Þjóðviljinn - 18.10.1987, Qupperneq 9
Islander
fundarstaður
fyriitaks
„ ísland er um margt ákjósan-
legur vettvangur fyrir fundi og
ráðstefnurog að mínu mati
þurfum við að gera stórfellt
átak til að kynna hvað við höf-
um upp á að bjóða. Það er
mikið í húfi: Á síðasta ári voru
haldnar í Evrópu 60.000 ráð-
stefnur og fundir og var helm-
ingur þeirra með 300 þátttak-
endur eða færri, sem við
ráðum ákaflega vel við. Bretar
fengu einn níunda af þessum
fundum og tekjurnar námu
400 milljónum sterlings-
punda, sem sýnir glöggt að
eftir miklu er að slægjast,11
sagði Júlíus Hafstein, for-
maður Ferðamálanefndar
Reykjavíkurborgar, í samtali
við Sunnudagsblaðið. í síð-
ustu viku var haldin ráðstefna
á vegum nefndarinnar undir
yfirskriftinni „Reykajvík-
fundarstaðurframtíðarinnar".
- En er einhver niunur á ráð-
stefnugestum og venjulegum
ferðamönnum?
„Þeir sem sækja ráðstefnur eru
undantekningarlítið á vegum fyr-
irtækja, félaga eða samtaka, sem
greiða fyrir þá flugfar, gjöld, gist-
ingu og uppihald. Þeir geta þess-
vegna eytt sínum eigin peningum
í annað; verslanir, veitingahús og
þjónustu af ýmsu tæi. Það er því
engin spurning að þetta fólk
skilur meira eftir sig hérlendis en
venjulegir túristar. En vitaskuld
eigum við að bjóða alla ferða-
langa velkomna. Það er þó um-
deilanlegt hvort við eigum að
kappkosta að fá sífellt fleiri
ferðamenn. f mínum huga er það
ekkert takmark í sjálfu sér að
auka ferðamannastrauminn úr
120 þúsund í 150 þúsund. Aðalat-
riðið er að við höfum tekjur af
þessu eins og hverjum öðrum at-
vinnuvegi. Með því að gera út á
ráðstefnumarkaðinn getum við
líka lengt ferðamannatímann og
nýtt gistirýmið og þjónustuna
betur“.
- Höfum við það sem til þarf til
að halda fjölmennar ráðstefnur?
„Já, alveg tvímælalaust. Við
höfum mikið af fyrirtakshótelum
og góða veitingastaði, þótt þeir
séu almennt í dýrari kantinum.
Eins er flutningsþjónustan til fyr-
irmyndar. Síðan eigum við að
leggja áherslu á sérkenni okkar:
Hreina loftið, náttúruna, menn-
inguna og síðast en ekki síst það
öryggi sem við höfum fram yfir
flest lönd.
Það sýndi sig á síðasta ári þegar
leiðtogafundurinn var haldinn
hér að við ráðum vel við að skipu-
leggja stórviðburði. Framlag ís-
lands vakti mikla athygli og land-
kynningin var ómetanleg.“
- En hvaða úrbætur þarf að
gera svo Island geti farið að aug-
lýsa sig sem ráðstefnuland?
„Það eru vitaskuld ýms atriði,
bæði stór og smá, sem færa má til
betri vegar. En nú virðist í fyrsta
skipti áhugi á því að þeir aðilar
sem tengjast þessu máli fari að
vinna markvisst saman. Á ráð-
stefnunni í vikunni lagði forstjóri
einnar af stærstu ferðaskrifstof-
unum til að hópur markaðsfræð-
inga yrði settur á laggirnar sem að
einhverju leyti myndi leysa t.d.
hið pólitískt kjörna Ferðamála-
ráð af hólmi. Þessi tillaga er at-
hyglisverð."
- Hvað er það sem útlendingar
hafa helst út á landið að setja fyrir
ráðstefnur?
