Þjóðviljinn - 11.11.1988, Síða 14
Óvissa hjá ASÍ
Enn er allt óljóst um skipan
næstu forystusveitar Alþýð-
usambandsins, en þing sarrv
bandsins hefst 21. nóv. n.k. Á
miðstjórnarfundi í gær svaraði
Ásmundur Stefánsson forseti
sambandsins engu um hvort
hann ætlaði í framboð til for-
Seta aftur. Talið er þó nokkuð
(víst að hann ætli að sitja
áfram, vilji láta ganga aðeins
á eftir sér. Síðustu daga og
vikur hefur Ásmundur verið á
ferðalagi vítt og breitt um
landið þar sem hann hefur
rætt við verkalýðsforingja um
þinghaldið. Meiri óvissa er um
varforsetaembættin. Hvorki
Björn Þórhallsson né Guð-
rlður Elíasdóttir munu gefa
kostásérog hafamargirverið
nefndir í þeirra stað. Fram-
sóknarmenn vilja ólmir kom-
ast í forystusveitina og hafa
lagt hart að Þóru Hjaltadóttur
forseta Alþýðusambands
Norðurlands, að hún gefi kost
e
örbylgjuofnarnir stórlækka matarreikninginn
í THOSIBA ofnunum getur
þú nefniiega eldað nær allan
mat með góðum árangri
■0- Þú matreiðir kjöt, fisk, græn-
meti og bakar leikandi létt.
^ 9 orkustillingar (hiti). Snerti-
takkar
•$■ Hraðþýðing smáskammta
-0- Einnar sekúndu nákvæmni
■$■ Deltawave dreifing á örbylgj-
unum gefur ótrúlega jafna ■
orkudreifingu og matreiðslu
■$• Snúningsdiskur snýr fyrir þig
matnum. (Ofninn má nota án
disksins)
99 mínútna og 99 sekúndna
tímastilling
•$■ 24tíma klukka
■0- Hápólerað stál að innan
27lítra. Fullnægirvenjulegu
heimili
■(£■ íslensk leiðbeiningahandbók
fylgir með ásamt 50 upp-
skriftum
-0- Hússtjórnarkennari okkar,
Dröfn H. Farestveit, býður
þér á kvöldnámskeið án end-
urgjalds. - Aðeins 10 eigend-
ur saman. íslensk nám-
skeiðsgögn fylgja
-0- Meira en 10 gerðir ofna.
Verð við allra hæfi. Góð kjör
-0- TOSHIBA - stærsti framíeið-
andi heims á örbylgjuofnum
tryggir þér það besta sem
völ erá.
0
ER 7820
Kr. 38.900,-
Kr. 36.950,-
Einar Farestveit &Co.hf.
BORGARTÚN 28, 8ÍMAR: (91) 1699S OO 822900 - NÆO BlLAtTASÐ)
á sér, en Þóra biðst eindregið
undan því. Kratar vilja halda
„sínu“ sæti og er Karl Steinar
Guðnason nefndur í því sam-
bandi, en hann hefur lýst því
yfir að hann fari ekki í forset-
aslag við Ásmund en væri þar
fyrir utan tilbúin í framboð.
Karl er hins vegar síður sáttur
við að setjast í varaforsetas-
tól. Sjálfstæðismenn vilja líka
halda í „sitt“ sæti og eru þar
nefndir til sögunnar þeir Guð-
mundur Hallvarðsson for-
maður Sjómannafélags
Reykjavíkur og Sigurður Ósk-
arsson frá Hellu. Nýjasti
kandidatinn í varaforsetastól
er hins vegar Vilborg Þor-
steinsdóttir formaður Snótar
frá Vestmannaeyjum og hefur
hún tekið vel í áskoranir um
framboð. Talið er víst að Vil-
borg muni fá örugga kosningu
í varaforsetastól og þá er farið
að þrengjast um þá sem telja
sig eiga kröfu til setu á ASl-
toppnum.
