Þjóðviljinn - 27.09.1987, Qupperneq 20

Þjóðviljinn - 27.09.1987, Qupperneq 20
Sænska/Norska/Danska/ fyrir börn 7-10 ára Fyrirhugað er að hefja kennslu á sænsku/norsku/ dönsku fyrir börn á aldrinum 7-10 ára og hafa einhverja undirstöðu í þessum málum. Kennsla ferfram síðdegis í Miðbæjarskóla, tíma- setning óákveðin enn. Kennt verður 1 klst. í viku í 10 vikur. Skráning stendur yfir í símum 12992 og 14106 daglega kl. 13-20. Kennslugjald er kr. 1.300.-, og óskast greitt í fyrsta tíma. Skólastjóri A Lóðaúthlutun í Kópavogi Kópavogskaupstaður auglýsir lóðir við Fagra- hjalla til úthlutunar. Lóðirnar eru í reit „c“ í Suður- hlíð, sunnan Hjallaskóla. Um er að ræða 38 ein- býlishúsalóðir og 5 lóðir undir klasahús sem eru 5 á hverri lóð. Klasalóðunum verður úthlutað til eins byggingaraðila hverri um sig. Gert er ráð fyrir að hefja megi byggingarframkvæmdir uppúr miðju ári 1988. Uppdrættirnir og nánari upplýs- ingar liggja frammi á tæknideild Kópavogskaup- staðar, Fannborg 2,3. hæð. Umsóknareyðublöð fást á sama stað. Umsóknarfrestur er til 9. október n.k. Bæjarverkfræðingur Viltu koma í vinnu á skemmtilegum vinnustað? Á stað þar sem þú gætir jafnvel haft barnið þitt með þér. Á dagheimilið Dyngjuborg, Dyngjuvegi 18, vantar okkur fóstrur eða fólk sem hefur áhuga og/eða reynslu í uppeldisstörfum. Nú eru lausar hjá okkur þrjár heilar stöður auk hálfrar stuðn- ingsstöðu fyrir barn með sérþarfir. Komdu í heim- sókn eða aflaðu þér upplýsinga hjá Önnu eða Ásdísi í síma 38439 eða 31135. Þjóðhagsstofnun Þjóðhagsstofnun óskar að ráða hagfræðing eða viðskiptafræðing til starfa. Þjóðhagsstofnun óskar að ráða starfsmann til skrifstofustarfa. Stúdentspróf á viðskiptasviði og reynsla í notkun tölva æskileg. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra bankamanna og bankanna. Umsóknarfrestur er til 15. október n.k. ÞJÓÐHAGSSTOFNUN Kalkofnsvegi 1 150 Reykjavík Skóladagheimilið Völvukot við Völvufell vantar starfsfólk: • Fóstru • Fólk með sambærilega menntun. • Ófaglært fólk, m.a. í eldhús. Upplýsingar í síma 77270. Jón Hjartarson og Sigurður Karlsson í hlutverkum sínum í Föðurnum. Hófstillt örvœnting Leikfélag Reykjavíkur sýnir FÖÐURINN eftir August Strindberg Leikstjóri: Sveinn Einarsson Leikmynd: Steinunn Þórarinsdóttir Þýðing: Þórarinn Eldjárn Leikmynd Steinunnar Þórar- insdóttur er einfölduð og stílfærð stofa, þrír hálfgagnsæir veggir, sófi, borð og stóll. Tímalaus mynd sem færir verkið burt frá tímabundnu raunsæi Strindbergs og opnar möguleika til túlkunar sem hefur verkið yfir stund og stað, notfærir sér það sjónræna frelsi sem þannig gefst, beinir sjónum okkar að innviðum text- ans og getur leyft sér espressjón- íska beitingu ljósa sem fylgja dramatískum sveiflum verksins og mismunandi geðshræringum með sveiflum í lit og ljósstyrk í æfðum höndum Árna Baldvins- sonar. Sveinn Einarsson hefur valið þessu aldargamla verki umgerð sem gerir honum kleift að leggja áherslur sem opna verkið fyrir nútímafólki og gera það okkur nákomið og viðkomandi. Hér hjálpar einnig til ný og vönduð þýðing Þórarins Eldjárns á nú- tímalegu og eðlilegu máli. Sveinn hefur valið sýningunni hófstilltan leikstíl sem dregur úr tilfinninga- ofstopa og geðtruflun en beinir sjónum að hugmyndalegu inni- haldi verksins og gerir okkur ljóst að hegðan persónanna stjórnast ekki einvörðungu af sterkum til- finningum heldur einnig af skýrri hugsun. Uppstillingar Sveins eru myndrænt sterkar og hrynjandi sýningarinnar með ágætum. Skilningur Sveins á margslungn- um texta Strindbergs er djúpur og þroskaður og birtist það í því hvernig honum tekst að láta hreyfingu og mynd, ljós og rödd vinna saman til að skýra merk- ingu textans. Sigurður Karlsson hefur verið vaxandi leikari um langt skeið, bætt við sig í tækni