Þjóðviljinn - 14.12.1986, Blaðsíða 18
Nr. 548
KROSSGÁTA
7~~ 2 5— ¥— 5— 5 7— F í? z?— lö n TT~ 1—
JT~ ll y 3 4 ]b 4 2 /V
isr V H* /4 lí 1 £ 2? T 3 I z V )5 JT
)U 3 b 7- /3 T~ v~ 20 22 T~ T~ W S?
T~ )H 22 Ý u 2Í Ú 1+ 21 ) y
V 5- T~ 22 s? iH 2 2 s y v~~ T~ )£ w~~
íe 5 25 Ú y ri w % T * )1o TT~
)H 5 TT # 2? 6 ir 71 )2 (d
‘yi 71 T~ t )H- M lí 7- )1 zf- V io
Sa g zl 22 2/ ) 20 W~ T~ 11 7- g
lL) S2 )5 i )é 2/ 21 £ 8 y /V- 22 tT~ 25 23
T~ h )H V J 2JI 3/ V JÍ. 21 W 20 8
)1 1 V 0 20 # )é> T~ W 4 8 il 22
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá bæjar-
nafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðvilj-
ans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 548“. Skila-
frestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa.
)é 3 H 22 )H 21 2 2$ 23
Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því að með því eru
gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru þess vegna eðlilegustu vinnubrögðin
að setja þessa stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnarsegjatil um. Einnig er
rétt að taka fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á
grönnum sérhljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
Höskuldur Egilsson,
Háaleitisbraut 116 í
Reykjavík, hlaut verö-
laun fyrir krossgátu nr.
544. Lykilorðiðvar Stein-
dór. Hann fær senda
bókina Galdrakarlinn frá
Oz.
Verðlaunin fyrir kross-
gátuna þessa vikuna er
Stóra hundabókin frá
Fjölva.
SKÁK
BRIDGE
Arangur
Yfírstandandi ár hefur verið
skákunnendum hér á landi
gjöfult og árangursríkt. Öflug
mót hafa verið haldin, Reykja-
víkurmótið og íslandsþingið í
Grundarfirði, þar sem skákunn-
endum hefur gefist kostur á að
fylgjast með harðri keppni og
spennandi taflmennsku. Skák-
meistarar hafa unnið glæsta sigra,
Jón L., Margeir og Jóhann unnið
öflug alþjóðamót, Jón L. áunnið
sér stórmeistaratitil en hinir yngri
og upprennandi fyllilega uppfyllt
þær vonir sem til þeirra eru gerð-
ar, bæði hér heima og erlendis.
Hátindur alis þessa árangurs er
svo frammistaðan á Ólympíum-
ótinu í Dubai nú á dögunum.
Fimmta sæti í merkustu
sveitakeppni í heimi, þ.e.
Ólympíukeppni, er afburðagott.
Ofar eru Sovétmenn, Englend-
ingar, Bandaríkjamenn og Ung-
verjar en neðar íslendingum eru
t.d. lið frá Júgóslavíu, Þýskalandi
og Tékkóslóvakíu sem margsinn-
is hafa vermt efstu sætin. Kín-
verjar urðu reyndar jafnir íslend-
ingum og kemur það nokkuð á
óvart. Kannski boðar það nýja
tima því víst er að Kínverjar hafa
skapgerð til að ná langt í skáklist-
inni. Nokkrar þjóðir sendu ekki
lið til Dubai en af þeim hefðu
ekki aðrir blandað sér í toppbar-
áttuna en Hollendingar, þótt Sví-
ar og ísraelar hefðu líklega orðið
skammt undan.
Hlutur íslensku sveitarinnar
verður enn betri þegar það er haft
í huga að hún tefldi við allar
sveitirnar sem urðu fyrir ofan
hana og þrátt fyrir áföll hrapaði
hún aldrei það langt niður að hún
tefldi ekki við þéttingssterka and-
stæðinga. Það mætti að vísu segja
að taflmennskan hafi verið full
sveiflukennd, stórir sigrar vegist
á við stór töp, svo að vinningarnir
komu ekki þar sem þeir hefðu átt
að koma. En vinningamir vom
samt nógu margir til að fleyta
sveitinni upp í toppsæti og ást-
æðulaust að nöldra yfir slíkum
smámunum.
Þegar allur þessi árangur er
metinn hlýtur að vakna spurning-
in „og hvað svo?”
Nú, það liggur í augum uppi að
stórmeistararnir og atvinnu-
mennirnir (heilir og hálfir) munu
halda áfram að tefla, hækka sig í
stigum, vinna fleiri mót, skyggn-
ast dýpra í leyndardóma skákar-
innar og ná betra valdi á henni.
