Þjóðviljinn - 28.08.1987, Blaðsíða 23
ÍÞRÓTT1R
Spánn
Skellur hjá Everton
Everton fékk heldur slæman
skell gegn Reai Madrid í vináttu-
leik liðanna á Spáni. Real sigraði,
6-1 og hafði ótrúlega yfirburði.
í lið Everton vantaði 5 lands-
liðsmenn og liðið náði sér aldrei á
strik. Það var svo ekki til að bæta
úr skák að Alan Harper skoraði
sjálfsmark.
Emil Butragueno skoraði
fyrsta markið fyrir spænsku
meistarana og því næst kom
sjálfsmark Harpers. Eftir það átti
Everton ekki möguleika.
Butragueno bætti svo við einu
marki, Hugo Sanchez skoraði tvö
mörk og Michel Gonzales eitt.
Paul Power náði að minnka mun-
inn fyrir Everton á 61. mínútu.
Deildakeppnin á Spáni hefst á
sunnudag. Real Madrid eru af
flestum taldir sigurstranglegastir
þrátt fyrir að í lið þeirra vanti
sterka leikmenn. Milan Jankovic
er að jafna sig eftir meiðsli, Jorge
Vaidano er veikur og Pedro
Camacho á við meiðsl að stríða.
Auk Real eru það helst Barce-
lona og Atletico Madrid sem eru
talin líkleg til að hreppa titilinn.
Lið Atletico Madrid hefur
tekið miklum breytingum að
undanförnu. Þar munar mest um
stórstjömuna Paulo Futre, sem
Atletico keypti frá Porton fyrir
sem svarar 140 milljónum kr.
Handbolti
Vertíöin að byrja
Keppni á íslandsmótinu í hand-
knattleik hefst í lok september.
Nokkur breyting hefur orðið á
fyrirkomulaginu og munar þar
mest um tveggja mánaða hlé milli
umferða, en það kemur til vegna
æfinga landsliðsins. Þá hefst
Reykjavíkurmótið fljótlega.
Keppni í 1. deild karla hefst 30.
september og aðrar deildir hefj-
ast skömmu síðar. Leikið er í 1.
deild nokkurnveginn óslitið,
fram í miðjan nóvember, en þá
Valsmenn á heimavelli
kemur tveggja mánaða hlé, fram
í miðjan janúar.
Tvö ný lið í karlaflokki og tvö í
kvennaflokki hafa boðað þátt-
töku. Þróttarar mæta til leiks að
nýju og ísfirðingar eru með í
fyrsta sinn. í kvennaflokki eru
það Grótta og Þór Akureyri. Þá
hefur sú breyting orðið að
meistaraflokkur B kemur í stað 1.
flokks.
Valur er fyrsta Reykjavíkurfé-
lagið sem leikur á eigin heima-
velli, en þeir taka nú í notkun nýtt
hús að Hlíðarenda. Þar komast
fyrir um 800 áhorfendur.
Fyrsta umferð í Bikarkeppn-
inni hefst í lok nóvember og er
þegar búið að draga.
I karlaflokki drógust eftirtalin
lið saman:
ÍH-Stjarnan, Grótta-KR.b, ÍBV-
Valur.b, Fylkir-Þór Akureyri,
Reynir-Haukar, UMFN-Fram,
Valur-KA, ÍS-ÍR, Ármann-
Ármann b, Hveragerði-Þróttur,
Afturelding-Víkingur, ÍBK-
Breiðablik og ÍBV b-KR.
í kvennaflokki drógust eftirtal-
in lið saman:
Afturelding-ÍBK, ÍBV-Breiða-
blik, Þróttur-FH, KR-Víkingur,
Fram-Haukar og Grótta-Valur.
■4be
HM í frjálsum
Hefst um helgina
KeflvíKingar tryggðu sér íslandsmeistaratitilinn í 5. flokki í gær með sigri
gegn Val, 3-1 eftirframlengdan leik. Eftir venjulegan leiktíma varstaðan 1-1, en
Keflvíkingar bættu við tveimur mörkum í framlengingunni. Þetta var annar
úrslitaleikur liðanna, en þeim fyrri lauk með jafntefli, 1-1 eftir framlengdan leik.
Mynd: E.ÓI.
Og þetto líka...
Heimsmeistaramótið í frjálsum
íþróttum hefst nú um helgina í
Róm og stendur til 6. september.
Sex íslenskir keppendur taka
þátt í mótinu. Vésteinn Haf-
steinsson í kringlukasti, Einar
Vilhjálmsson, Sigurður Einars-
son og íris Grönfeldt í spjótkasti,
Helga Halldórsdóttir í 100 og 400
metra grindahlaupi og Þórdís
Gísladóttir í hástökki.
Alls taka 149 þjóðir þátt í
heimsmeistaramótinu og á mót-
inu verða allir sterkustu frjáls-
íþróttamenn heims.
