Þjóðviljinn - 18.10.1987, Side 4
„Erum við kannski
allir dauðir?"
Bílaverkstœði Badda, nýtt leikrit eftir Ólaf Hauk d Litla sviði
Þjóðleikhússins
Þú veist ekki hvort þú ert
staddur á bílaverkstæði eða í
leikhúsi. Er það ekki einmitt
tilgangur leikhússins að rugla
áhorfandann í „rýminu", svo
hugsun hans skýrist. Skítugt
bílaverkstæðið blasir við, þar
ægir saman alls kyns dóti,
varahlutum, dekkjum, verk-
færum; allt útatað í olíu og
smurningu. Mennirnirsem
vinna þar hrækja á gólfið þar
sem þeir eru staddir. Þú ert í
leikhúsi. Innafverkstæðinuer
heimili Badda. ÞarsiturSissa
dóttir hans og prjónar eilífðar-
trefil...
Baddi reynir að stilla vinnu-
menn sína til friðar, son sinn og
tengdason, sem láta skærin ganga
liðlangan daginn. Er þetta
kannski venjulegur vinnustaða-
mórall? Endurspeglar þann
gálgahúmor sem oft einkennir
vinnustaði. Líkhúsmórall er víst
bestur. Húmorinn er þáttur í að
upphefja hversdagsleikann, og
láta ekki kæfa sig niður í svaðið.
Það er kannski þess vegna sem
skáld og listamenn taka sjálfa sig
svo hátíðlega. Alla vega eru til
frægari sögur af húmor sem
gengur á heilaskurðstofum og oní
skurðum, en af viðbrögðum við
gagnrýni eða af vinnustofum
listamanna. En skærurnar sem
ganga á milli Ragga og Haffa, eru
líka leið eins til að kúga annan.
Og aðferð höfundar til að undir-
strika persónuleika þeirra...
„Erum við kannski allir
dauðir," fílósóferar Haffi, við
Ragga sem liggur oní gryfju undir
biluðum heyblásara. Þannig
gengur lífið sinn vanagang og
sársaukinn sem fylgir þessari til-
vist er þegar sterkur tónn. Sissa
eldar þverskorna ýsu dag eftir
dag, og á það til að gleyma kart-
öflunum. Hún er á valdi hugar-
heims, þar sem kartöflusoðning
skiptir ekki máli. Sissa er inní sig
og utanvið sig, en engum dettur í
hug að neitt sé að. Þetta er bfla-
verkstæði í afskekktri sveit, sem
„gleymdist“ þegar nýi þjóðvegur-
inn var lagður. Helst lítur út fyrir
að það þurfi að synda yfir stór-
fljót til að komast þangað. Seinna
kemur í ljós að áin er bara lækur,
sem hægt er að klofa yfir. Þá dett-
ur manni í hug að höfundur sé að
færa manni tákn; til að finna
vörðu á leiðinni.
Því leiðin stefnir
í margar áttir
Þetta er sumsé ósköp venjulegt
bflaverkstæði. Gróft, en svo eru
manneskjur sem halda þar til.
Eins og það séu þeirra staðföstu
örlög, sem ekkert fær umflúið.
Þetta minnir á helvíti. Vélar og
bflar, skítur og drulla; menning
sem manneskjur eru ofurseldar
og komast ekki burt frá. En
leikritið er ekki klisja um vélam-
enningu. Það er annað og meira.
Leikritið er um ástir og hatur vin-
áttu og framhjáhald, glæp eða
ekki glæp, heilbrigði og geðveiki,
hvort tveggja jafn mikið innan
gæsalappa.
Svo kemur gestur langt að inná
napurt verkstæðisgólfið. Og eins
og í sögunni um Starkað gamla,
þá er leikritið um hvernig fortíðin
kemur aftan að manni, þó það
líði mörg ár. Þó það líði 300 ár.
Hvort sem um er að ræða heilt
mannkyn eða eina persónu. For-
tíðin kemur aftur og aftur, aftan
að manni og stendur loks fyrir
framan mann og varnar manni
leiðarinnar. Fortíðin lokar
hringnum þar sem áður var fram-
tíð, eða staðnaður nútími á vísum
stað. Þá ertu í vítahring. Hvernig
ætlar þú að bregðast við? Hvern-
ig ætlarðu að leysa úr flækjunum?
Ekkert gerist. Engin mál eru
leyst. Samt er búið að gera allt.
Voveiflegir atburðir hafa gerst og
líklegast er búið að brjóta niður
hamingjuvon og sálarheill per-
sónanna alveg. Og maður neyðist
til að spyrja sjálfan sig: Hvemig
gat þetta farið öðru vísi?
Það er óhætt að taka undir að
nýjasta leikrit Ólafs Hauks
Símonarsonar er spennuverk.
Leikurinn gerist á Litla sviði
Þjóðleikhússins og frumsýning er
í dag. Þórhallur Sigurðsson er
leikstjóri og Grétar Reynisson
gerir leikmynd og búninga. En
þeir unnu báðir að leikriti Ólafs
„Milli skinns og hörunds“, sem
Þjóðleikhúsið sýndi árið 1984.
Björn B. Guðmundsson sér um
lýsingu. Valið lið leikara fer með
öll hlutverk í sýningunni; Bessi
Bjarnason leikur Badda, Arnar
Jónsson leikur Pétur sem kemur
sem gestur þegar síst varír, Sig-
urður Sigurjónsson leikur Ragga
tengdason Badda, Jóhann Sig-
urðarson fer með hlutverk Haffa,
sonar Badda, Guðlaug María
Bjarnadóttir er í hlutverki Sissu,
dóttur Badda, Árni Tryggvason
fer með hlutverk kennarans sem
á síbilaðan bfl. Þú þarft ekki að
eiga bilaðan bfl til að... -ekj-
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 18. október 1987