Þeir sem neðar standa í árang-
ursstiganum munu feta í fótspor
þeirra sem hærra hafa klifið, en
almenningur fylgjast með og tefla
við sína líka sér til ánægju. Og
það sem best er, fleiri munu hríf-
ast með skákáhugastraumnum,
læra að tefla og iðka skák. Þannig
eig orð Stephans G. Stephans-
sonar við (með lítilli breytingu):
„þannig að skákin (menningin)
út á við eykst”.
Það er nefnilega svo margt
fleira í skákinni en keppni daginn
út og daginn inn enda fánýti hið
mesta að tefla bara til þess að
tefla. Skák þjálfar rökhugsun, og
veitir nú sumum ekki af þeirri
skólun, og hún ber sannleikanum
vitni á skýran hátt. í mann-
heimum er mörgum gikknum
hossað, en lýðnum „villt um og
stjórnað af fám” (svo aftur sé
vitnað í Stephan G.), alinn á hé-
góma og iygum. Á skákborðinu
þrífst ekkert slíkt, þar gilda órjúf-
andi lögmál, söm og tær.
Þessu til viðbótar kemur list-
hliðin. Á taflborðinu hafa verið
sköpuð snjöll listaverk, bæði í
sömdum þrautum og tefldum
skákum. Flóknar stöður taka á
sig mynd ófærs torleiðis en hönd
listamannsins greiðir úr öllu og
bendir á leið yfir ófæruna. Stund-
um álpast maður sjálfur til að
finna lausnina og uppsker þá
gleði og innri ánægju og er þá
komið að því sem ekki er síst við
skákina, en það er sköpunargleð-
in sem hún veitir iðkendum sín-
um. Þannig trúi ég ekki öðru en
hjartað hafi hoppað í brjóstinu á
Greko þegar hann fann kæfingar-
mátið fyrir liðlega 350 árum því
enn birtir það hugi skákunnenda:
Svartur lék:
15. ... - Rf2+
16. Kel - Rd3+
17. Kdl - Del+
18. Rxel - Rf2
Mát.
Morphy ávann sér eilífa frægð
með skák sem hann tefldi við tvo
tignarmenn í Evrópu árið 1858,
hertogann af Brúnsvík og Isou-
ard greifa.
13. Hxd7 - Hxd7
14. Hdl - De6
15. Bxd7+ - Rxd7
16. Db8+ - Rxb8
17. Hd8
Mát.
Eflaust hefur Fischer líka hýrn-
að í geði þegar hann lamaði varn-
ir Benkos á skák sem tefld var
árið 1963 með glæsilegri
hróksfórn:
19. Hf6 - Kg8
20. e5 - h6
21. Re2
og svartur gafst upp því engin
vörn er til við Hxh6 og með máti.
Ur ýmsum áttum
Það skýrist óðum hverjir koma til
með að spila á íslandsmótinu í sveitak-
eppni, í undanrásum. Lokið er unda-
nkeppni á Suðurlandi, á Norðurlandi
vestra þar sem sveitir Ásgríms Sigur-
björnssonar og Valtýs Jónassonar báðar
frá Siglufirði tryggðu sér réttinn og á
Reykjanesi, þar sem sveit Þrastar Ing-
imarssonar úr Kópavogi tryggði sér
sigur um síðustu helgi. Sveit Ármanns J.
Lárussonar einnig úr Kópavogi varð í 2.
sæti og þar með 1. varasveit til ísland-
smóts. Á Vesturlandi verður úrslitak-
eppnin spiluð eftir áramótin (fjórar ef-
stu sveitirnar úr undnrásum) og Reykja-
víkurmótið í sveitakeppni, sem jafn-
framt er úrtökumót fyrir íslandsmótið
hefst miðvikudaginn 7. janúar. Skrán-
ingu í það mót lýkur mánudaginn 5. jan-
úar n.k.
Hið árlega „Kristjánsmót” á Sauðár-
króki var spilað nýleg. 30 pör víðs vegar
að á Norðurlandi tóku þátt í mótinu cn
stjórnandi var Kristján Blöndal. Úrslit
urðu þau að Grettir Frimannsson og
Stefán Ragnarsson frá Akurcyri sigruðu
með miklum yfirburðum. í 2. sæti urðu
svo aðrir Akureyringar, þeir Pétur Guð-
jónsson og Frímann Frímannsson.
Reykjavíkurmótið í sveitakeppni
hefst miðvikudaginn 7. janúar nk. Frest-
ur til að tilkynna þátttöku rennur út
mánudginn 5. janúar. Mótið er jafn-
framt úrtökumót fyrir íslandsmótið í
sveitakeppni og komast 13 efstu
sveitirnar áfram.
