Þjóðviljinn - 17.04.1986, Blaðsíða 22
ÍÞRÓTTIR
Knattspyrna
Littbarski
til Parísar
Racing Club Paris, nýkrýndir
mcistarar 2. dcildar frönsku knatt-
spyrnunnar, keyptu í fyrradag
vestur-þýska landsliðsmanninn Pi-
crre Littbarski frá Köln fyrir rúma
eina miijón dollara. Racing Club er
nýbúið að festa kaup á Luis Fern-
andez frá Paris St.G., cinurn lykil-
manna franska landsliðsins, og ætlar
sér greinilega stóra bluti næsta vetur.
—VS/Reuter
Vestmannaeyjar
Tommamot
þriöja sinn
Tommahamborgaramót Týs í 6.
flokki í knattspyrnu, það þriðja í röð-
inni, verður haldið í Vestmanna-
eyjunt dagana 18.-23. júní. Mótið
verður með svipuðu sniði og undan-
farin ár en þó verður einhverju nýju
bætt við ef þurfa þykir.
Síðastliðið ár tóku 40 lið frá 20 fé-
lögum þátt í Tommamótinu, alls 500
þátttakendur, og komust miklu færri
að en vildu. í ár verður trúlega að
takmarka þátttöku við sama tjölda,
þ.e. 20 félög. Því er eins gott að hafa
hraðann á og tilkynna þátttöku sem
fyrst. Hana skal tilkynna til Lárusar
Jakobssonar í síma 98-1754 sem veitir
og nánari upplýsingar.
—JR/Eyjum
Knattspyrnuþjálfarar
Námskeið á
Akranesi
Almennt knattspyrnuþjálfaranám-
skcið verður haldið á Akranesi, á veg-
um Knattspyrnufélags ÍA, helgina
26.-27. apríl. Aðalleiðheinandi verð-
ur Jim Barron, þjálfari ÍA, og þá
verða fyrirlestrar um íslenska knatt-
spyrnu fyrr og síðar og um meiðsli og
meðferð þeirra. Námskeiðið hefst kl.
12 á laugardeginum og lýkur kl. 14 á
sunnudeginum. A laugardagskvöldið
verður innanhússknattspyrnumót
fyrir þjálfarana ef áhugi er fyrir
hendi. Þátttaka tilkvnnist til Harðar
Jóhannessonar og Jóns Gunnlaugs-
sonar í síma 93-2243 og Harðar
Helgasonar á kvöldin í síma 93-2326
fyrir 24. apríl.
Borðtennis
Spörtumót
á sunnudag
Spörtumótið í borðtennis verður
haldið í fvrsta skipti sunnudaginn 20.
apríl, í KR-heimilinu, og hefst það kl.
15.30. Mótið er útsláttarkeppni, það
er punktamót og hið síðasta fyrir Is-
landsmótið. Sportvöruverslunin
Sparta gefur öll verðlaun og eru þau
hin veglegustu. Fyrir fyrsta sætið
farand- og eignabikar, verðlaunapen-
ingar fyrir 1.-4. sætið, vöruúttektir
fvrir 1.-4. sæti. í mótinu taka þátt
allir sterkustu borðtennismenn lands-
Knattspyrna
Sjö ÍA-mörk
ÍA sigraði Hauka 7-0 í Litlu bikar-
keppninni á Akranesi um síðustu
helgi. I Kópavogi léku Breiðablik og
FH og lauk þeirri viðureign með jafn-
tefli, 1-1. Áður höfðu ÍBK og Breiða-
blik gert jafntefli í Keflavík, 2-2.
—VS
Kvennahandbolti
Tvöfaldur
Framsigur
Vann Stjörnuna 23-18 í úrslitum bikar-
keppninnar. Framstúlkurnar unnu alla
leiki vetrarins, í deild og bikar. Guð-
ríður skoraði 12, Erla með stórleik
Fram tryggði sér í gærkvöidi
bikarmcistaratitilinn í hand-
knattleik kvcnna mcð því að sigra
Stjörnuna 23-18 í úrslitaleik í
Seljaskóla. Fram vann því tvö-
falt, varð cinnig Islandsmeistari,
og sigraði í öllum leikjum vetrar-
ins, í dcild og bikar.
