Þjóðviljinn - 04.05.1986, Blaðsíða 18
KROSSGÁTA
Nr. 515
T~ 9“ z— 7- ?— 7— — 'V V TZ5— i/
\íl )$ ’V' y JV U )> 5 7 17 w~ K TT~ Tö - W~
% tiO /<r 5/ (y{ y IS io 52 53 jcf 16 4 77“
& V \$ U> ’sr y 3 16 w y 15 ð Ts-
zs~ Zo \l> ' V' y )6~ 25 y 15 u y\
,sS "A % T~ li W it, ¥ y )t> i) W
(5 (6 6 ÍS' V' s? 10 /3 % 16 iZ- SP V' w ■
TT y /5 5i> V~~ lT y Ú )£> 54 y )t> 24
17- sr (p >7- y Z )5 Zu y is9 l¥ V y 70
y T~ T~ 2£- 24 ZJ SP io l) io ¥■ ry y
To 7T V' y 2t ¥~~ ll Zo V- f W~ 15-
& S2 io V y w IL )> y io !S 4
24 1* ■to y íi ¥ y é> 'V' 23 w~ 50 T~
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Z8 ZT 7 W ¥ 8 Zí
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á höfuð-
borg í Evrópu. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðvilj-
ans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 515“. Skilafrestur
er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa.
Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
Verðlaun fyrir krossgátu nr.
512hlýtur Jóhann Sigurðsson,
Grundargötu 10, 580 Siglu-
firði, en þau eru skáldsagan
Hörkutól stíga ekki dans eftir
bandaríska rithöfundinn
Norman Mailer sem bókaút-
gáfan Nótt gefur út. Lausnar-
orðið var Stórhöfði.
Verðlaunin fyrir krossgátu nr.
515 eru skáldsagan Minningar
einnar sem eftir lifði eftir
ensku skáldkonuna Doris
Lessing en bókaforlagið Nótt
gefur hana út.
Minningar einnar
sem eftír lifdí
SKAK
BRIDGE
Frá Norðlendingum
Einn af bestu skákmönnum
Akureyringa, Halldór Jónsson,
lést nú fyrir skömmu. Hann varð
fyrst skákmeistari Norðlendinga
árið 1958 eftir harða keppni við
Jónas Halldórsson frá Leysingja-
stöðum og elduðu þeir löngum
grátt silfur saman á Norðurlands-
mótum eftir það. Halldór sigraði
þrásinnis á skákmótum á Akur-
eyri og stóð sig einnig vel í keppn-
um við skákmenn syðra. Hin
síðari ár tefldi hann lítið á mótum
og mun það einkum hafa verið
vegna heilsubrests. Með Halldóri
er góður drengur genginn og
skákfélagi fallinn fyrir aldur
fram.
Gleðilegri tíðindi af Norður-
landi eru af Skákþingi Norðlend-
inga. Það fór fram á Siglufirði um
miðjan marsmánuð og voru
keppendur í eldri flokki 26, flestir
frá Akureyri. Tefldar voru 7 um-
ferðir eftir Monrad-kerfi. Sigur-
vegari varð Gylfi Þórhallsson
með 6 vinninga en næstir urðu
Jón Garðar Viðarsson frá Akur-
eyri og Örn Þórarinsson, bóndi í
Fljótum.
Gylfi teflir jafnan skemmti-
lega. Hann er óragur við áhættu
og er alltaf eitthvað að gera í
skákum sínum. Hér er sýnishorn
af taflmennsku hans. Skákin er
tefld í fjórðu umferð og var Þór
efstur með þrjá vinninga þegar
hún var tefld en Gylfi hálfum
vinningi neðar. Þór virðist hafa
teflt upp á jafntefli en Gylfi lætur
engan hafa jafntefli þrautalaust.
Hvítt: Gylfi Þórhallsson
Svart: Þór Valtýsson.
1. e4 - có
2. d4 - d5
3. e5 - Bf5
4. Rc3 - e6
5. g4 - Bg6
6. Be3 - Rd7
7. Be2 - a6
Svartur teflir byrjunina full hægfara.
