Þjóðviljinn - 01.05.1987, Síða 8
MENNING
Frá Grunnskólanum
í Mosfellssveit
Innritun nýrra nemenda í Grunnskóla Mosfells-
sveitar næsta skólaár fer fram dagana 4.-5. maí
n.k. kl. 9-14.
í Varmárskóla (6-12 ára) í síma 666154 og
Gagnfræðaskólanum (13-15 ára) í síma 666186.
Skólastjórar
Aðalfundur
Málarafélags
Reykjavíkur
verður haldinn fimmtudaginn 7. maí 1987 að Lág-
múla 5, kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Almenn aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Mætið vel og stundvíslega
Stjórnin
?l? LAUSAR STÖÐUR HJÁ
'V REYKJAVIKURBORG
Starfsmaður óskast í fullt starf við Áfangastaðinn
Amtmannsstíg 5A, sem er heimili fyrir konur sem
hafa farið í áfengismeðferð.
Félagsráðgjafamenntun eða sambærileg há-
skólamenntun áskilin eða reynsla á sviði áfenq-
ismeðferðar.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
26945, f.h. virka daga.
Umsóknarfrestur er til 18. maí n.k.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Opið hús
. maí
My ndl istarsýn i ng
Að lokinni 1. maí göngunni verður opið hús hjá
Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur í Húsi versl-
unarinnar 9. hæð fyrir félagsmenn og fjölskyldur
þeirra.
Frístundamálarar í V.R. munu sýna verk sín í
fundarsal félagsins.
Verzlunar- og skrifstofufólk!
Lítið við, þiggið kaffiveitingar og skoðið myndlist-
arsýninguna.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Orlofshús
Sjómannafélags Reykjavíkur
Orlofshús félagsins að Hraunborgum
Grímsnesi og Húsafelli verða leigð út frá og
með 4. maí.
Tekið er á móti umsóknum á skrifstofu félagsins
gegn greiðslu dvalargjalds frá kl. 9.00 n.k. mánu-
dag.
Stjórnin
Nemendaleikhúsið
RÚNAR OG KYLLIKKI
eftir Jussl Kylatasku
Lelkstjórn: Stefán Baldursson
Leikmynd: Grétar Reynisson
Þýðing: Þórarinn Eldjárn
Grétar Reynisson hefur gert
nokkuð nýstárlega og sterka leik-
mynd inn í salinn í Lindarbæ og
sýnt að lengi má finna nýjar leiðir
til að nýta það leikrými. Leik-
myndin er stór kross, töluvert
upphækkaður frá gólfi. Bæði er
kross þessi myndrænt sterkur,
undirstrikar þjakandi vald trúar-
bragðanna yfir persónum leiksins
og píslarvættisdauða Rúnars og
beinir einnig huganum að þeim
þröngu og beinu brautum sem
persónurnar eru neyddar til að
ganga eftir. Þetta er vel hugsuð
og sterk leikmynd, en það var
stundum eins og hún þrengdi full-
mikið að leikendunum, gæfi þeim
ekki nægilega mikið svigrúm í
þessari flóknu sýningu með sín-
um fjölmörgu skiptingum.
Leikrit Kylátaskus gerist í
finnskri sveit á sjötta áratugnum
og byggir á frægu morðmáli.
Þetta er flókið og sterkt byggt
verk sem stendur traustum fótum
í safaríku lífi alþýðunnar en nýtur
einnig skáldlegs innsæis og upp-
hafins málfars höfundarins sem
Þórarinn Eldjárn hefur komið
nokkuð vel til skila, texti hans er
litríkur og mergjaður. Auðvitað
er afleitt að verkið skuli ekki þýtt
úr frummálinu en hér er til-
finnanlegur skortur á þýðendum
úr finnsku og er til háborinnar
skammar.
Rúnar og Kyliikki fjallar um
margt, en sterkasti þáttur þess
finnst mér vera lýsing hinna
sterku og fastmótuðu kynjahlut-
verka og meðfylgjandi kynhun-
gurs sem stjórnar lífi persónanna
að miklu leyti. Samfara þessu er
svo yfirþyrmandi skinhelgi ster-
krar trúrækni og miskunnarlaust
umburðarleysi hins litla og inni-
lokaða samfélags. Þau Rúnar og
Kylikki falla ekki inn í þetta
munstur, þess vegna eru þau og
ófullburða ást þeirra dauða-
dæmd.