„í síðustu viku var haldinn
fundur fjármálastjóra Volvo og
þeir voru Spurðir hvernig þeim
líkaði. Jú, alveg prýðilega, sögðu
þeir. Náttúran er sérstæð, hótel
og veitingastaðir góðir, landið er
spennandi og margt að skoða en
það vantar bjórinn! Og þótt bjór-
leysið eitt og sér fæli menn kann-
ski ekki fá þá er afar brýnt að
alþingi taki á þessu máli. Það er
satt að segja afar skondið að sjá
skiltin í nýju flugstöðinni:
Gleymið ekki bjórnum! Útlend-
ingum finnst þetta beinlínis
hlægilegt."
- Hvernig er vænlegast að ná
til þeirra sem halda ráðstefnur?
„í Bandaríkjunum er á hverju
ári gefinn út listi yfir 500 stærstu
fyrirtækin. Ég hef lagt til að við
sendum a.m.k. helmingi þessara
fyrirtækja upplýsingar um það
sem við höfum upp á að bjóða og
fylgjum málinu síðan eftir með
heimsóknum. Á þann hátt mynd-
um við ná til þeirra sem taka á-
kvarðanir um staðarval funda og
ráðstefna. Flest eru þetta fjöl-
þjóðafyrirtæki með útibú í Evr-
ópu og jafnvel víðar. ísland hent-
ar því vel sem fundarstaður - við
erum miðsvæðis og við höfum
það sem til þarf“.
-þj.
Júlíus Hafstein: 60 þúsund ráðstefnur haldnar ÍEvrópu á
síðasta ári. Miklir fjármunir í húfi og við gœtum lengt
ferðamannatímabilið. Síðan vantar okkur bjór!
Sunnudagur 18. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
R«jj REYKJKMIKURBORG Rf |
* Sfötáci *
Fjölskylduheimili
fyrir unglinga
Laus er staða starfsmanns við fjölskylduheimili
fyrir unglinga.
Um er að ræða vaktavinnu kvöld, nætur og helg-
ar.
Æskilegt er að umsækjandi hafi menntun og/eða
reynslu á sviði uppeldismála.
Upplýsingar um starfið eru gefnar í síma 681836
eftir kl. 16.00. Umsóknarfrestur er til 25. október.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
eyðublöðum sem þar fást.
REYKJMJÍKURBORG
AcMteVl St&díVl
Dagvist barna
Vesturbær
Fóstrur óskast til starfa allan daginn á dagheimil-
ið Vesturborg, Hagamen 55. Upplýsingar gefur
forstöðumaður heimilisins og umsjónarfóstrur á
skrifstofu dagvistar barna, sími 27277.
REYKJMJÍKURBORG
Aautovi Stfctcci
Dagvist barna
Árborg - Árbær
Yfirfóstru, fóstrur og aðstoðarfólk vantar eftir há-
degi á leikskólann Árborg, Hlaðbæ 17. Upplýs-
ingar gefa framkvæmdastjóri og umsjónarfóstrur
á skrifstofu dagvistar barna, sími 27277.
Hl REYKJMJÍKURBORG |W|
Acuc&vi Stödusi T
Dagvist barna
Dagheimilið Valhöll
Fóstrur og aðstoðarfólk óskast til starfa á dag-
heimilið Valhöll, Suðurgötu 39. Um er að ræða
störf á eins til tveggja ára deild. Upplýsingar gefur
forstöðumaður heimilisins og umsjónarfóstrur á
skrifstofu dagvistar barna, sími 27277.
REYKJKMÍKURBORG
JÍCMMIX StödfVl
Störf á leikskólum
Fóstrur og aðstoðarfólk vantar á leikskólana Bar-
ónsborg, Njálsgötu 70 og Holtaborg, Sólheimum
21. Um er að ræða störf eftir hádegi. Upplýsingar
gefa forstöðumenn heimilanna og umsjónar-
fóstrur á skrifstofum dagvistar barna sími 27277.
Auglýsið í Þjóðviljanum