Þjóðviljinn - 04.11.1988, Blaðsíða 15
Það eru ekki örfáir einstaklingar sem misnota
börn kynferðislega.
Hér á landi virðast þeir skipta hundruðum
Hvernig hugsa þessir menn?
Dagblaðið Information birti viðtal við danskan
pedda eftir sýningu heimildarmyndarinnar^^
„Svívirtu börnin“
sama hátt. Kannski vil ég þess-
vegna frekar vera með börnum.
Afleiðing fordómanna er sú að
því meiri sem fordæmingin er því
mun ákveðnari verður maður í
hneigð sinni, kannski til þess að
reyna að koma samfélaginu í
skilning um að við gerum ekkert
rangt.“
Hefurðu einhverntíman sæng-
að með stúlku?
Nei.
I Grikklandi til forna voru
peddar algengir, einnig meðal
gagnkynhneigðra. Grikkirnir
gátu dýrkað drengjaást án þess
að það bitnaði á konunum og
fjölskyldunum. Fyrst þetta var
mögulegt þá án þess að menn
biðu skaða af því, hlýtur svo að
vera einnig í dag.“
Skaðarekki
Nýlega komst upp um mann í
Danmörku, sem greiddi hóp
drengja peninga fyrir að fróa sér
fyrir framan kvikmyndatökuvél.
Jón telur ekki að það geti hafa
skaðað piltana á neinn hátt.
„Ég er andvígur vændi, en
hvaða aðra möguleika hafði þessi
maður?"
Er ekki hætta á að drengirnir
fái mjög brenglaðar hugmyndir
um kynlíf þegar þeir verða við
kröfum peddanna?
„Ef afleiðingarnar eru slæmar
fyrir drengina er það eingöngu
viðbrögðum umhverfisins að
kenna. Ef strákarnir vildu ekki
taka þátt í þessu þá rnyndu þeir
segja það. Ég geng út frá því að
allar aðstæður hafi verið mjög af-
slappaðar. Klám getur sérhver
strákur nálgast í sjálfsölum í
ístedgade."
Jón er þeirrar skoðunar að mis-
notkun barna í Austurlöndum sé
fyrst og fremst því að kenna að
litið er „á ástarsamband fullorð-
inna til barna“ sem glæpsamlegt
athæfi á Vesturlöndum.
„Ef við viljum koma í veg fyrir
kynferðislega misnotkun í
Austurlöndum verðum við að af-
nema aldurstakmörk við kyn-
mökum hér. Það verður að miða
við þroska en ekki aldur, en það
er mjög erfitt lagalega séð. í Hol-
landi eiga menn ekki á hættu að
vera lögsóttir ef sambandið er
með vilja beggja aðila.“
Börnin eru
kúguð
Einsog sjá má á þessu viðtali
réttlætir peddinn stöðugt gjörðir
sínar með því að vitna til þess að
börnin taki þátt í þessu af fúsum
og frjálsum vilja. I fæstum tilfell-
um er um það að ræða því viðtöl
við fórnarlömb kynferðislegrar
misnotkunar sýna næstum
undantekningarlaust að börnin
eru kúguð til þess að taka þátt í
athöfnunum. Oftast er haft í hót-
unum við barnið en í sumum til-
vikum er sakleysi fórnarlambsins
notað og í öðrum tilvikum eru því
boðnar gjafir eða greiðsla fyrir.
Sumstaðar er það neyðin sem
rekur börnin til þess að þýðast
gerandann.
í viðtalinu við Ingrid Leth
kemur fram að það eru nær
eigöngu karlmenn sem taka upp
hanskann fyrir peddana. Ein-
staka kynfræðingar og sálfræð-
ingar hafa reynt að mæla þeirn
bót.
„Það finnst mér vera ómerki-
leg leið til þess að slá sjálfan sig til
riddara rótækra skoðana," segir
Ingrid um slíkar yfirlýsingar.
En peddarnir eru til staðar og
eina leiðin til þess að koma í veg
fyrir að þeir komi fram vilja sín-
um er að upplýsa bæði börn og
fullorðna um þær hættur sem var-
ast beri.
-Þýtt og endursagt
úr Information/Sáf
Föstudagur 4. nóvember 1988 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 15