í leikstjórn sinni leggur Stefán
Baldursson áherslu á það grófa,
frumstæða og dýrslega í fari per-
sónanna og nær víða að skapa
sterk atriði af því tagi. Honum
tekst og nokkuð vel að halda
spennu sýningarinnar fram að
hléi þrátt fyrir talsverða lengd.
Eftir hléið slaknar hins vegar á
spennunni, atriðin verða endur-
tekningasöm og efnið drepst á
dreif. Hér hefði verið eðlilegt að
beita útstrikunum. Þetta er að
verða nokkuð margtuggin rulla í‘
pistlum mínum en ótrúlega marg-
ar sýningar á þessum vetri hefðu
batnað um allan helming við að
styttast um 15-30 mínútur. Fjar-
vera dramaturga í íslenskum
leikhúsum er nefnilega alvöru-
mál.
Þess er tæpast von að þessi ó-
reyndi hópur valdi jafn kröfu-
hörðu verki sem þessu til
fullnustu. Sú var líka raunin að
víða skorti mikið á, einkum hvað
snerti dýpt og innra líf í leik þessa
unga hóps. En hópurinn er, þeg-
ar á heildina er litið, bráðefni-
legur og verður fróðlegt að fylgj-
ast með þessum nýútskrifuðu
leikurum á listabrautinni og von-
andi að þau fái öll tækifæri til að
spreyta sig.
Sumir leikaranna komu
reyndar sterkar út úr þessari sýn-
ingu en fyrri sýningum vetrarins.
Þannig var Halldór Björnsson
mjög heiður og einlægur í hlut-
verki Rúnars. Þó að leik hans
skorti nokkuð í fjölbreytni bætti
hann það upp með heiðarleik.
Einnig kom Árni Pétur Guðjóns-
son á óvart í hlutverki Laiho.
Gervi hans og fas var eins ósvikið
finnskt og unnt var að kjósa sér
og leikur hans einkenndist af
innra þrótti og sannfæringu, en
Árni Pétur á hins vegar enn í smá-
vegis erfiðleikum með framsögn.
Ingrid Jónsdóttir náði víðast hvar
að losa sig við kæki í hreyfingum
sem hafa háð henni nokkuð og
átti mjög góðan leik á köflum,
náði að gera móður Rúnars að
skiljanlegri og átakanlegri per-
sónu. Henni og Halldóri tókst
hins vegar ekki að koma hinni
áhrifamiklu lokasenu til skila.
Ólafía Hrönn Jónsdóttir lýsti
vesalings Kyllikki af nærfærni og
tókst að sýna bælingu tiennar og
klunnahátt af prýði. Þórdís Arn-
ljótsdóttir lék hina kynhungruðu
Eiju af erótískri innlifun og ör-
uggri tækni. Stefán Sturla Sigur-
jónsson átti mjög góða spretti í
hlutverki hins veiklundaða
prests, atriðið milli hans og
Ólafíu var frábært, en skorti
nokkuð á að sýna sálarkvalir
prestsins nógu vel. Þórarinn
Eyfjörð var nokkuð daufur í hlut-
verki Heikkis og náði ekki nema
stundum í skottið á þeirri frum-
stæðu hörku sem í persónunni
býr. Þeir tveir sem mest briller-
uðu á skoptækni í Þrettánda-
kvöldi, þeir Valgeir Skagfjörð og
Hjálmar Hjálmarsson, voru hér
eins og utanveltu í hlutverkum
kaupmannsins og bflstjórans.
Nokkrir gestaleikarar veittu
nemendum lið að þessu sinni og
fóru vel en tíðindalítið með sín
hlutverk.
Þó að sitthvað megi að sýningu
þessari finna skal áhersla lögð á
að hún er áhrifamikil, skemmti-
leg og víða mjög vel gerð.
Sverrir Hólmarsson
8 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 1. maf 1987