Þjóðviljinn - 01.05.1987, Síða 17
ÖRFRÉTTIR
ERLENDAR FRÉTTIR
Jóhannes Páll II.
páfi hleypti heimdraganum eina
ferðina enn í gær. Að þessu sinni
fór hann í opinbera heimsókn til
Vestur-Þýskalands og er það
öðru sinni að hann vísiterar
germani. Hápunktur ferðarinnar
verður þegar hann blessar minn-
ingu tveggja fórnarlamba nas-
ista, nunnu af gyðingaættum og
kardínála, en þau munu innan
tíðar fá inngöngu í samfélag dýrl-
inga.
Græningjar
í Vestur-Þýskalandi munu nú um
helgina halda landsráðstefnu
samtaka sinna í Duisburg (Ruhr-
héraði. Ætla má að þar slái í
brýnu milli rétttrúnaðarmanna
sem andvígir eru öllu samstarfi
við Jafnaðarmannaflokkinn og
þeirra sem telja slíkar málamiðl-
anir koma til greina. í síðustu
sambandsþingkosningum fengu
Græningjar níu prósent atkvæða
og fjörutíu og fjóra menn kjörna.
Samtökin voru stofnuð fyrir níu
árum og var ekki spáð langlifi en
hafa staðið af sér allar hrakspár.
Heimsmeistara-
einvígið
í skák á milli Garrí Kasparofs
heimsmeistara og Anatolí Karp-
ofs áskoranda og fyrrum
heimsmeistara verður haldið í
haust sem kunnugt er. Nú hafa
fimm aðilar boðist til að hýsa
kappana á meðan þeir kljást um
titilinn og greiða þeim verðlaun
sem hærra hlut ber frá viður-
eigninni. Tilboðin komu frá borg-
unum Sochi í Sovétríkjunum, Se-
attle í Bandaríkjunum, Madrid og
Sevilla á Spáni og Dubai í Sam-
einuðu arabísku furstadæmun-
um. Kasparof segist þvertaka
fyrir að tefla í Dubai en sú borg er
einmitt efst á óskalista Karpofs!
Bandaríkjastjórn
segist harma að einn þegna
sinna, verkfræðingurinn Benjam-
in Linder, skyldi hafa verið veginn
í Nicaragua en bætti því við að
hún hefði ekki fengið nægar upp-
lýsingar um tildrög morðsins og
að allir Bandaríkjamenn hefðu
verið varaðir við því að ferðast til
landsins. Það voru vitaskuld hinir
alræmdu Contraliðar er drápu
Linder.
Berlín
átti sjöhundruð og fimmtíu ára af-
mæli í gær og var því mikið um
dýrðir. Lúðrar voru þeyttir, her-
menn gengu gæsagang og ger-
völl vesturþýska stjórnin mætti til
að hlýða á foringja sinn, Helmut
Kohl, flytja hjartnæma ræðu um
að þýska þjóðin yrði aldrei sundr-
uð þannig að ekki mætti sameina
hana á ný. Allt fór vel fram en
þann skugga bar þó á að leiðtogi
Austur-Þjóðverja, Erich Hoen-
ecker, skrópaði.
Olíver North
ofursti og einn helsti leikandi í
hinu dramatíska (rans/
Contrahneykslismáli er maður
ekki alveg öruggur um öndina í
barmi sér. Hann hefur farið þess
á leit við lögregluyfirvöld að hans
verði gætt allan sólarhringinn því
hann óttast að einhverjir arabar
bruggi sér banaráð þessa dag-
ana.
Metfé
fékkst á dögunum fyrir fiðlu á
uppboði í Lundúnum. Það var ít-
alski fiðluleikarinn Luigi Alberto
Bianchi sem reiddi fram fjögur-
hundruð og fjörutiu þúsund sterl-
ingspund fyrir gripinn sem hinn
nafntogaði fiðlusmiður, Antonio
Stradivari, skóp á hátindi ferils
síns árið 1716. Það var japanski
Mitsubishi bankinn sem bauð á
móti Bianchi sem sagði alltof
margar fiðlur keyptar af spari-
sjóðum er læstu þær inni í hvel-
fingum þar sem fingur meista-
ranna næðu aldrei til þeirra.
