykir höfn þessi með þeim bestu á landinu og að sögn kunnugra eru bátarnir öruggari í höfninni en á þurru landi það jafnt þó stórviðri gangi yfir, því sjó hreyfir lítið sem ekk- ert inn í höfninni. Gísli Gíslason, hafnarvörður var staddur í smábátahöfninni er blaðamann bar að garði. Sagði hann að um tuttugu manns stund- uðu smábátaútgerðina allt árið um kring. Sýndist honum þeir hafa sæmilegt upp úr sér við þetta, en mjög stutt er á miðin. Er rauðmagavertíðin á fullu urn þessar mundir. Höfnin mun hafa verið tekin í notkun árið 1975 og hófst þessi smábátaútgerð fyrir alvöru upp úr því. Einsog fyrr sagði eru unr tuttugu manns á fullu í þessu en aðrir stunda þetta sem aukabú- grein, t.d. hafa kennarar á staðn- um farið í auknum mæli út í trillu- útgerðina yfir sumartímann. Einnig er viss fjöldi sem er með eigin fleytur sér til yndisauka og lítur ekki beint á þær sem atvinnutæki. —Sáf Norðfirðingar Nú eru það vorverkin. Garðáhöld í úrvali, seljum einnig áburð og útsæði

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.