Bikarkeppni Bridgesambands
Reykjavíkur, sú fyrsta sem haldin hefur
verið, hefst einnig í janúar. Mánuður
verður milli umferða (ca.), þannig að
allir ættu að geta verið með. Frestur til
að tilkynna þátttöku í Bikarkeppnina
rennur einnig út mánudaginn 5. janúar.
Bridgchátíð 1987 sem haldin verður á
Loftleiðum dagana 13.-16. febrúar n.k.,
er farin að vekja mikla athygli, álla vega
hér næst okkur. Bridgesambandinu hef-
ur borist fyrirspurn m.a. frá Grænlandi
varðandi Bridgehátíðina, nánar tiltekið
bridgeklúbbnum í Godtháb, (Nuuk).
verður fróðlegt að fylgjast með þróun
þessara mála, með samskiptum okkar
við þessa frændur okkar í grenndinni.
Samskiptin hafa jú ekki verið mikil frá
því Eiríkur rauði var og hét...
Nýja húsnæðið að Sigtúni 9 verður
afhent Bridgesambandinu og Reykja-
vfkurborgn.k. mánudag, 15. desember.
í því tilefni mun Bridgesambandið halda
formlegan stjómarfund í hinum nýju
húsakynnum á mánudag.
Nokkur mót em á dagskránni milli
jóla og nýárs. Á Akureyri, að blómask-
álanum Vín v/HrafnagiI, verður árlegt
jólamót þeirra norðanmanna. Um og
yfir 60 pör tóku þátt í þessu móti sl. ár.
Suður í Hafnarfirði verður einnig árlcgt
jólamót þeirra Gaflara, opið öllum. Um
50 pör tóku þátt í því móti sl. ár. Og uppi
á Skaga stendur til að halda veglegt tví-
menningsmót, sem lítið hefur þó heyrst
af, undan einnar brýningar í upphafi
desember. Verðlaun í því móti verða
með því allra hæsta sem boðið hefur
verið, um 115.000 kr. alls.
Já, til hamingju með 50 ára afmælið
Gunnar Berg á AkureyrL Ég hef alltaf
haldið því fram að 1. dcsember væri
merkisdagur.
ÓLAFUR
LÁRUSSON
Á Ólympíumótinu í New Orleans
1978 í tvímenning, áttust þeir Jón Bald-
ursson og Jakob R. Möller við hinn
þýska (gamla) Achtenberg, sem er með
kunnari spilurum af eldri kynslóðinni. í
fyrra spilinu vakti Jón á 2 spöðum og sá
gamli spurði Jakob hvað það þýddi.
„Tveggja lita hendi”, svaraði Jakob. í
síðara spilinu vakti Jón svo á 3 spöðum
og þá var sá gamli snöggur. „Þriggja lita
hendi, geri ég ráð fyrir?”
Reykjavíkurmótið í tvímenning, úr-
slit 20 para, verða spiluð um þessa helgi í
Hreyfils-húsinu v/Grensásveg. Spilam-
ennskan hefst kl. 13 í dag (laugardag) og
kl. 10 árdegis í fyrramálið. Alls verða 95
spil spiluð.
Þau félög/svæðasambönd sem óska
eftir að koma inn dagsetningum móta í
mótadagskrá í Meistarastigaskránni,
eru beðin um að hafa samband við skrif-
stofu BSl hið fyrsta. Skráin kemur út í
janúar nk.
f spili dagsins í DV að undanförnu,
þar sem íslandsmót og alls kyns stórvið-
burðir eru aðalnúmerin, þrátt fyrir að
aðeins sé farið að slá í efnið, hefur það
vakið furðu margra, að fjölmiðill eins og
DV, sem væntanlega tekur sjálfan sig
alvarlega, skuli láta hafa sig í að birta
endurprentanir, orðréttar, dag eftir
dag. Hvað væri sagt ef t.d. aðalfréttin í
knattspyrnufréttum væri leikur íslands
og Danmerkur hér um árið (2-14 tapið).
EUert Schram gæti t.d. hæglega verið
heimildarmaður. Er ekki kominn tími á
þessi vinnubrögð?
Fagleg vinna, eins og unnin hefur ver-
ið á Mbl. hin síðari ár, á Tímanum og
Þjóðviljanum hér áður fyrr og í Vísi
meðan hann var og hét, og vonandi
Helgarpóstinum í framtíðinni, það er
það sem gildir. Fréttir gærdagsins eru
aUs engar fréttir, síst endurbirtar orð-
réttar.
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 14. desember 1986