„Ég átti eiginlega ekki von á aö
viö ynnum tvöfalt, það kom okk-
ur á óvart hve vel við náðum sam-
an. Okkur var ekki spáð vel-
gengni í vetur en þegar leið á
tímabilið sáum við að við gátum
þetta og sýndum það ogsönnuð-
uðumí kvöld.Ég vil þakka árang-
urinn frábærurn þjálfara, sam-
heldni í liðinu og góðri breidd,
margar ungar og efnilegar stúlkur
hafa komið inní hópinn,“ sagði
Guðríður Guðjónsdóttir fyrirliði
bikarmeistaranna í samtali við
Þjóðviljann eftir leikinn.
Mikil spenna ríkti hjá báðum
liðum í byrjun. Stjörnustúlkurn-
ar náðu að halda í við andstæð-
inga sína framanaf en síðan náði
Fram forskoti og hélt því til loka
fyrri hálfleiks, staðan þá 11-8.
Stjarnan byrjaði seinni hálfleik
ágætlega og náði að minnka mun-
inn. Erla Rafnsdóttir var hreint
óstöðvandi og áttu Framstúlk-
urnar í vandræðum með að halda
henni niðri. En Fram komst í 17-
12 og sigrinum varð ekki ógnað
eftir það.
Hjá Fram var Guðríður best en
átti í erfiðleikum í seinni hálfleik
þar sem hún fékk ekki nægilega
hjálp frá samherjum. Mikið var
um mistök hjá hinu unga og efni-
lega liði Stjörnunnar. Erla var
besti maður vallarins en einnig
stóðu Margrét Theodórsdóttir og
Fjóla Þórisdóttir markvörður sig
vel.
„Ég þakka stelpunum þennan
góða árangur sem við höfum náð
í vetur, öðru sæti í deild og bikar.
Þær hafa verið mjög áhugasamar
og lagt sig allar fram við æfing-
arnar. Það hefur óneitanlega
bitnað á liðinu og sjálfri mér að
ég hef bæði verið þjálfari og leik-
maður en þetta gekk vel og tíma-
bilið er búið að vera mjög gott,“
sagði Margrét Theodórsdóttir,
þjálfari og leikmaður Stjörnunn-
ar.
Mörk Fram: Guðríöur Guðjónsdóttir
12(4v), Arna Steinsen 4(1 v), Ingunn Bern-
ótusdóttir 4, Jóhanna Halldórsdóttir 2 og
Guðrún Gunnarsdóttir
Mörk Stjörnunnar: Margrét Theodórs-
dóttir 8(5v), Erla Rafnsdóttir 7, Hrund Grét-
arsdóttir 1, Guðný Gunnsteinsdóttir 1 og
Anna M. Guðjónsdóttir 1.
—MHM
GuöríAur Guðjónsdóttir, fyrirliði íslands- og bikarmeistara Fram, fagnar
sigri. Mynd: E.ÓI.
Evrópuleikirn i r
Spánarkvöld!
Spœnsku liðin komust öll í úrslit. Mark Lárusar dugði ekki
gegn Atletico. Vítakeppni í Barcelona
Gærkvöldið var svo sannarlega
Spánarkvöld, a.m.k. í Evrópumótun-
um í knattspyrnu. Fulltrúar Spánar,
Barcelona, Atletico Madrid og Real
Madrid, tryggðu sér sæti í úrslita-
leikjum mótanna og það á glæsilegan
hátt — öll stóðu frekar höllum fæti
eftir fyrri leikina. Barcelona hafði
tapað 3-0 í Gautaborg en vann með
sama mun í gærkvöldi og sigraði síðan
í vítaspyrnukeppni, Atletico Madrid
vann 3-2 sigur á Uerdingen í Vestur-
Þýskalandi og Real Madrid vann upp
tveggja marka forskot Inter Milano
og gott betur, sigraði 5-1 í framlengd-
um leik í Madrid.
Carrasco var maöur leiksins hjá
Barcelona. Hann gcrði öll þrjú mörk
liðsins í venjulcgum leiktíma, 3-0. í
framlcngingu náðu Spánverjarnir
ekki að bæta við markatöluna, Sví-
amir vörðust vel, og náðu síðan und-
irtökum í vítaspyrnukeppninni. Þurf-
tu aðeins að skora úr sinni fimmtu
spyrnu til að komast í úrslitaleikinn,
en það mistókst og Barcelona tryggði
sér síðan sigur.
