Þjóðviljinn - 14.10.1988, Blaðsíða 32
P&Ö/SÍA
Að vera
sjálfum sér trúr...
Um síðustu helgi opnaði
KRON nýja matvöruverslun,
„Miklagarð vestur í bæ“ í gröf
matvörumarkaðs JL. JL er
reyndar ekki eina matvöru-
verslunin sem farið hefur á
hausinn að undanförnu, þar
er af nógu að taka og má þar
nefna matvöruverslunina Víði
sem fór yfirum með bravör.
Það vekur því athygli að ný-
ráðinn verslunarstjóri „Mikla-
garðs vestur í bæ,“ er einn af
fyrrum eigendum Víðis, Matt-
hías Sigurðsson. Matthías
rak Víði á tímabili með Eiríki
bróður sínum, en saman
lögðu þeir út í miklar fjárfest-
ingar sem urðu fyrirtækinu of-
viða. Faðir þeirra bræðra,
Sigurður Matthíasson rak
Víði um langt árabil og stóð
sig vel. Þeir'Víðisfeðgar voru
hins vegar kunnir fyrir að
versla aldrei við SÍS og aldrei
hafðu þeir snitti til sölu í versl-
un sinni, sem mátti rekja til
Framsóknarverslunarinnar.
Nú þegar Matthías er hins
vegar farinn að vinna að því
að gera veg samvinnuversl-
unarinnar sem mestan, þykir
mönnum sem hér hafi sann-
ast ,.að neyðin kenni naktri
konu að spinna“...B
Mikið fyrir lítið
Talandi um Miklagarð. Þrátt
fyrir þá kenningu Þrastar Ól-
afssonar að sókn sé besta
vörnin, sem lýsir sér í að
KRON opnar nýja verslun í
rústum JL-matvörumarkaðs-
ins, að þá mun staöa Miklag-
arðs „hins austræna" vera
mjög slæm. Er svo komið að
Mikligarður er kominn í
margra mánaða vanskil við
marga af þeim heildsölum
sem fyrirtækið verslar við,
með tilheyrandi dráttarvöx-
tum og rýrnandi viðskiptavild.
Varla verður það til að lækka
vöruverð til neytanda, en
kannski má segja að Mikli-
garður sé þarna að framfylgja
eigin slagorði; Mikið fyrir lítið.
Versluin fái nú mikið frá
heildsölum, en gefi þeim lítið á
móti...B
Friðelskandi
Hannes
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson sem eins og all-
ir vita komst af eigin rammleik
til metorða í Háskóla íslands,
hefur haft um það mörg orð í
fjölmiðlum að hann vilji og eigi
gott samstarf við samkennara
sína. Hann mun hins vegar
fara í fínustu taugar margra
þeirra. Hannes er nefnilega
skrifstofulaus og um leið og
einhver kennari yfirgefur skrif-
stofu sína er Hannes kominn
þangað inn og farinn að mala í
símann. Hafa sumir kennar-
anna rætt þann möguleika að
fá hugvísinda- og raunvís-
indamenn skólans til að vinna
saman að því að finna upp
sérstaka Hannesarvörn.B
Enn og aftur um Hannes.
Hann er virðist vera maður
mikillar ræktarsemi við nem-
endur. Ekki er nóg með að
hann rækti tómar skrifstofur
heldur hefur hann kallað ein-
staka nemendur á sinn fund til
að kanna hvernig landið
liggur. Það vekur athygli að
einn af þeim nemendum sem
hann kallaði á sinn fund er
fulltrúi stjórnmálafræðinema
á deildarfundum. En sá hinn
sami skrifaði einmitt stóra
grein í Morgunblaðið á sínum
tíma þar sem hann mótmaelti
harðlega ákvörðun Birgis ís-
leifs Gunnarssonar
menntamálaráðherra að setja
Hannes í lektorsstöðuna.
Hannes er því greinilega stað-
ráðirin í að vinna hæstu múr-
anna fyrst.B
Komið til mín
epcil
I Faxöfen 7, sími: 687733
Litir haustsins í gluggatjöldum.
Sígilt útlit og djarfur nútímasvipur á vönduðum hús-
gögnum eftir joekkta hönnuði og listamenn.
Epal er lifandi listasafn:
Gluggatjöld, óklæði, húsgögn og lampar.
Mótsstaður gamalla og nýrra hugmynda.
Epal er einstök verslun.
OPIO HUS
LAUGARDAG OG SUNNUDAG
1-18.00