Franskt vegakerfi
mun taka stórstígum framförum á
næstu tíu árum að sögn Jacques
nokkurs Chiracs. [ bígerð er
meira en helmings fjölgun þjóð-
vega og hraðbrauta vítt og breitt
um Frakkland.
Finnland
Ný rfldsstjóm við völd
Harri Holkeriforsœtisráðherra lagði ígærfram ráðherralista samsteypustjórnar Sameiningar-
flokks, Jafnaðarmanna, Sœnskaþjóðar flokksins og Landsbyggðarflokksins. Kalevi Sorsa lét
afformennsku í Jafnaðarmannaflokknum í fyrradag
Eftir að stjórnarmyndarvið-
ræður undir forystu hægri-
mannsins og seðlabankastjórans
Harris Holkeris höfðu staðið yfir
í þrjár vikur tókst loks að mynda
ríkisstjórn á Finnlandi sem styðst
við traustan meirihluta á þingi.
Það eru Þjóðlegi Sameiningar-
flokkur Holkeris sjálfs og Jafnað-
armannaflokkurinn sem eru
hryggjarstykkið í hinni nýju
stjórn en tveir smærri flokicar
fljóta með, Sænski Þjóðarflokk-
urinn og Landsbyggðarflokkur-
inn.
Það munu vera liðin tuttugu ár
síðan hinn hægri sinnaði Samein-
igarflokkur átti síðast aðild að
ríkisstjórn þótt hann hafi um
langt árabil verið næststærsti
stjórnmálaflokkurinn á Finn-
landi, á eftir Jafnaðarmanna-
flokknum.
Kekkonen, fyrrum forseti,
sniðgekk ávallt fyrirmenn flokks-
ins þegar hann fól stjórnmálafor-
ingjum að mynda stjórn því á
þeim árum rak flokkurinn utan-
ríkisstefnu sem var fjandsamleg
grannanum í austri og því gat það
komið sér illa fyrir viðskipta-
hagsmuni Finna að hafa hann í
ríkisstjórn.
En nú er annar uppi, Kekkon-
en er fallinn frá og Sameiningar-
flokkurinn hefur söðlað um í af-
stöðu sinni til Sovétmanna. Því
situr hann nú við stjórnvölinn.
Hór gefur að líta þrjá fyrirmenn hinnar nýju stjórnar á Finnlandi. Frá vinstri: Harri Holkeri forsætisráðherra, Kalevi Sorsa
utanríkisráðherra og llkka Suominen formaður Sameiningarflokksins.
Holkeri gekk í gærmorgun á
fund Maunos Koivistos forseta
og lagði fyrir hann ráðherralista
hinnar nýju stjórnar. Alls munu
ráðherrarnir vera átján, fjórar
kvinnur og fjórtán karlar. Þar af
hafa átta ráðherraembætti fallið
Jafnaðarmönnum í skaut, Sam-
einingarflokkurinn hreppti sjö,
Sænski Þjóðarflokkurinn fékk
tvo stóla í sinn hlut og einn ráð-
herra er úr röðum félaga Lands-
byggðarflokksins.
Nokkur ágreiningur varð um
Umhverfisvernd
Ósonfræðingar
þinga
skiptingu ráðuneyta milli hægri-
manna og krata og var einkum
bitist um fjármálaráðuneytið sem
að endingu féll jafnaðarmönnum
i skaut.
í utanríkismálum verður hald-
ið óbreyttri stefnu frá því í tíð
fyrri stjórnar enda mun hæstráð-
andi hennar, Kalevi Sorsa, hafa
þau mál með höndum auk þess
sem hann verður staðgengill
Holkeris.
Sorsa lét í fýrradag af for-
mennsku í Jafnaðarmanna-
flokknum og bar því við að með
því axlaði hann ábyrgð á tapi
flokksins í kosningunum um dag-
inn. Líklegur sporgöngumaður
hans kvað vera Pertti Paasio en
hann er um þessar mundir for-
maður þingflokksins.
Af öðrum fyrirmönnum er það
helst að segja að formaður Sam-
einingarflokksins, Ilkka Suomin-
en, fer með viðskipta- og iðnað-
armál, kratinn Matti Louekoski
er dómsmálaráðherra og flokks-
bróðir hans, Jarmo Rantanen,
gómaði innanríkisráðuneytið.
