Þjóðviljinn - 04.11.1988, Qupperneq 3
Guðmundur Kristjánsson, Sonja B. Jónsdóttir, Jóna Ingibjörg Jónsdóttir og dr. Mark Schoen, aðstandendur og ráðgjafar
Hugsjónar, nýs fyrirtækis í kvikmyndagerð hér á iandi, en á næstunni er meiningin að ráðast í gerð fimm fræðslumynda
um kynlíf. Mynd: ÞÚM.
Kynfrædslan
á myndbönd
Hugsjón, nýtt fyrirtæki í kvikmyndagerð, undirbýr gerð fimm
fræðslumynda um kynlíf. Dr. Mark Schoen: Kynfræðslan verður að
byrja snemma til að hún komi að sem mestu gagni
- Ég vann við gerð fræðslu-
mynda um kynlíf um 14 ára skeið,
og að vonum var margt um mis-
tök í því starfi í bland við hitt sem
vel gekk. En erindi mitt hér á landi
er að miðla af þessari reynslu
minni og leggja á ráðin um gerð
fræðsluefnis sem hentar hér á
landi, sagði Bandaríkjamaðurinn
Mark Schoen er við ræddum við
hann í gær, en hann er hér í boði
nýs fyrirtækis í kvikmyndagerð -
Hugsjón heitir það - en á vegum
þess stendur nú til að gera fimm
fræðslumyndir um kynlíf.
Schoen lauk doktorsgráðu í
kynfræðslu við New York há-
sícólann, og fjallaði ritgerð hans
um notkun myndbanda við kyn-
fræðslu. Hann rekur nú eigið
fyrirtæki sem leigir og selur kyn-
fræðslumyndir til skóla, kynlffs-
ráðgjafa og annarra sem annast
meðferð þessara mála, og alls al-
mennings.
- Við reynum að koma okkur
niður á það sem þörf er fyrir hér á
landi og hvað skipti mestu máli;
það sem brýnast er að fjalla um í
Bandaríkjunum þarf ekki að vera
það hér og öfugt, sagði Schoen.
En ég legg mest upp úr því með
komu minni hingað til lands að
koma heimspeki minni eða
grundvallarhugmyndum hvað
varðar kynfræðslu til skila: Kyn-
fræðsla verður að byrja snemma
til að hún komi að sem mestu
gagni. Ég held því fram að hún
eigi að hefjast um svipað leyti og
málþroskinn, við 18 mánaða
aldurinn eða svo.
- Þegar börnin eru að byrja að
læra að tala kennum við þeim orð
eins og auga, eyra, nef o.s.frv.,
en þegar kemur að kynfærunum
kennum við þeim ekki orð eins og
tippi og píka. Skilaboðin sem þau
fá er að maður tali ekki um þessa
hluti, og þegar þau eru orðin ung-
lingar hafa þau því lært að það sé
ekki viðeigandi að tala um kyn-
ferðismál, sagði Schoen.
- Ég tel því að við eigum að tala
um þessa hluti við börnin á eðli-
legan hátt þegar frá byrjun. Meg-
inmarkmiðið hlýtur alltaf að vera
að fá foreldrana til að átta sig á
þessu, og þeirra „frammistaða"
skiptir mestu, en skólarnir geta
hjálpað til, og þá þarf að vera til
staðar gott fræðsluefni, sagði
hann.
Sonja B. Jónsdóttir og Guð-
mundur Kristjánsson, tvö af
þremur aðstandendum Hugsjón-
ar, nýja kvikmyndafyrirtækisins,
sögðu að fræðslumyndirnar fimm
myndu fjalla um öruggara kynlíf,
unglinga og kynlíf, fatlaða og
kynlíf, aldraða og kynlíf, og að
gera gott kynlíf betra. Þau hafa
þegar rætt við fulltrúa heilbrigð-
isyfirvalda, heimilislækna, fólk
sem starfar innan skólakerfisins
og fleiri aðila, og segja viðbrögð-
in mjög á þá sömu lund að mikil
þörf sé fyrir fræðsluefni af þessu
tagi. Oft hafi staðið til að gera
átak í þessum efnum, en lítið orð-
ið úr. Þannig átti að auka mjög
gerð fræðsluefnis með rýmkun
löggjafar um fóstureyðingar árið
1975, en vart sé hægt að segja að
þess hafi orðið vart.
