Þjóðviljinn - 08.05.1986, Page 12
Sigurjón: Vinnubrögð Sjálfstæðisflokksins í málefnum BÚR eru siðleysi.
Grandi h.f.
Borgin
bjargar ísbiminun
Sigurjón Pétursson efsti maður á G-listanum: Vinnu-
brögð Sjálfstæðisflokksins siðlaus. Borgarsjóður og
BUR notuð til að bjarga fjárhag eigenda Isbjarnarins.
Isbjörninn var kominn nær gjaldþroti
Siðieysi er rétta orðið yfir vinn-
ubrögð Sjálfstæðisflokksins
varðandi Bæjarútgerðina og nú
Granda h.f. allt frá upphafi þessa
kjörtímabils. Og það er alveg
augljóst að sameining BÚR og Is-
bjarnarins var ekki gerð af
neinum hagkvæmnisástæðum,
þarna var aðeins um það að ræða
að bjarga fjárhag og efnahag
þeirrar fjölskyldu sem átti Is-
björninn, segir Sigurjón Péturs-
son borgarfulltrúi og efsti maður
á G-listanum í samtali við Þjóð-
viljann.
Sameining BÚR og ísbjamar-
ins og tilurð Granda h.f. í haust
hafa valdið miklu fjaðrafoki í
borgarkerfinu og vinnubrögð
Davíðs Oddssonar og samstarfs-
manna hans í borgarstjórn hafa
orðið fyrir óvægri gagnrýni frá
minnihlutanum. Þannig hefur
minnihlutinn til að mynda kært
tilnefningu borgarstjórans á
stjórnarmönnum í Granda til fé-
lagsmálaráðuneytisins. En það er
fleira en bara ísbúrið sem er
gagnrýni vert.
100 miljóna meðgjöf
„Þessa sögu má rekja allt til
upphafs þessa kjörtímabils. Mjög
snemma voru reknir tveir fram-
kvæmdastjórar hjá BÚR og í
staðinn.var ráðinn framkvæmda-
stjóri sem var borgarstjóranum
undirgefinn. Og eitt af hans
fyrstu verkum hjá fyrirtækinu var
að selja tvo togara, hvorn um sig
á 30 miljónum undir markaðs-
verði, eins og kom berlega í ljós
þegar togarinn Júní frá Hafnar-
firði var seldur á opnum markaði.
Þessir togarar voru ekki auglýstir
til sölu, heldur voru fundnir
kaupendur og gerðir við þá samn-
ingar.
Ef þessar tölur eru færðar til
núvirðis er ekki fráleitt að ætla að
Bæjarútgerðin hafi tapað alls 100
miljónum á þessari sölu. Maður
getur líka orðað það þannig að
meðgjöf borgarinnar með skip-
unum hafi verið um 100 miljónir.
Fyrir um ári síðan kom sú hug-
mynd upp innan Sjálfstæðis-
flokksins, að sameina Bæjarút-
gerðina og ísbjöminn. Borgar-
stjórinn tók þá ákvörðun án
nokkurs samráðs við borgarráð
eða borgarstjórn, að láta fara
fram hagkvæmnisathugun á
þessu og hún var tilbúin í byrjun
júlí og afhent borgarstjóranum.
Ég hélt þá og minnihlutinn að
markmiðið með þessu væri hrein-
lega að leggja Bæjarútgerðina
t'uu Kumur sexiail
meira aðferðast í
strœtó
Það kostar sexfalt
meira að fara í bað
Það kostar nífalt meira
að nota bókasafnið
Hefur kaupið þitt
hækkað sexfalt?
12 SÍÐA - REYKJAVÍKURBLAÐ
ALLT
TIL
SAUMA