Bæði Holkeri og Sorsa telja all-
ar líkur á að stjórnin sitji út kjört-
ímabilið sem er fjögur ár. Af tvö-
hundruð sætum á finnska þinginu
hefur hún umráð yfir hundrað
þrjátíu og einu. Þar af hefur Jafn-
aðarmannaflokkurinn fimmtíu
og sex sæti, Sameiningarflokkur-
inn fimmtíu og þrjú, Sænski þjóð-
arflokkurinn þrettán og Lands-
byggðarflokkurinn níu.
-ks.
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
Vísindamennfrá meira en þrjátíu löndum
luku fundi sínum um varnirgegn eyðingu ós-
onlagsins ígœr. Samkomulag náðistum
fyrstu aðgerðir og verður það kynnt áfundi
umhverfismálaráðherra í Kanada á hausti
komanda
Fundi vísindamanna frá meira
en þrjátíu löndum um það hvern-
ig sporna megi við eyðingu óson-
lagsins lauk i Genf f gær.
Sem kunnugt er varnar óson-
lagið því að útfjólubláir geislar
sólarinnar komist óhindraðir til
jarðar en nú virðist hafa komið
gat á þessa ágætu hlífðarskán og
getur það haft alvarlegar afleið-
ingar í för með sér, til dæmis stór-
aukna útbreiðslu húðkrabba-
meins.
Sem svo margt sem miður fer á
jörðu hér er þessi vá af manna-
völdum. Syndaselurinn er efna-
samsetning nokkur sem gengur
undir nafninu klórflórkolefni
(KFK) og kvað vera brúkuð í hin-
um ýmsu heimilisamboðum, svo
sem ísskápum og hárlakksbrús-
um.
Vísindamennirnir urðu á eitt
sáttir um hvernig bregðast þyrfti
við vandanum þegar í stað en
gátu ekki komið sér saman hvert
yrði heppilegasta framhald fyrstu
aðgerða.
Tillögur vísindamannanna
virðast ekki mjög róttækar en
þær fela í sér að árið 1990 verði
bannað að veita meira magni af
KFK út í andrúmsloftið en gert
var árið 1986 og að árið 1992 yrði
það magn að minnka um tuttugu
prósent.
Um þetta var enginn ágrein-
ingur. Hinsvegar voru uppi tvö
sjónarmið um framhaldsaðgerð-
ir. Hið fyrra var á þá leið að á
næstu sex árum eftir árið 1992
yrði KFK útstreymið dregið sam-
an um þrjátíu prósent ef einfald-
ur meirihluti þjóða sem aðild
ættu að alþjóðasamþykkt um
þetta efni krefðist þess. Hið
síðara er á þá lund að þrjátíu
prósent samdráttur yrði á næstu
átta árum nema tveir þriðju
hlutar aðildaþjóðanna væru and-
vígar.
Mustafa nokkur Tolda, sér-
fræðingur Sameinuðu Þjóðanna í
umhverfismálum, tjáði frétta-
mönnum í gær að áætlun sérfræð-
inganna um fyrstu aðgerðir yrði
fullmótuð á næstu mánuðum og
þvínæst yrði hún lögð fyrir fund
umhverfismálaráðherra hvaðan-
æva að úr heiminum sem haldinn
verður í Montreal í Kanada í
næstkomandi septembermánuði.
Þeir myndu svo væntanlega
byggja alþjóðasamþykkt sína um
þetta mál á þessu sérfræðingaá-
liti. -ks.
óskar að ráða
fólk til bréfberastarfa hálfan daginn í Reykjavík.
Upplýsingar hjá skrifstofu póstmeistara.
Laus staða
Staða yfirmatsmanns á Austfjörðum er laus til
umsóknar. Reynsla af framleiðslu og meðferð
sjávarafurða og réttindi í sem flestum greinum
fiskmats nauðsynleg.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist Ríkismati sjávarafurða, Nóatúni
17, 105 Reykjavík fyrir 10. maí n.k.
Rfkismat sjávarafurða
Útför
Aðalsteins Höskuldssonar
sem lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akranesi 17. apríl verður
gerð frá Langholtskirkju mánudaginn 4. maí kl. 13.30.
Fyrir hönd barna og barnabarna
Helga Aðalsteinsdóttir
Föstudagur 1. maí 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17