Eðlilegra var að leika c6-c5 og beita
sér eitthvað á miðborðinu. Drottn-
ingarbiskup svarts er stundum hálf-
gert vandraeðabam í þessu afbrigði
því hann vill lokast inni á bak við
peðakeðjuna á drottningarvæng.
Hvítur finnur nú laglega leið til að
loka hann inni á ný, í þetta sinn á
kóngsvæng.
8. f4 - h5
9. f5 - exf5
10. g5 - ...
Brátt kemur maður á f4-reitinn til að
skorða f-peðið og þá er biskupinn
fangi.
10. ... - Bb4
11. h4 - Rf8
12. a3 - Bxc3+
13. bxc3 - b5
Svartur leggst í vörn. Með þessum
leik neglir hann c-peðið niður þannig
að hvítur á ekki hægt um vik að opna
taflið. Hins vegar er ekki víst hann
hefði þurft að óttast það þótt staðan
opnaðist, hann gat langhrókað og þá
er hans kóngur betur varinn en sá
hvíti.
14. a4 - Re6
15. Rh3 - Re7
,16. 0-0 - Kd7
Svarti kóngurinn ætlar að halda sig á
miðborðinu í trausti þess að staðan sé
nægilega lokuð. Gallinn fyrir svart er
sá að hann getur lítið gert en hvítur
kemur mönnum sínum í góðar stöður
og leitar færa.
17. Rf4 - Rxf4
18. Bxf4 - Ke6
19. Bcl - Kd7
20. Ba3 - Kc7
21. Bc5 - Dd7
22. Dd2 - Kb7
23. Hf-bl - f4
Svartur verður að reyna þetta til að
vekja menn sína til lífs. Hvítur var
jafnvel farinn að hóta að leika c3-c4.
24. Dxf4 - Bxc2
25. Hb2 - Rg6
26. Dfl - Be4
27. Dn - Bf5
28. Bd6 - Bg4
29. Bd3 - Be6
Svarta staðan er að verða mjög hættu-
ieg. Biskup hvíts á d6 er stórveldi og
fórn á b5 liggur í Ioftinu. Svartur
dregur nú mennina sína til baka en
það er orðið of seint.
30. Ha-bl - Re7
31. axb5 - axb5
32. Bxb5 - Kc8
Eða 32. ... axb5 33. Hxb5+ Ka6 34.
Da2 Mát.
33. Ba6+ - Kd8
34. Hb8+ - Hxb8
35. Hxb8+
Svartur gafst upp því hann tapar
miklu liði og verður líka mát.
Skákdœmi
Svo að þessi þáttur sé helgaður
Norðlendingum að öllu leyti er
hér í lokin skákdæmi eftir Ara
Guðmundsson en hann var ætt-
aður úr Hörgárdal. Ari var snjall
skákmaður og driffjöður í fé-
lagsmálum skákmanna, m.a.
fyrsti forseti Skáksambands ís-
lands. Þá var hann einn meðal
fárra íslendinga sem hafa fengist
við að semja skákdæmi.
Hvítur mátar í öðrum leik.
Oruggur sigur
Eins og fram hefur komið, unnu
þeir Þórarinn Sigþórsson og Þorlákur
Jónsson íslandsmótið í tvímenning.
Þeir hlutu 175 stig. í öðru sæti urðu
Guðlaugur R. Jóhannsson og Örn
Arnþórsson með 135 stig og í þriðja
sæti Karl Logason og Svavar Björns-
son með 133 stig.
Þeir Þórarinn og Þorlákur leiddu
allt mótið og sigur þeirra var nánast
aldrei í hættu eftir miðbik mótsins.
Þetta er þriðji sigur Þórarins, áður
1977 á móti Herði Arnþórssyni og
1979 á móti Óla Má Guðmundssyni,
en fyrsti sigur Þorláks í þessu móti.
ÓLAFUR
LÁRUSSON
Langþráður árangur loks í höfn hjá
Þórarni og byrjunin lofar góður hjá
Þorláki, eftir veruna vestra síðustu
árin.
Umsjónarmaður óskar þeim fé-
lögum til hamingju með góðan sigur.