Nákvæmt
Ófrískt félag
Austantjaldsbúar, einkum
þeir í stjórnsýslunni, þykja ná-
kvæmir mjög í öllum vinnu-
brögðum og reglugerðarmál-
um. Þetta fékk blaðamaður á
ritstjórn Þjóðviljans að reyna á
dögunum þegar inn á borð til
hans barst með póstinum,
bréf frá austur-þýska sendi-
ráóinu. Það varekki innihaldið
sem sannaði regluna um ná-
kvæmnina, heldur utanás-
kriftin sjálf. Þar stóð skýrum
stöfum: Thjódviljinn, ritstjórn,
Sídumúla 6, (7 línur) 108
Reykjavík. Þetta með (7 línur)
má víst lesa um í símaskránni.
H AU STGJALDDAGI
HÚSNÆÐISLÁNA VAR 1. NÓVEMBER SL.
FORÐIST ÓÞARFA AUKAKOSTNAÐ
VEGNA DRÁTTARVAXTA
Æl HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ LAUGAVEGI 77 101 REYKJAVÍK S: 69 69 00
heimilisfang
Skinfaxi, málgagn Ungmenn-
afélagsins, upplýsir í nýjasta
tölublaði sínu að stjórn ung-
mennafélagsins Dagsbrúnar í
Austur-Landeyjum, sé ófrísk.
Engin alvarleg veikindi, held-
ur skipa stjórnina þrjár konur,
og mikið rétt, þær eru allar ó-
frískar.
Úr fyrir alla
í álinu
Fjölþjóðaauðhringurinn Alu-
suisse heldur upp á 100 ára
afmæli sitt á morgun. Alusu-
isse á nú rúmlega 100 fyrir-
tæki eða hlut í þeim.
Auðhringurinn starfar í 25
löndum í fjórum heimsálfum.
Heildarveltan í fyrra var uppá
nær 164 miljarða króna og
starfsmenn 23.600. Til að
minnast þessara tímamóta
hefur fyrirtækið ákveðið að
gefa öllum þessum starfs-
mönnum sínum armbandsúr
að gjöf og verða starfsmönn-
um í ísal afhent úrin sín í dag.
Ekki fylgir sögunni hvort úrin
er úr gulli, en hitt er á hreinu
að auðvitað eru þau
svissnesk.
Uppskipti í
erlendu deildinni
Fréttastjóri Sjónvarps, Bogi
Ágústsson er ekki öfunds-
verður þessa dagana, því
hann er búin að missa alla
helstu fréttamenn sína sem
sinntu erlendum fréttum burtu
frá Sjónvarpinu. Ögmundur
Jónasson hvarf nú síðast
skyndilega frá erlendu
deildinni, þegar hann sigraði
glæsilega i formannskpsn-'
ingu BSRB. Áður hafði Árni
Snævarr yfirgefið skerið og
Sjónvarpið og er sestur á
skólabekk í París og fyrrum
varafréttastjóri, Guðni
Bragason er kominn á bak
við skrifborð í Varnarmála-
deild utanrikisráðuneytisins
og hefur nýlega hlotið skipun
sem sendiráðsritari. Það er
því við því búið að ný andlit
sjáist á skerminum innan tíð-
ar.
Bráðfyndnar
þýðingar
Eftir að myndabandabyltingin
gekk í garð og frjálsu útvarps-
stöðvarnar fylgdu í kjölfarið
tóku menn eftir því að þýðing-
ar á sjónvarpsefni ýmiss kon-
ar fóru mjög' versnandi. Rétt-
hafar myndbanda reyndu að
fá sem ódýrast vinnuafl og því
fórsemfóren þessi hroðvirkni
f þýðingum gerði einnig vart
við sig í sjórlvarpsstöðvunum
tveimur, svo og í kvikmynda-
húsum. Hirts vegar er það
f remur fátftt að sjá slæmar vill-
ur eins og vjð á Nýju Helgar-
blaði rákumst á hjá kollegum
okkar á Vikunni. Þar var fyrir
skemmstu vitnað í frægar
kvikmyndastjörnur og þær
beðnar um að rifja upp eftir-
minnilegustu atvik lífs síns.
Haft var eftir leikkonunni
Saily Field að hún gleymi því
aldrei þegar henni var veittur
Óskarinn fyrir myndina The
Second Time! Hún hefur
augljóslega átt við þegar
henni var veittur Óskar í ann-
að skipti, því ekki vitum við til
þess að mynd með þessu
nafni hafi nokkru sinni verið
gerð. Sally Field á hins vegar
tvo Óskara, fyrir Norma Rae
og Places in the Heart og sú
síðarnefnda hefur því verið
...for the second time!
14 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