Hugsjónarfólk hefur ýmis
fræðsiuáform á prjónunum auk
kynfræðslumyndanna, og tiltóku
gerð mynda um áfengisvarnar-
mái og heilsurækt sem dæmi: Við
viljum sinna jákvæðum málum
og framleiða fræðandi mynd-
bönd, ekki síst fyrir heimiiið,
sagði Sonja. Enda ætlar Hugsjón
að brydda upp á því nýmæli að
bjóða almenningi myndirnar á
VHS-spólum með tíð og tíma, og
kemur þá til álita að koma á eins-
konar bókaklúbbakerfi í dreif-
ingarskyni.
Bens á spottprís
Ungur Reykvíkingur datt held-
ur betur í lukkupottinn nýver-
ið. Hann var í bílakaupahug-
leiðingum með 50 þúsund kall
upp á vasann. Á bílasölunni
rak hann augun í splunkunýj-
an Mercedes Bens, svokall-
aða forstjóratípu. ( þeim svif-
um kom pelsklædd frú út úr
bílasölunni, vatt sér að mann-
%ium og spurði hann hvort
honum litist á gripinn. Maður-
inn jánkaði því. Þá spurði hún
hann hvort hann vildi kaupa
bílinn. Hann sagðist nú tæp-
lega hafa efni á því. „Hvað
viltu borga fyrir hann?“ spurði
sú í pelsinum. Maðurinn gaf
ekkert út á það. í þann mund
kom bílasalinn út og sagði að
konan ætti þennan bíl, á því
væri enginn vafi, og að hún
, vildi selja hann fyrir hvað sem
væri. „Hvað viltu borga fyrir
gripinn?" Maðurinn sagði að
hann hefði hugsað sér að
kaupa bíl fyrir 50 þúsund
krónur og því kæmi hann alls
ekki til greina sem kaupandi.
„Við tökum því,“ sagði konan
og svo var gengið frá kaupun-
um. Seinna frétti maðurinn að
þetta væri eiginkona þekkts
manns í skemmtanaiðnaðin-
um og að hún hefði verið að
ná sér niðri á eiginmanninum,
en hann hafði skroppið til út-
landa með hjákonu sinni. Nú
ekur maðurinn um á algjöru
tækniviðundri sem kostar á
þriðju miljón króna. ■
Saltstríðinu
að Ijúka?
Stóri bróðir í skipabransan-
um, Eimskip, erþegarfarið að
hugsa gott til glóðarinnar, en
fyrirtækið er nú að endur-
skipuleggja allt sitt
saltsölukerfi. Stofnað hefur
verið nýtt fyrirtæki um saltsölu
Eimskips, Hafnarbakki hf., og
Bragi Ragnarsson, sem
stýrði útibúi félagsins í Rotter-
dam, hefur verið ráðinn for-
stjóri. Fyrirtækið er þegar
komið af stað með stórfram-
kvæmdir í Hafnarfirði þar sem
það er að reisa stærstu
saltgeymslu landsins, sem á
að taka í notkun fyrir ára-.
mótin. í stjórn Hafnarbakkans
sitja m.a. annars þeir Hörður
Sigurgestsson, forstjóri
Eimskips, og Halldór Jóns-
son, stjórnarformaður og
nefndakóngur. Þeir líta svo á
að saltstríðið sé þegar unnið,
Reykjanesverksmiðjan komin
á hausinn og Saltsala Finn-
boga farin að ramba...
Hótel til sölu
Einsog fram hefur komið hef-
ur Eimskipafélagið fjárfest
mjög grimmt að undanförnu.
Af þessu hafa ýmsir aðilar
haft pata, þar á meðal ýmsir
sem eiga í kröggum. Þannig
,munu óskabarni þjóðarinnar
hafa verið boðin tvö hótel til
sölu alveg nýverið, annars-
vegar Hótel Holiday Inn og
hinsvegar Hótel ísland. Eim-
skip mun þó hafa afþakkað
góð boð, enda sjálfir í starthol-
unum með nýja hótelbygg-
ingu við Skúlagötu. ■
á laugardag
handa þér, ef þú hittír
á réttu tölumar.
Föstudagur 4. nóvember 1988 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 3