Þórdís keppir fyrst af íslend-
ingunum á laugardagsmorgun,
en síðar um daginn keppa Einar
og Sigurður.
Einar og Sigurður eiga líklega
besta möguleika á að komast í
urslit, en Vésteinn ætti einnig að
ná í úrslit. -4be
Knattspyrna
í kvöld
I kvöld eru tveir þýðingarmikl-
ir leikir í 2. deild karla.
KS og Leiftur leika á Siglufirði
og ÍR og Breiðablik á Kópavogs-
velli. Leikirnir hefjast kl. 19.
Steinunn
Jónsdóttir skoraði mörk Þórs gegn
ÍBK í 1. deild kvenna, en ekki Sigur-
laug Jónsdóttir eins og við sögðum
frá.
Maradona
er rétt eina ferðina kominn af stað og
nú segist hann ætla að yfirgefa Nap-
oli þegar samningur hans rennur út
1989. Hann hafði áður sagt hann
myndi vera áfram, fengi hann fjög-
urra ára samning. Það sem breytti
afstöðu Maradon var vináttuleikur
gegn Rosiaro Central frá Argentínu.
Kemþan misnotaði vítasþyrnu og
fékk eftir það ekki frið fyrir áhorfend-
urm sem bauluðu og flautuðu á hann í
gríð og erg. Að leik loknum lét Mara-
don ófögur orð falla um áhorfendur
og sagðist ekki hafa áhuga á að spila
fyrir þá.
Atletico Madrid
'hefur staðið í ströngu við að endur-
bæta liðið eftir að Jesus Gil var kos-
inn forseti liðsins. Þeir hafa nú mikinn
áhuga á að fá Argentínumanninn Jul-
io Zasmora. Fyrsta verk Gil var að
ráða fyrrum þjálfara Argentínu, Luis
Menotti og hann vill ólmur fá landa
sinn til liðsins. Atletico Madrid keyþti
einnig nú fyrir skömmu Paulo Futre
frá Porto.
Landsliðsþjálfari
Ungverja, Jozsef Verebes hefur sagt
af sér, eftir að hafa þjálfað liðið í átta
mánuði. Hann var ekki ánægður með
gagnrýni fjölmiðla. Hann telur sig þó
hafa náð góðum árangri með liðið,
sigrað í sex af þeim sjö leikjum sem
liðið hefur leikið síðan hann tók við.
Verebes tók við af Imre Komora, en
hann sagði af sér eftir fimm mánuði.
Kveðjuleikur
Brasilíumannsins Mirandinha var
ekki eins og slíkir leikir eru yfirleitt.
Mirandinha er á leið til Newcastle og
lék sinn síðasta leik með Palmeiras
gegn Sao Paulo. Hann var rekinn af
leikvelli fyrir að mótmæla þriðja marki
Sao Paulo. Þrír félagar hans fengu
sama skammt. Leiknum lauk með
sigri Sao Paulo, 3-1.
1 x 2
1x2 1x2
þJÓÐVIUINN
0 68 13 33
Tímiim
0 68 18 66
0 68 63 00
Blaóburóur er
BESTA TRIMMIÐ
og borgar sigid
LAUS HVERFI
NÚ ÞEGAR:
^ > É íoO 'Sr
ÚT5 QhOHOHIHO
Fram-Viðir....................................2 1112 1111
Arsenal-Portsmouth............................1 11111111
Charlton-Manch.Utd............................2 2 2 2 2 2 2 2 x
Chelsea-Luton.................................x x 1 x 1 1 1 1 1
Coventry-Liverpool............................x 2 2 2 2 1 x x 2
Derby-Wimbledon...............................1 1 1 1 1 x 1 1 x
Everton-Sheff.Wed.............................1 11111111
Newcastle-Nott.Forest.........................1 x x x x 1 x x x
Southamþton-Q.P.R............................x x x 2 2 1 1 12
Watford-Tottenham.............................2 2 2 2 2 2 2 1 x
West Ham-Norwich..............................1 2 1 1 x x 1 1 1
Ipswich-Stoke.................................1 2 1 x 1 1 1 x x
Fjölmiðlagetraunin heldur áfram og nú hafa Stöð 2 og Stjarnan bæst í
hópinn.
Nokkarar nýjungar eru í starfi Islenskra getrauna. Þar ber hæst að ef
enginn er með 12 rétta bætist 1. vinningur við í næstu viku. Þá verða einnig
íslenskir leikir á seðlinum og sá fyrsti er úrslitaleikur Mjólkurbikarkeppninn-
ar, Fram-Víðir.
Seltjarnarnes
Vesturbær
Smáíbúðahverfi
Seljahverfi
Hafðu samband við okkur
þJÓOVILIINN
Síðumúla 6
0 68 13 33