Þjóðviljinn - 18.10.1987, Side 23

Þjóðviljinn - 18.10.1987, Side 23
SKÁK HM-einvígið Litlaust jafntefli í þriðju skák Jafntefli varð í þriðju einvígis- skák Anatolv Karpovs og Garrí Kasparovs í Sevilla á Spáni í gær. Skákin var fremur viðburða- snauð, eigi ósvipuð 1. skák ein- vfgisins. Karpov komst ekkert áfram gegn öruggri byrjunartafl- mennsku Kasparovs og stóð um tíma lakar að vígi. Kasparov er greinilega enn í sárum eftir tapið á miðvikudag, því hann gerði enga tilraun til þess að fylgja eftir heldur betra tafli og bauð jafntefli eftir 29 leiki sem Karpov þáði um- svifalaust. Karpov heldur vinn- ingsforskoti en búast má við að Kasparov tefli stíft til sigurs í fjórðu skákinni sem tefld verður á mánudaginn. Hann fær tvo daga til að safna kröftum og væntanlega að lappa upp á enska lekinn sem brást svo hrapallega. Þó Karpov geti enn fagnað vinningsforskoti þá virðist hann eiga erfitt með að komast áleiðis gegn Griinfelds-vörn heims- meistarans og verður væntanlega að skerpa vopnin fyrir næstu skákir. Hann tefldi afar litlaust í gær í stað þess, sem margir hefðu talið vænlegra, að spila út ein- hverju byrjanatrompinu og reyna að fylgja eftir góðum sigri. 3. einvígisskák: Anatoly Karpov - Garrí Kasparov Griinfelds vörn 1. d4-Rf6 2. c4-g6 3. g3 (Karpov heldur fast við sömu byrjunaráætlunina.). 3. .. c6 4. Bg2-d5 5. cxd5-cxd5 6. Rf3-Bg7 7. Rc3-0-0 8. Re5-e6 9. 0-0-Rfd7 10. f4-Rc6 11. Be3-Rb6 12. Bf2-Re7 (Keppendur léku fyrstu 12 leikina á aðeins 18 mínútum en hér breytir Kasparov út af tafl- mennsku sinni í 1. skák þegar hann lék 12. .. Bd7. Það er hugs- anlegt að hann telji svörtu stöð- una helsti þrönga eftir 13. e4 Re7 14. Rxd7 Dxd715. e5, þó Karpov hafi ekkert getað sannað þar um í áðurnefndri viðureign. I frétta- skeytum var þess getið að 12. leikur Kasparov hafi ekki komið áskorandanum ýkja mikið á óvart enda er hann fyllilega í anda stöðunnar.) ✓ 13. a4 (Framrás e-peðsins á ekki eins vel við í þessari stöðu. Svartur stendur traustum fótum á mið- borðinu eftir uppskipti á e4. Karpov leitar því fanga á drottn- ingarvæng.) 13. .. a5 14. Db3-Bd7 15. Hfcl-Bc6 16. Rb5 20. Bfl-f6 21. Rf3-Dd7 22. Dc2-Rf5 23. Bd2-Rd6! (Karpov hefur ekki tekist að finna neinn höggstað á Kasparov og situr nú uppi með ýmsa stöðu- lega veikleika. Frumkvæðið er nú kyrfilega í höndum svarts. í öllu falli er ljóst að að Karpov stefndi ekki að þessari stöðu í undirbún- ingi sínum fyrir einvígið.) (í nánast samhverfa stöðu nýt- ur hvítur örlítið meira rýmis en hann hefur orðið að gjalda fyrir það með framrás f-peðsins sem er dálítið úr takt við stöðuna.) 16. .. Rbc8 (Það væri óskynsamlegt að leyfa riddaranum að dvelja óá- reittum á b5. Kasparov leitar því uppskipta.) 17. e3-Rd6 18. Rxd6-Dxd6 19. Bel-Hfb8 24. b3-Hc8 25. Ddl-h6 (Undirbýr peðaframrás kóngs- megin. Kasparov heldur því opnu hvert riddarinn heldur.) 26. Bel-g5 27. Ha2-De8 28. Hac2-Bf8 29. Bd3-g4 Hvítur hefur gert það besta út úr heldur daufum möguleikum og með þessum leik afsalar Kasp- arov sér öllum möguleikum til að tefla til sigurs. Hann gat reynt að fylkja liði sínu eftir g-línunni en hvítur hefur alltaf vissa mótspils- möguleika eftir c-línunni. Leiknum fylgdi jafnteflistilboð sem Karpov þáði. Þó aðeins hafi verið skipt upp á peði og manni er staðan föst fyrir og hvergi hægt að brjótast í gegn. Jafnteflistilboðið er frá sálfræðilegum sjónarhóli skiljanlegt. Kasparov vill jafna sig eftir ófarirnar í 2. skák. Staðan: Karpov 2 - Kasparov 1 Alþjóðlega mótið