Belgísku meistararnir Anderlecht
áttu aldrei möguleika í Búkarest gegn
Steua. Rúmenarnir tóku leikinn strax
í sínar hendur, Piturca skoraði á 4.
mín, Balint á 23. mín. og Piturca
innsiglaði 3-1 samanlagðan sigur á 72.
mínútu.
Urslitaleikur í Evrópukeppni
meistaraliða: Barcclona-Steaua.
Bayer Uerdingen sótti stíft gegn
Atletico Madrid, staðráðið í að vinna
upp 1-0 forskot Spánverjanna. En
Atletico beitti skæðum skyndisókn-
um og komst í 0-2 með mörkum frá
Rubio og Cabrera. Mathias Herget
skoraði beint úr aukaspyrnu fyrir
Uerdingen, 1-2, á 55. mínútu en Þri-
eto svaraði, 1-3, þremur mínútum
síðar. Lárus Guðmundsson minnkaði
muninn fyrir Uerdingen í 2-3 á 64.
mínútu en Uerdingen hefði þurl't þrjú
mörk í viðbót til að komast áfram.
Dynamo Kiev var ckki í vand-
ræðum með að verja 3-0 forskot sitt í
Prag. Kirz kom Dukla reyndar yfir á
64. mínútu en Belanov jafnaði úr vít-
aspyrnu fyrir Kiev 7 mínútum síðar,
1-1.
Úrslitaleikur í Evropukeppni bik-
arhafa: Atletico Madrid-Dynamo
Kiev.
Real Madrid lék nákvæmlega sama
leik og gegn Inter Milano í undanúr-
slitum UEFA-bikarsins í fyrra. Inter
leiddi þá 2-0 en tapaði 0-3, leiddi nú
3-1 en tapaði 1-5. Staðan var3-l eftir
venjulegan leiktíma í gærkvöldi,
framlenging því nauðsynleg, en þá
skoraði Carlos Santillana tvívegis og
kont Real í úrslit. Hugo Sanchez 2 og
Rafael Gordillo gerðu hin ntörk Real
en Liam Brady skoraði fyrir Inter.
Köln fór með 4-0 forskot til Belgíu
og varði það létt, úrslit í Waregem 3-3
eftir að Köln komst í 2-0. Klaus Allofs
gerði öll 3 mörk Kölnar en Dadi Mut-
ombo 2 og Armin Goertz skoruðu
fyrir Waregem.
Úrslitaleikir í UEFA-bikarnum:
Real Madrid-Köln.
—VS/Reuter
Sviss
Luzem tapaöi
Luzern, lið Sigurðar Grétars-
sonar og Ómars Torfasonar, er
sennilega úr leik í baráttunni um
svissneska meistaratitilinn í
knattspyrnu eftir 3-0 tap fyrir Yo-
ung Boys í Bern í fyrrakvöld.
Luzern hefur nú ekki náð að
vinna leik síðan keppnin hófst á
ný á þessu ári, í mars. Young
Boys er hinsvegar kontið í efsta
sætið í fyrsta sinn í vetur, hefur 30
stig ásamt Grasshoppers. Neuc-
hatel Xamax hefur 29 stig, Sion
og Zurich 26 og Luzern er í 6. sæti
með 25 stig. Þá tryggðu Sion og
Servette sér sæti í úrslitum bikar-
keppninnar með sigrum á Chaux-
de-Fonds og Basel í fyrrakvöld.
—VS/Reuter
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 17. apríl 1986
Urslit í Evropuleikjunum
Evrópumótin í knattspyrnu, undanúrslit, seinni leikir. Samanlögð úrslit í svig-
um, feitletraða liðið í úrslitaleik:
Evrópukeppni meistaraliða
Barcelona (Spáni)-Gautaborg (Svíþjóð)...............3-0 (3-3)
(Barcelona sigraði í vítaspyrnukeppni)
Steaua (Rúmeníu)-Anderlecht (Belgíu)..............3-0 (3-1)
Evrópukeppni bikarhafa
Bayer Uerdingen (V.Þýsk)-Atletico Madrid (Spáni)....2-3 (2-4)
DuklaPrag (Tékkosl)-Dynamo Kiev (Sovét)...................1-1 (1-4)
UEFA-bikarinn
Real Madrid (Spáni)-lnter Milano (Ítalíu).................5-1 (6-4)
Waregem (Belgíu)-Köln (V.Þýskalandi)....................3-3 (3-7)