og þroska jafnt og þétt og náð langt eins og nýleg dæmi Bjarna í Svartfugli og Gunnars í Degi vonar sýna glöggt. Hér tekst hann á við sitt erfiðasta hlutverk til þessa og kemst frá þeirri glímu uppistand- andi með fullri reisn. Sigurði tekst að gera höfuðsmanninn skiljanlegan sem hugsandi veru og tilfinningamanneskju, okkur dettur ekki í hug að afgreiða hug- aróra hans og sinnistruflun sem einskæra geðveiki heldur neyðir hann okkur til að horfast í augu við undirrót þeirra og finna skyldar hugsanir og tilfinningar innra með okkur sjálfum. Túlkun Sigurðar er óvenjulega heil- steypt, þróun persónunnar upp- lýkst skýrt og greinilega fyrir áhorfandanum. Sigurði tekst frá- bærlega vel að feta einstigi milli brjálsemi og skýrrar hugsunar í þriðja þætti, og einmitt vegna hófstillingar í ytri leik finnur maður sterkt fyrir innri sársauka og örvæntingu persónunnar. SVERRIR HÓLMARSSON Ragnheiður Elfa Arnardóttir er hörð og blíð í senn í hlutverki Láru. Einnig henni tekst að gera þessa persónu svo skiljanlega að maður fær samúð með henni - gerir hana ekki að þeim kvend- jöfli sem hún auðveldlega getur orðið sé hart keyrt á sterkar til- finningar og grófar andstæður. Skorti hana nokkuð á að skapa eins heillega persónu og Sigurður gerir er það a.m.k. sumpart vegna þess að persónan er ekki eins mikil völundarsmíð frá höf- undarins hendi. En samleikur þeirra tveggja var einkar sterkur í uppgjörinu mikla í lok annars þáttar. Guðrún Stephensen er traust og hlý í hlutverki fóstrunnar, en það var eins og einhvern streng skorti í samleik hennar og Sigurð- ar. Guðrún Marínósdóttir betra sambandi með opinni einlægni sinni í hlutverki dótturinnar. Jak- ob Þór Einarsson var dálítið vandræðalegur í fasi í hlutverki læknisins og túlkunin að mínu mati of væskilsleg frá hendi leikstjórans. Jón Hjartarson var hins vegar mátulega veimiltítu- legur prestur og Hjálmar Hjálm- arsson kom þekkilega fyrir sem ungur hermaður. Hér er á ferðinni óvenjulega vönduð og vel hugsuð túlkun á sígildu leikhúsverki sem á brýnt erindi við okkur hér og nú eitt hundrað árum eftir að það var ritað. Strindberg hefur stundum verið sakaður um kvenhatur en það eru tæplega maklegar ásak- anir. Lára beitir að vísu grimmi- legum vopnum í baráttu sinni við eiginmanninn en hún beitir þeim í nauðvörn gegn ofríki hans og á varla annarra kosta völ vilji hún ekki gefast upp með öllu. Þetta leikrit er ótrúlega snjöll og djúp greining á samskiptum og baráttu kynjanna á okkar dögum. Ótti og öryggisleysi karlmannsins á sér rætur í minnimáttarkennd hans gagnvart konunni (vegna þess að hún getur fætt af sér líf) annars vegar en hræðslu hans við kyn- ferðislegan styrk hans hins vegar, auk erfiðleika hans við að halda móður og ástkonu aðskildum. Og vegna þess að borgaralegt hjóna- band í auðvaldsþjóðfélagi er í eðli sínu viðskiptasamningur verður baráttan milli kynjanna um leið barátta um eignarétt, þar á meðal eignarétt yfir börnum. Og þar lumar konan á þeim vopn- um sem duga. Höfuðsmaðurinn hefur varpað frá sér trúnni á guð og tekið í staðinn trú á skynsemi og vísindi. Hann þráir að vinna afrek á vís- indasviðinu, gera uppgötvanir, skapa eitthvað með hugsun sinni úr því hann getur ekki skapað það með líkamanum. En trú hans á vísindin reynist gagnslaus þegar hann á í höggi við konuna sem þiggur styrk sinn frá innsta eðli sjálfs lífsins. Þá bíður skynsemis- hyggja hans skipbrot og sturlun og dauði eru einu undankomu- leiðirnar. Vandi höfuðmannsins er um margt vandi karlmannsins enn þann dag í dag. Kvöldstund með Srindberg í Iðnó getur hjálpað okkur að horfast í augu við þenn- an vanda. Sverrir Hólmarsson 20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 27. september 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.