í Ólafsvík: Jón L. sigraði Jón L. Árnason stórmeistari sigraði á alþjóðlega mótinu í Ól- afsvík sem lauk í gær. Jón sigraði Norðmanninn Peter Haugli en helsti keppinautur hans, Svíinn Danieisson gerði jafntefli og varð Vi vinningi á eftir Jóni. Björgvin Jónsson sem byrjaði mótið mjög vel tapaði biðskák á fimmtudags- kvöldið fyrir Tómasi Björnssyni og við það minnkuðu möguleikar hans á áfanga að alþjóðlegum titli verulega. Hann gerði svo jafntefli í gær og var Vi vinningi frá áfang- anum, sem var 7 vinningar. Úrslit urðu annars þau að Jón L. vann Haugli eins og áður sagði, Karl vann Sævar, Schan- dorf vann Dan Hansson, en jafn- tefli gerðu Danielsson og Ingvar Ásmundsson, Þröstur Þórhalls- son og Tómas Björnsson, og Björgvin og Thomas Bator. Lokastaðan á mótinu varð þessi: I. Jón L. Árnason IVi v. 2. Dani- elsson (Svíþjóð) 7 v. 3.-4. Schan- dorf (Danmörk) og Björgvin Jónsson 6V2 v. 5.-6. Karl Þor- steins og Þröstur Þórhallsson 6 v. 7. Ingvar Ásmundsson 5 v. 8.-10. Bator (Svíþjóð) Tómas Björnsson og Sævar Bjarnason 4Vi v. hver. II. -12. Dan Hansson og Ilaugli (Noregur) 4 v. \ Minjagripir Tillögur sem bárust í samkeppni um minjagripi verða tii sýnis á Kjarvalsstöðum frá 17. okt. til 22. okt. n.k. Ferðamálanefd Reykjavíkur Sunnudagur 18. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23 Fundarboð Stjórn Sjóefnavinnslunnar h.f. boðar til hluthafa- fundar laugardaginn 31. október 1987, kl. 14.00 í Glaumbergi Keflavík. Rætt verður um stöðu og framtíðarhorfur félags- ins. Á dagskrá eru tillögur til breytinga á samþykktum félagsins: 1. Tillaga um lækkun hlutafjár um kr. 36.000.000, þ.e. úr kr. 40.000.000 í kr. 4.000.000 til jöfnunar taps. 2. Tillaga um að stjórn félagsins verði heimilað að auka hlutafé þess um allt að kr. 50.000.000 í kr. 54.000.000 með nýju hlutafjárútboði og selja það hlutafé jafnt núverandi hluthöfum sem öðrum að- ilum með þeim kjörum, að * 1 II.A hluti þess greiðist í peningum en eftirstöðvar þess greiðist með verðtryggðu veðskuldabréfi til 5 ára, er beri 5% ársvexti. Stjórn félagsins ákveði áskriftarfrest að aukningarhlutum. Engar viðskiptahömlur verði á sölu hluta til innlendra aðila í samræmi við 8. gr. samþykkta fyrir félagið. Reykjavík, 16. okt. 1987 Stjórn Sjóefnavinnslunnar hf. Frá Kennara- háskóla íslands Samkvæmt lögum nr. 48/1986 eiga þeir sem hafa verið settir kennarar við grunnskóla sex ár eða lengur en fullnægja ekki skilyrðum laganna um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra, rétt á námi við Kennaraháskólann til að öðlast slík réttindi. Nám þetta mun hefjast í janúarbyrjun 1988. Um- sóknir um námið þurfa að berast Kennaraháskól- anum fyrir 15. nóvember n.k. Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans og verða send þeim, sem þess óska. Rektor Lyftaramenn Skipadeild Sambandsins Holtabakka óskar eftir að ráða lyftaramenn til framtíðarstarfa sem fyrst. Mötuneyti á staðnum. Nánari upplýsingarveitiryfirverkstjóri ástaðnum. SKIPADEILD SAMBANDSINS HOLTABAKKA - SÍMI 685160 Jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa Helga J. Halldórssonar fyrrverandi kennara við Stýrimannaskólann í Reykjavík, fer fram frá Laugarneskirkju fimmtudaginn 22. október kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélag íslands. Guðbjörg Guðbjartsdóttir Sigrún Helgadóttir Ari Arnalds Guðný Helgadóttir Þorbjörg Helgadóttir Jorgen H. Jorgensen Áslaug Helgadóttir Nicholas J.G. Hall og barnabörn

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.