Frá Bridge-
sambandi Islands
Bridgesambandið minnir félög á
síðari hluta árgjalda, sem er 15. júlí
1986. Nú þegar, í lok keppnistíma-
bilsins eru síðari hluta greiðslur farn-
ar að berast skrifstofu BSÍ. Gjaldið
hækkaði í 20 kr. pr. spilara pr. spila-
kvöld eftir áramót 85-86.
Bridgesambandið býður velkomið
í sambandið nýtt bridgefélag. Það eru
Neskaupstaðarmenn sem gengið hafa
í landssamtök bridgefélaga. Alls eru
þá félög innan vébanda BSÍ orðin 47
og hafa aldrei áður verið fleiri. Tals-
maður þeirra austanmanna er ína
Gísladóttir.
Send hafa verið til allra félaga utan
Reykjavíkur, gjafabréf sem prentuð
hafa verið í tilefni stofnunar Guð-
mundarsjóðs, húsakaupasjóðs
Bridgesambands íslands. Einnig hef-
ur verið opnaður reikningur í Útvegs-
banka íslands, hlaupareikningur nr.
5005, þar sem hægt er að leggja inn
gjafafé til sjóðsins. Markmiðið er að
kljúfa þessi kaup, en hlutur okkar
bridgemanna er yfir fimm miljónir
króna. Vegna þessa, verðum við að
taka á með Guðmundi Kr. Sigurðs-
syni. Allar nánari upplýsingar um
sjóðinn og framkvæmd þessa söfnu-
nar eru veittar á skrifstofu sambands-
ins s: 91-18350 (Ólafur).
Bikarkeppnin
Bikarkeppni Bridgesambands ís-
lands 1986 hefst í næsta mánuði.
Spilatími hverrar umferðar verður
sem hér segir:
1. umferð skal vera lokið fyrir 18.
júní 1986 (undankeppni).
2. umferð (32 sveita úrslit) skal
vera lokið fyrir 16. júlí 1986.
3. umferð (16 sveita úrslit) skal
vera lokið fyrir 13. ágúst 1986.
4. umferð (8 sveita úrslit) skal vera
lokið fyrir 31. ágúst 1986.
5. umferð (undanúrslit 4 sveita)
verður spiluð laugardaginn 6. sept-
ember og úrslitaleikurinn verður dag-
inn eftir, 7. september 1986. Spila-
mennska hefst báða dagana kl. 10
árdegis, en í undanúrslitum eru spiluð
48 spil milli sveita og 64 spil í úrslita-
leiknum.
í öllum öðrum umferðum, eru spil-
uð 40 spil milli sveita. Þátttökugjald
pr. sveit verður kr. 4.000, sem
greiðist til Bridgesambands íslands í
upphafi keppni. Greiðslu skulu fylgja
nöfn spilara, nafnnúmer og heimilis-
föng. Spilað er um gullstig í hverri
umferð. Áríðandi er að fyrirliðar til-
greini þann spilafjölda sem hver ein-
stakur spilari spilar í hverri umferð
(séu fleiri en 4 spilarar í sveitinni).
Bregðist þetta, má búast við að stig
fyrir þann leik verði ekki skráð.
í bikarkcppnum er dregið í hverri
umferð. Þeirri sveit sem fær heima-
leik ber skylda til að aðstoða gesti
hvað varðar uppihald og viðurgjörn-
ing meðan á leik stendur, enda
myndu gestgjafar njóta þess hið sama
yrðu þeir á útivelli. Fyrirliðar skulu
koma sér saman um leiktíma. Að öllu
óbreyttu, gildir auglýstur spilatími
Bridgesambandsins í hverri umferð.
Skráning sveita til Bridgesambands
íslands er hérmeð hafin. Henni lýkur
miðvikudaginn 21. maí n.k. kl. 16.
Strax á eftir verður svo dregið í 1.
umferð keppninnar.
Skráningum skal komið til Ólafs
Lárussonar eingöngu, hjá BSÍ og
heima: 91-16533.
Sigurvegarar öðlast rétt til þátttöku
í Evrópubikarkeppni eða sambæri-
legri keppni, á þeim kjörum sem Evr-
ópusambandið (mótshaldarar ytra)
býður. Nánar síðar.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 4. maí 1986